Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2012, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2012, Blaðsíða 57
2.12. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57 Ljóðaunnendur hafa sannarlega ástæðu til að gleðjast yfir nýrri útgáfu á ljóðum Davíðs Stef- ánssonar. Þetta er úrval af því besta og það besta frá Davíð er ansi gott, eins og við vitum svo mæta vel. Unnendur þessa yndislega skálds ættu að geta fundið flest uppáhaldsljóð sín eftir Davíð í þessari bók. Silja Aðalsteinsdóttir sá um útgáf- una og ritar formála. Úrval af því besta frá Davíð Í bókinni Eldað og bakað í ofninum heima eftir Ingu Elsu Bergþórsdóttur og Gísla Egil Hrafnsson er lögð áhersla á að matreiða frá grunni og nota gott hrá- efni. Uppskriftirnar eru bæði nýjar og sígildar. Þarna eru uppskriftir af brauðum, píts- um, fisk-, kjöt- og grænmet- istréttum og ýmiss konar meðlæti ásamt ljúffengum eftirréttum og kökum. Einn- ig er að finna margvíslegan fróðleik um mat og mat- argerð og mismunandi bakstursaðferðum er lýst. Bókin er vitaskuld ríkulega myndskreytt. Höfundarnar hafa áður sent frá sér nýstárlegar bæk- ur um mat, þar á meðal Góður matur – gott líf í takt við árstíðirnar. Bókin Pítsur er sérlega skemmtilega hönnuð bók sem er í laginu eins og pítsa. Lesandanum er kennt að búa til pítsudeig og gefnar leið- beiningar um alls kyns sam- setningar á áleggi. Í bókinni eru rúmlega 50 ljúffengar uppskriftir. Hér er bók sem er líkleg til að slá í gegn hjá pítsuunnendum, sem eru fjölmargir hér á landi.. ELDAÐ FRÁ GRUNNI OG LEYNDARDÓMAR PÍTSUBAKSTUR Bókaflokkurinn Ísland í aldanna rás hefur notið mikilla vinsælda hér á landi. Nú er komin út ný bók í þessum flokki, Ísland í aldanna rás 2001-2010 en aðalhöfundar bókarinnar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Bergsteinn Sigurðsson. Þessi áratugur var sviptingasamur, þar var farið geyst og afleiðingin var efnhagshrun sem fær vitanlega sína umfjöllun eins og póli- tíkin. Hér er einnig fjallað um menningu og listir, tísku og lífsstíl, íþróttir og fjölmiðla, náttúruhamfarir og sakamál og fleira. Þarna er birt grein Hallgríms Helgasonar um bláu höndina, bréf Össurar Skarphéð- inssonar til framkvæmdastjóra Baugs, brot úr Borgarnesræðu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur og nokkrar sérgreinar, þar á meðal kafli eftir Guðna Th. Jóhannesson um Ólaf Ragnar Grímsson sem ber heitið Útrásarforsetinn og grein eftir Auðun Arnórsson um Evrópuumræðuna á ára- tugnum. Þetta er vegleg og eiguleg bók, upplýsandi og oft bráðskemmtileg. Um leið er ljóst að á þessum áratug voru ansi mörg mistök gerð. ÆVINTÝRALEG ÁR Í MÁLI OG MYNDUM Ísland í aldanna rás 2001-2010 er komin út og bókin er afar fjölbreytt að efni. Sjóræninginn er skáldævisaga Jóns Gnarrs. Hann lýsir afar erfiðum unglingsárum þar sem hann var þjakaður af vanmeta- kennd, fannst hann vera utan- garðs og varð fyrir hrottalegu einelti. Frásögnin einkennist af sláandi lýsingum á einsemd unglingsdrengs. Þetta er afar læsileg bók, gríðarlega áhrifa- mikil og sérlega einlæg. Hún er einstaklega þarft innlegg í um- ræðuna um einelti og ætti að lesast í skólum. Bók sem gleymist ekki svo glatt. Minnisstæðar frásagnir Jóns Gnarrs Erfið ung- lingsár, róm- antík og morð ATHYGLISVERÐAR BÆKUR JÓN GNARR SENDIR FRÁ SÉR MAGNAÐA BÓK UM ERFIÐ UNGLINGSÁR SÍN. RAGNHEIÐUR GESTSDÓTTIR SKRIFAR EINNIG UM UNGLINGA OG ERFIÐLEIKA. RÓMANTÍSKAR SÁLIR HLJÓTA AÐ LEITA Í LJÓÐ DAVÍÐS STEFÁNSSONAR EN ÞEIR SEM VILJA LESA UM GLÆPI NÆLA SÉR Í MEISTARANN. Hans Rosenfeldt er handritshöfundur sjónvarpsþáttanna vinsælu Brúin. Hann er einnig, ásamt Michael Hjorth, höfundur spennusög- unnar Meistarinn. Áður hafa þeir félagar sent frá sér Maðurinn sem var ekki morðingi sem naut töluverðra vinsælda hér á landi. Aðalpersónan í Meistaranum er réttarsálfræðingurinn Sebastian Bergman, sem er ekki með öllu geðfelldur persónuleiki og kann lítt á samskipti við annað fólk. Hann lendir í verulegum vanda þegar í ljós kemur að hrottaleg morð á konum tengjast líferni hans. Þetta er þrælspennandi saga sem rígheldur lesandanum. Þeir sem vilja hrollvekjandi glæpasögur láta þessa bók ekki framhjá sér fara. Hinir viðkvæmu lesa bara eitthvað annað. Þrælspennandi saga um hrottaleg morð Myndin í speglinum eftir Ragnheiði Gestsdóttur er unglingabók um Rúnu sem er að fermast og Helgu sextán ára systur hennar sem virðist eiga framtíðina fyrir sér sem fyrirsæta. Rúna kemst að því að Helga á sér leyndarmál. Þetta er lipurlega skrifuð bók með brýnum boðskap og afar viðkunnanlegri aðalpersónu, Bók sem ætti að falla í góðan jarðveg hjá unglingsstúlkum. Leyndarmál unglingsstúlku * Engan uppgjafartón, það er svomiðstéttarlegt.Greifynjan af Grantham í Downton Abbey BÓKSALA 18.-24. NÓVEMBER Allar bækur Listinn er byggður á upplýsingum frá Rannsóknasetri verslunarinnar 1 Fimmtíu dekkri skuggarE L James 2 ReykjavíkurnæturArnaldur Indriðason 3 KuldiYrsa Sigurðardóttir 4 Gísli á UppsölumIngibjörg Reynisdóttir 5 HáriðTheodóra Mjöll 6 ÚtkallÓttar Sveinsson 7 Stóra Disney heimilisréttabókinDisney 8 Aukaspyrna á AkureyriGunnar Helgason 9 Eftirréttir SolluSólveig Eiríksdóttir 10 ReykjavíkurnæturArnaldur Indriðason Uppsafnað frá áramótum 1 Iceland Small WorldSigurgeir Sigurjónsson 2 Grillréttir HagkaupsHrefna Rósa Sætran 3 Heilsuréttir fjölskyldunnarBerglind Sigmarsdóttir 4 Fimmtíu gráir skuggarE.l. Jones 5 Heilsuréttir HagkaupsSólveig Eiríksdóttir 6 Eldar kviknaSuzanne Collins 7 HungurleikarnirSuzanne Collins 8 EnglasmiðurinnCamilla Läckberg 9 SnjókarlinnJo Nesbø 10 ReykjavíkurnæturArnaldur Indriðason MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR Vogun vinnur, vogun tapar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.