Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2012, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.12. 2012
Heilsa og hreyfing
Hreyfing er holl eins og mann-
fólkið veit, en öllu má ofgera.
Bandarískir hjartasérfræðingar
nefna í nýrri grein í tímaritinu
Hjartanu (Heart) að ekki sé
heppilegt fyrir fólk að hlaupa
maraþon oft. Best sé að renna
vegalengdina aðeins í eitt skipti,
eða nokkrum sinnum, því þau
miklu átök á hjartað sem slíkri
raun fylgi, geti verið lífshættuleg. James O’Keefe og Carl Lav-
ie rifja upp að árið 490 fyrir Krist hafi hermaðurinn Feidippi-
des hlaupið frá borginni Maraþon til Aþenu að segja fréttir af
stórsigri Grikkja í stríðinu við Persa. Hann var sendur fót-
gangandi þessa 42 km leið, en kastaði af sér herklæðunum og
hljóp. „Sigur! Við sigruðum!“ kallaði Feidippides þegar á leið-
arenda kom, en féll svo örendur niður. O’Keefe og Lavie
segja stutta og snarpa áreynslu henta hjartanu best. Of mikil
áreynsla geti hreinlega flýtt fyrir öldrun og því að fólk fari fyrr
en ella í gegnum hið eina, sanna endamark.
HREYFING
Ekki hlaupa á þig!
AFP
Breskir sérfræðingar hvetja fólk til
þess að ganga eða hjóla, í stað þess
að fara á bílnum, ef það þarf að
skreppa spölkorn. Sé vegalengdin
ekki lengri en svo að hægt sé að
ganga hana eða hjóla á 15-20 mín-
útum ætti fólk að láta bílinn vera.
Frá þessu var greint í fréttum breska
ríkisútvarpsins, BBC, fyrir helgina.
Bretar eru margir hverjir komnir
langt yfir kjörþyngd og benda sér-
fræðingarnir á að hreyfing af því tagi sem nefnd er geti verið
gríðarlega mikilvæg í baráttunni við þann „þögla faraldur“
sem hreyfingarleysi almennings sé í raun. Er skorað á yfirvöld
hvarvetna á Stóra-Bretlandi að leggja sérstakar göngu- og
hjólaleiðir, og fyrirtæki og skólar beðin um að hvetja fólk til
þess að ganga eða hjóla.
Skv. frétt BBC halda breskir sérfræðingar því fram að
hreyfingarleysi valdi orðið jafn mörgum dauðsföllum árlega í
Bretlandi og reykingar.
VENJUR
Gangið eða hjólið
Morgunblaðið/Eggert
Hægt er að komast að því með
einföldum hætti við fæðingu
hvort barn muni eiga á hættu að
glíma við offitu. Þetta fullyrða
breskir sérfræðingar, skv. BBC.
Offita barna getur leitt til ým-
issa kvilla, t.d. sykursýki 2 og
hjartasjúkdóma. Breskir vís-
indamenn kynntu sér gögn um
rúmlega 4.000 finnsk börn, fædd
1986, auk rannsókna frá Ítalíu og
Bandaríkjunum, og komust að
því að fæðingarþyngd barnsins og það, hvort móðirin reyki,
gefi til kynna með nokkurri vissu hvort barnið sé í áhættu-
hópi. Almennt hefur verið talið að erfðir gæfu mun betri
mynd af því, en í ljós kom að aðeins í einu tilfelli af hverjum
10 má rekja vandamálið til erfðaþátta sem hafa áhrif á
óvenjulega mikla matarlyst. Offita barna eykst stöðugt og
gert er ráð fyrir að 17% pilta og 15% stúlkna í Bretlandi séu
nú allt of þung.
OFFITA BARNA
Einföld lausn fundin?
Morgunblaðið/ÞÖK
J
ógúrt einkennir oftar en ekki
sætur ávaxtakeimur en hann
kemur í flestum tilfellum til af
notkun viðbætts sykurs eða
annars konar sætuefna, í bland
við ávexti og önnur bragðefni, sem
bætt er við mjólkina í fram-
leiðsluferlinu.
Fyrrnefndir bragðbætar hafa ver-
ið mikið í umræðunni, ekki síst í ljósi
þess hve sigið hefur á ógæfuhliðina
hvað varðar neyslumynstur vaxandi
fjölda Vesturlandabúa. Eftir því sem
umræðan um þykknandi holdarfar
barna jafnt sem fullorðinna hefur
gerst háværari er von að foreldrar
velti einnig í auknum mæli fyrir sér
næringarinnihaldi vara sem inni-
halda sykur og sætuefni en hefur
þótt tiltölulega saklaust að gefa ung-
viðinu í gegnum tíðina, svo sem fyrr-
nefnda jógúrti, skyr og fleira.
6% sykurs kemur út mjólk-
urvörum
Í ráðleggingum Landlæknisembætt-
isins um hollt mataræði og næring-
arefni, fyrir börn og fullorðna frá
tveggja ára aldri, sem finna má á vef
embættisins, er mælst til þess að
viðbættur sykur sé ávallt innan við
10% af daglegri hitaeininganeyslu
mannsins.
Til viðbætts sykurs telst ekki ein-
ungis hvítur sykur heldur einnig ým-
is síróp, hunang, hrásykur, púð-
ursykur og ávaxtasykur (frúktósi)
sem dæmi.
Í nýlegri landskönnun sem gerð
var á mataræði fullorðinna hér á
landi á árunum 2010-2011, kom fram
að af þeim viðbætta sykri sem fólk
neytir að staðaldri koma 6% úr
mjólkurvörum. Hin 94% var að rekja
til viðbætts sykurs úr öðrum kol-
vetnaríkum neysluvörum á borð við
gosdrykki, sætindi o.fl.
Af niðurstöðunum að dæma væri
fljótt á litið hægt að draga þá álykt-
un að framlag sykraðra jógúrtvara
til sykurneyslu mannsins hefur tak-
mörkuð áhrif og því fátt sem mælir
gegn slíkri neyslu í hófi. Málið er
hins vegar ekki alveg svo einfalt.
Sætuefnin umdeildu
Í viðleitni til að framleiða hollari en
engu að síður bragðbættar jóg-
úrtvörur, hafa framleiðendur víða
leitað fanga í gegnum tíðina. Ein leið
er að notast við tilbúin leyfð sætu-
efni, sem háð eru „reglubundnu eft-
irliti og má einungis nota eftir að ör-
yggi þeirra hefur verið staðfest með
tilheyrandi rannsóknum og mati á
gögnum þar af lútandi.“ (heimild:
www.mast.is)
Sykra þau náttúrulegt bragð vara
og það margfalt, án þess þó að kol-
vetnis- og hitaeiningainnihald rjúki
upp úr öllu valdi.
Eitt þeirra þekktasta og jafnframt
umræddasta í seinni tíð, er efnið
aspartam, einnig þekkt sem Nutras-
weet, Canderel o.fl.
Að sögn Ingibjargar Gunn-
arsdóttur, prófessors við Matvæla-
og næringarfræðideild heilbrigðisvís-
indasviðs Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss, öðluðust sætuefnin upp-
haflega vinsældir en þau voru
hugsuð til að auka fæðuframboð og
vöruúrval, einkum fyrir þá sem var
ráðlagt að forðast sykur m.a. vegna
sykursýki. Síðan hefur það breyst
með framförum í lyfjagjöf og öðru.
Eftir því sem umræðan um óhóflega
aukningu á neyslu viðbætts sykurs í
hinum vestræna heimi færðist í
aukana á níunda og tíunda áratugn-
um, urðu fleiri þeirrar skoðunar að
af tvennu illu færi betur að þetta
mikla neyslumagn innihéldi fremur
gervisætuefni en hreinan sykur.
Bendir Ingibjörg á að skoðanir eru
skiptar um hvort ekki hefði fremur
átt að beina kröftunum að því að
stuðla að breyttu neyslumynstri
strax þá.
Breyting hefur hins vegar orðið á
Um hollustu eða
óhollustu jógúrtar
Í VAXANDI MÆLI HAFA SPURNINGAR VAKNAÐ UM RAUNVERULEGA HOLLUSTU HINNA ÝMSU MATVÆLATEGUNDA SEM LÖNGUM
HEFUR VERIÐ AÐ FINNA Í ELDHÚSUM ÍSLENSKRA HEIMILA. HANDHÆGAR MJÓLKURVÖRUR Á BORÐ VIÐ JÓGÚRT HAFA EKKI FARIÐ VARHLUTA
AF ÞEIRRI VITUNDARVAKNINGU SEM ORÐIÐ HEFUR, EINKUM OG SÉR Í LAGI HVAÐ VARÐAR SÆTUINNIHALD.
Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is
SÆTUEFNI Í MJÓLKURVÖRUM
Morgunblaðið/Styrmir Kári