Morgunblaðið - 13.03.2013, Side 7

Morgunblaðið - 13.03.2013, Side 7
FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2013 Mörkum stefnuna... Iðnþing 2013 Iðnþing Samtaka iðnaðarins verður haldið á Hilton Reykjavík Nordica fimmtudaginn 14. mars kl. 13–16. Á Iðnþingi verður fjallað um þau efnahagslegu tækifæri og ógnanir sem Ísland stendur frammi fyrir á næstu árum. FUNDURINN ER ÖLLUM OPINN Skráning á www.si.is Pallborðsumræður Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs Svana Helen Björnsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins Brad Burnham, Managing Partner hjá Union Square Ventures Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar Orri Hauksson, framkvæmdastjóri SI, stýrir umræðum Fundarstjóri er Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, forstjóri Actavis Dr. Laurence C. Smith, prófessor í jarð- og geimvísindum við UCLA Matthias Krämer, framkvæmdastjóri hjá BDI, Samtökum iðnaðarins í Þýskalandi Dagskrá: Erlendir fyrirlestrar verða túlkaðir á íslensku H VÍ TA H Ú SI Ð /S ÍA – 13 -0 13 8 Gunnar Kristjánsson Grundarfirði Breski sendiherrann á Íslandi, Stuart Gill, kom í heimsókn til Grundarfjarðar í vikunni og kynnti sér starfsemi tveggja fyrirtækja, Soffaníasar Cecilssonar og FISK, auk þess sem hann skoð- aði Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Að þessu loknu fór hann í hvalaskoðun með Láka Tours. Sendiherrann vildi kynna sér Grundarfjörð en fjöldi breskra ferðamanna hefur komið hing- að í skipulögðum ferðum í vetur í hvalaskoðun. Þá hafði hann sérstakan áhuga á að sjá starf- semi sjávarútvegsfyrirtækja. Gill sagðist að skoðunarferðinni lokinni vera afar ánægður með ferðina og hafa náð mörgum góðum myndum. Ánægja með skoðunarferðir Daglegar ferðir hafa verið í hvalaskoðun á vegum Láka Tours frá því í febrúarbyrjun. Að sögn Gísla Ólafsson framkvæmdastjóra hefur ríkt almenn ánægja meðal farþega með þessar skoðunarferðir og háhyrningar láta sjá sig í hverri ferð. Kynnti sér sjávarútveg og fór í hvalaskoðun Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson Hvalaleikur Háhyrningar léku aðalhlutverkið í hvalaskoðunarferð og fjöllin sáu um leikmynd. Tveir karlmenn frá Litháen, ann- ar um þrítugt en hinn á fimmtugs- aldri, sitja nú í gæsluvarðhaldi í tengslum við fíkniefnamál sem er til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Mennirnir, sem komu hingað frá Bretlandi í síðustu viku, voru handteknir sl. föstudag og úr- skurðaðir daginn eftir í gæslu- varðhald til 15. mars, en annar þeirra reyndist hafa innvortis um 500 grömm af ætluðu kókaíni. Þriðji maðurinn, Íslendingur á þrítugsaldri, var handtekinn á mánudag, grunaður um aðild að málinu. Hefur hann einnig verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 15. mars. Með hálft kíló af kókaíni innvortis Pólskur karlmaður á fertugsaldri neitaði í vikunni sök fyrir Héraðs- dómi Reykjaness en hann er ákærð- ur fyrir að hafa staðið að ólögmæt- um innflutningi á tveimur kílóum af amfetamíni ætluðu til söludreif- ingar hér á landi í ágóðaskyni. Maðurinn, sem fæddur er 1980 og er pólskur ríkisborgari, kom til landsins frá Póllandi 2. janúar í ár. Hann var handtekinn við komuna til landsins eftir að í fórum hans fundust tvö kíló af amfetamíni falin í þremur dósum af barnamjólkur- dufti í farangri hans. Samkvæmt því sem kemur fram í ákæru er hægt að framleiða rúm ellefu kíló af amfetamíni úr efn- unum, miðað við 5,8% styrkleika sem er hefðbundinn svonefndur neyslustyrkur. Amfetamín í mjólkurduftsdósum Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgar- svæðinu, flytur erindi um rann- sóknarheimildir lögreglu á há- degisfundi Varð- bergs á morgun, fimmtudaginn 14. mars, í fyrir- lestrasal Þjóð- minjasafns klukkan 12 til 13. „Miklar umræður hafa verið und- anfarið um rannsóknarheimildir lögreglu. Frumvarp innanríkis- ráðherra um breytingu á ákvæði um símahlustun hefur legið fyrir þingi í allan vetur án þess að hljóta afgreiðslu úr þingnefnd. Nefndin hefur hins vegar samþykkt tillögu um að fela innanríkisráðherra að vinna og leggja fyrir alþingi frum- varp sem veitir lögreglu sambæri- legar heimildir og lögregla annarra norrænna ríkja hefur til að rann- saka og grípa til fyrirbyggjandi að- gerða gegn skipulagðri glæpastarf- semi,“ segir í fréttatilkynningu. Á Varðbergsfundinum gefst tækifæri til að ræða þessi mál við yfirmann stærsta lögregluembættis landsins. Ræða rannsóknar- heimildir lögreglu Stefán Eiríksson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.