Morgunblaðið - 13.03.2013, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Jákvæðni Hrefna Guðmundsdóttir er sálfræðingur hjá Vinnumálastofnun og formaður Félags um jákvæða sálfræði.
sálfræði er til komin frá leshópi sem
Ásdís Olsen, sérfræðingur í lífs-
leikni, myndaði og Hrefna var með-
limur í. Leshópurinn sat áfanga um
jákvæða sálfræði hjá Tal Ben Shah-
ar, sem slegið hafði í gegn í Oxford
þar sem Hrefna lagði stund á meist-
aranám sitt. Hópurinn hittist reglu-
lega árin 2009-2010 og ræddi fræðin
hjá Tal og gerði vikuleg verkefni. Í
framhaldi hóaði Hrefna saman hópi
áhugasamra um viðfangsefnið í byrj-
un árs 2011. Þar kom saman fagfólk
úr ýmsum stéttum með sameigin-
legan áhuga á efninu. Á þessum
fundi var stofnaður undirbúnings-
hópur sem vann í því að setja form-
lega á laggirnar félag um jákvæða
sálfræði. Síðar um árið gekk það eft-
ir og Félag um jákvæða sálfræði
varð til. „Þetta var einstakur hópur
og hefur komið að félaginu frá upp-
hafi.“
Fyrsti heiðursfélagi félagsins
var valinn á síðasta fundi og var það
Edda Björgvinsdóttir, leikkona og
verðandi menningarfræðingur, sem
varð þess heiðurs aðnjótandi. Edda
hefur verið ötul í umræðunni um
mikilvægi húmors og gleði í lífi fólks,
auk þess að hafa glatt þjóðina í ára-
tugi. Hrefna hefur einnig lagt mikið
upp úr áhrifamætti hlátursins en
hún er hlátursjógaleiðbeinandi og
nam þá list hjá Ástu Valdimars-
dóttur.
Leita að öflugu fólki í stjórn
„Það er einvalalið með mér í
stjórn félagsins og við viljum fá fleiri
með okkur. Við erum að leita að
kröftugu fólki, með áhuga á já-
kvæðri sálfræði. Fólki, sem getur
lagt okkur lið við að byggja upp al-
vöru fræðasamfélag,“ segir Hrefna.
Félagið er opið öllum og vill það
koma fræðsluefni og upplýsingum
um málefnið inn í samfélagsumræð-
una og vekja athygli á mikilvægi
þess að takast á við verkefni með já-
kvæðu hugarfari. Aðalfundur félags-
ins verður haldinn 5. apríl næstkom-
andi. Þá mun dr. María K. Jóns-
dóttir taugasálfræðingur segja frá
áhrifum á líkamann. Hrefna hvetur
alla fagaðila sem og annað áhugafólk
um jákvæða sálfræði til að kynna sér
starfsemi félagsins og koma á fund-
inn.
Nánari upplýsingar má finna á
jakvaedsalfraedi.is og hægt er að
finna síðu félagsins á Facebook.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2013
Sýning á fyrstu tískulínu Ólafs Helga
Ólafssonar verður opnuð fimmtudag-
inn 14. mars kl. 17 en sýningin fer
fram í Menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi. Sýningin er liður í Hönnunar-
Mars. Ólafur Helgi sýnir útskriftar-
verkefni sitt Starina Couture en hann
útskrifast í tísku- og textílhönnunar-
námi frá Nuova Accademia di Belle
Arti Milano í september á þessu ári.
Tískulínan byggist á BA-ritgerð Ólafs
Helga sem nefnist The Fantastic
World of Fantasy an Haute Couture
og er hún innblásin af ævintýraheimi
hans og táknar sjálfsmynd hans.
Ólafur Helgi hefur lengi haft áhuga
á starfi leikhússins og þekkir störf
þess ágætlega. Hann tók virkan þátt í
leiklistarlífi Fjölbrautaskólans í
Breiðholti og hafði þar meðal annars
umsjón með búningum. Ólafur Helgi
hefur séð um ýmsar uppsetningar á
dragsýningum síðasta áratug ásamt
því að hanna búning og sjá um
heildarímynd dragdrottningarinnar
Starínu.
HönnunarMars
Drag Dæmi um hönnun Ólafs.
Ævintýraleg út-
skriftarsýning
100%made in Italy
www.natuzzi.com
Við bjóðum velkomna ítalska hönnun
Natuzzi endurspeglar fullkominn samhljóm og kjarna Ítalskrar hönnunar.
Það er æðislegt að upplifa hlýja og kósý stemningu í Natuzzi umhverfi.
Staður þar sem fólki líður vel.
Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is
Komið og upplifið nýja Natuzzi gallerýið okkar