Morgunblaðið - 13.03.2013, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 13.03.2013, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2013 Fannfergi og aftakaveður setti sam- göngur úr skorðum víða í norðvest- urhluta Evrópu í gær og voru þús- undir án rafmagns. Þá sat fjöldi fólks fastur í bifreiðum sínum í langan tíma vegna ófærðar. Viðvaranir voru gefnar út í nærri þriðjungi héraða í Frakklandi en í Normandí og á Bretagne-skaga voru um 70 þúsund heimili án rafmagns og neyddust fleiri en 2.000 ökumenn til að dvelja næturlangt í bifreiðum sínum á ófærum vegum. Í París voru notendur almenningssamgangna hvattir til þess að bíða veðrið af sér heima en fjórðungi alls flugs um Charles de Gaulle- og Orly-flugvell- ina var aflýst. Veðurstofan Meteo France lýsti snjófallinu sem „merkilegu“ á þess- um tíma árs og varaði við því að lík- lega yrðu viðvaranir áfram í gildi næstu daga, fram á miðvikudag hið minnsta. Hundruð ökumanna sátu föst í marga klukkutíma í Bretlandi en í Þýskalandi voru sömuleiðis miklar tafir á samgöngum og var 335 flug- ferð um flugvöllinn í Frankfurt m.a. aflýst. Einn lést og nokkur fjöldi slasaðist í umferðaróhöppum á ísi- lögðum vegum landsins, að sögn lög- regluyfirvalda. Í Belgíu sátu bílar fastir á 1.600 km af hraðbrautum landsins vegna skafrennings og íss en rútu- og lest- arferðum var aflýst í Brussel og víð- ar. Þá mynduðust miklar umferðar- teppur á hraðbrautum í suðurhluta Hollands, sem hömluðu samgöngum til og frá Belgíu. Hollenskir fjölmiðlar sögðu frá því að 11. mars síðastliðinn hefði verið sá kaldasti í suðurhluta landsins síðan 1928 og spáðu veðurfræðingar því að kuldamet myndu falla á næstu dög- um. holmfridur@mbl.is Samgöngur úr skorðum í Norðvestur-Evrópu  Þúsundir ökumanna fastar í Frakklandi og víðar AFP Umferð Talsverð röskun varð á samgöngum víða í Norðvestur-Evrópu í gær og fyrrinótt en fannfergi hamlaði umferð og fjölda flugferða var frestað. Lögregluyfirvöld í Serbíu hafa endurheimt mál- verk eftir hollenska listmálarann Rembrandt sem stolið var af safni í bænum Novi Sad árið 2006. Fjórir voru handteknir í tengslum við stuldinn í Sremskra Mitrovica, um 50 km vestur af Belgrad. Þetta mun ekki vera í fyrsta sinn sem málverk- inu, Portrait of the Father, er stolið en það er met- ið á um 2,8 milljónir evra. Í sama ráni voru þrjú önnur málverk numin á brott; eftir Rubens, Fran- cesco Mola og óþekktan þýsk-hollenskan málara. Þjófarnir voru tveir, grímuklæddir og vopnaðir og yfirbuguðu tvo starfsmenn safnsins áður en þeir flúðu með þýfið. Ekk- ert hinna verkanna hefur fundist. SERBÍA Fundu stolið málverk eftir Rembrandt sem metið er á um 2,8 milljónir evra Verðmætt Safngestur skoðar frægt olíumálverk eftir Rembrandt. Er göngutúrinn erfiður? Nánar á heilsa.is Járnskortur getur verið ein ástæðan Floradix og Floravital hjálpa fólki til að viðhalda góðri heilsu og heilbrigði. Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Nýi maskarinn Le volume de Chanel er kominn Gréta Boða kynnir nýja maskarann Le volume de Chanel sem gefur flotta fyllingu í fyrstu stroku með nýja fjaðurburstanum "snowflakes". Einnig verður kynning á nýjum augnskuggum og blýöntum. Verið velkomin. 20% afsláttur af CHANEL kynningardagana Kynning í Snyrtivöruversluninni Glæsibæ dagana 13.,14. og 15. mars Á Nyepi, degi þagnarinnar, stunda indónesískir Hindú- ar agaða sjálfsíhugun en í aðdraganda dagsins fara þeir hins vegar mikinn í litríkum skrúðgöngum þar sem ófrýnilegum líkneskjum er haldið á lofti og þau síðan brennd. Líkneskin tákna hið illa en með því að brenna þau er öllu hinu neikvæða og djöfullega í heim- inum eytt á táknrænan hátt. Að því loknu getur Nyepi loks gengið í garð. Neikvæðum og djöfullegum öflum eytt AFP

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.