Morgunblaðið - 13.03.2013, Page 31

Morgunblaðið - 13.03.2013, Page 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2013 ✝ Ástheiður FjólaGuðmunds- dóttir fæddist á Sauðárkróki 27. júní 1940. Hún lést á bráðadeild Land- spítalans 28. febr- úar 2013. Foreldrar henn- ar voru Guðmundur J. Jóhannesson frá Móbergi, f. 1904, d. 1981 og Valný M. Benediktsdóttir frá Branda- skarði, f. 1898, d. 1990. Alsystk- ini Ástheiðar eru: Margeir Bragi, f. 1936 og Friðgeir Hreinn, f. 1938. Hálfbróðir, sam- mæðra, er Valdimar Eyberg, f. 1927, d. 1989 . Hálfsystkini, sam- feðra eru: Jón Helgi, f. 1935, Sæ- dís Eygló, f. 1942, Helga Þórný, f. 1942, Jón Þorgeir, f. 1944, d. 1977, Guðgeir Heiðar, f. 1956, Valgeir Hörður, f. 1958, d. 1992, Arngeir Hjörtur, f. 1959, El- ísabet Kristín, f. 1960, Birgir Hlíðar, f. 1963, Gerður, f. 1965, Rannveig, f. 1967, Bryndís, f. 1969 og Ásdís, f. 1972. 1964 giftist Ástheiður Yngva Marinó Gunnarssyni, bónda í Sandvík, Bárðardal, f. 1915, d. 1996. Foreldrar hans voru Gunn- ar Tryggvi Marteinsson, f. 1878, d. 1925 og Þóra Gunnarsdóttir, Atli verkamaður, f. 1981, í sam- búð með Þóreyju Erlu Sigurð- ardóttur skrifstofukonu, f. 1981, börn þeirra: Róbert Ingi, f. 2001 og Silli Þór, f. 2011. 3) Gunnar Jón Yngvason viðskiptafræð- ingur MBA, f. 20.6. 1965. Hans börn og Sigrúnar Gestsdóttur: a) Birta Rós nemi, f. 1995 og b) Yngvi Marinó nemi, f. 1997. 4) Þóra Valný Yngvadóttir verk- efnastjóri, f. 7.11. 1966, í sambúð með Júlíusi Ingólfssyni verk- stjóra, f. 1964. Ástheiður ólst upp á Miklabæ og Syðstu-Grund í Blönduhlíð, Skagafirði. Hún fór til Reykja- víkur 14 ára og var þar til 17 ára aldurs þegar hún flutti norður og síðan í Bakkasel í Öxnadal með frumburð sinn Aðalstein. Þaðan fluttu þau til Akureyrar og voru í 5 ár þar til Ástheiður fór sem ráðskona til Yngva. Þau giftu sig og eignuðust 3 börn. Árið 1973 flutti fjölskyldan í Ás- garð í Garðabæ. Þrem árum síð- ar keyptu þau húsið Hraungerði í sama bæ og bjó Ástheiður þar næstu 23 árin. Þau Yngvi slitu samvistum 1979. Hún var ein- stök hannyrðarkona og hand- prjónaði nokkur hundruð lopa- peysur til að selja. Einnig prjónaði hún kjóla, peysur og ýmislegt á fjölskylduna. Hún saumaði föt, bjó til glerlistaverk og málaði á tau. Hún saumaði út í myndir og húsgögn. Síðustu ár- in bjó Ástheiður í Brekkubyggð 17 í Garðabæ. Útför Ástheiðar Fjólu fór fram í kyrrþey. f. 1878, d. 1957 frá Kasthvammi í Lax- árdal. Börn Ást- heiðar eru: 1) Að- alsteinn Dalmann Stefánsson flokks- stjóri, f. 22.3. 1958, giftur Þórdísi Más- dóttur sjúkraliða, f. 1958. Þeirra börn: a) Hildur fé- lagsráðgafarnemi, f. 1983, gift Eiði Gunnari Bjarnasyni kerf- isfræðinema, f. 1978, börn þeirra: Bjarni Gunnar, f. 2002 og Emil Fannar, f. 2005. b) Valný arkitektanemi, f. 1985 c) Ottó Freyr leikskólastarfsmaður, f. 1989 og d) Aðalheiður nemi, f. 1998. 2) Inga Hildur Yngvadótt- ir, fótaaðgerða- og snyrtifræð- ingur, f. 28.2. 1964, gift Vigni Baldri Almarssyni verkstjóra, f. 1960. Þeirra börn: a) Sara Dögg afgreiðslustúlka, f. 1991, kærasti Snæbjörn Ármann Björnsson verkamaður, f. 1988 b) Gabríel Daði nemi, f. 1994. Sonur Ingu með Ingólfi Snorra Bjarnasyni c) Daníel Bjarni vélstjóri, f. 1982, í sambúð með Guðfríði Her- mannsdóttur hjúkrunarfræði- nema, f. 1982, börn þeirra: Matt- hías Freyr, f. 2009 og Dagur Logi, f. 2012. Sonur Vignis d) Um þessar mundir kveð ég þig, elsku móðir mín, og geri ég það með miklum söknuði. Það er svo erfitt að trúa því að þú sért farin frá mér, þú varst mér svo traustur vinur sem ég gat alltaf leitað til. Ég er þakklátur fyrir þann góða tíma sem við áttum saman og fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig og mína fjölskyldu. Þú verður alltaf efst í huga mínum. Ég mun geyma allar minningarnar sem við áttum saman í gegnum tíðina í hjarta mínu. Guð veri með þér, alltaf. Elskulega mamma mín mjúk er alltaf höndin þín tárin þorna sérhvert sinn sem þú strýkur vanga minn. Þegar stór ég orðinn er allt það skal ég launa þér. (Sig. Júl. Jóhannesson.) Hvíl þú í friði. Þinn elskulegi sonur, Aðalsteinn Stefánsson. Elsku mamma mín lést á bráðadeild Landspítalans umvaf- in ástvinum sínum á afmælisdag- inn minn 28. febrúar. Það er svo ótrúlegt að þú skul- ir vera farin, alltof stuttur tími leið frá því að þú greindist þar til þú varst farin frá okkur. Ég á eftir að sakna þín mikið og allra okkar góðu stunda, eins og föstudaganna okkar er við fór- um að versla saman og fengum okkur svo kaffi og með því á eftir, ferðanna niður í Smáralind og á kaffihús og síðast en ekki síðst er þú komst röltandi til mín í heim- sókn, sem þú gerðir svo oft. Ég kveð þig elsku mamma mín með tárum og góðum minning- um. Ástarþakkir fyrir allt sem þú hefur gefið og gert fyrir mig og mína. Hvíl í friði elsku dúllan mín. Hér er ljóð til þín frá mér: Elsku mamma mín mjúk er alltaf höndin þín brosið blítt og faðmlag hlýtt ætíð mun ég sakna þín. Margs er að minnast allra okkar góðu stunda margs er að sakna alla morgna er ég vakna. Elsku mamma mín, nú kveð ég þig með tárum og trega í hjarta uns við hittumst aftur á ný. Þín elskandi dóttir, Inga Hildur. Ó mamma, „ertu að meina það“, „nei þú segir ekki?“, „nei er það, ertu dáin?“ Smá fjöl- skylduhúmor, en nú þegar mamma hefur breytt um vistar- stað rennur í gegnum hugann þakklæti fyrir samverustundir og ást hennar á okkur afkom- endum sínum. Dugnaður er fyrsta orðið sem mér dettur í hug þegar ég hugsa um mömmu. Ekki voru það margar stundir sem hún gerði ekki neitt, ávallt var verið að gera eitthvað, ég get alltaf fundið mér eitthvað að gera, sagði hún svo oft. Að vas- ast í einhverju voru hennar ær og kýr eins og sagt er. Hann- yrðir sat hún lengi við, myndirn- ar sem hún er búin að sauma út, það er nú ekkert smáræði með öllum gerðum af sporum, stærð- um. Þessi listaverk eigum við ættingjar hennar sem vitnisburð um gott handverk og dugnað. Þegar kom svo að prjónaskap þá fór saman dugnaður, þörf fyrir aukapening á heimilið og síðan ást á okkur afkomendum, sem hún vildi að væru í fallegum og umfram allt hlýjum peysum, þessar peysur og annan prjóna- skap eigum við til minningar um ást hennar og dugnað. Ýmislegt annað handverk tók hún sér fyr- ir hendur, t.d. glerverk og eigum við öll slík listaverk eftir hana. Þar sem hún ólst upp í fátækt þótti henni afskaplega gaman að gefa gjafir og notaði öll tækifæri sem í boði voru til slíkra athafna okkur öllum til gleði. Það fór ekki á milli mála að samveru- stundir með afkomendum og öðrum nákomnum voru henni miklar gleðistundir hvort heldur það var í íbúðinni, á Þingvöllum eða uppi í sveit. Margs er að minnast á langri leið og ekki allt hægt að telja upp hér, þessar minningar eru okkur, sem feng- um að njóta samverustunda með þér, mamma, ómetanlegar. Heyr mína bæn, mildasti blær. Berðu kveðju mína’ yfir höf. Syngdu honum saknaðarljóð. Vanga hans blítt vermir þú sól vörum mjúkum, kysstu hans brá, ástarorð hvísla mér frá. Syngið þið fuglar, ykkar fegursta ljóða- lag, flytjið honum í indælum óði ástarljóð mitt. Heyr mína bæn, bára við strönd. Blítt þú vaggar honum við barm, þar til svefninn sígur á brá. Draumheimi í dveljum við þá, daga langa, saman tvö ein, Heyr mínar bænir og þrár. (Ólafur Gaukur ) Nú spjöllum við ekki lengur í símann, ekki kemur lengur ropi á óvæntri stundu og ekki kemst ég í heimsókn, því leiðin er löng. Takk, elsku mamma, fyrir að vera ástrík móðir og mamma mín með stóru M-i og ekki síst fyrir að vera góð amma, svona amma eins og ég hefði viljað eiga, amma sem börnin mín hugsa til með ánægju, það er ekki lítið vega- nesti að gefa. Bless, elsku ljúfa góða mamma. Þinn sonur, Gunnar Jón Yngvason. Þegar móðir mín valdi sér ævistarf var hún ekki í vafa um hvað hún vildi verða þegar hún yrði stór. Hún vildi verða mamma. Sú ósk hennar rættist. Frá 17 ára aldri til 26 ára aldurs eignaðist hún okkur systkinin, tvo stráka og tvær stelpur. Hún hafði mikinn metnað í þetta starf, helgaði sig móðurhlut- verkinu og fannst það skemmti- legt. Þetta var nú ekki auðveld- asta starf í heimi. Við bjuggum á bóndabæ í Bárðardal og þangað kom ekki rafmagn fyrr en er ég var orðin fimm ára. Allur þvott- ur var þveginn í höndum og allur matur unninn frá grunni. Þegar deginum lauk vorum við háttuð ofan í rúm og mamma stóð við að lesa fyrir okkur sögu fyrir hátt- inn. Ekki gat hún sest því þá fór- um við að rífast um hvar hún ætti að sitja, því hvert og eitt okkar vildi hafa hana. Þegar við vorum sofnuð tók við handavinn- an. Hún var ýmist fram á nótt að sauma föt handa okkur eða handprjóna lopapeysur til að drýgja heimilistekjurnar. Við fluttum í Garðabæ þegar ég var sjö ára og við nutum þeirra for- réttinda að mamma var heima þegar við komum úr skólanum, gaf að drekka, veitti öryggi og hlýju. Ein af mörgum góðum stundum okkar mömmu var þeg- ar hún bakaði kleinur og ég sat við eldhúsborðið með mjókur- fernuna og sporðrenndi heitum kleinum með kaldri mjólk. Þegar komið er að kveðju- stundinni hugsa ég um allt það sem hún kenndi mér. Hún kenndi mér að vera kurteis. Hún lagði áherslu á að við myndum alltaf heilsa, kveðja og þakka fyrir okkur með handabandi. Ég passaði mig alltaf á því í afmæl- um, þegar ég var lítil, að leita uppi foreldrana og þakka fyrir mig. Það var líka eins gott, því það fyrsta sem hún spurði mig um þegar ég kom heim var hvort ég hefði ekki þakkað fyrir mig. Hún kenndi mér að vera úr- ræðagóð, „það verða alltaf ein- hver ráð“. Þegar hana vantaði nýtt eldhúsborð prjónaði hún peysur þar til búið var að spara fyrir því. Hún kenndi mér að sælla er að gefa en þiggja, enda var hún sjálf einstaklega gjaf- mild. Núna eru tilbúnar afmæl- isgjafir handa allri fjölskyldunni út árið 2013, því þær gekk hún í að finna og pakka fallega inn um leið og hún vissi að hún væri orð- in veik. Mamma var létt í lund og hafði gaman af gríni og glensi. Hún fór með okkur stelpunum í zumba í vetur, dansaði með okk- ur í partíum og útilegum. Hún tók þátt í öllu og var höfuð fjöl- skyldunnar. Mamma var afburða hand- verkskona og allt lék í höndun- um á henni. Hún saumaði föt, saumaði út, málaði á tau og bjó til listaverk úr gleri. Á sjötugs- afmælinu hennar voru teknar myndir af okkur öllum í peysum eða kjólum sem hún hafði prjón- að. Hún sagði oft, þegar maður var ekki viss hvort eitthvað kæmi að notum, „þú kannt að meta þetta seinna“. Nú er þetta „seinna“ komið og ég gleðst yfir hverjum hlut. Hún vildi aldrei láta bíða eftir sér og þegar ég var að að sækja hana var hún alltaf löngu tilbúin. Því hefði það ekki átt að koma okkur á óvart að þannig fór það einnig með veikindin. Eftir lifir dýrmætt handverk hennar og minningar um ein- staka mömmu. Þín elskandi dóttir, Þóra Valný. Elsku amma mín, það er með söknuði í hjarta sem ég skrifa þetta til þín. Þegar mér verður hugsað til baka nú rifjast upp fyrir mér margar góðar minn- ingar og stundir sem við áttum saman. Ég man þegar ég var barn og bjó í Lækjarfitinni þá öfunduðu mig allir strákarnir í götunni fyrir það að eiga ömmu sem vann í bakaríinu og var allt- af að gefa okkur gotterí. Ég minnist þess hvað það var gam- an að sjá þig koma arkandi til okkar í Lækjarfitina með pok- ann fullan af góðgæti og að ég ætti bestu ömmuna af öllum strákunum. Ég mun ætíð varð- veita þessar og allar hinar fal- legu minningarnar um þig í hjarta mínu. Takk elsku amma mín fyrir alla þá ást og umhyggju sem þú hefur gefið mér og fjölskyldu minni í gegnum tíðina. Hvíldu í friði kæra amma mín. Kveðja, Daníel Bjarni og fjölskylda. Fallin er frá elsku amma mín, Ástheiður Guðmundsdóttir. Þegar ég hugsa um hana koma svo margar skemmtilegar og fyndnar minningar í hugann. Amma var með skrautlegri og skemmtilegri karakterum sem ég hef kynnst; glaðvær, uppá- tækjasöm, jákvæð og var hlátur hennar svo kraftmikill og fjör- ugur. Amma var afbragðs listakona. Hún var sérstaklega góð í alls kyns hannyrðum, hún prjónaði og saumaði út og erum við fjöl- skyldan ansi heppin að eiga mörg falleg meistarastykki eftir hana. Amma var mikil fé- lagsvera og naut þess að vera á meðal kattanna sinna, vina og síðast en ekki síst fjölskyldunn- ar. Efst í huga mér er umhyggja hennar og góðvild sem hún sýndi bæði mér og allri fjölskyldunni með væntumþykju og návist sinni. Ég mun geyma allar góðu minningarnar um samveru- stundir okkar á Þingvöllum, úti- legunum, Hellisgerði og í Garða- bænum. Ég hafði mjög gaman af því að hlusta á ömmu segja sög- ur og segja sögur af henni, því skemmtilegri konu verður erfitt að finna. Ég mun sakna góðu stundanna með henni þegar við spjölluðum um allt milli himins og jarðar. Ég kveð þig með söknuði, elsku amma mín. Þín verður sárt saknað og alls hins góða sem kom frá þér. Góðu stundanna mun ég minnast með gleði í hjarta og með miklu þakklæti fyrir þann tíma sem við áttum saman. Þín Valný Aðalsteinsdóttir. Nú kveðjum við elsku ömmu okkar sem nú er farin. Amma var ein af bestu manneskjum sem við höfum kynnst. Hún var okkur yndisleg amma, ætíð svakalega hlý og góð. Það var alltaf jafn- notalegt að koma í heimsókn til ömmu, ómetanlegar stundir sem við áttum þar og minnumst við þeirra um ókomna tíð. Elsku amma, við þökkum þér fyrir allar góðu stundirnar og minningarnar sem þú hefur gefið okkur, fullt af hlátri, hamingju og ást. Elsku amma okkar, við sökn- um þín meira en orð geta sagt en við vitum að þú munt vaka yfir og fylgjast með okkur á okkar lífs- göngu. Við vonum að þér líði vel þar sem þú ert núna. Blessuð sé minning þín. Ó þú fallegi engill Ó þú fallega sál nú ert þú farin okkur frá ég veit að þú vakir yfir og horfir okkur á. Ólýsandi söknuður, sorg og tár. Ég veit að þú munt bíða mín og trúi ég því að dag einn við verðum saman á ný. (Sara Dögg Vignisdóttir) Þín barnabörn, Sara Dögg og Gabríel Daði. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Þetta ljóð kom í hugann og á vel við er við kveðjum þig, elsku systir mín, Ástheiður Fjóla. Með þessum orðum vil ég þakka þér samfylgdina, traustið og trúnað. Það var alltaf sterk vinátta og virðing sem við bárum hvort til annars, traust og umhyggja allt frá því að við vorum börn norður í Skagafirði. Við höfum alla tíð verið nálægt hvort öðru á lífs- leiðinni, að undanskildum þeim tíma er hún var bóndakona norður í Bárðardal er hún giftist Yngva M. Gunnarssyni bónda í Sandvík. Það var gott að koma til þeirra í Sandvík, alltaf var tekið vel á móti gestum, borð svignuðu undan gómsætum mat og hnallþórurnar góðu með kaffinu eru eftirminnilegar. Systir mín hafði ákveðnar skoðanir á ýmsum málum og hélt fast við sannfæringu sína, stundum vorum við ekki sam- mála eins og gengur og gerist, en alltaf skildum við með góðum óskum hvort til annars. Hún var mikill vinur fjölskyldu sinnar og hvatti börnin sín til samheldni og að virða þarfir hvert annars. Það voru ákveðnir dagar á hverju ári sem boðið var til veislu, börnin hennar þennan daginn, stórfjölskyldan hinn og aðrir á öðrum dögum, alltaf var veitt vel í mat og drykk og nóg pláss fyrir alla í litlu íbúðinni í Brekkubyggð. Ástheiður var dugleg kona við allt sem hún tók sér fyrir hend- ur, hún var einstök hannyrða- kona svo af bar, margar voru lopapeysurnar sem gerðar voru, útsaumuðu myndirnar og annar prjónaskapur, já hún var búin að ylja mörgum höndum og fótum, stórum sem smáum. Það var meira en ylurinn úr ullinni sem vermdi, það var líka hlýjan frá þeim góða hug sem lagður var í verkið. Aldrei féll henni verk úr hendi, allur tími nýttur. Ég kveð þig, elsku systir, að sinni. Megi sá sem öllu ræður halda utan um ferjuna hennar og við hin bera gæfu til að meta og byggja ofan á það sem hún af- rekaði. Ég og fjölskylda mín sendum börnum hennar og fjölskyldum innilegar samúðarkveðjur með einni af vísunum sem móðir okk- ar orti til hennar á unga aldri: Hvar sem þú um foldu fer fylgi gæfa og blessun þér. Og þig verndi alla stund alföðurins styrka mund. (Valný Benediktsdóttir) Friðgeir Hreinn Guðmundsson. Nú sefur álfadrottningin, hún Ástheiður frænka mín, svefnin- um langa. Mig langar að kveðja hana með þessu fallega ljóði eftir Dav- íð Stefánsson frá Fagraskógi. Þó fjúki í fornar slóðir og fenni í gömul skjól geta ekki fönnin og frostið falið Álfahól. Yfir hann skeflir aldrei þó allt sé af gaddi hvítt, því eldur brennur þar inni, sem ísinn getur þítt. Þar á ég höfði að halla, þó hríðin byrgi sól, fjúki í fornar slóðir og fenni í gömul skjól. (Davíð Stefánsson) Guð blessi þig, Ástheiður, og huggi fólkið þitt og vini í sorginni. Þín frænka, Jóhanna og fjölskylda. Ástheiður Fjóla Guðmundsdóttir HINSTA KVEÐJA Ég veit að við hittumst í himnaríki og ég skal koma í heimsókn eins oft og ég get því ég veit að við eigum margt sameiginlegt eins og þú sagðir svo oft við mig. Bríet Eva Sigurðardóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.