Morgunblaðið - 13.03.2013, Side 34

Morgunblaðið - 13.03.2013, Side 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2013 Ég er upptekin allan daginn,“ svarar Sigrún Elíasdóttir umhæl, aðspurð hvort hún hafi nóg við að vera í Furugerði, þarsem hún býr. Sigrún, sem er fædd og uppalin í Hafnarfirði, á hvorki meira né minna en þrjú börn, sex barnabörn og níu lang- ömmubörn en maður hennar, Páll S. Pálsson ráðuneytisstarfs- maður, lést fyrir um fjörutíu árum. Sigrún starfaði um fimmtán ára skeið hjá Landsvirkjun og eftir það sem sjálfboðaliði í Grensás- kirkju og lætur sér alls ekki leiðast í Furugerði, þar sem nóg er um að vera. „Númer eitt þá er ég nú í handavinnu þrisvar í viku, tvo tíma í hvert skipti, og síðan er ég í leikfimi tvisvar í viku. Svo er alltaf eitt- hvað um að vera hjá okkur; margir skemmtikraftar sem koma og skemmta okkur og mér finnst það frábært alveg,“ segir hún. Sigrún segist við ágæta heilsu og þakkar það reglusömu líferni; sem húsmóðir hafi hún vanið sig á að fara snemma á fætur til að koma manni og börnum í vinnu og skóla og hafi haldið sig við þá reglu síðan að fara snemma að sofa og snemma á fætur. Sigrún ætlar bæði að halda upp á daginn með stórfjölskyldunni og í Furugerði, þar sem hún segir afar gott að vera. „Ég get ekki annað sagt en að það er vel hugsað um mig. Þetta gamla fólk sem býr hér það þarf sko ekki að kvarta. Forstjórinn og deildarstjórinn eru frá- bærir og allt liðið sem er með þeim, það er bara eins og einn maður hér.“ holmfridur@mbl.is Sigrún Elíasdóttir er níræð í dag Afmæli Sigrún starfaði í fjölda ára sem sjálfboðaliði í Grensáskirkju og missir aldrei af prestinum þegar hann heimsækir Furugerði. Snemma að sofa og snemma á fætur Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. Reykjavík Salim Sveinbjörn fæddist 12. júní kl. 6.31. Hann vó 3.030 g og var 51 cm langur. Foreldrar hans eru Guðrún Lilja Anbari Önnudóttir og Faycal Anbari. Nýir borgarar Reykjavík Hrafnhildur Kara fæddist 9. júní kl. 18.46. Hún vó 18 merkur og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Signý Þórarinsdóttir og Hrannar Helgason. E rlingur fæddist í Reykja- vík og ólst þar upp. Hann lauk stúdents- prófi frá MR 1953, stundaði nám í íslensku við HÍ 1953-54, lauk prófi í forspjalls- vísindum frá HÍ 1954, prófi frá Leik- listarskóla Þjóðleikhússins 1956, stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík 1953-54, nam leikhúsfræði við Háskólann í Vínarborg og leiklist við Leiklistarskóla Helmuts Kraus í Vín 1956-57, fór kynnisför um Evrópu og á leiklistarnámskeið í London og Berlín 1965-66 og sótti námskeið í gerð kvikmyndahandrita hjá Drama- tiska Institutet í Svíþjóð. Erlingur var leikari og leikstjóri hjá Þjóðleikhúsinu, Grímu og Leikfélagi Reykjavíkur 1957-91, hefur farið með fjölda hlutverka í útvarpi og sjónvarpi og ýmis hlutverk í kvikmyndum, var kennari hjá Bandalagi íslenskra leik- félaga, Leiklistarskóla Þjóðleikhússins og ríkisins, við Gagnfræðaskóla Reykjavíkur og Gagnfræðaskóla Kópavogs. Hann er einn fremsti skap- gerðarleikari þjóðarinnar. Erlingur var einn af stofnendum Leikklúbbsins Grímu 1961. Hann var Erlingur Gíslason leikari – 80 ára Faðir og synir Frá vinstri: Benedikt Erlingsson; Guðjón Erlingsson, Erlingur Gíslason og Friðrik Erlingsson. Óborganlegur Erlingur Afaljósið Erlingur ásamt sonardóttur, Önnu Róshildi Benediktsdóttur. „Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.