Morgunblaðið - 11.04.2013, Blaðsíða 10
GALLABUXUR FYR IR
ALLAR KONUR
MIK I L TEYGJA OG
GÓÐ SN IÐ
EIKJUVOGUR 29 - 104 RVK. - S:694-7911
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2013
Signý Gunnarsdóttir
signy@mbl.is
Þ
ær Silja Huld Árnadóttir
og Hildur Björk Hörpu-
dóttir tóku tal saman í
bakgarðinum heima hjá
sér. Þær eru með börn
á sama leikskóla og skóla og fundu
fljótt að áhugi þeirra lá á sama
sviði þegar þær stóðu sig að því að
vera ítrekað að ræða bætta þjón-
ustu við börn. „Við vildum báðar
vinna að bættri þjónustu barna og
veltum fyrir okkur hvað við gætum
gert. Hugsunin var að mæta ein-
hverri þörf. Þegar við fórum að
skoða málin betur var greinilegt að
þörfin lá hjá börnum og unglingum
sem eiga rétt á stuðnings-
fjölskyldum en fá þær ekki,“ segir
Hildur. „Við vissum strax að við
ætluðum alltaf að vera bara konur
og þetta átti að verða kvennafyr-
irtæki.“ bætir Silja við.
Þjónusta nær eingöngu
rekin af náungakærleik
Þær Silja og Hildur segja að
það sé í raun undarlegt hvernig
þessi þjónusta við börn hafi verið
rekin. „Við finnum hvergi annars
staðar þjónustu við börn sem er
nær eingöngu rekin af náungakær-
leik. Það fyndist engum eðlilegt ef
læknir segði: Já, barnið þarf
sjúkraþjálfun, við skiljum aðstæður
ykkar svo vel en nú þurfum við
bara að bíða eftir sjúkraþjálfara
sem langar mikið til að taka barnið
í þjálfun og gerir það fyrir nánast
enga peninga,“ segir Hildur. Það
var þeim fjórmenningunum mik-
ilvægt að fara rétt að þessu frá
upphafi og sáu þær fljótt að um-
sóknarferlið að opna heimili fyrir
þessi börn yrði langt og strangt og
þakið pappírsvinnu. „Við þurftum
að fá öll tilskilin leyfi hjá Heil-
brigðiseftirlitinu og Barnavernd-
arstofu og settumst niður einu
sinni í viku í allan vetur og skipu-
lögðum þetta. Hugmyndavinnan
var tímafrek og svo fylgdi umsókn-
inni til Barnaverndarstofu líka
mikil vinna. Við vorum líka að gera
eitthvað algjörlega nýtt. Hugmynd
okkar hefur samt alls staðar verið
tekið vel og við höfum fengið mikið
hrós, bæði frá fagfólki, fjölskyldu
og vinum og líka ókunnugu fólki.
Það eru allir svo spenntir og glað-
ir,“ segir Silja.
Vinasamningur
við Reykjanesbæ
Silja var stödd á starfsdögum
þroskaþjálfa í Reykjanesbæ í jan-
úar og hitti þar Árna Sigfússon
Börnin fá athyglina
á Vinasetrinu
Vinasetrið er nýtt heimili í Reykjanesbæ sem opnar dyr sínar í apríllok fyrir
börn sem þurfa á stuðningsfjölskyldum að halda. Þetta heimili er hugarsmíð
fjórmenninganna Hildar Bjarkar Hörpudóttur, Silju Huldar Árnadóttur, Jónu
Bjargar Howard og Díönu Sigurðardóttur. Þær fundu gat á markaðnum sem
þær vildu fylla með hlýju og fagmennsku.
Fyrirmyndir Stöllurnar fjórar mættu með dætur sínar þegar þær fengu
styrk frá velferðarráðuneytinu til að sýna þeim í verki að konur geta allt.
Samvera Það verður eflaust mikið spilað
við þetta borð á föstudagsspilakvöldum.
Heimilislegt Hér má sjá eitt
barnaherbergið í Vinasetrinu.
Blessuð börnin geta verið ósköp við-
kvæm á köflum og grátið jafnt yfir
því sem gott er og slæmt og í raun
hverju sem er. Faðir einn í Bandaríkj-
unum hefur vakið athygli með vef-
síðu sinni reasonsmysoniscrying en
þar setur hann inn bæði krúttlegar
og fyndnar myndir af syni sínum
grátandi.
Við hverja mynd má lesa af hverju
gráturinn stafar en ástæðan getur
verið allt frá því að mega ekki borða
nammi upp úr gólfinu yfir í að mega
ekki hlaupa einn niður hótelgang og
út á götu.
Vefsíðan www.reasonsmysoniscrying.tumblr.com
Grátur Nei ég borða bara víst upp úr gólfinu!
Heimsfræg grenjuskjóða
Flestir Íslendingar þekkja söguna
um tröllskessuna Gilitrutt og við-
skipti hennar við bændahjónin undir
Eyjafjöllum. Nú kemur sagan út á
ensku og íslensku í sama búningi
og í verðlaunasýningu brúðuleik-
arans Bernds Ogrodnik. En í þessari
útgáfu er fléttað inn í söguna öðru
þjóðsagnaminni um hrafninn sem
gefið er að éta og launar greiðann
vel. Sagan birtist fyrst í Þjóðsögum
Jóns Árnasonar en birtist nú með
ljósmyndum úr brúðusýningu
Bernds sem valin var besta barna-
sýningin á Grímuverðlaunahátíðinni
2011. Myndvinnslu og bókarhönnun
annaðist Kristín María Ingimars-
dóttir en Silja Aðalsteinsdóttir bjó
íslenska textann til prentunar.
Endilega …
… rifjið upp
þjóðsögurnar
Gilitrutt Skreytt fallegum ljós-
myndum úr sýningu Ogrodnik.
Fjarðarkaup
Gildir 11.-13. apríl verð nú áður mælie. verð
Svínahnakki úrb., kjötborð.......... 1.298 1.598 1.298 kr. kg
Svínalundir, kjötborð .................. 1.698 2398 1.698 kr. kg
Hamborgarar, 2x115 g ............... 420 504 420 kr. pk.
Fjallalambs fjallalæri kryddað ..... 1.398 1.598 1.398 kr. kg
KF ísl. heiðarlamb...................... 1.398 1.598 1.398 kr. kg
Ali svínakótilettur hunangskr. ...... 1.998 2.411 1.998 kr. kg
Ali svínakóilettur BBQ................. 1.998 2.411 1.998 kr. kg
Hagkaup
Gildir 11.-14. apríl verð nú áður mælie. verð
Ísfugl kalkúnasn. m/lemongrass . 1.539 2.199 1.539 kr. kg
Holta úrb. kjúklingalæri .............. 1.874 2.498 1.874 kr. kg
Holta leggir ferskir ...................... 714 1.098 714 kr. kg
Holta vængir ferskir .................... 359 449 359 kr. kg
Íslandslamb innralæri ................ 2.999 4.998 2.999 kr. kg
SS ítalskt lambalæri .................. 1.499 1.999 1.499 kr. kg
Heilkornabrauð.......................... 299 499 299 kr. stk.
Kanillengjur ............................... 499 709 499 kr. stk.
Focaccia-brauð ......................... 299 439 299 kr. stk.
Þín verslun
Gildir 11.-14. apríl verð nú áður mælie. verð
Nautainnralæri, kjötborð ............ 2.998 3.998 2.998 kr. kg
Nautafilé, kjötborð ..................... 3.998 4.964 3.998 kr. kg
Nautagúllas, kjötborð................. 2.169 2.894 2.169 kr. kg
Nautasnitsel, kjötborð................ 2.398 2.998 2.398 kr. kg
Ísfugl kjúklingur 1/1 ferskur........ 919 1.149 919 kr. kg
Milt fyrir barnið, 2 kg .................. 2.169 2.998 1.085 kr. kg
Milt fyrir barnið, 700 g................ 698 998 997 kr. kg
Milt mýkingarefni, 1,2 l .............. 629 849 629 kr. stk.
Lambi eldhúsrúllur, 3 stk. í pk. .... 398 589 398 kr. pk.
Lambi WC pappír, 12 stk. í pk. .... 989 1.449 989 kr. pk.
Helgartilboð
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.