Morgunblaðið - 11.04.2013, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2013
Fæst einnig í veFverslun stoðar
31ár
1982-2013
Trönuhrauni 8 | 220Hafnarfirði | Sími 565 2885
Opið kl. 8 - 17 virka daga | stod@stod.is | www.stod.is
Þar sem
sérFræðingar
aðstoðaÞig
viðvalá
hlíFum
Við styðjum þig
STOÐ
P
O
R
T
hö
nn
un
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Varnarmálaráðuneyti Suður-Kóreu hækkaði í gær
viðbúnaðarstig sitt yfir í „stórhættulega ógn“
vegna hótana Norður-Kóreumanna. Talið var að
þeir væru að undirbúa að skjóta á loft tilraunaeld-
flaugum, hugsanlega yfir Japan en óljóst er hve
langdrægar þær eru og heldur ekki vitað hvort þær
gætu borið kjarnorkuvopn. Ennfremur er ólíklegt
að norðurkóreskum vísindamönnum hafi enn sem
komið er tekist að hanna svo litlar kjarnasprengjur
að þær komist fyrir í oddi eldflaugar.
Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, segist óttast að ástandið á Kóreuskaga
sé að fara úr böndunum. Bandaríkjamenn eru full-
vissir um að þeir geti skotið niður flaugar norðan-
manna reynist þeim vera beint að þeim eða banda-
mönnum þeirra.
Hótanir og tilslakanir síðustu áratugi
Ráðamenn í Norður-Kóreu hafa oft hótað stríði
síðustu áratugi, á endanum hefur alltaf verið svar-
að með tilslökunum af einhverju tagi. Efnahagur
norðanmanna er í rúst og þeir hafa fengið mat og
olíu sem þeir höfðu ekki efni á kaupa. Þetta óbeina
mútufé hefur gert þeim kleift að verja miklu fé í að
halda uppi fjórða fjölmennasta her í heimi. Íbúar
landsins eru aðeins um 25 milljónir. Kínverjar eru
helstu bandamenn N-Kóreumanna en hafa tekið
afstöðu gegn framferði þeirra á undanförnum vik-
um. Slíkt hið sama hafa Rússar gert.
Bandaríkjamenn feta vandrataðan stíg í sam-
skiptum við Kim Jong-un, ungan og óreyndan leið-
toga N-Kóreu. Þeir vilja ekki ógna honum um of
vegna þess að það gæti hann misskilið, talið að árás
væri yfirvofandi. En um leið eru margir á þeirri
skoðun að draga verði línu í sandinn. Chuck Hagel,
varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að
vonandi drægi Kim úr hótunum sínum en Banda-
ríkjamenn væru við öllu búnir. N-Kóreumenn væru
á „afar hálum ís“.
Vona að Kim nái áttum
AFP
Hvatning Aðgerðasinnar í S-Kóreu festa blöðrur á spjald með myndum af Kim Jong-un, einræðisherra N-Kóreu, og friðardúfu á útifundi í gær.
Suður-Kóreumenn hækka viðbúnaðarstig landsmanna í „stórhættulega ógn“
og Bandaríkjamenn segja leiðtoga Norður-Kóreumanna á hálum ís
Lengi var það trú
almennings að
best væri að sofa
samfleytt að næt-
urlagi í 7-9
stundir. En í frétt
BBC er sagt frá
tilraunum sem
geðlæknir gerði
snemma á tíunda
áratugnum. Hann lét hóp manna
búa við 14 stunda algert myrkur á
hverjum sólarhring í heilan mánuð.
Nokkur tími leið áður en fólkið
hafði komið sér upp nýjum takti. En
í fjórðu viku voru allir farnir að
sofa í fjórar stundir, vaka síðan í
eina eða tvær og sofa aftur í fjórar.
Ekkert benti til að óhollt væri að
slíta svefninn, fólk var athafnasamt
meðan það vakti. Sumir fóru jafnvel
í heimsóknir. kjon@mbl.is
Í lagi að vaka um
hríð að næturlagi
SVEFNRANNSÓKNIR
Athanasios
Vamvakidis, sér-
fræðingur hjá
bandarískum
banka, ráðleggur
seðlabanka Evr-
ópu að ógilda
stærsta seðilinn
sem er 500 evrur,
um 76.000 krón-
ur. Glæpamenn
skipta oft auðæfum sínum í þessa
seðla, að sögn Wall Street Journal.
Vamvakidis segir að með aðgerð-
inni sé hægt að valda glæpamönn-
um erfiðleikum, þeir yrðu látnir út-
skýra hvaðan féð væri. En einnig
myndi hún veikja gengi evrunnar.
Hátt gengi evrunnar veldur út-
flutningi ýmissa evruríkja vanda en
þau geta ekki fellt það. kjon@mbl.is
Snjallt að drepa
500 evra seðilinn?
Umdeildur seðill.
GJALDMIÐILSMÁL
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Leiðtogar uppreisnarmanna í Sýrlandi hvöttu í
gær til þess á fundi með John Kerry, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, og William Hague,
utanríkisráðherra Bretlands, í London að
stjórnvöld í Washington sendu þeim vopn.
Bretar og Frakkar vilja senda vopn á vettvang
en hafa ekki fengið Evrópusambandið til að
taka undir með sér. Kerry mun ekki hafa gefið
nein loforð. Hann mun í næstu viku sækja fund
ríkjahóps er styður uppreisnina gegn Bashar
al-Assad forseta. Einn af öflugustu uppreisn-
arhópunum, Al-Nusra hreyfingin, lýsti í gær
yfir stuðningi við al-Qaeda hryðjuverkasam-
tökin.
Fundur ríkjahópsins áðurnefnda verður að
sögn AFP-fréttastofunnar í Istanbúl í Tyrk-
landi, í honum eru auk Bandaríkjanna ýmis
evrópsk ríki og arabaríki. Þátttaka herskárra
íslamistaflokka í baráttunni gegn Assad hefur
átt sinn þátt í að koma í veg fyrir beinan vopna-
stuðning af hálfu Bandaríkjamanna. „Við erum
stöðugt að velta fyrir okkur ýmsum leiðum,“
sagði embættismaður í Washington sem ekki
vildi láta nafns síns getið. „Við munum halda
áfram að styðja uppreisnarmenn, vinna með
þeim að því að meta hvað þeir þurfi og hvað
komi til greina af okkar hálfu.“
Lýsa yfir stuðningi við al-Qaeda
Einn öflugasti uppreisnarhópurinn í Sýrlandi er skipaður hryðjuverkamönnum
Bandaríkjamenn veita hjálp en engin fyrirheit um vopnasendingar til andstæðinga Assads
Stríð Íbúi í rústum borgarinnar Aleppo í gær,
hún hefur orðið hart úti í átökunum.
Assad með nóg af vopnum
» Yfirlýsing Al-Nusra í gær mun varla
verða til að auka áhuga Bandaríkja-
manna á vopnasendingum.
» Þeir óttast að þótt vopnin verði send
til annarra hópa gætu þau hafnað í hönd-
um hryðjuverkamanna. Sýrlandsstjórn
fær vopn frá Íran og Rússlandi.
» Talið er að yfir 70.000 manns hafi fall-
ið í átökunum undanfarin tvö ár.
AFP