Morgunblaðið - 11.04.2013, Qupperneq 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2013
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Nótan, uppskeruhátíð tónlistarskól-
anna, verður haldin í fjórða sinn nk.
sunnudag í Eldborgarsal Hörpu
milli kl. 11:30 og 18. „Á hátíðinni
verða flutt 24 tónlistaratriði frá 20
tónlistarskólum af öllu landinu, en
gera má ráð fyrir að um 160 þátt-
takendur á aldrinum 9-30 ára komi
fram,“ segir Össur Geirsson, skóla-
stjóri Skólahljómsveitar Kópavogs
og einn skipuleggjenda í undirbún-
ingsnefnd lokatónleika Nótunnar.
Fyrri tónleikar sunnudagsins
hefjast kl. 11:30 en þá verða flutt
þrettán tónlistaratriði nemenda
sem eru í grunn- eða miðnámi, en á
seinni tónleikunum kl. 14 verða flutt
ellefu atriði nemenda sem eru í mið-
og framhaldsnámi. Lokaathöfn Nót-
unnar fer síðan fram kl. 16:30 þar
sem níu framúrskarandi atriði fá
verðlaunagrip Nótunnar 2013 auk
þess sem besta atriði hátíðarinnar
fær afhentan farandgrip Nótunnar.
Öll verðlaunaatriðin verða flutt aft-
ur á lokatónleikunum.
Að sögn Össurar verða veitt verð-
laun fyrir bestan flutning einleiks-
atriða, bestan samleik eða samsöng
og loks fyrir frumlegt eða frum-
samið efni í grunn-, mið- og
framhaldsnámi. „Atriði í viður-
kenningarflokknum frum-
samið/frumlegt verða að tengjast
íslenskum tónlistar- og menningar-
arfi að þessu sinni og hafa tengingu
við Ísmúsvefinn sem opnaður var sl.
sumar.“
Í valnefnd þetta árið sitja Arna
Kristín Einarsdóttir, tónleikastjóri
Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Högni
Egilsson tónlistarmaður og Peter
Máté píanóleikari, en kynnir á loka-
tónleikunum er Felix Bergsson. „Að
Nótunni standa Félag
tónlistarskólakennara, Félag ís-
lenskra hljómlistarmanna og Sam-
tök tónlistarskólastjóra. Þetta er
þríþætt hátíð í þeim skilningi að
fyrst er hún haldin innan veggja
skólanna sjálfra sem velja fulltrúa
sína á svæðistónleikunum sem
haldnir eru á fjórum stöðum á land-
inu. Þar velur valnefnd síðan þau at-
riði sem fá að troða upp í Hörpu,“
segir Össur og hvetur alla til að
leggja leið sína í Hörpu og heyra þar
flott tónlistaratriði frá öllu landinu,
en aðgangur er ókeypis og allir vel-
komnir. Aðspurður segir hann um
15 þúsund nemendur stunda nám í
tónlistarskólum landsins, en gera
megi ráð fyrir að um 500 nemendur
hafi tekið þátt í svæðistónleikum
Nótunnar. „Hátíðin veitir þannig
þverskurð af því besta sem tónlistar-
skólar landsins eru að gera, sem er
mjög fjölbreytt,“ segir Össur og tek-
ur fram að þátttaka í Nótunni veiti
nemendum ómetanlega reynslu.
160 nemendur koma
fram á Nótunni
Uppskeruhátíð tónlistarskólanna í Hörpu nk. sunnudag
Ljósmynd/Magnus H. Johannsson
Fjölbreytni Nemendur úr Skólahljómsveit Kópavogs leika á klarínett, en
tónlistaratriðin á Nótunni eru eins fjölbreytt og þau eru mörg.
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Mary Poppins (Stóra sviðið)
Fim 11/4 kl. 19:00 10.k Fim 9/5 kl. 14:00 Sun 2/6 kl. 13:00 aukas
Lau 13/4 kl. 19:00 aukas Fös 10/5 kl. 19:00 Mið 5/6 kl. 19:00 aukas
Sun 14/4 kl. 19:00 11.k Lau 11/5 kl. 19:00 Fim 6/6 kl. 19:00
Fös 19/4 kl. 19:00 aukas Sun 12/5 kl. 13:00 Fös 7/6 kl. 19:00
Lau 20/4 kl. 19:00 aukas Mið 15/5 kl. 19:00 aukas Lau 8/6 kl. 19:00
Sun 21/4 kl. 19:00 12.k Fim 16/5 kl. 19:00 Sun 9/6 kl. 13:00
Mið 24/4 kl. 19:00 Fös 17/5 kl. 19:00 Fös 6/9 kl. 19:00 ný sýn.
Fös 26/4 kl. 19:00 aukas Lau 18/5 kl. 19:00 Lau 7/9 kl. 19:00 ný sýn.
Lau 27/4 kl. 19:00 Mán 20/5 kl. 13:00 aukas Sun 8/9 kl. 15:00 ný sýn.
Sun 28/4 kl. 13:00 Fim 23/5 kl. 19:00 Fim 12/9 kl. 19:00 ný sýn.
Þri 30/4 kl. 19:00 aukas Lau 25/5 kl. 19:00 aukas Fös 13/9 kl. 19:00 ný sýn.
Fim 2/5 kl. 19:00 aukas Sun 26/5 kl. 13:00 Lau 14/9 kl. 19:00 ný sýn.
Fös 3/5 kl. 19:00 Mið 29/5 kl. 19:00 aukas Sun 15/9 kl. 15:00 ný sýn.
Lau 4/5 kl. 19:00 Fim 30/5 kl. 19:00 aukas Fim 19/9 kl. 19:00 ný sýn.
Sun 5/5 kl. 13:00 Fös 31/5 kl. 19:00 Fös 20/9 kl. 19:00 ný sýn.
Mið 8/5 kl. 19:00 aukas Lau 1/6 kl. 13:00 Lau 21/9 kl. 19:00 ný sýn.
Einn vinsælasti söngleikur heims, nú loks á Íslandi. Allt að seljast upp!
Gullregn (Stóra sviðið)
Mið 12/6 kl. 20:00 Fös 14/6 kl. 20:00
Fim 13/6 kl. 20:00 Lau 15/6 kl. 20:00 lokas
Frumraun Ragnars Bragasonar í leikhúsi. Nýjar aukasýningar. Síðustu sýningar.
Mýs og menn (Stóra sviðið)
Fös 24/5 kl. 20:00 aukas Lau 1/6 kl. 20:00 aukas Sun 9/6 kl. 20:00 lokas
Sun 26/5 kl. 20:00 aukas Sun 2/6 kl. 20:00 aukas
Meistaraverkið eftir John Steinbeck. Nýjar aukasýningar. Síðustu sýningar.
Ormstunga (Nýja sviðið)
Fim 11/4 kl. 20:00 Lau 13/4 kl. 20:00
Fös 12/4 kl. 20:00 Sun 14/4 kl. 20:00 lokas
Íslendingasagan sem er ekki eins leiðinleg og þú heldur. Aðeins þessar sýningar.
Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið)
Mið 24/4 kl. 20:00 19.k Þri 30/4 kl. 20:00 Sun 5/5 kl. 20:00
Fim 25/4 kl. 20:00 20.k Fös 3/5 kl. 20:00
Lau 27/4 kl. 20:00 Lau 4/5 kl. 20:00
Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Örfáar aukasýningar í apríl og maí.
Núna! (Litla sviðið)
Fös 12/4 kl. 20:00 frums Mið 17/4 kl. 20:00 3.k Sun 28/4 kl. 20:00 5.k
Þri 16/4 kl. 20:00 2.k Þri 23/4 kl. 20:00 4.k
Þrjú ný íslensk verk eftir ung og öflug leikskáld í einni sýningu
Tengdó (Litla sviðið)
Fim 18/4 kl. 20:00 aukas Fös 3/5 kl. 20:00 24.k Fim 23/5 kl. 20:00
Fös 19/4 kl. 20:00 aukas Lau 4/5 kl. 20:00 25.k Lau 25/5 kl. 20:00
Lau 20/4 kl. 20:00 20.k Sun 5/5 kl. 20:00 Sun 26/5 kl. 20:00
Sun 21/4 kl. 20:00 21.k Fös 10/5 kl. 20:00 Fös 31/5 kl. 20:00
Mið 24/4 kl. 20:00 22.k Lau 11/5 kl. 20:00 Lau 1/6 kl. 20:00
Fim 25/4 kl. 20:00 aukas Fim 16/5 kl. 20:00 Sun 2/6 kl. 20:00 lokas
Lau 27/4 kl. 20:00 23.k Fös 17/5 kl. 20:00
Fim 2/5 kl. 20:00 aukas. Lau 18/5 kl. 20:00
Grímusýning síðasta leikárs snýr aftur!
Íslenski Dansflokkurinn: Walking Mad (Stóra sviðið)
Fös 12/4 kl. 20:00 frums Sun 28/4 kl. 20:00 4.k Sun 12/5 kl. 20:00
Fim 18/4 kl. 20:00 2.k Sun 5/5 kl. 20:00 5.k Mán 20/5 kl. 20:00
Fim 25/4 kl. 20:00 3.k Fim 9/5 kl. 20:00 Þri 28/5 kl. 20:00
Tvö verk á einu kvöldi: Walking Mad og Ótta - húmor, galsi og geðveiki
Ormstunga – síðustu sýningar
Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is
Englar alheimsins (Stóra sviðið)
Fim 18/4 kl. 19:30 Fors. Fös 3/5 kl. 19:30 4.sýn Lau 25/5 kl. 19:30 12.sýn
Fös 19/4 kl. 19:30 Fors. Lau 4/5 kl. 19:30 5.sýn Fim 30/5 kl. 19:30 13.sýn
Lau 20/4 kl. 19:30 Frums. Mið 8/5 kl. 19:30 6.sýn Fös 31/5 kl. 19:30
Mið 24/4 kl. 19:30 Aukas. Fös 10/5 kl. 19:30 7.sýn Lau 1/6 kl. 19:30
Fös 26/4 kl. 19:30 2.sýn Fim 16/5 kl. 19:30 8.sýn Fös 7/6 kl. 19:30
Lau 27/4 kl. 19:30 3.sýn Fös 17/5 kl. 19:30 9.sýn Lau 8/6 kl. 19:30
Sun 28/4 kl. 19:30 Aukas. Fim 23/5 kl. 19:30 10.sýn Fös 14/6 kl. 19:30
Fim 2/5 kl. 19:30 Aukas. Fös 24/5 kl. 19:30 11.sýn
Ein vinsælasta íslenska skáldsaga síðari ára í nýrri leikgerð
Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið)
Sun 14/4 kl. 13:00 Sun 21/4 kl. 13:00 Sun 5/5 kl. 14:00
Sun 14/4 kl. 16:00 Sun 28/4 kl. 13:00
Eitt ástsælasta barnaleikrit á Íslandi
Kvennafræðarinn (Kassinn)
Fim 18/4 kl. 19:30
Frumsýning
Mið 24/4 kl. 19:30 4.sýn Fös 3/5 kl. 19:30 7.sýn
Fös 19/4 kl. 19:30 2.sýn Fös 26/4 kl. 19:30 5.sýn Lau 4/5 kl. 19:30 8.sýn
Lau 20/4 kl. 19:30 3.sýn Lau 27/4 kl. 19:30 6.sýn Fös 10/5 kl. 19:30 9.sýn
Hver er ekki upptekin af kvenlíkamanum?
Karma fyrir fugla (Kassinn)
Lau 8/6 kl. 19:30 aukas. Sun 9/6 kl. 19:30 aukas.
Síðasta sýning 7.apríl
Með fulla vasa af grjóti (Stóra sviðið )
Sun 14/4 kl. 19:30 Síð.s.
Ný aukasýning 14.apríl!
Fyrirheitna landið (Stóra sviðið)
Fös 12/4 kl. 19:30 Lau 13/4 kl. 19:30 Lokas.
Hilmir Snær sýnir stjörnuleik í heillandi mannlýsingu
Karíus og Baktus (Kúlan)
Lau 13/4 kl. 13:30 Lau 20/4 kl. 15:00 Sun 28/4 kl. 13:30
Lau 13/4 kl. 15:00 Lau 27/4 kl. 13:30 Sun 28/4 kl. 15:00
Lau 20/4 kl. 13:30 Lau 27/4 kl. 15:00
Frábært leikrit sem á erindi við alla krakka
Gilitrutt (Brúðuloftið)
Lau 13/4 kl. 13:30 Frums. Lau 20/4 kl. 13:30 Lau 27/4 kl. 13:30
Lau 13/4 kl. 17:00 Lau 20/4 kl. 15:30 Lau 27/4 kl. 15:30
Skemmtileg brúðusýning fyrir börn
Uppistand - Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 11/4 kl. 20:00 Sun 14/4 kl. 20:00 Fös 19/4 kl. 20:00 Síðasta
sýn.
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!