Morgunblaðið - 11.04.2013, Page 18

Morgunblaðið - 11.04.2013, Page 18
BAKSVIÐ Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Litlir sem engir fjármunir hafa verið lagðir í að rannsaka áhrif ferða- manna á náttúru Íslands. „Hingað til hefur aðaláherslan verið lögð á að byggja upp ferða- þjónustuna, en í þessari hröðu uppbyggingu gleymist að ferða- mennska hefur mikil áhrif, bæði jákvæð og nei- kvæð. En það hef- ur ekki verið vin- sælt að ræða neikvæðu áhrif- in,“ segir Rann- veig Ólafsdóttir, dósent í ferða- málafræði við Háskóla Íslands. Afleiðingin er meðal annars sú að þegar framkvæmdir á og við ferða- mannastaði eru skipulagðar eru ekki til rannsóknir til að styðjast við. Framkvæmdirnar geta því orðið ómarkvissar og afleiðingarnar óvæntar. Þessu verði að breyta. „Við megum ekki vakna einn góðan veð- urdag og spyrja: Bíddu, af hverju er þetta orðið svona?“ segir Rannveig. Lengi hafi verið bent á rannsaka þurfi áhrif ferðamanna á náttúru og vistkerfi landsins. Hingað til hafi lítill áhugi verið á því en þeim mun meiri á hvernig ferðamennska geti skapað störf, styrkt byggðirnar og skilað gjaldeyristekjum. Rannveig bendir á að þetta verði að haldast í hendur ætli þjóðin að njóta tekna af ferðamennsku til langs tíma. Umræða um skipulag ferða- mannastaða og uppbyggingu innviða virðist að miklu leyti snúast um það hvernig hægt sé að fá fleiri ferða- menn á staðinn, en ekki um sjálfbæra nýtingu náttúruauðlindanna fyrir ferðamennsku. „Við eigum að geta tekið á móti að minnsta kosti tveimur milljónum ferðamanna, léttilega, ef við stöndum rétt að verki. En við stöndum ekki rétt að verki,“ segir hún. Erfitt að snúa til baka Rætt sé um að bæta innviði ferða- þjónustu en lítið um hvað það þýði. Að sjálfsögðu þurfi að vera til staðir sem geti tekið á móti mörgum ferða- mönnum og þeir séu til s.s. Þingvellir, Gullfoss, Geysir, Dettifoss og Goða- foss. Mikilvægt sé að byggja upp góða aðstöðu við ákveðna ferða- mannastaði sem geti þá tekið við fjöldaferðamennskunni, en það verði að vera sátt um hvaða staðir það séu. Uppbygging innviða breytir að öllu jöfnu ferðamennsku svæðis, og erfitt er að fara til baka þegar uppbygging er einu sinni hafin. Þar sem bætt sé við bílastæðum fjölgi gestum og sú fjölgun kalli á fleiri salerni, öflugri göngustíga og síðan á enn fleiri bíla- stæði. Mikið sé ætt um gjaldtöku en ferðamönnum sé hægt að stýra á ýmsan annan hátt en með gjaldtöku, s.s. með því að takmarka umferð eða ákveða að bæta ekki aðgengi að til- teknum stöðum. „Við verðum að skipuleggja hvar við byggjum upp. Annars verða allir fallegir og vinsælir staðir að fjöldaferðamennskustöð- um,“ segir Rannveig. Slík þróun þurfi ekki endilega að þýða að ferðamönn- um myndi fækka en hópurinn myndi breytast. Það væri heldur ekki víst að heimamenn yrðu allir ánægðir með útkomuna. „Landið okkar er al- gjörlega einstakt. Hvað nátt- úruferðamennsku varðar stöndum við mjög sterk gagnvart keppinaut- um okkar. En við verðum að passa vel upp á þetta aðdráttarafl sem nátt- úra landsins er fyrir ferðamennsku, því ef það spillist fara ferðamenn ein- faldlega eitthvað annað,“ segir hún. Rannveig líkir viðbrögðum við ágangi af völdum fjölgunar ferða- manna við skyndihjálp. Ekki sé grip- ið til aðgerða fyrr en landið sé farið „Bíddu, af hverju er þetta svona?“ Ljósmynd/Rannveig Ólafsdóttir Tréstigar Rannveig segir að í sjálfu sér sé ekkert að stiganum í Snorraríki sem slíkum, en hann gjörbreyti landslaginu og upplifun af staðnum. Rannveig Ólafsdóttir  Áhersla á fjölgun ferðamanna  Rannsaka þarf áhrifin 18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2013 Að ósk stjórnar Minningarsjóðs Guðlaugar Bjargar Pálsdóttur hef- ur sýslumaðurinn á Sauðárkróki ákveðið að sjóðurinn verði lagður niður. Sjóðinn stofnuðu hjónin Ólöf Karvelsdóttir og Páll Pálsson frá Hnífsdal árið 1986 til minningar um Guðlaugu dóttur sína. Hún fórst af slysförum í Vindaskál í Tunguhorni í Bolungarvík 31 árs að aldri. Guð- laug var menntaður sjúkraþjálfari frá Noregi og starfaði sem slík í Bolungarvík þegar hún lést. Styrk- ir minningarsjóðsins til Kórs Lang- holtskirkju á þessum tíma nema um fimm milljónum króna. Styrkir til ungs tónlistarfólks til náms nema einnig fimm milljónum króna og voru það fjórtán einstaklingar sem nutu þeirra. Þá renna 1,7 milljónir króna til Félags íslenskra sjúkra- þjálfara. Síðasta styrkveiting sjóðs- ins var til Jónu G. Kolbrúnardóttur söngkonu, kr. 400.000, og afhenti Kristján Pálsson styrkinn. 12 milljónir veittar úr minningarsjóði Föstudaginn 12. apríl frá kl. 15-18 fer fram háskólakynningin „Col- lege Day Scandinavia – Reykjavík“ í Verslunarskóla Íslands. Fulltrúar 17 bandarískra háskóla verða á staðnum til að kynna skólana og svara spurningum sem snúa að vali á erlendum háskólum, inntökuskil- yrðum og mögulegri fjáhagsaðstoð. Kynningin er bæði ætluð fram- haldsskólanemum sem vilja kynna sér grunnháskólanám en einnig þeim sem farnir eru að huga að meistara- eða doktorsnámi. Að- gangur er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá þátttöku fyrirfram. Skráningin fer fram á heimasíðu College Day Scandinavia 2013. Kynna nám í banda- rískum háskólum Stofnfundur POWERtalk- deildarinnar Kletts verður haldinn í Stúkuhúsinu á Patreksfirði sunnu- daginn 14. apríl kl. 11. POWERtalk eru samtök sem þjálfa fólk í að koma fram og koma fyrir sig orði og býðst íbúum á Vestfjörðum nú tækifæri til að hefja markvissa þjálfun í ræðumennsku, framkomu og fundarstjórn. Jafnframt verða haldin ræðunámskeið um helgina og má finna upplýsingar um þau á www.powertalk.is. Frambjóð- endum í Norðvesturkjöræmi hefur verið boðið á námskeiðin. Ræðumennska kennd á Patreksfirði STUTT Þú færð GO walk skó í Skór.is, Kringlunni og Smáralind | Steinar Waage, Kringlunni og Smáralind | Intersport Lindum, Kópavogi | Skóhöllinni Firði, Hafnarfirði | Versl. Nína, Akranesi | Blómsturvellir, Hellisandi Hafnarbúðin, Ísafirði | Skóhúsið, Akureyri | Mössuskór, Akureyri Skóbúð Húsavíkur, Húsavík | Sentrum, Egilstöðum | Lónið, Höfn í Hornafirði | Skóbúð Selfoss, Selfossi | Axel Ó, Vestmanneyjum Skóbúðin, Keflavík Vissir þú að margskipt gler geta verið mismunandi að gerð og gæðum? Við bjóðum eingöngu upp á gler með "free form" tækni og er sjónsviðið því breiðara en almennt gerist. Hægt er að ráða hraða skiptingar og sérsníða glerin eftir þörfum hvers og eins. Verið velkomin í eina glæsilegustu gleraugnaverslun landsins Álfabakka 14a s. 527 1515 Frí sjónmæling og sérfræðiráðgjöf í glerjavali. Glerjadagar 30% afsláttur af öllum sjónglerjum Ný verslun í göngugötu gleraugnabudin@gleraugnabudin.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.