Morgunblaðið - 11.04.2013, Side 35
MINNINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2013
læknisfræðinnar, heilaskurð-
lækningum. Hann ávann sér
virðingu og ævilanga vináttu
prófessora sinna og samstarfs-
manna í hinu stranga framhalds-
námi í Bandaríkjunum og heim-
sóttu þeir hann oft til Íslands
eftir að hann hafði með sam-
starfsmönnum sínum komið á fót
heilaskurðlækningadeild við
Borgarspítalann. Starf Bjarna
við þá deild varð sannkallað ævi-
starf hans. Mikið og gott orðspor
fór af snilld hans við hinar erf-
iðustu aðgerðir og fjöldi fólks
náði undraverðum bata undir
hans handleiðslu. Meðfædd nær-
gætni hans og hlýleg framkoma
við sjúklinga sína færði honum
fádæma vinsældir meðal þeirra
og snart þakklæti þeirra hann
djúpt.
Bjarni naut heilsuhreysti alla
sína starfsævi og missti aldrei úr
dag í langri þjónustu á Borgar-
spítalanum.
Hann stundaði heilsubótar-
göngur ásamt því að stunda sigl-
ingar og skíðamennsku sér til af-
þreyingar frá gríðarlega erfiðum
störfum. Við hjónin eigum falleg-
ar minningar um skíðaferðir til
Austurríkis og Ítalíu og einstak-
lega minnisverða skútusiglingu
við Grikkland þar sem Bjarni
stýrði skútunni öruggri hendi.
Á íþróttaferli sínum var
Bjarni afreksmaður eins og í
störfum sínum og varð Íslands-
meistari bæði í körfubolta og síð-
ar siglingakeppni margsinnis.
Hann hafði mikinn áhuga á fé-
lagsmálum og var valinn til for-
ystu bæði á háskólaárunum og
einnig síðar bæði á sviði lækn-
isfræðinnar og einnig í félögum
er tengdust áhugamálum hans.
Í einkalífi sínu var Bjarni mik-
ill gæfumaður, en hann gekk
ungur að eiga skólasystur okkar,
Þorbjörgu Þóroddsdóttur, og
eiga þau þrjú börn og tíu barna-
börn. Bjarni og Þorbjörg voru
ákaflega samrýnd og gjarnan
nefnd bæði ef geta átti annars
þeirra.
Vináttubönd knýtt á unglings-
árum reynast gjarnan endingar-
góð. Nánasti vinahópur okkar
Bjarna hafði einmitt þekkst frá
unglingsárum og því er sérstak-
lega sárt þegar kvarnast úr
hópnum.
Við leiðarlok vil ég þakka fyrir
vináttuna, hlýjuna og tryggðina
sem aldrei brást.
Fjölskylda mín sendir Þor-
björgu og afkomendum þeirra
Bjarna okkar innilegustu samúð-
arkveðjur.
Benedikt Sveinsson.
Fallinn er frá góður vinur og
samstarfsmaður.
Bjarni Hannesson læknir er
látinn eftir stutt veikindi. Bjarni
var frumkvöðull í heila- og tauga-
skurðlækningum á Íslandi.
Kynni mín af Bjarna hófust er ég
sem læknakandidat byrjaði feril
minn á Borgarspítalanum 1974,
hann var fús að kenna ungum
kandidötum og leiða þá í gegnum
byrjunarspor læknisfræðinnar.
Þegar við fjórir læknar stofnuð-
um síðan Læknastofur í Álfta-
mýri 1997 hóf Bjarni störf hjá
okkur fljótlega eftir það og rak
þar læknastofu. Hann flutti síðan
með okkur í Orkuhúsið fyrir rétt-
um 10 árum og hefur starfað þar
síðan þar til fyrir rúmum mánuði
að hann lét af störfum sökum
veikinda. Bjarni var hvers manns
hugljúfi og var ávallt gott að leita
til hans með vandamál sem upp
komu og snertu sérgrein hans.
Við samstarfsfólk hans á
læknastöðinni í Orkuhúsinu
söknum góðs vinar og samstarfs-
manns. Við sendum eiginkonu
hans og ættingjum okkar hug-
heilustu samúðarkveðjur.
Fyrir hönd starfsfólks
Læknastöðvarinnar Orkuhúsinu,
Stefán Carlsson.
Fleiri minningargreinar
um Bjarna Hannesson bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
✝ Andri MárÞórðarson
fæddist í Reykjavík
16. apríl 1987.
Hann lést af slys-
förum í Flórída 23.
mars 2013. For-
eldrar hans eru
Alda Kolbrún Har-
aldsdóttir, f. 31.1.
1960, og Þórður
Hreinn Krist-
jánsson, f. 27.5.
1956. Systkini hans sammæðra
eru Jóhann Geir, f. 6.4. 1981,
sambýliskona hans er Stefanía
Gunnarsdóttir, Birgir Örn, f.
9.11. 1982, sambýliskona hans
er Tinna Valbjörns-
dóttir og þau eiga
soninn Adrían, f.
27. 7. 2011, Liv
Gunnhildur, f. 9.1.
1990, og Eydís, f.
21. 5. 1993, sam-
býlismaður hennar
er Björn Ingi Ósk-
arsson. Samfeðra
er Egill Örn, f. 4.3.
1993.
Andri már var
nemandi við Fjölbrautaskólann í
Breiðholti.
Útför Andra Más fer fram frá
Fella- og Hólakirkju hinn 11.
apríl 2013 kl. 13.
Elsku hjartans engillinn minn.
Þegar þú fæddist runnu mörg
gleðitár en núna renna bara sorg-
artár; ef tárin gætu byggt stiga til
himins væri ég komin að taka ut-
an um þig og segja þér hversu
mikið ég sakna þín og elska þig
engillinn minn. Þegar þú komst í
faðm minn fyrst fannst mér þú
brosa svo undurfallega og það
bros fór aldrei af þér. Ég ætla
ekki að skrifa þínar æviminning-
ar hér, það væri efni í heila bók
elsku kallinn minn. Ég elska þig
svo óendanlega mikið elsku barn-
ið mitt. Það tekur svo á mig að
þurfa að kveðja þig og engin móð-
ir ætti að ganga í gegnum slíkt.
Minn ástkæri sonur, minn hugur til
þín leitar,
og mikið ég vildi, þú gætir verið mér
hjá.
Mitt hjarta og hugur stundum því
neitar
þitt hamingjubros, ég fái ei lengur
að sjá.
En minningar margar á ég um þig,
þær megnar enginn frá mér að taka.
Þær gleðja mitt hjarta og hugga mig,
þó heldur ég vildi fá þig til baka.
Elsku sonur við söknum þín
og sorgin hjörtu oss lamar.
En Guð þá góðu kallar til sín,
til göfugri verka og frama.
Ný heimkynni þú kominn ert í
hjá Kristi í himnanna höll.
Andri Már, þú trúa mátt því,
þig við elskum og söknum þín öll.
Ég mun alltaf elska þig og mun
sakna brossins þíns og hlátursins.
Eins og þú sagðir alltaf við
mig: „Hafðu það gott í bili og
eigðu góðan dag.“ Þangað til við
hittumst aftur engillinn minn.
Þín
mamma.
Kæri Andri Már. Ég sakna þín
elsku bróðir. Þú varst svo ynd-
islegur og með hjarta úr gulli. Þú
hjálpaðir mér alltaf þegar ég
þurfti þess með, sama hvort það
var með heimanám eða að kenna
mér eitthvað nýtt, ég er ekki að
segja að þú hafir ekki oft látið mig
kenna á því að vera yngst í fjöl-
skyldunni. Við erum stór fjöl-
skylda en þú vissir alveg hvernig
þú áttir að standa upp úr og fá at-
hyglina. Þú kenndir mér að sama
hversu stór vandamálin væru þá
stæði maður alltaf sterkari eftir
þegar þau væru að baki.
Ég man eftir brosinu þínu, hin-
um stóra persónuleika þínum
sem alltaf stóð upp úr þó svo að
fullt væri af fólki í herberginu, og
ekki má gleyma hlátri þínum sem
var alveg einstakur.
Þú varst með ævintýra-
mennskuna í blóðinu, þú kenndir
mér að vera ekki hrædd við það
að fara út í lífið og gera það sem
mig langar að gera og að láta ekk-
ert stoppa mig. Ég trúi ekki á guð
eins og þú en ég veit að þú ert á
góðum stað að hlæja að okkur
sem þú skildir eftir. Ég brosi við
að hugsa um það að eftir að þú
fórst frá okkur erum við fjöl-
skyldan búin að standa saman.
Þótt við ýtum hvert í annað er það
bara vegna þess að við erum öll
hræðilega þrjósk.
Takk fyrir að snerta líf okkar
þó það væri í svona stuttan tíma,
við munum aldrei gleyma þér
Andri.
Þín systir,
Eydís
Eyþórsdóttir.
Elsku fallegi Andri okkar, ég
get ekki beðið um betri bróður en
þig. Alltaf til í að gera allt fyrir
alla, alltaf brosandi og stutt í
húmorinn, já já. Með þitt fallega
bros og þegar maður spáir í það
varstu alltaf brosandi. Maður trú-
ir því ekki að þú sért farinn frá
okkur, þetta er svo óraunverulegt
allt. Við eigum aldrei eftir að
gleyma þér og það er stórt ör í
hjörtum okkar sem verður erfitt
að lifa með. Ég hef aldrei séð þig
eins sáttan með lífið og þú varst
síðustu mánuði. Ég er allavega
stoltur af að vera bróðir þinn og
að við höfðum valið þig sem guð-
föður sonar okkar, Adríans, sem
elskaði að fá Andra frænda í
heimsókn því þá vissi hann nefni-
lega að það yrði svaka fjör. Við
söknum þín svo mikið, þú verður
alltaf í hjörtum og huga okkar
alla ævi. Við elskum þig svo mik-
ið.
Birgir, Tinna
og Adrían.
Elsku Andri minn. Aldrei bjóst
ég við því að þú færir svona fljótt
frá okkur. En guð ætlaði þér ann-
að og mikilvægt verkefni. Ljósið
sem umvafði þig alla þína ævi
hlýjaði okkur hinum sem fengum
að njóta þín hér á okkar jörðu. Nú
verður tómlegt að fá þig ekki
lengur í heimsókn og mat, það var
svo gaman að gefa þér að borða.
Þú varst ánægður með allt sem
ég bar á borð fyrir þig.
Elsku vinurinn minn, þakka
þér fyrir allt og að vera svo ynd-
islegur drengur.
Þau ljós sem skærast lýsa,
þau ljós sem skína glaðast
þau bera mesta birtu
en brenna líka hraðast
og fyrr en okkur uggir
fer um þau harður bylur
er dauðans dómur fellur
og dóm þann enginn skilur.
En skinið loga kæra
sem skamma stund oss gladdi
það kveikti ást og yndi
með öllum sem það kvaddi.
Þótt burt úr heimi hörðum
nú hverfi ljósið bjarta
þá situr eftir ylur
í okkar mædda hjarta.
(Friðrik Guðni Þórleifsson)
Þín amma,
Ásta Fjeldsted.
Ég vil kveðja minn glaðværa
og ljúfa systurson, Andra, sem
tekinn var frá okkur langt um
aldur fram í skelfilegu slysi. Þú
fékkst þennan brennandi áhuga
fyrir fallhlífarstökki, þér fannst
þú vera sterkur og sannur Íslend-
ingur við það að horfast í augu við
óttann, eins og þú sagðir sjálfur.
Síðustu minningarnar um þig
vekja hjá mér gleði, þegar við
dönsuðum salsa í brúðkaupi syst-
urdóttur minnar, svo kátur og
glaður. Við spjölluðum saman
langt fram á nótt. Louise mín og
hennar fjölskylda í Frakklandi,
Karim og Kristín biðja fyrir
kveðjur.
Ég veit það verður vel tekið á
móti þér af mömmu Sísí, Dadda,
ömmu Stefaníu og Jóhanni frá
Valbjarnarvöllum. Hvíl í friði, fal-
legi drengurinn minn.
Steinunn Stefanía.
Laugardaginn 23. mars, að
kvöldi til var hringt til mín og mér
sagt að þú værir týndur eftir fall-
hlífarstökk í Flórída. Strax vissi
ég að þú kæmir ekki til baka. En
ég hélt í vonina. Fór að hugsa
með mér að þú værir kannski
fastur uppi í tré eða hefðir ekki
lent á áætluðum stað af einhverri
ástæðu og værir á leiðinni til
baka. En þú komst ekki til baka,
heldur fórst áfram. Þú hélst
göngu þinni áfram inn í ljósið.
Bros. Alltaf varstu brosandi.
Hreint bros og hreint hjarta var
svo sannarlega auðkennið þitt.
Allir sem kynntust þér segja það
sama, „hann var alltaf brosandi
og hann var svo góður“. Hlátur
þinn smitaði vel út frá sér og það
var ósjaldan sem við enduðum öll
hlæjandi að asnalegustu hlutun-
um sem voru ekki einu sinni
fyndnir. En svona varst þú, þú
geislaðir og aðrir beisluðu geisla
þína sem breyttust í hlýja tilfinn-
ingu í hjartanu. Já, þú hittir
hvern mann í hjartastað.
Þú varst fyrsti litli nákomni
frændi minn sem ég eignaðist. Og
maður lifandi, ég varð strax svo
hrifin af þér. Mér fannst þú vera
litli bróðir minn á vissan hátt. Þú
bræddir mig með fallegu augun-
um þínum og brosi og mér fannst
þú fallegastur allra barna. Ég
man eftir því að þú varst heima
hjá mér, fyrir eins árs aldur. Ég
var að leika við þig og þú fékkst
hláturskast, það endaði með því
að ég fékk það líka og tímunum
saman sátum við hlæjandi að því
sama. Sem endaði á því að við
vissum ekki að hverju við vorum
að hlæja.
Einnig man ég vel þegar þú
komst heim með bók með tákn-
máli, ég las hana spjaldanna á
milli og lagði allt á minnið. Ég
lærði orðin með þér, þú kenndir
mér. Ég fór stolt í skólann og var
að kenna öðrum það sem ég
kunni. Já, þú kenndir manni fljótt
nytsamlega hluti. En þú varst
heppinn að styðjast ekki við tákn-
málið lengi.
Ég fluttist í sveitina og þú
varst í bænum. En þú komst í
sveitina og varst hjá okkur um
tíma. Það var yndislegt. Ég var
gelgja og var ekkert of hrifin af
því að eyða tíma mínum í að passa
gríslinga. En sá tími var yndisleg-
ur. Þú varst uppátækjasamur,
góður, stríðinn og yndislegur.
Þegar ég skammaði þig eftir eitt-
hvert uppátækið þá sagðir þú:
„allt í lagi, Sigrún mín“, og þú
brostir. Ég sá blikið í augunum á
þér og hvað var annað hægt en að
bráðna. Maður gat ekki verið
reiður við þig.
Andri minn, þú varst yndisleg-
ur á allan hátt. Þú varst svo ein-
lægur og máttir ekkert aumt sjá.
Jafn hjartahlýjan og góðan mann
er erfitt að finna. Þú varst góður
við alla sem urðu á vegi þínum,
það ber öllum saman um.
Um jólin síðustu varstu að
segja okkur frá stóru Flórída-
ferðinni þinni. Ég var svo hissa,
því ég vissi ekki að þú hefðir farið
í fallhlífarstökk. Ég spurði þig:
„Guð minn góður, hvernig þor-
irðu þetta?“ Þú sagðir: „Þetta er
bara svo æðislegt, ég myndi ekki
vilja að ég þyrði þetta ekki.“ Og
það gerðir þú. Þú stökkst inn í ei-
lífðina.
Elsku Andri minn. Takk fyrir
að kenna mér að líta björtum aug-
um á lífið. Takk fyrir að kenna
mér að brosa með hjartanu. Um-
fram allt, takk fyrir að vera þú, al-
veg nákvæmlega eins og þú varst.
Þín frænka,
Sigrún Ósk.
Elsku vinur, margt fer í gegn-
um hugann þegar ég hugsa til þín.
Allar fallegu og skemmtilegu
minningarnar um alls kyns æv-
intýri sem við áttum saman.
Þú varst alltaf hrókur alls
fagnaðar þar sem þú varst, hress
og skemmtilegur og gast fengið
alla til að brosa og hlæja. Jákvætt
hugarfar þitt smitaði frá sér.
Það var sérstaklega gaman
þegar við félagarnir hittumst í
marsbyrjun og þú hafðir frá svo
miklu að segja og lífið lék við þig.
Þú varst frábær vinur með
hjarta úr gulli. En lífið er ekki
alltaf sanngjarnt, minning þín
mun aldrei gleymast, elsku
Andri.
Hvíldu í friði elsku vinur og
vonandi hittumst við aftur þegar
minn tími er liðinn.
Þinn vinur,
Gauti Fannar.
Elsku vinur … nú ertu farinn,
ég sem hélt að við myndum eiga
eftir að eyða mörgum gleðistund-
um saman. Það er mér sárt að
hugsa til þess að eiga ekki eftir að
heyra frá þér meir, þú varst góð-
ur og tryggur vinur sem mér
þótti alltaf svo vænt um. Margt
brölluðum við sem litlir drengir,
unnum saman úti á landi, svo hjá
föður mínum og bræðrum sem
þótti öllum svo vænt um þig, get
nú ekki sagt annað en að við ætt-
um margar góðar og gleðilegar
stundir saman, sem munu aldrei
gleymast. Þú varst gull af manni
með gullhjarta og hvert sem þú
komst var vel tekið á móti þér. Ég
veit að þú ert í góðum höndum
núna hjá hinum englunum. Ég vil
þakka þér fyrir allt saman, það er
búið að vera algjör heiður að fá að
þekkja þig öll þessi ár, elsku
Andri minn.
Þinn vinur,
Stefán B. Stefánsson.
Kæri Andri, það var alltaf
hægt að hafa gaman með þér, þú
varst einn af þeim sem þótti vænt
um góða og sterka vináttu. Við
elskum þig og söknum svo rosa-
lega mikið. Við brosum bara við
það að hugsa um allar góðu
stundirnar með þér, þú varst með
hreint hjarta úr gulli. Þegar þú
tókst þér eitthvað fyrir hendur
gerðir þú það vel og stundum of
vel, þú varst einn af fáum sem
kunnu að fara með peninga. Þú
varst blómstrandi í lífi þínu þegar
þú fórst. Jói sagði að þegar þú þú
fórst til Flórída hefði hann hugs-
að í eigingirni að þrjár vikur til
útlanda væri alltof langt, of langt
til að gera eitthvað skemmtilegt
með okkur strákunum. Við töld-
um dagana þar til þú kæmir aftur
en nú verðum við að sætta okkur
við að hætta að telja. Maður gat
alltaf talað við þig þegar eitthvað
var að og þú varst alltaf tilbúinn
að hjálpa, við gátum alltaf treyst
þér fyrir öllu. Það var alltaf gam-
an að keppa við þig, þú varst með
svo mikið keppnisskap en það var
hundleiðinlegt að tapa fyrir þér,
því þá komu alltaf þessi brjálæð-
islegu fagnaðarlæti frá þér, sem
var líka gaman. Þú hafðir besta
hlátur sem við vitum um, þegar
þú hlóst hlógu allir með þér. Þú
varst svo góðhjartaður og elskað-
ir börn, Ástrós gleymir því ekki
þegar systkini Inga komu hvað
þú varst góður við þau. Þú varst
alltaf að tala við Tristan Andra
nafna þinn í bumbunni og hlakk-
aðir svo til að sjá hann, sem betur
fer fékkstu allavega að sjá mynd
af honum. Þú hefðir orðið Andri
frændi og við vitum að Tristan
hefði oft heimsótt Andra frænda
sinn.
Þínir vinir
Jóhannes Leite,
Sandra Björk,
Ingibergur Gunnar
og Ástrós Ósk.
Elsku Andri okkar, við trúum
þessu ekki enn, af hverju þú?
Yndislegasti maður sem við höf-
um kynnst og var alltaf fús til að
hjálpa vinum sínum. Það var allt-
af hægt að leita til þín með hvað
sem var og við getum sagt að þú
hafir kennt okkur margt.
Það krauma í okkur tilfinning-
ar, bæði reiði og sorg, að hafa
misst þig því þú varst alveg ein-
stakur á allan hátt, en fyrst og
fremst ótrúlegt þakklæti fyrir að
hafa fengið að kynnast þér. Við
áttum góða tíma saman eftir að
þú fluttir aftur til Reykjavíkur,
komst oft til okkar og við elduð-
um og horfðum á mynd saman og
í eldhúsinu varstu flottur. Eitt
skiptið varstu að gera béarn-
aise-sósu og þú tókst heilt 500 g
smjörstykki, skiptir því í tvennt;
einn 100 g bita og hinn 400 g. Þór-
ir setti þann minni í pottinn og þú,
nautnaseggurinn, segir: „Nei,
nei, það átti að vera hinn stærri,“
og vippaðir honum líka í sósuna
og ekki nóg með það, þú settir
líka heilan pela af rjóma! Thelma
neitaði að fá sér sósu, sagði þig
vera búinn að gera hana extra fit-
andi þetta skiptið. Þú varst algjör
barnakall, varst endalaust stoltur
af Adrían, syni hans Bigga bróður
þíns, og talaðir alltaf um að vera
The Godfather. Svo alltaf þegar
þú hittir stelpurnar okkar gafstu
þér nægan tíma í að leika við þær
og við þurftum stundum að
stoppa ykkur út af látum. Sara,
elsta dóttir okkar, á eftir að sakna
þín sérstaklega. Þú varst svo
sannarlega með hjartað á réttum
stað, gull af manni.
Hvíldu í friði, elsku vinur okk-
ar, við trúum því að við munum
hittast aftur seinna, Við elskum
þig, kæri vinur, og munum aldrei
hætta að sakna þín. Vildum af öllu
hjarta geta haft þig lengur hjá
okkur en herrann hefur kallað þig
til þjónustu meðal engla.
Ástarkveðja,
Þórir Arnar
og Thelma Gannt.
Elsku Andri minn, það er
ennþá svo óraunverulegt að þú
sért farinn. Maður vill bara ekki
trúa að heimurinn taki frá manni
svona yndislegan mann í blóma
lífsins á svipstundu. Á aldrei eftir
að gleyma þér og þínum yndis-
lega hlátri. Þegar Andri hló hlógu
allir, skipti engu máli hverju var
hlegið að. Ég er svo þakklátur
fyrir að hafa átt þig að, þú varst
besti vinur sem hægt var að
hugsa sér, því þú tókst öllum eins
og þeir eru og dæmdir aldrei
neinn. Andri átti enga óvini. Það
var svo mikið sem maður fékk að
læra af þér; lifa lífinu lifandi og
með bros á vör og vera þakklátur
fyrir það sem maður hefur. Þú
kenndir mér að ef mann langaði
að gera eitthvað þýddi ekkert að
hugsa of mikið um það heldur
fara í málin og láta draumana
rætast, það gerðir þú svo sann-
arlega. Andri var þannig maður
sem var alltaf til í að gera allt, það
var alltaf hægt að treysta á hann í
einu og öllu.
Andri, þú varst gull af manni
og ég á eftir að sakna þín meira
en orð fá lýst. Ég hef enga trú á
öðru en við eigum eftir að hittast
aftur einn góðan veðurdag á betri
stað.
Þinn vinur,
Elvar Már.
Andri Már
Þórðarson
HINSTA KVEÐJA
Elsku vinur, ég er svo
þakklátur fyrir allar þær
yndislegu stundir sem við
áttum saman. Þú varst með
svo góða og yndislega sál
sem hleypti gleði og hlátri
inn í líf okkar allra.
Hvíldu í friði kæri vinur.
Þín verður sárt saknað,
elsku Andri minn.
Þinn vinur,
Alex Wheeler.