Morgunblaðið - 11.04.2013, Qupperneq 40
40 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Taktu eitt fyrir í einu því ef þú ert
með of mörg járn í eldinum fer allt úr bönd-
unum. Þú hefur góðan byr í seglin en þarft að
gæta þess að kollsigla þig ekki.
20. apríl - 20. maí
Naut Menn halda að þér allskonar málefnum
og vilja fá þig til fylgis við þau. Sumir óttast
þau en það fellur í þinn hlut að afgreiða þau
áður en þau valda erfiðleikum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Tekjumöguleikar þínir eru góðir
þessa dagana. Munið að góð vinátta er gulli
betri og hún er ekki einstefna.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það hefur verið mikið álag á þér að
undanförnu svo þú hefðir gott af því að
breyta um umhverfi um helgina. Varpaðu allri
formfestu fyrir róða og láttu berast með
straumnum í dag.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er leikur í þér og því muntu njóta
þess að leika þér við maka þinn, börn eða vini
í dag. Sýndu undirmönnum þínum á vinnu-
stað skilning.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Nú er rétti tíminn til að leita til sér-
fræðinga með þín mál. Haltu þínu fram af
hógværð og þá verður tekið tillit til þín. Gerðu
ferðaáætlun og fylgdu henni eftir.
23. sept. - 22. okt.
Vog Ef hægt er að starfa á hámarkshraða og
halda streitunni í lágmarki er vogin mann-
eskjan sem finnur leiðina til þess. Varastu að
láta það stíga þér til höfuðs.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Veittu beina aðstoð við verkefni
heima fyrir og hafðu gaman af að end-
urskapa minningar úr fortíðinni. Þú þarft að
gera það upp við þig hvort þú ætlar að halda
áfram í vinnunni eða ekki.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú ert eitthvað annars hugar í
vinnunni og verður að taka þig á áður en allt
fer í hund og kött. Gerðu eitthvað eitt sem þú
hefur lofað sjálfri/sjálfum þér upp á síðkast-
ið.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú færð oft góðar hugmyndir en
týnir þeim jafnóðum niður. Nánustu sambönd
þín eru hlýleg og gefandi núna. Njóttu lífsins
og láttu allar áhyggjur lönd og leið á meðan.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú munt mæta í dag erfiðri þraut,
sem reynir á alla þína hæfni – og það tekst.
Gefðu þér tíma til að njóta fegurðar náttúr-
unnar með þínum nánustu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þér er það kappsmál að segja öðrum
þína hlið á málunum. Notaðu tækifærið til að
bæta sambandið við þá sem þér eru kærir.
Helgi Seljan sendi Vísnahorninubréf í síðustu viku með „broti
af leirburði síðustu daga“:
Ekki vil ég af því raupa,
þó allvel sé ég hress,
en enginn lét mig apríl hlaupa:
Ellin sá til þess.
Enn um 1. apríl.
Í fjölmiðlum aprílgabb reynt er víst
enn
og upplagt nú þótti að vera með bjór.
Í Heiðrúnu þorstinn rak þó nokkra
menn,
en þar var allt lokað og vonbrigðin
stór.
Og um vígslu handboltamanna í
nýjum liðum:
Ef viltu í alvöru árangri ná
á íþróttasviði, að mörgu er að gá.
En allra bezt þykir að á megi sjá,
að ærlegan rassskell þú hafir mátt
fá.
Þá um kosningabaráttuna:
Margur við framboðafjöldann dokar,
ferlegt er það að sjá.
Allir flokkanna fýlupokar
farnir eru á stjá.
Sigurjón V. Jónsson á Selfossi
sendir Vísnahorninu bréf: „Fram-
sóknarflokkurinn hefur verið með
stöðugt fylgi mörg undanfarin ár
en svo stökkbreyttist fylgið (eins
og húsnæðislánin):
Af er það sem áður var
öllum linnir þrautum
núna fylgi Framsóknar
fer með himinskautum.“
„Skemmtileg fyrirsögn í Mogg-
anum“ hljóðaði svo: „Fossvogs-
kirkjugarður áttræður – nærliggj-
andi íbúum boðið í kaffi“. Sigurjón
skrifar í tilefni því: „Spurning
hvort þetta flokkist ekki undir að
raska grafarró!
Tertur miklar trufla frið
en tala vel um staffið
upp þeir risu í afmælið
alltaf hressir kaffið.“
Þá heyrði hann af því að fjall-
göngumenn notuðu viagra til að
komast á toppinn:
Hæsta tindi hljóta að ná
hönd þó sýnist loppin
fyrst þeir hafa fætur þrjá
að fikra sig á toppinn.
Valgeir Sigurðsson sendi þætt-
inum vísu:
Öll þín för var onímóti,
innrætið á vísum stað.
Lærðu nú af Lagarfljóti,
en láttu engan frétta það.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af kaffiboði í kirkjugarði
og vígslu handboltamanna
Í klípu
„GUÐ MINN GÓÐUR, ÞÚ KASTAR EINS OG
LÍTIL STELPA! VIÐ VILJUM ÞRUMUR OG
LÆTI, EKKI VESÆLT VÆL!“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG KEYPTI ÞETTA Á STAÐ
SEM HEITIR GRIKKLAND.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að ganga inn í líf
einhvers.
ÞÁ ER ÉG FARINN TIL ÍTALÍU OG
MUN KOMA TIL BAKA MEÐ ÓMETANLEG
VERÐMÆTI FRÁ HINNI FORNU RÓM!
FYRST ÞÚ ERT
AÐ FARA ...
... SÆKTU PÍTSU MEÐ
PEPPERONI, LAUK OG
AUKASVEPPUM FYRIR
MIG.
MJÓLK ... SUMIR SKOÐA
SÍÐASTA SÖLUDAG ... EN AÐRIR
EKKI.Þ
essa dagana líður Víkverja dags-
ins eins og barni í sælgætisbúð.
Gottið er gómsætt og draumkennd
tilfinning fer um Reykvíkinga sem
nú gefst kostur á að láta í ljós skoðun
sína á forgangsröðun framkvæmda í
heimahverfum sínum. Og það er ekki
neitt smáræði í boði. Þeir sem búa til
dæmis í Grafarholtshverfi eiga svo
sannarlega um margt gott að velja.
Meðal þess sem borgin býður er að
setja til dæmis upp örnefnaskilti,
bæta leiksvæði í Ólafsgeisla, leggja
stíga, gróðursetja á nokkrum stöð-
um og setja upp bekki og hunda-
gerði. Framkvæmdafé eyrnamerkt
Grafarholti er 18,7 milljónir króna.
Ekkert smáræði!
x x x
Að sjálfsögðu ákvað Víkverji aðsinna borgaralegri skyldu og
tók þátt í atkvæðagreiðslu þessari.
Var sérstaklega áfram um göngu-
stíga og gróðursetningu. Væntir nú
þess að verði hans vilji.
Að gamni slepptu verður að segja
að verkefnaval þetta er frekar mis-
lukkað fyrirbæri. Auðvitað er hið
besta mál að lagðir séu göngustígar
og aðstaða til hreyfingar og samveru
fjölskyldna sé bætt. Á allan mæli-
kvarða er því ekki stórmál hvar
göngustígar skuli vera eða gróður-
sprotum stungið í jörð. Flest höfum
við svipaðar væntingar um vistvænt
umhverfi með möguleikum til úti-
veru. Að leita sérstaklega álits borg-
arbúa í atkvæðagreiðslu á til dæmis
því hvort fyrr skuli marka brautir
eða fegra trjálundi er satt að segja
eins og leikhús fáránleikans.
x x x
En Víkverja þykir þó bæði rétt ogskylt að þakka fyrir frumkvæðið.
Væntir að kosning þessi sé upphaf
að öðru og meira. Upplagt hefði t.d.
verið fyrir tveimur árum að leyfa
íbúum að greiða atkvæði um samein-
ingu skóla, sem meirihlutinn keyrði í
gegn í miklum mótbyr og í andstöðu
við foreldra. Þá var lýðræðið látið
mæta afgangi. En við breytum ekki
hinu liðna, næsta mál á dagskrá er
væntanlega að fólki gefist kostur á
að greiða atkvæði um hvort borgin
greiði áfram hundruð milljóna með
Hörpu, það er moki sandi í botnlausa
tunnu.
víkverji@mbl.is
Víkverji
En nú varir trú, von og kærleikur,
þetta þrennt, en þeirra er kærleik-
urinn mestur. (Fyrra Korintubréf 13:13)
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
Teppi á stigaganginn
nú er tækifærið !
Komum á staðinn með prufur og mælum,
ykkur að kostnaðarlausu
Eitt verð niðurkomið
kr. 5.890 m2