Morgunblaðið - 13.04.2013, Blaðsíða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2013
s Jóns
Gunnar Dofri Ólafsson
gunnardofri@mbl.is
Fyrirtaka fór fram í gærmorgun í máli Dróma
hf. gegn Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrrverandi
forstjóra Kaupþings, Ingólfi Helgasyni, fyrr-
verandi forstjóra Kaupþings á Íslandi, Sigurði
Einarssyni, fyrrverandi stjórnarformanni
Kaupþings, Steingrími Páli Kárasyni, fyrrver-
andi framkvæmdastjóra áhættustýringar
Kaupþings og Magnúsi Guðmundssyni, fyrr-
verandi forstjóra Kaupþings í Lúxemborg auk
einkahlutafélaganna Hvítsstaða og Langár-
foss.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins
bera stefndu fyrir sig að lán, sem tekið var
hjá SPRON til jarðarkaupa, sé ólögmætt
gengistryggt lán og beri að reikna upp á nýtt.
Málið sem tekið var fyrir í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær snýst um kúlulán sem eign-
arhaldsfélag stefndu, Hvítsstaðir ehf., tók til
kaupa á jörðinni Langárfoss árið 2005, en end-
urgreiða átti lánið árið 2010.
Dómkvaddur matsmaður hefur verið feng-
inn til að verðmeta jörðina en ekki er vitað
hversu háar fjárhæðir Drómi krefur stefndu
um.
Í nóvember árið 2009 stóðu skuldir Hvíts-
staða, eignarhaldsfélags stefndu, í rúmum
milljarði króna, en eignir þess, fjórar jarðir,
voru á þeim tíma metnar á 400 milljónir króna.
Í ljósi lækkandi jarðaverðs má gera ráð fyrir
að verðmat jarðanna verði lægra en það var
þegar jarðirnar voru keyptar.
Kaupþingsmenn hafna gengistryggingu
Nokkrir af fyrrverandi stjórnendum Kaupþings
bera við að lán sem þeir tóku hafi verið ólögmæt
Morgunblaðið/Einar Falur
Langárfoss Eignarhaldsfélag fyrrverandi stjórnenda Kaupþings keypti jörðina Langárfoss á
gengistryggðum lánum. Þeir bera nú fyrir sig að gengistrygging lánsins hafi verið ólögmæt.