Morgunblaðið - 13.04.2013, Blaðsíða 55
MENNING 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2013
ATH SÍÐASTA HELGIN
FRÁ 28 MARS TIL 14. APRÍL
OPIÐ ALLA DAGA FRÁ 11 TIL 18
GÍFURLEGT ÚRVAL AF ÖLLUM TEGUNDUM
TÓNLISTAR, HLJÓÐBÓKA OG DVD MYNDA
Leikhópurinn Vesturport hlýtur
þrjár tilnefningar til hinna banda-
rísku Elliot Norton-leikhús-
verðlauna í ár, fyrir uppsetningu
sína og breska leikhússins Lyric
Hammersmith á Hamskiptunum eft-
ir Kafka. Tilnefningarnar eru fyrir
bestu gestasýningu, bestu hönnun
leikmyndar og besta leikara í aðal-
hlutverki. Leikmyndina hannaði
Börkur Jónsson og Gísli Örn Garð-
arsson fer með aðalhlutverkið í sýn-
ingunni.
Uppsetning Vesturports á Ham-
skiptunum var sýnd í Paramount
Center í Boston 27. febrúar til 3.
mars á þessu ári. Frá þessu er
greint á vef Vesturports, vestur-
port.com. Verðlaunin verða afhent
13. maí næstkomandi í Boston og
eru kennd við einn virtasta leiklist-
argagnrýnanda borgarinnar sem lét
af störfum árið 1982. Tvær gesta-
sýningar eru tilnefndar auk Ham-
skiptanna, War Horse og The Serv-
ant of Two Masters.
Börkur er einnig tilnefndur til
dönsku Reumert-leiklistarverð-
launanna fyrir leikmyndina í sam-
norrænu sýningunni Bastard. Sú
uppfærsla var sýnd í Svíþjóð, Dan-
mörku og Íslandi í fyrra.
Ljósmynd/Eggert Jónsson
Marglofuð Úr uppfærslu Vesturports á Hamskiptunum eftir Franz Kafka.
Gísli Örn Garðarsson fer með aðalhlutverkið, hlutverk Gregors Samsa.
Vesturport tilnefnt til Ell-
iot Norton-verðlaunanna
Kvikmyndaklúbburinn Svartir
sunnudagar í Bíó Paradís sýnir á
morgun kl. 20 kvikmynd Russ
Meyers, Beyond the Valley of the
Dolls, frá árinu 1970. Myndin er sú
fyrri af tveimur sem Meyer gerði
fyrir 20th Century Fox, að því er
fram kemur á vef kvikmyndahúss-
ins. Þar segir einnig að handrit
myndarinnar hafi Meyer skrifað
með kvikmyndagagnrýnandanum
Roger Ebert sem lést fyrir
skömmu. „Myndin er sérkennilegt
melódrama sem upphaflega var
ætlað að verða framhald hinnar
vinsælu myndar Valley of the Dolls
frá 1967. Þegar Russ Meyer fékk
verkefnið í hendurnar var fljótlega
ljóst að myndin yrði ansi langt frá
frummyndinni og menn klóruðu sér
lengi í kollinum yfir því hvort um
væri að ræða grín eða alvöru,“ seg-
ir m.a. um myndina. Leikarar
myndarinnar hafi aldrei fengið á
hreint hvort þeir væru að leika í
gamanmynd eða hádramatískri
stórslysamynd.
Bíó Paradís mun einnig á sunnu-
daginn sýna Cremaster 3 úr Cre-
master-syrpu myndlistarmannsins
Matthew Barney. Sýningin hefst kl.
17 og er hluti af dagskrá sjón-
listahátíðarinnar Sequenses.
Sérkennileg Beyond the Valley of
the Dolls er sérkennilegt melódrama.
Meyer og Barney
í Bíó Paradís
Rokkhljómsveitirnar Momentum og
Kontinuum halda tónleika í kvöld á
Gamla Gauknum og verður hljóm-
sveitin We Made God sérstakur
gestur þeirra. Tónleikarnir hefjast
kl. 23 og eru þeir fyrstu sem
Momentum heldur á árinu en hún
vinnur nú að fjórðu breiðskfíu
sinni, The Freak Is Alive. Moment-
um heldur brátt til Danmerkur og
heldur þar tvenna tónleika. Kont-
inuum sendi í fyrra frá sér plötuna
Earth Blood Magic, á vegum breska
þungarokksútgáfufyrirtækisins
Candlelight Records og hlaut hún
mikið lof, m.a. í Morgunblaðinu.
Kontinuum heldur í tónleikaferð
um Evrópu í sumar.
Kontinuum Spilar á Gamla Gauknum og
heldur til Evrópu í sumar.
Rokktónleikar á
Gamla Gauknum
Mannfræðifélag Íslands heldur
málþing í dag um þema fyrirlestra-
raðar vetrarins, ástina, kl. 12-14 í
ReykjavíkurAkademíunni, Hring-
braut 121, 4. hæð. Framsöguerindi
flytja, dr. Sólveig Anna Bóasdóttir,
dr. Sigrún Júlíusdóttir, dr. Unnur
Dís Skaptadóttir og Margrét Sig-
urðardóttir æskulýðsfulltrúi.
„Ást í meinum, ást á rauðu ljósi,
forboðin ást; hinni rómantísku hlið
ástarinnar er alls staðar ýtt fram en
hver eru réttindi og skyldur í opin-
berum ástarsamböndum?“ segir
m.a. um umfjöllunarefnið í tilkynn-
ingu. Ást mannanna sé fjölbreytileg
og hafi leikið aðalhlutverk í helstu
glæpum mannkyns í gegnum ald-
irnar. „En hver er staða hennar í
nútímasamfélagi á tímum netsins?“
er spurt og verður eflaust leitað
svara við því á þinginu.
Ástin á málþingi