Morgunblaðið - 13.04.2013, Blaðsíða 60
LAUGARDAGUR 13. APRÍL 103. DAGUR ÁRSINS 2013
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 699 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Lögregla lýsir eftir Önnu Kristínu
2. Andlát: Stefán Hermannsson
3. Útkall í Reykjavík
4. Litið alvarlegum augum
Kvikmyndin Djúpið í leikstjórn
Baltasars Kormáks var frumsýnd í
Noregi í gær og hefur hún fengið já-
kvæða gagnrýni þar í landi í hinum
ýmsu fjölmiðlum, m.a. í Dagbladet
þar sem segir að frásögnin í mynd-
inni sé einföld en kraftmikil.
Djúpi Baltasars vel
tekið í Noregi
Hollywood-
leikarinn Tom
Cruise hefur farið
fögrum orðum um
Ísland undanfarna
daga, í tilefni af
frumsýningu kvik-
myndarinnar
Oblivion sem
hann fer með
aðalhlutverkið í og tekin var að hluta
á Íslandi í fyrrasumar. Stutt viðtal við
Cruise var birt á vef USA Today í
fyrradag og segir hann m.a. í því að
hann hafi verið svefnlaus af til-
hlökkun yfir því að fara til Íslands og
að fegurð landsins hafi sótt á hann.
Cruise reynist hin
besta landkynning
Víkingamálmsveitin Skálmöld mun
leika á Þjóðhátíð í Eyjum 2.–5. ágúst
og verður það í fyrsta sinn sem
hljómsveitin kemur fram á
hátíðinni. Auk hennar
skemmta gestum hinir
sívinsælu Stuðmenn,
Sálin, Retro Stefson og
Ásgeir Trausti
ásamt fleirum
sem kynntir
verða til sög-
unnar á næstu
vikum.
Skálmöld og Stuð-
menn á Þjóðhátíð
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlæg átt. Frost víða 0-5 stig en yfir frostmarki syðra. Vaxandi
austan- og norðaustanátt í kvöld og él við suðurströndina og á annesjum fyrir norðan.
Á sunnudag Norðaustan 13-20 m/s og él norðan- og austanlands, annars úrkomulítið
en slydda eða rigning suðaustantil seinni partinn. Hiti 0-5 stig, en vægt frost nyrðra.
Á mánudag Norðaustan 10-18 m/s. Slydda eða snjókoma, einkum á norðaustanverðu
landinu, en yfirleitt þurrt á Suður- og Vesturlandi. Hiti breytist lítið.
Fram og Valur þurftu að hafa talsvert
fyrir því að leggja ÍBV og Stjörnuna
að velli í fyrstu undanúrslitaleikjum
kvenna í handknattleik í gærkvöld.
Fram vann ÍBV með aðeins eins
marks mun og er ennfremur í óvissu
eftir að landsliðskonan Stella Sigurð-
ardóttir meiddist í leiknum. Leikir
númer tvö fara fram í Vestmanna-
eyjum og Garðabæ á morgun. »1-3
Fram og Valur í basli og
óvissa með Stellu
Kári Steinn Karlsson ætlar að
snúa aftur á söguslóðir í sept-
ember og taka þátt í Berlínar-
maraþoninu. Það verður hans
þriðja maraþon á ferlinum en
það fyrsta var einmitt í Berlín í
september 2011 þegar hann
setti Íslandsmet og tryggði sér
keppnisrétt á Ólympíuleikun-
um. „Ég tel mig eiga það mikið
inni að ef allt gengur vel í sum-
ar stefni ég á hörkubætingu,“
segir Kári. »1
Kári snýr aftur á
söguslóðirnar
Undanúrslitin á Íslandsmóti karla í
handknattleik hefjast í dag þegar
fyrstu tveir leikirnir fara fram, báðir í
Hafnarfirði. FH-ingar taka á móti
Fram og Haukar fá bikarmeistara ÍR í
heimsókn. Liðin fjögur luku Íslands-
mótinu á mismunandi hátt en bæði
FH og Fram voru á mikilli siglingu
seinni hluta vetrar. »4
Undanúrslitin hefjast í
Hafnarfirði í dag
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Við komum núna til þess að upplifa
Ísland umvafið norðurljósum í snjó
og kulda og höfum fengið ósk okkar
uppfyllta,“ segir Klaus Schier og
Sonja Nertinger, eiginkona hans,
tekur í sama streng.
Fyrir um 20 árum ákváðu þýsku
hjónin að snúa baki við atvinnu-
örygginu og leita á vit ævintýranna.
Klaus sagði upp starfi sínu sem
rannsóknarlögreglumaður og Sonja
hætti í vinnu hjá borgaryfirvöldum í
München. „Við höfðum ferðast víða í
fríum en vildum gera ferðalögin að
lífsstíl,“ segir Sonja. „Síðan 1994
hafa ferðalögin verið okkar lífsvið-
urværi,“ segir Klaus.
Mestan hluta ársins búa þau í sér-
útbúnum Unimog-bíl, ferðast, taka
upp efni og vinna úr því til birtingar
og sölu. Á veturna uppskera þau
laun erfiðisins, sýna myndirnar gegn
gjaldi og selja efni.
Sérbíll fyrir Ísland
Hjónin segjast aldrei hafa lent í
vandræðum á ferðum sínum, „en í
Saudi-Arabíu varð ég að sjá um
aksturinn allan tímann því þar mega
konur ekki keyra bíla,“ segir Klaus.
Þau heimsóttu Ísland í fyrsta sinn í
fyrrasumar og féllu fyrir landinu.
Vildu sjá það aftur að vetri til og
koma svo í þriðja sinn í sumar. „Eina
vandamálið við ferð til Íslands að
sumarlagi er að panta þarf pláss í
Norrænu fyrir Unimoginn með að
minnsta kosti níu mánaða fyrir-
vara,“ segir Klaus. „Þess vegna
keyptum við Land Roverinn og út-
bjuggum hann með þarfir okkar í
huga.“ Hann bætir við að í fyrra hafi
fólk spurt hvað þau ætluðu eiginlega
að gera í þrjá mánuði á Íslandi. „Við
svöruðum að við yrðum í samtals sjö
mánuði og þá urðu viðmælendur
orðlausir,“ segir Klaus. „En það er
samt ekki nóg,“ bætir Sonja við.
Þjóðverjarnir láta sér ekki nægja
að fylgja leiðbeiningum í ferðabækl-
ingum og -bókum heldur vilja
skyggnast undir yfirborðið og kynn-
ast landi og þjóð sem best. „Ekki síst
fólkinu,“ segir Sonja. Klaus fór til
dæmis í 12 tíma veiðiferð á litlum
netabáti frá Siglufirði til þess að
kynnast fiskveiðum. „Ég vildi upp-
lifa veiðarnar að vetri til, hitti sjó-
mann, þegar hann kom úr veiðiferð,
og fékk að fara með í næsta túr. Ég
þurfti að vera tilbúinn klukkan fjög-
ur að morgni og að ferðinni lokinni
angaði ég af fiski. Þetta var mikil
upplifun, ég varð ekki sjóveikur en
ég vildi ekki starfa sem sjómaður.
Ég ber mikla virðingu fyrir fiski-
mönnum en vinna þeirra er erfið.“
Lítið skref í langri heimsferð
Gera heimildarmynd um Ísland eftir
samtals sjö mánaða dvöl í landinu
Morgunblaðið/Ómar
Í Hádegismóum Þýsku hjónin Klaus Schier og Sonja Nertinger aka og búa í sérútbúnum Land Rover í Íslandsferðunum.
Klaus Schier og Sonja Nert-
inger búa í Merching í Þýska-
landi en hafa ferðast um heim-
inn síðan 1994, heimsótt
tæplega 60 lönd og ekið sam-
tals um 500.000 km. Klaus
hefur gert sex tveggja tíma
heimildarmyndir um ferðirnar
og næst er það mynd um Ís-
land. Þær hafa verið sýndar í
sjónvarpi og í kvikmyndasölum
víða í Þýskalandi. Sonja heldur
auk þess úti vefsíðu um ferð-
irnar (www.outdoor-produc-
tion.com), skrifar bækur um
þær og ferðagreinar í blöð og
tímarit.
Um 60 lönd og
500.000 km
HEIMSHORNAFLAKKARAR