Morgunblaðið - 13.04.2013, Blaðsíða 48
48 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2013
Það hefur alltaf lagst vel í mig að verða einu árinu eldri,“ sagðiJóhann Hlíðar Harðarson, fréttamaður á fréttastofu RÚV.Hann fagnar 50 ára afmæli í dag. En verður eitthvað gert til
hátíðabrigða?
„Já, það verður heilmikið í smáum stíl. Öll nærfjölskyldan kemur í
árdegisverð (brunch). Svo ætlum við að hittast tólf góðir vinir og
eiga saman eftirmiðdaginn og kvöldið,“ sagði Jóhann. Hann segir að
fertugsafmælið sé sér mjög eftirminnilegt.
„Það komu 120-140 manns. Þá var ég að vinna á Stöð 2 og allir
vinnufélagarnir mættu. Þeir settu saman hljómsveit sem ætlaði að
spila 2-3 lög. Hún spilaði samfleytt til klukkan fjögur um nóttina.
Þetta var eitt af albestu böllum sem ég hef farið á, 100 manns á gólf-
inu í þrjá tíma. Skemmtilegasta afmæli sem ég man eftir!“
En hefur Jóhann tileinkað sér einhverja lífsspeki á lífsleiðinni?
„Hörður bróðir minn, sem er níu árum yngri en ég, á sér lífsspeki
sem mér finnst til mikillar eftirbreytni. Hún er: Ekki tapa gleðinni.
Ég vil tileinka mér þessa lífsspeki.“
Jóhann ber nafn fósturafa síns, séra Jóhanns Hlíðar, prests í Vest-
mannaeyjum og Danmörku sem síðar bjó á Spáni. „Það er merkileg
tilviljun að ég var 11 ár í Danmörku í námi og var skiptinemi á
Spáni. Ég hef dvalið mjög oft í litlu þorpi suður af Madrid sem er
þorpið mitt. Draumurinn er að verða gamall þar.“ gudni@mbl.is
Jóhann Hlíðar Harðarson, 50 ára
Afmælisbarn Jóhann Hlíðar Harðarson ásamt Brynju dóttur sinni.
Myndin var tekin í þorpinu Calera y Chozas á Spáni.
„Ekki tapa gleðinni“
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Inga Dagmar Karlsdóttir verður hundrað ára
15. apríl næstkomandi. Í tilefni þess ætla af-
komendur hennar að efna til kaffisamsætis í
safnaðarheimili Háteigskirkju á morgun, 14.
apríl, frá kl. 15 til 18. Gjafir afþakkaðar en gam-
an væri að ættingjar og vinir Ingu Dagmarar
gætu komið og glaðst með henni.
Árnað heilla
100 ára
Kópavogur Jónas Kolbeinn fæddist 9.
maí kl. 8. Hann vó 3.560 g og var 51,5
cm langur. Foreldrar hans eru Amalía
Sörensdóttir og Sigurður Bjarki Kol-
beinsson.
Nýr borgari
Brúðhjón Heiðrún Eiríksdóttir og
Árni Friðriksson voru gefin saman 21.
júlí 2012 í Akureyrarkirkju, af sr. Sól-
veigu Höllu Kristjánsdóttur.
Brúðkaup
Á
rni fæddist í Vest-
mannaeyjum 14. apríl
1943 en ólst upp á Þórs-
höfn frá þriggja ára
aldri og til 1952. Þá
flutti fjölskyldan í Grundarfjörð þar
sem faðir hans varð framkvæmda-
stjóri hjá Sigurði Ágústssyni, útgerð-
armanni og alþingismanni. Þar var
Árni búsettur til 1986 er hann flutti í
Garðabæinn þar sem hann hefur búið
síðan.
Árni var í Barnaskóla Þórshafnar
og Barnaskóla Grundarfjarðar,
stundaði nám við Héraðsskólann á
Skógum í þrjá vetur og lauk þaðan
landsprófi, stundaði nám við MR í
einn vetur, en hætti þar námi og fór
til Noregs þar sem hann stundaði
nám við lýðháskóla í Lófóten í Norð-
ur-Noregi, stundaði síðan nám við
Íþróttakennaraskóla Íslands á Laug-
arvatni og lauk þaðan íþróttakenn-
araprófi 1962.
„Ég fór í sveitina, að Sætúni á
Langanesi, fjögurra ára, til Vigfúsar
Árni Emilsson, fyrrv. útibússtjóri – 70 ára
Frá Ítalíuferð Árni, ásamt eiginkonu sinni, Þórunni Björgu Sigurðardóttur tónlistarkennara, í Feneyjum árið 1991.
Sjö sumur í sveit – og
næstu sjö á síldveiðum
Allt á kafi ́í síld Aflafleyið Grundfirðingur II drekkhlaðið þegar Árni
Emilsson var háseti á því árið 1957.