Morgunblaðið - 13.04.2013, Side 11
F E R Ð A S K R I F S T O F A A L L R A L A N D S M A N N A
Fararstjóri
Þóra Valsteinsdóttir
Sumar 6
Franskar Alpaperlur
Fegurð landsins fjalla leikur um okkur í þessari
töfrandi ferð um frönsku Alpana með stórbrotinni
og óviðjafnanlegri náttúrufegurð.
Verð: 199.300 kr. á mann í tvíbýli – Mikið innifalið!
Pantaðu núna í síma 570 2790
eða bókaðu á baendaferdir.is
Skoðaðu ferðirnar á bændaferðir.is
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Opið kl. 8.30 - 16.00 virka daga
14. - 21. júní
Afmæli Krakkarnir klikka ekki á að halda upp á afmæli ef einhver í hópnum á slíkt meðan á dvöl stendur.
Þorpið Zafra segir Margrét að
hafi allt það sem unglingar vilja, en
þó ekki það sem mömmur og pabbar
vilja ekki. „Þarna er ekki stórborgar-
bragur með dópi eða öðru veseni,
sem foreldrar óttast auðvitað mest
að krakkarnir komist í tæri við í út-
löndum. Unglingarnir búa heima hjá
fjölskyldum þar sem spænskur ung-
lingur á svipuðu reki á heima. Vin-
kona mín, sem er aðstoðarskólastjóri
í menntaskóla í þorpinu, sér um að
velja fjölskyldurnar. Það skiptir máli
að hafa manneskju í því sem þekkir
vel til. Það besta er að þessar fjöl-
skyldur fá ekki borgað fyrir að hýsa
íslensku unglingana, heldur er
spænsku unglingunum á heimilunum
í staðinn boðið á enskunámskeið og
leiðtoganámskeið hjá okkur. Fjöl-
skylduþátturinn er afar öruggur og
ég er allan tímann yfir og allt um
kring og get fyrir vikið passað vel
upp á hvern og einn. Unglingarnir
þurfa líka að undirrita að þeir muni
ekki koma nálægt vímugjöfum með-
an á dvölinni stendur.“
Læra að forgangsraða
Leiðtoganámskeiðið í sumar-
búðunum styður ekki aðeins við
tungumálanámið, heldur styrkir það
krakkana líka sem manneskjur á við-
kvæmu skeiði í lífi þeirra, segir Mar-
grét. „Ég fer með þau í gegnum pró-
gramm sem heitir „Hinar sjö venjur
harðduglegra unglinga“, eftir Sean
Covey. Það fjallar m.a um að hafa
stjórn á sjálfum sér og láta hlutina
ganga upp í því sem tengist okkur
sjálfum. Þau læra að hafa frum-
kvæði, setja sér markmið fram í tím-
ann og forgangsraða. Allri þessari
leiðtogaþjálfun blanda ég inn á milli
spænskutímanna,“ segir Margrét
sem sér sjálf um kennsluna á leið-
toganámskeiðinu en spænskukennsl-
an er í annarra höndum, þó svo að
hún hafi kennt spænsku í tuttugu ár.
„En ég fylgist með þeim og tek þau í
aukatíma sem þess þurfa,“ segir
Margrét og bætir við að sumarbúð-
irnar séu líka í boði fyrir íslenska
unglinga sem eru búsettir erlendis.
Flamengó, íþróttir og fleira
Sumarbúðirnar eru bæði fyrir
þá sem eru byrjendur í spænsku en
líka fyrir þá sem eru lengra komnir.
„Við skiptum þeim upp í hópa eftir
getu og þau geta bjargað sér ótrú-
lega mikið á spænskunni eftir þessar
þrjár vikur. Dagskráin er þannig að
á morgnana eru þau í spænskuskól-
anum og á leiðtoganámskeiðinu, en
síðdegis fara þau ýmist í sund eða
gera ýmislegt í höndunum hjá dóttur
vinkonu minnar sem er í lista-
háskólanum, því það er gott mótvægi
við bóknámið. Svo er boðið upp á fla-
mengódans, íþróttir og fleira. Það er
líka gaman að rölta um bæinn á
kvöldin. Við förum jafnframt með
þau í menntandi ferðir til Sevilla og
Mérida, þar sem ég fræði þau um
rómverska byggingasögu, márana
og gyðingana. Með því að blanda
saman menntun og skemmtun, þá
öðlast unglingarnir alþjóðlega sýn
sem er öllu fólki nauðsynleg.“
Sumarbúðirnar eru á vegum
fyrirtækis Margrétar sem heitir
MUNDO – alþjóðleg ráðgjöf.
Þeir sem áhuga hafa á að kom-
ast í sumarbúðirnar geta sent
Margréti póst á netfangið:
margret@mundo.is
www.mundo.is/sumarbudir
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2013
Yggdrasill, leikfélag Verkmenntaskól-
ans á Akureyri, sýnir leikritið Tjaldið,
eftir Hallgrím Helgason. Leikritið er
sett upp vegna þátttöku í Þjóðleik,
sem er leiklistarhátíð ungs fólks,
haldin annað hvert ár á landsbyggð-
inni. Þekkt íslensk leikskáld eru feng-
in til að skrifa krefjandi og spennandi
verk fyrir 13-20 ára leikara sem svo
eru sett upp í hinum ýmsu byggðum
landsins. Auk þess verður leikritið
sýnt utan Þjóðleiks.
Tjaldið höfðar fyrst og fremst til
ungs fólks en hæfir þó fólki á öllum
aldri.
Tjaldið fjallar um unglinga sem fara
á útihátíð um verslunarmannahelgina.
Þar er vinahópur sem stendur frammi
fyrir því að stúlku úr hópnum hefur
verið nauðgað á útihátíðinni. Vinkon-
urnar vilja hjálpa henni en þolandinn
stendur frammi fyrir því að vilja ekki
segja frá, í það minnsta í fyrstu. Auk
þess er vinur gerandans í mikilli klípu
að eigin mati, þar sem hann varð vitni
að atburðinum.
Leikritið dregur fram ýmsar hliðar
mannfólksins. Spilling, græðgi, völd,
rasismi, kvenfyrirlitning, kúgun og
meðvirkni eru birtingarmyndir í kring-
um atburðinn.
Leikstjórar eru Pétur Guðjónsson
og Jóhanna G. Birnudóttir.
Tjaldið var frumsýnt í Rósenborg, sl
fimmtudag. Aðrar sýningar eru sem
hér segir og allar í Rósenberg:
Önnur sýning í dag, laugardag, kl.
16 (á Þjóðleik leiklistarhátíð).
Þriðja sýning á morgun, sunnudag,
kl. 16 (á Þjóðleik leiklistarhátíð).
Fjórða sýning næsta miðvikudag,
17. apríl kl. 20.30.
Fimmta sýning fimmtudaginn 18.
apríl kl. 20.30.
Miðapantanir í síma 863-1778 milli
kl. 16 og 19.
Leikfélag VMA sýnir Tjaldið eftir Hallgrím Helgason
Átök Eru þó nokkur í verkinu, enda umfjöllunarefnið þess eðlis.
Spilling, græðgi, völd, rasismi,
kvenfyrirlitning og kúgun
NORÐURKRILL
Fæst flestum apótekum, heilsubúðumog heilsuhillum stórmarkaðanna.
P
R
E
N
T
U
N
.IS
NORÐURKRILL er eitt hreinasta og öflugasta form af OMEGA 3-fitusýrum.
Unnið úr botnsjávardýrinu krill sem er veitt við ómengað Suðurskautið.
Aðeins þarf 1-2 hylki á dag til að mæta dagsþörfinni og það er ekkert eftirbragð,
uppþemba eðamagaólga sem oft fylgir inntöku á fiski- og jurtaolíum.
Nánari upplýsingar áwww.gengurvel.is
Betri einbeiting og betri líðan
Þegarmaður rekur sitt eigið fyrirtæki, er í fullu fjarnámi og á auk þess tvö
ung börn, þá skiptir öllumáli að heilinn virki rétt og vel. Ég byrjaði að nota
Norðurkrill fyrir fjórummánuðumog fann nánast straxmun ámér.
Einbeitingin varð betri auk þess sem ég varð vör við mjög jákvæð áhrif á
lesblinduna hjá mér. Fyrir utan skarpari einbeitingu líður mér allri betur
líkamlega og andlega.
Það skiptir migmiklumáli aðOmega 3 í Norðurkrill sé hreint og ómengað
og eftir að hafa prufað þó nokkuðmargar tegundir af Omega 3 olíum get
ég fullyrt aðNorðurkrill er bestaOmgea 3 olía semég hef notað.
Éghvetallaþásemvilja skerpaáminniogeinbeitinguaðtaka innNorðurkrill.
Heilinn í okkur verðskuldar aðeins það besta.
Jóhanna S. Hannesdóttir,
þjóðfræðinemi og eigandi Sunnlenska.is