Morgunblaðið - 13.04.2013, Blaðsíða 20
FRÉTTASKÝRING
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Skattamál hafa fallið nær alveg í
skuggann af umræðum um skulda-
vanda heimila það sem af er kosn-
ingabaráttunnar fyrir alþing-
iskosningarnar. Framsóknar-
flokkurinn og nýju framboðin hafa
sérstaklega lagt áherslu á leiðrétt-
ingar á lánum frekar en breyt-
ingar á sköttum.
Það er aðeins Sjálfstæðisflokk-
urinn sem leggur megináherslu á
skattamál fyrir þessar kosningar
en annars eru loforð um breyt-
ingar á sköttum og opinberum
gjöldum ekki fyrirferðarmikil í
stefnuskrám og ályktunum stjórn-
málaflokkanna.
Vilja einfalda kerfið
Skattar og önnur gjöld hafa
hækkað á kjörtímabilinu sem nú
er að ljúka, ef til vill óhjákvæmi-
lega í kjölfar þeirrar stöðu sem
ríkissjóður og efnahagur landsins
var í þegar kjörtímabilið hófst vor-
ið 2009. Viðskiptaráð og fleiri hafa
bent á að alls hafi á annað hundr-
að breytinga á sköttum verið gerð-
ar á kjörtímabilinu.
Stærsta breytingin var sú þegar
ríkisstjórn Samfylkingarinnar og
Vinstri grænna tók upp þrepaskipt
tekjuskattkerfi með þremur stig-
hækkandi skattþrepum eftir hærri
tekjum við upphaf tímabilsins. Svo
virðist hins vegar sem flestir
flokkanna vilji nú einfalda það
kerfi að öllu eða einhverju leyti.
VG og Dögun eru einu flokk-
arnir sem lýsa því beinlínis yfir að
þeir vilji óbreytt þrepaskipt skatt-
kerfi áfram en flestir aðrir flokkar
tala um einföldun á kerfinu og
skattalækkanir. Þar með talin eru
Samfylkingin og Björt framtíð sem
vilja endurskoða skattkerfið með
einföldun og gagnsæi að markmiði.
Hvorugur fráfarandi ríkisstjórn-
arflokkarnir vill frekari skatta-
hækkanir eða nýja skatta.
Sjálfstæðisflokkurinn og Hægri
grænir vilja ganga lengst í því að
breyta skattkerfinu. Sjálfstæðis-
menn vilja afnema þrepaskipt-
inguna og lækka tekjuskattinn auk
þess að lækka ýmis gjöld á neyslu-
vörur. Hægri grænir ganga enn
lengra í sinni stefnuskrá en þeir
stefna að flötum skatti sem lækki í
áföngum á kjörtímabilinu. Hann
verði 20% í lok þess.
Auðlindirnar skili meiru
Lýðræðisvaktin, Dögun og
Vinstri græn leggja áherslu á að
ríkissjóður fái auknar tekjur af
náttúruauðlindum landsins. Þannig
Þróun skatta og gjalda á kjörtímabilinu 2009-2013
Almenna þrepið hækkað úr
24,5% í 25,5%
Nýir skattar og gjöld:
Kolefnisgjald
á fljótandi
jarðefnaeldsneyti
Auðlegðarskattur
1,25%
lögfestur árið 2009 á eignir yfir
90 milljónum króna.
Átti að vera tímabundinn til þriggja
ára en var framlengdur til ársloka
2014 og hækkaður í
1,5%.
Aftur tekið upp
vörugjaldskerfi á
matvæli og óáfengar
drykkjarvörur
Sérstakir
skattar á launagreiðslur
og hagnað
fjármálafyrirtækja
teknir upp
Veiðigjöld
hækkuð
Tekjuskattur á einstaklinga: Fjármagnstekjuskattur: Tekjuskattur hluta- og einkahlutafél.:
Tekið upp þrepaskipt skattkerfi með þremur skattþrepum og tenging
persónuafsláttar við vísitölu neysluverð afnumin
Staðgreiðsla árið 2008
35,72%
Staðgreiðsluþrep árið 2013
37,32% 40,22%
46,22%
10%
15%
18%
20%
Úr 10% í 15%
1. júlí
2009
Úr 15% í 18%
1. janúar
2010
Úr 18% í 20%
1. janúar
2011
15%
20%Hækkaður úr15% í 20%
í áföngum
Tryggingagjald:Virðisaukaskattur: Aðrar breytingar á gjöldum:
5,34%
8,65%
7,79% 7,69%
Hækkaði úr
5,34% í 8,65%
árið 2010
Lækkaði í 7,79%
árið 2012
Lækkaði í 7,69%
við sl. áramót
24,5% 25,5%
Olíugjald var
hækkað um
1,65
krónur
á lítrann
Bensíngjald var
hækkað um
2,5
krónur
á lítrann
Lítið fer fyrir um-
ræðum um skatta
Flestir vilja einfalda skattkerfið og lækka skatta
Tekjur ríkisins komi í auknum mæli af auðlindunum
Morgunblaðið/Kristinn
Skattur Tekin voru upp vörugjöld á matvæli og óáfenga drykki á kjör-
tímabilinu sem senn lýkur. Yfir 100 skattabreytingar voru gerðar á því.
20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2013
Það er leikur að
læra í Múmíndal!
Á fimm litríkum opnum í þessari stóru og sterku bók
leynast fjölmargir flipar sem gaman er að gægjast undir.
Börnin læra um liti, tölur og gagnleg orð
á fjölbreyttan og skemmtileganmáta.
www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu
allra