Morgunblaðið - 13.04.2013, Blaðsíða 29
Af því að ég nefndi Icesave, þá vil ég nota
tækifærið til að hnykkja á muninum á því að
létta á skuldum innanlands og því að fjármagn
streymi úr landi, sérstaklega núna þegar
gjaldeyrisskortur er alvarlegt vandamál. Þess
vegna er athyglisvert að menn töldu lítið mál
að ábyrgjast hundruð milljarða í erlendri mynt
sem ekki var til, en þeir hinir sömu sjá ofsjón-
um yfir því að staða heimilanna verði leiðrétt,
jafnvel þó að þar sé upphæðin í krónum og
fjármögnuð af þrotabúum gömlu bankanna en
ekki ríkinu.“
– Þetta er auðvitað líka fjármagnað af rík-
inu. Þaðan er peningunum úthlutað.
„Ríkið er milliliður. Það má segja að ríkið sé
innheimtuaðili fyrir heimilin.“
– Ekki öll heimili.
„Í ljósi þess hverjar forsendurnar eru, má
segja að litið sé á þetta sem kröfu heimilanna í
þrotabúið vegna tjóns sem þau urðu fyrir og
hún gengur út á að bæta tjónið.“
– Þú vilt líka greiða niður lán fjölskyldna
sem geta staðið í skilum?
„Þegar bent er á að með þessu sé komið til
móts við heimili sem hafa staðið í skilum, þá er
það alveg rétt að í sumum tilvikum er komið til
móts við heimili sem hafa staðið undir skuldum
fram að þessu. Það hefur kannski tekist með
mikilli vinnu eða með því að fólk hefur sett eig-
ið fé í fasteignina og sýnt með því ráðdeild-
arsemi frekar en að taka allt að láni. Ekkert
hefur verið gert fyrir þetta fólk og skilaboðin
með því eru að það borgi sig ekki að sýna ráð-
deildarsemi í fjárfestingum heldur að taka eins
mikil lán og hægt er að komast yfir. Annars sé
ekki komið til móts við það.
Við viljum senda út rétt skilaboð um hver sé
æskileg hegðun í fjármálum, en jafnframt
ítreka ég að við lítum svo á að heimilin eigi
réttmætar kröfur í þrotabúin.“
– Þeim mun meira sem það skuldaði, því
meira fær það?
„Þeim mun meiri sem skuldirnar eru, þeim
mun meiri er stökkbreytingin. Þá komum við
aftur að mikilvægi þess að allir njóti jafnræðis.
Einungis kerfi sem felur í sér jafnræði ýtir
undir skynsamlega hegðun í fjármálum.“
– Hvað um þá sem töpuðu á hlutabréfum eða
voru á leigumarkaði?
„Það má taka dæmi um íbúðir sem reynast
gallaðar. Þá bætum við ekki fólki í næsta húsi
tjónið. Og hvað varðar hlutabréfin, þá bætum
við heldur ekki eigendunum sem byggðu
blokkina tjónið, heldur þeim sem eiga rétt-
mæta kröfu á þrotabúið. Það breytir því ekki
að auðvitað þarf að koma til móts við ýmsa
hópa og nýta svigrúm í fjármálum ríkisins til
þess. Þar má nefna öryrkja og eldri borgara
sem sætt hafa meiri skerðingu en aðrir hópar í
þjóðfélaginu. Þar er ég ekki síst að tala um
tekjutengingar ársins 2009, sem áttu að vera
til bráðabirgða en hafa síðan verið fram-
lengdar. Þær fela í sér eignaupptöku og auk
þess mjög óæskilega hvata. Skilaboðin hafa
verið: Ekki spara eða reyna að vinna þótt þú
sért fær um það vegna þess að þú færð ekkert
út úr því.“
Lífeyrissjóðir lækki ávöxtunarkröfu
– Framsóknarflokkurinn talar um afnám
verðtryggingar. Í hverju felst það? Hvað um
þá sem skulda verðtryggt nú þegar?
„Við viljum banna verðtryggingu og lögin
gilda fram í tímann. Þetta snýst um að banna
verðtryggða neytendasamninga eða gera að
minnsta kosti mjög óhagkvæmt fyrir fjár-
málastofnanir að lána með þeim hætti, þannig
að þær freistist ekki til að viðhalda því kerfi.
Það sama gildir um verðtrygginguna og mynt-
körfulánin að slíkir afleiðusamningar eru ekki
eðlilegt lánafyrirkomulag á neytendamarkaði.
Hinsvegar erum við ekki að tala um að banna
ríkinu að taka verðtryggð lán. Ýmsir hagfræð-
ingar hafa bent á að æskilegt sé að ríkið taki
verðtryggð lán svo það hafi sterka hvata til að
halda aftur af verðbólgunni. Ég er ekki að
halda því fram að þó að peningar sparist núna
með verðbólgu, þá sé viljandi verið að ýta und-
ir hana, en það vantar þann sterka hvata sem
væri til staðar ef aukin verðbólga yki skuldir
ríkisins. Fjármálafyrirtækin og ríkið sem ráða
för við stjórn efnahagsmála og geta haft áhrif á
verðbólgu þurfa að hafa sterka hvata til að
halda aftur af verðbólgunni.“
– Hvað um ávöxtun lífeyrissjóða?
Lífeyrissjóðir geta eftir sem áður fjárfest í
ríkisverðbréfum og fjármagnað sig þar með
um leið, en þó vil ég nefna að lífeyrissjóðir
verða að mínu mati að koma í auknum mæli að
atvinnuuppbyggingu í landinu, að skapa ný
störf og ný verðmæti, því það er nauðsynlegt
til að standa undir lífeyri til lengri tíma litið.
Það er ekki hægt að gera 3,5% ávöxtunarkröfu
á sama tíma og meðalávöxtun undanfarna ára-
tugi hefur verið 2%. Þá stendur verðmæta-
sköpun í landinu ekki undir ávöxtun lífeyr-
issjóðanna, sem þýðir að þeir taka til sín
fjármagn sem ekki er innistæða fyrir. Þeir
geta ekki ætlast til að vextir heimila og fyr-
irtækja feli í sér þyngri og þyngri byrði, því
samfélagið stendur ekki undir því.
Þess vegna verða þeir að fjárfesta í aukinni
framleiðslu og verðmætasköpun. Reyndar
settu þeir fjármagn í svokallaðan Framtaks-
sjóð, sem maður taldi að hefði það hlutverk að
skapa störf, en í staðinn er hann nýttur til að
kaupa tiltölulega stór fyrirtæki sem eru þegar
í rekstri, verslanir í Reykjavík og fleira, og þau
eru svo seld fram og til baka. Fyrir vikið hefur
verð hlutabréfa hækkað, sem er ískyggileg
þróun þegar skortir á verðmætasköpun. Þetta
eru loftbólueinkenni á markaðnum og undir
það eiga lífeyrissjóðir ekki að ýta.
Þess vegna olli mér vonbrigðum að ekki yrði
af flutningi álkaplaverksmiðjunnar frá Noregi
til Seyðisfjarðar. Verksmiðjan virtist geta
staðið undir ávöxtunarkröfunni, en lífeyris-
sjóðirnir töldu ekki nógu góð veð í fasteignum
á landsbyggðinni. Þar vantaði töluvert upp á
að meta verkefnið út frá áhrifum á sam-
félagið.“
– Ertu þá að tala um að stjórnvöld hlutist til
um hvernig lífeyrissjóðir fjárfesta?
„Það má mynda einhverskonar víðtæka sátt
milli ríkisvaldsins, aðila vinnumarkaðarins og
lífeyrissjóðanna um hvernig við byggjum upp
íslenskt efnahagslíf, höldum aftur af verðbólg-
unni og greiðum niður skuldir. Það skiptir
gríðarlegu máli að menn sameinist um slíka
framtíðarsýn til þess að allir vinni að sama
marki og trúi á og sjái eftir að hafa farið í
gegnum þessa uppbyggingu að það skili ávinn-
ingi til allra.“
– Í upphafi viðtalsins stóðst ég ekki mátið að
vísa til ísbíltúrs sem þú fórst í með blaðamanni
Fréttatímans. Þú skrifaðir á vefsíðu þína eftir
að viðtalið birtist að þú hefðir sent leiðrétt-
ingar, en „ekkert hefði verið leiðrétt“. Sigríður
Dögg Auðunsdóttir sagði hinsvegar í yfirlýs-
ingu: „Allar leiðréttingar hans voru teknar til
greina og viðtalinu breytt í samræmi við hans
óskir.“ Hvernig stendur á þessu?
„Í viðtalinu þegar það birtist fyrst á vefnum,
þá höfðu engar leiðréttingar verið færðar inn.
Hinsvegar höfðu leiðréttingar verið settar inn
í prentútgáfuna, en auk þess var bætt inn fjöl-
mörgum klausum sem ég hafði aldrei séð,
þannig að ég hafði bara lesið yfir þriðjung af
heildinni.“
Morgunblaðið/Ómar
Uppbygging Sigmundur
Davíð gagnrýnir að Fram-
takssjóður hafi ekki tekið
þátt í flutningi álkaplaverk-
smiðju til Seyðisfjarðar.
29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2013
www.boconcept.is
X
E
IN
N
IX
13
04
005
Þetta stækkanlega borð er einstakt sinnar tegundar og fæst
í mörgum útfærslum. Skannaðu QR-kóðann til að sjá hvernig
það virkar eða hannaðu þitt eigið í Home Creator.
Húsgögnin frá BoConcept sameina framúrskarandi hönnun,
gæði, góð verð og óteljandi möguleika. Þú getur notað
teikniforritið á www.boconcept.is til að hanna þín eigin
húsgögn – sófann, borðið, stólana, skenkinn eða hvað
sem hugurinn girnist.
Þú smellir einfaldlega á flipann „Design in 3D Home Creator“
undir hverri mynd,
byrjar að hanna og
reiknar verðið!