Morgunblaðið - 13.04.2013, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 13.04.2013, Qupperneq 35
UMRÆÐAN 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2013 Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is Komið og upplifið nýja Natuzzi gallerýið okkar 100%made in Italy www.natuzzi.com Við bjóðum velkomna ítalska hönnun Natuzzi endurspeglar fullkominn samhljóm og kjarna Ítalskrar hönnunar. Það er æðislegt að upplifa hlýja og kósý stemningu í Natuzzi umhverfi. Staður þar sem fólki líður vel. – Lifið heil Lægra verð í Lyfju ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 63 61 5 03 /1 3 Gildir út apríl. Voltaren Gel 15%verðlækkun 50 gr.Nú:1.767kr. / 100 gr.Nú: 3.222kr. Töluverð umræða hefur verið undanfarið um ráðstöfun eigna erlendra aðila hér á landi. Þetta mál er með allra mikilvæg- ustu málunum síðustu áratugi og lausn þess forsenda fyrir því að losa megi um fjár- magnshöft á næstu árum. Þrotabúin, krónubréfin og gjaldeyrisforðinn Heildarverðmæti eigna erlendra aðila er nokkuð á reiki en gróft reikn- að skiptast eignir krónubréfaeigenda og þrotabúanna með eftirfarandi hætti (sjá nákvæmari tölur í töflu): Eignir þrotabúanna eru samtals metnar á tæplega 2.700 milljarð. Þar af eru erlendar eignir þeirra rúmlega 1.700 milljarðar og erlendar eignir á Íslandi um 500 milljarðar. Við það bætast „Krónubréfin“ svokölluðu sem eru tæplega 400 milljarða eignir aðila sem fjárfest höfðu í skuldabréf- um í krónum og festust inni í landinu með tilkomu fjármagnshaftanna. Samtals er því um að ræða tæpa 3.100 milljarðar í eigu erlendra aðila sem eru fastir hér annaðhvort í þrotabúum eða vegna fjármagns- hafta. Það eru fáir sem efast um að þessir fjárfestar vilji fá þessum eign- um skipt yfir í alþjóðlegan gjaldmiðil. Því miður er staðan sú að mestur hluti gjaldeyrisforða Seðlabankans er fenginn að láni og því ekki óhætt að nota hann til að kaupa þessa aðila út. Hrein erlend staða þjóðarbúsins fyrir utan þrotabúin og Actavis er neikvæð um 50 til 60% af lands- framleiðslu og ekki óhætt að bæta þar við nema ef um er að ræða fjárfest- ingu sem eykur útflutn- ingsverðmæti. Þá stend- ur eftir að einu erlendu eignirnar sem eru til skiptanna fyrir þessa að- ila eru erlendar eignir þrotabúanna og erlendar eignir á Íslandi sem nú eru áætlaðar um 2.200 milljarðar. Aflétting fjármagnshafta Um þessar mundir eru tæplega 1.500 milljarðar króna í eigu inn- lendra aðila á innlánsreikningum sem eru lausar til innlausnar með litlum eða engum fyrirvara. Til að aflétting hafta geti átt sér stað þurfa aðstæður að vera þannig að innstæðueigendur telji fjárhagslega óhætt að vera um kyrrt, annars getur skapast veruleg áhætta á gjaldeyris- og bankaáhlaupi. Ef hætta er á að eigendur þrotabúa eða krónubréfa geri áhlaup á gjald- eyrisforða Seðlabankans er ekki óhætt að aflétta fjármagnshöftum. Þess vegna er ómögulegt að sjá að unnt verði að aflétta höftunum nema eftir að búið er að ganga frá útgöngu erlendra eigenda þrotabúa og krónu- bréfa. Það virðist því ljóst að eigendur 3.100 milljarða verða að skipta á milli sín erlendum gjaldeyri að verðmæti 2.200 milljarða. Þetta þýðir að þessir aðilar myndu fá um það bil 30% minna af erlendum gjaldeyri fyrir krónueignir sínar samanborið við kaup gjaldeyris á núverandi gengi ef til væri nóg af gjaldeyri fyrir þessa aðila. Öruggt er að þessir aðilar verða ekki sérlega ánægðir með þessa nið- urstöðu. Spurning er samt hvaðan gjaldeyririnn ætti að koma til að bæta þeim það „tjón“ sem þeir teldu sig hafa orðið fyrir. Þeir fjármunir eru ekki til og óréttlætanlegt að skuld- setja komandi kynslóðir í þeim til- gangi. Vanti þá réttlætingu fyrir því að sætta sig við lækkunina er hægt að benda á að krónur hafa ávaxtast miklu hraðar síðustu 5 ár en evrur, munar 30%, og þrotabúin geta greitt mun meira út núna en þau hefðu get- að á árunum 2009 eða 2010. Öllu máli skiptir að leysa viðfangs- efni þrotabúanna og krónubréfanna sem fyrst svo aflétting hafta geti haf- ist. Farið hefur fé betra, eða hvað? Eftir Óttar Guðjónsson » Það virðist því ljóst að eigendur 3.100 milljarða verða að skipta á milli sín erlend- um gjaldeyri að verð- mæti 2.200 milljarða. Óttar Guðjónsson Höfundur er hagfræðingur. Eignir þrotabúanna Erlendar eignir 1.739 Innlendar eignir 939 þ.a. í krónum 440 þ.a. hlutafé í ISB og Arion 213 Samtals 2.678 Krónubréf 402 Heildar eignir sem vilja út 3.080 Gjaldeyriseignir á móti því 2.238 Niðurfærsla 27% Heimild: Seðlabanki Íslands, Fjármálastöðugleiki 2/2012. Frá eldri borgurum í Hafnarfirði Þriðjudaginn 9. apríl var spilað á 16 borðum. Úrslit urðu þessi í N/S: Guðm. Sigurjónss. – Sigurður Njálss. 343 Kristín Óskarsd. – Gróa Þorgeirsd. 341 Sverrir Jónsson – Óli Gíslason 337 A/V Kristján Þorlákss. – Haukur Guðmss. 387 Tómas Sigurjónss. – Björn Svavarss. 377 Helgi Sigurðss. – Þorvaldur Þorgrímss. 370 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is - með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.