Morgunblaðið - 13.04.2013, Síða 38

Morgunblaðið - 13.04.2013, Síða 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2013 ✝ Guðrún Ágústs-dóttir fæddist í Hróarsholti í Flóa 29. janúar 1916. Hún lést á Dvalar- og hjúkrunarheim- ilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum, laugardaginn 30. mars sl. Foreldrar Guð- rúnar voru Kristín Bjarnadóttir, f. 1877, d. 1963, og Ágúst Bjarna- son, bóndi í Hróarsholti, f. 1878, d. 1928. Systkini Guðrúnar voru Halldór, f. 1912, stúlka, f. 1914, Bjarni, f. 1914, Guðmundur, f. 1917, Guðfinna, f. 1919, og Bjarney, f. 1920. Öll eru þau lát- in. Guðrún ólst upp í Hróarsholti við öll venjuleg sveitastörf, hún naut þeirrar tíðar skólagöngu til sveita, sem var nokkurra vetra farskóli. Hún giftist Bergi Elíasi Guðjónssyni, útgerðarmanni frá Eyjum, 1937 í Hraungerðiskirkju í Flóa. Bergur hafði komið kaupamaður í Hróarsholt. Þau fluttu til Eyja og byrjuðu búskap á Dyrhólum á heimili tengdafor- eldra hennar. Síðar á Skólavegi 10 og bjuggu þar fram að gosi 1973. Börn Guðrúnar og Bergs Elíasar eða Ella Bergs eins og f. 1976, gift Sigurjóni Eðvarðs- syni, eiga þau 3 börn. Guðrún og Elli Bergur bjuggu í Þorlákshöfn í rúmt ár eftir gos- ið, þá var aftur haldið út í Eyjar og þau byggðu sér hús á Dverg- hamrinum, þar sem þau áttu yndisleg ár. Bergur Elías lést 7. júní 2003. Guðrún flutti í Eyja- hraun, íbúð fyrir aldraða 19. sept. 2009 og síðan í júní 2011 á Hraunbúðir, þar sem hún lést. Guðrún lærði saumaskap og það sem honum fylgdi, að búa til snið o.þ.h. Saumaði hún allt á sína fjölskyldu og fyrir aðra. Einnig prjónaði hún fatnað á prjónavél. Hannyrðir stundaði hún af kappi alla ævi. Hún vann í Ísfélagi Vestmannaeyja í á 4. áratug. Starfaði í Kvenfélaginu Líkn í rúmlega 30 ár, sat í nefndum og sá um úrklippubók Líknar nán- ast fram í andlátið. Einnig var hún í Kvenfélagi Landakirkju. Guðrún kom að stofnun Félags eldri borgara í Vm., sat þar í stjórn í nokkur ár og söng í kór félagsins fram á síðasta dag. Hún hafði mikið yndi af starfi þessa félags og þar kom félagslyndi hennar vel í ljós. Útför Guðrúnar verður gerð frá Landakirkju í dag 13. apríl 2013, og hefst athöfnin kl. 15. hann var ávallt kall- aður eru: 1. Ágúst, f. 1937, kvæntur Stefaníu Guð- mundsdóttur, f.,1941. Börn þeirra eru: a. Drengur, f. 1961, d. 1961, b. Bergur Elías, f. 1963, í sambúð með Bryndísi Sigurð- ardóttur, þau eiga 6 börn og 2 barna- börn. c. Sigurbjörg, f. 1969, gift- ist Sveini Sigurðssyni sem lést 2004. Síðari eiginmaður hennar er Hafþór Hafsteinsson, eiga þau 3 syni. 2. Margrét Klara, f. 1941, d. 2011. Eftirlifandi eiginmaður hennar er Birgir Símonarson, f. 1940. Börn þeirra eru: a. Elva Björk, f. 1963, hún á tvo syni frá fyrra hjónabandi, b. Jóhanna, f. 1968, í sambúð með Friðriki Sæ- björnssyni og eiga þau 6 börn. c. Rúnar Þór f. 1970, giftur Írisi Pálsdóttur, eiga þau 2 börn. 3. Kristín f. 1945, gift Kristmanni Karlssyni, f. 1945. Börn þeirra eru: a. Guðrún, f. 1964, gift Hall- dóri Hallgrímssyni, þau eiga 3 dætur og tvö barnabörn. b. Betsý, f. 1967, gift Ingólfi Arn- arssyni, eiga þau 4 börn. c. Elísa, Það eru mikil forréttindi að hafa fengið að ganga lífsins veg í nánu sambandi við tengdamóður mína sem við kveðjum í dag. Ég var sextán ára þegar ég kom heim á Skólaveg með Kristínu kærustu minni og fékk að hitta Guðrúnu og Ella Berg. Þessi heimsókn er mér mjög minnisstæð þar sem það kviknaði einhver neisti á milli okkar sem ég hef varðveitt síðan. Þessi rúmlega 50 ár sem síðan eru liðin eru búin að vera sælutími fyrir mig sem hefur borið mikinn og góðan ávöxt. Við Kristín hófum búskap ’64, eftir að hafa eignast Guðrúnu, nöfnu hennar og búið hjá þeim á Skólavegi 10. Það hefur alltaf ver- ið yndislegt í öllu samstarfi og samveru hjá okkur og stórfjöl- skyldu þeirra Guðrúnar og Ella Bergs sem nú telur orðið á sjötta tug með mökum og sambýlingum. Þessu fólki öllu hefur Guðrún vilj- að fylgjast með, munað alla af- mælisdaga og aðra merkisdaga sem fólkið hennar hefur upplifað. Ferðalög voru nú ekki mörg á seinni hluta síðustu aldar, fyrir utan að heimsækja átthagana, Flóann þar sem ræturnar voru og stóðu tengdamömmu alltaf nærri og jókst þegar á ævina leið. Gam- an var að hlusta á sögur úr sveit- inni, Hróarsholtsbæirnir, ná- grannar og Hróarsholtsklettarnir standa manni ljóslifandi fyrir hugskotssjónum og fannst mér ég hafa komið þar áður, þegar ég leit þá í fyrsta sinni. Að fá að lifa í 97 ár, hress og kát, er þakkarvert. Hún var sátt við sitt lífshlaup, mjög stolt af börnum sínum og af- komendum. Hún var ekkert í vandræðum með að láta fólkið sitt heyra álit sitt og hvað hún væri ánægð með okkur og lífið sitt. Hún var búin að vera stúlka í sveit, flutti ung til Vestmannaeyja þar sem hún stofnaði heimili með manni sínum. Í gosinu bjuggu þau tvö ár í Þorlákshöfn. Eftir gos fluttu þau til Eyja í nýbyggt hús við Dverghamar sem var heimili þeirra þar til Elli lést. Þá flutti Guðrún að Eyjahrauni þar til hún fékk vistun að Hraunbúðum. Það var sama hvar tengdamamma bjó, hún var alls staðar sátt og ánægð. „Mikið er fólkið gott og maturinn og allur viðurgjörning- ur góður“ þreyttist hún ekki á að tjá sig um. Það var gaman fyrir okkur hjónin á ferðalögum um landið okkar og erlendis með Guðrúnu. Minnisstætt er þegar Elli Bergur bað um að fá að vera heima, hann ætti ekkert erindi, en sagði jafn- framt: „En fyrir alla muni farið þið með hana Gunnu.“ Samvera með öðru fólki átti vel við hana alla tíð, vinnufélagar í Ísfélagi Vestmannaeyja á fjórða áratug, félagskonur í Kvenfélaginu Líkn og Kvenfélagi Landakirkju. Sam- ferðafólk og félagar í Félagi eldri borgara í Vestmannaeyjum. Kór- starf, leikfimi, sund, púttið, spila- kvöld og ýmislegt annað átti mjög vel við hana. Við fjölskyldan þökkum fyrir lífshlaup og ævi- starf góðrar konu. Það voru for- réttindi að fá að lifa með henni, læra af henni og fá að standa allt- af jafnfætis henni og hennar fólki. Ekki get ég lokið þessum fá- tæklegu orðum án þess að minn- ast á frábært vinarþel á milli mömmu minnar Betsýjar Gíslínu Ágústsdóttur og elsku tengda- mömmu. Takk fyrir árin sem ég fékk með þér. Góður Guð varðveiti þig og allt þitt fólk. Kristmann Karlsson. Nú hefur hún kvatt hún amma mín, Guðrún Ágústsdóttir. Þakk- læti og aftur þakklæti er mér efst í huga þegar ég hugsa til baka, þakklæti fyrir það að hafa fengið að hafa ömmu svona hressa með okkur svona lengi. Að lifa í 97 ár og vera svona heilsuhraust eins og amma var, er þakkarvert. Allt- af til í að mæta í afmæli, matarboð eða hverskonar hitting, svo gam- an að vera saman, eins og í tjald- inu á þjóðhátíðinni eða á jólunum. Amma var líka alveg ótrúlega dugleg þegar hún rúmlega sextug tók bílpróf og keyrði svo í 30 ár, þá ákvað hún að hætta að keyra 90 ára gömul. Einnig var amma langt á undan sinni samtíð hvað varðar líkamsrækt, hún gerði leikfimisæfingar með útvarpinu og fór í göngur, lærði svo að synda þegar hún var um sextugt og stundaði svo sundið mikið. Elsku amma mín, minningarn- ar eru margar þegar ég hugsa til baka. Þegar ég var hjá ykkur afa á Dverghamrinum í pössun þegar mamma og pabbi fóru til útlanda, þá var sko ýmislegt brallað, í eld- húsinu eða við saumavélina með þér eða úti í bílskúr með afa, þetta voru yndislegir dagar. Ég lærði svo margt hjá þér, um alls konar handavinnu og við saumavélina fannst mér þú eins og töframaður, þegar ég var búin að snúa efninu í margar hringi, þegar ég var að reyna að sauma kraga á jakka sem ég var að sauma, kom ég til þín og þú sagðir „þetta, þetta er bara svona“ og svo bara saumaðir þú þetta svo flott, ekki málið hjá henni ömmu. Aldrei kom ég að tómum kofunum hjá ömmu ef ein- hverja hjálp vantaði varðandi handavinnu. Nú hefur þú fengið hvíldina, elsku amma mín, ég trúi því að afi og Klara hafi verið í fremst í mót- tökunefndinni þarna hinum meg- in. Það verður skrítið á næstu jól- um að hafa þig ekki með okkur eins og alltaf, en minningin um frábæra ömmu verður alltaf í hjarta mínu. Takk fyrir allt, elsku amma. Þó í okkar feðrafold falli allt sem lifir enginn getur mokað mold minningarnar yfir. (Bjarni Jónsson frá Gröf.) Þín, Betsý Kristmannsdóttir. Elsku amma mín lést hinn 30. mars sl. og ég var svo langt í burtu. Þegar ég kvaddi hana áður en ég fór hvíslaði ég í eyra hennar og bað hana að vera enn hérna þegar ég kæmi til baka vitandi að það væri sjálfselska í mér að biðja um slíkt. En ég hef verið svo heppin að eiga hana að í 37 ár og hér eftir mun ég eiga og ylja mér við góðar minningar um yndis- lega konu. Konu sem leyfði mér alltaf að koma með heim eftir að hún hafði verið í morgunkaffi hjá mömmu eftir sundferðir þegar ég var lítil stelpa. Konu sem sýndi ótrúlega biðlund og þolinmæði þegar hún kenndi mér á sauma- vélina sína og leyfði mér að sauma alls konar dótarí. Konu sem lét ægilega margt eftir litlu dúllunni sinni. Ég er svo heppin að hafa verið síðust í barnabarnaröðinni og eig- inlega langsíðust. Þá hafði ég ömmu og afa nánast alveg út af fyrir mig. Ég naut þess svo sann- arlega og trúi því að það hafi þau gert líka. Á svona stundum leita á mann minningar og í hjarta mínu sakna ég margs og minnist margs en efst í huga mér er þakklæti. Þakklæti fyrir að hafa fengið að hafa hana ömmu svona lengi hjá mér og þakklæti fyrir allar stund- irnar sem við höfum átt saman. Því kveð ég hana með bros og hlýju í hjarta og finn að nú er hún á góðum stað og komin aftur við hlið Klöru og afa. Elsku amma, takk fyrir allt og allt. Þín Elísa. Amma Gunna átti langa ævi, kveður okkur sem unnum henni tæplega tíræð að aldri. Hún varð þeirrar gæfu aðnjótandi að vera hraust á sál og líkama, eignaðist yndislegan lífsförunaut og þrjú heilbrigð börn. Það var margt í fari ömmu minnar sem ég ber mikla virðingu fyrir og reyni nú eftir fremsta megni að lifa sjálf. Hún amma var engin knú- suamma en þú vissir alltaf hvar þú hafðir hana og hún var alltaf til staðar og hægt að treysta á hana og afa. Hún lagði inn mikilvæg gildi hjá börnunum sínum, þau fengu að læra í uppvextinum að þau hefðu mikilvægu hlutverki að gegna og væru samfélagsstólpar. Hún lagði ekki til neina léttúð heldur lagði hún sig fram um að sinna sínum hlutverkum og klára allt sem henni var trúað fyrir. Hún var mikil fyrirmynd, leiðandi og verndandi fyrir okkur sem fylgdum henni. Amma Gunna var dugnaðar- forkur. Hún tók þátt í uppbygg- ingu Ísfélags Vestmannaeyja og vann þar stóran hluta starfsævi sinnar. Amma og mamma unnu saman um tíma á borði í Ísfélag- inu og ég gleymi því ekki hvað ég var stolt þegar þær sögðu okkur að þær hefðu verið með hæsta bónusinn því þær afköstuðu svo miklu í vinnslu á fisknum, s.s. að- al-„bónuskerlingarnar“ eins og það var orðað þá. Snyrtimennska og reglusemi einkenndi ömmu. Heimili þeirra afa var alltaf óaðfinnanlegt og eitt árið fengu þau til dæmis verðlaun fyrir fallegasta garðinn í Vest- mannaeyjum. Þau lögðu alúð í allt sem þau tókust á við. Þegar amma var á sjötugsaldri ákvað hún að sækja sér bílpróf og læra að synda. Það kallar á hug- rekki að taka slíkar ákvarðanir því á svipuðum tíma vorum við barnabörnin líka að læra að synda og á bíl. Amma og afi héldu á ári hverju nýársboð fyrir fjölskylduna. Þessi boð voru haldin í tæpa hálfa öld. Þau voru alltaf skemmtileg og í dag skilur maður hversu dýrmætt það er að búa til vettvang fyrir stórfjölskylduna til þess að koma saman. Okkur er það minnisstætt að í einu af nýársboðum ömmu og afa fór afi að kvarta undan barna- leysi hjá okkur unga fólkinu. Það segir kannski eitthvað um hvað við bárum mikla virðingu fyrir þeim því skömmu síðar það sama ár í boði hjá föðursystur minni til- kynntum við fjórar frænkurnar að við ættum von á barni. Til- kynningar um tvö til viðbótar komu örstuttu síðar þannig að í næsta nýársboð komu margir litl- ir nýir erfingjar. Ein af þeim stundum sem mér eru hvað minnisstæðastar með ömmu var þegar við foreldrarnir skírðum elsta son okkar, Ágúst. Amma kom með foreldrum mín- um til Reykjavíkur til skírnarinn- ar. Enginn vissi hvað drengurinn átti að heita en við foreldrarnir vorum að skíra hann í höfuðið á pabba mínum en við hugsuðum ekki um að við værum líka að við- halda Ágústs-nafninu í fjölskyld- unni. Amma var jú Ágústsdóttir og þegar ég svo sagði hvað dreng- urinn átti að heita sýndi amma þær mestu tilfinningar sem ég man eftir að hafa séð hana sýnt. Það gladdi mig mikið að hafa heiðrað hana og glatt með nafn- giftinni. Ég er þakklát fyrir að hafa átt ömmu sem kenndi okkur og inn- rætti mikilvægustu gildin í lífi góðrar manneskju. Sigurbjörg. Elsku Langa mín. Þú varst yndisleg kona. Þú varst alltaf jákvæð og glöð og kenndir mér svo margt í gegnum árin. Það eru ekki margir sem hafa fengið 28 ár með langömmu sína sér við hlið og ekki mörg börn eins heppin og mínir synir að hafa átt langalangömmu. Þú tengdist eldri syni mínum, Hall- dóri Birni, um leið og hann fædd- ist á alveg sérstakan hátt. Þú talaðir alltaf svo fallega um hann og sagðir öllum frá því hvað hann væri yndislegur, alltaf glað- ur og góður. Þegar hann fæddist lást þú í fyrsta sinn á þinni löngu ævi á spítala, þá 95 ára gömul. Hann hefur líklega tengst þér sömu böndum því hann segir stundum við mig „kyssa löngu- löng“, þá vill hann fara í heimsókn til þín. Það er erfitt að útskýra það fyrir tveggja ára barni að þú sért farin frá okkur en ég reyni að útskýra það með því að segja að núna sért þú að lúlla hjá Guði og við verðum bara að kyssa mynd- ina af þér. Þá segir hann bara „ja- aaááá“ alveg eins og hann skilji þetta, kyssir myndina og fer svo sáttur að leika sér. Þú varst orðin 97 ára gömul og hafðir upplifað margt á þinni löngu ævi. Þú hafðir svo gaman af því að tala við mig um sveitina þína, það áhugamál áttum við sameiginlegt, dýrin, sveitalífið og allt sem því fylgir. Ég gleymi því aldrei hvað var alltaf notalegt að koma í heim- sókn til ykkar Langa í Dvergham- arinn þegar ég var krakki. Þar var nú ýmislegt brallað. Þar fékk ég að gera hluti sem ég fékk hvergi annars staðar, eins og til dæmis að saga spýtur, smíða og brasa eitthvað í bílskúrnum. Einu sinni setti ég niður kartöflur með ykkur langafa og oft fékk maður að vökva öll blómin í sólhúsinu, setja niður fræ í potta og tína rauðu tómatana, og aðeins þá rauðu, af tómattrénu góða. Ekki má svo gleyma að nefna allar ný- ársveislurnar þínar sem okkur var alltaf boðið í og voru alltaf svo skemmtilegar. Já, minningarnar eru margar og þeirra gæti ég um ókomna tíð í hjarta mínu. Hafðu þökk fyrir allt sem þú kenndir mér og allar þær yndislegu stundir sem við höfum átt saman í gegnum árin. Hvíldu í friði, elsku Langa. Hinsta kveðja, Kristín Halldórsdóttir. Guðrún Ágústsdóttir Hinrik Davíð Jóhanna Óli Pétur Sími 551 3485, svarað allan sólarhringinn. Vefsíða www.udo.is ✝ Elskuleg eiginkona mín, dóttir, móðir, tengda- móðir og amma, SESSELJA SIGNÝ SVEINSDÓTTIR, Sissa, Vallargerði 37, Kópavogi, lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn 5. apríl. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 17. apríl kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ljósið. Sveinn Baldursson, Baldur Sveinsson, Anna Maria Halwa, Valgeir Sveinsson, Sigurður Sveinsson, Sveinn Þorsteinsson, Guðrún Stefánsdóttir og barnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA ÞORLÁKSDÓTTIR frá Skálabrekku, Þingvallasveit, síðast til heimilis á Víðivangi 1, Hafnarfirði, lést umkringd ástvinum sínum mánudaginn 8. apríl á Hrafnistu, Hafnarfirði. Hún verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 18. apríl kl. 15.00. Kristín Jóhanna Desmier, Glyn Albert Desmier, Steinþór Björgvinsson, Bryndís Gestsdóttir, Ægir Björgvinsson, Hrönn Sigurðardóttir, Björn Þ. Björgvinsson, Anna Björg Sigurbjörnsdóttir, Dóra Hrönn Björgvinsdóttir, Sigurður Einarsson, Alda Björgvinsdóttir, barnabörn og makar, langömmubörn. ✝ Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN SIGURÐSSON frá Raufarhöfn, sem lést á Skjóli mánudaginn 8. apríl, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 18. apríl kl. 13.00. Heiðar Bergur Jónsson, Þorbjörg Sandra Sveinsdóttir, Guðlaug Sjöfn Jónsdóttir, Guðlaugur Vilberg Sigmundsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.