Morgunblaðið - 13.04.2013, Síða 40
40 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2013
Maður veit ekki hvar á að
byrja þegar maður er að kveðja
bróður sinn. Minningarnar eru
margar. Minningin um þegar
hann gaf mér fyrsta hjólið sem ég
eignaðist eða eru það ferðirnar í
bílnum hans upp í Vogatungu í
Leirársveit þar sem hann var í
sveit? Í Vogatungu bjó systir
móður okkar, hún Helga, og mað-
urinn hennar, hann Hafsteinn.
Alltaf var tekið á móti okkur
bræðrunum með bros á vör og
bakkelsi sett á borð.
Þegar ég var búinn með gagn-
fræðaskóla vissi ég ekki hvert
skyldi halda. Þá kom Pálmi bróð-
ir og spurði hvort ég vildi ekki
læra einhverja iðngrein. Í Kefla-
vík í þá daga var bara einn fram-
haldsskóli og það var Iðnskóli
Suðurnesja, flestir fóru í hann.
Pálmi var orðinn rafvirkjameist-
ari og hugur minn horfði þangað,
en Pálma fannst sniðugra að læra
einhverja aðra iðngrein, t.d. pípu-
lagnir. Á þessum árum hugsa
ungir menn ekki mjög langt og
Jón Pálmi
Skarphéðinsson
✝ Jón PálmiSkarphéð-
insson fæddist í
Keflavík 20. októ-
ber 1945. Hann lést
á gjörgæsludeild
Landspítalans 21.
mars 2013.
Útför Jóns fór
fram frá Keflavík-
urkirkju 3. apríl
2013.
fannst mér þetta
bráðsniðugt án þess
að vita nokkuð um
pípulagnir. Áður en
ég vissi var Pálmi
búinn að tala við
pípulagningameist-
ara í Keflavík og
biðja hann að taka
mig á samning.
Pálmi sagði að ef ég
ætlaði að læra þessa
grein skyldi ég læra
hjá þeim sem hann taldi vera með
betri fagmönnum í greininni. Og
þar hafði hann rétt fyrir sér eins
og oft áður.
Þegar námi var lokið og ég var
búinn að öðlast meistararéttindi
kom bróðir aftur til skjalanna og
hvatti mig til að hefja sjálfstæðan
rekstur, sem ég gerði. Ekki stóð
það á honum að hjálpa mér að út-
vega verkefni. Stóri bróðir var
sjálfur með sjálfstæðan rekstur í
rafvirkjun, þannig að leiðir okkar
lágu oft saman í ýmsum verkum.
Allt var hann til staðar til að
hvetja mig áfram.
Þegar árin liðu venti hann
kvæði sínu í kross og hóf starf við
kennslu og settist á skólabekk við
Kennaraháskóla Íslands og
kenndi við Fjölbrautaskóla Suð-
urnesja, síðan flutti hann sig um
set og hóf kennslu við Fjöl-
brautaskólann í Breiðholti. Þeg-
ar mér var boðið kennarastarf við
Iðnskólann í Hafnarfirði leitaði
ég strax ráða hjá Pálma bróður
og það var ekki að spyrja að því
að sú hvatning sem hann gaf mér
hjálpaði mér mikið að taka
ákvörðun.
Þegar maður er á tímamótum
sem þessum, og er að kveðja
bróður sinn sem var manni svo
mikið, get ég ekki neitað því að
hans lífsstarf og mitt er ekki
mjög ólíkt, get ég sagt það með
stolti að hafa átt slíkan bróður.
Mæja mín, Skarphéðinn og
Einar, við Dagbjört færum ykk-
ur okkar innilegustu samúð á
þessum sorgartíma.
Þinn bróðir,
Skarphéðinn.
Jón Pálmi Skarphéðinsson,
rafvirkjameistari og kennari, lést
á hjartadeild Landspítala eftir
skamma en harða baráttu við
hjartasjúkdóm.
Jón Pálmi starfaði síðustu ára-
tugi sem kennari, fyrst við Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja og síðar
við Fjölbrautaskólann í Breið-
holti. Hann starfaði einnig sem
sjálfstæður verktaki við hönnun
og framkvæmdir er tengdust raf-
lögnum.
Jón Pálmi var maður fé-
lagslyndur. Hann stundaði golf-
íþróttina með sérstakri eljusemi,
oftast í félagsskap Maríu eigin-
konu sinnar. Hann var kosinn til
ýmissa trúnaðarstarfa innan
golfíþróttarinar og gegndi starfi
formanns Golfklúbbs Suðurnesja
um skeið. Jón Pálmi var félagi í
íslensku Frímúrahreyfingunni
og gegndi þar ýmsum ábyrgðar-
störfum.
Ákveðni, einbeitni, elja og ein-
stakur dugnaður einkenndu öll
störf Pálma. Honum féll aldrei
verk úr hendi. Hann kunni ótrú-
lega vel til verka, hvort sem um
var að ræða trésmíði, múrverk
eða aðrar iðngreinar. Í starfi sínu
sem kennari og sem rafhönnuður
var hann fljótur að tileinka sér
bestu tölvutækni og aðferðir
hverju sinni.
Eftirlifandi eiginkona Jóns
Pálma er María Jónsdóttir. Þau
áttu tvo syni og mannvæn barna-
börn sem syrgja afa sinn. Pálmi
var mágur minn og María kona
hans var yngsta barnið í fjöl-
skyldu okkar. Þegar hún og
Pálmi felldu hugi saman leist for-
eldrum okkar vel á væntanlegan
eiginmann en þau höfðu miklar
áhyggjur af því að hún myndi lík-
lega flytja alla leið til Keflavíkur
og þau myndu sjaldan sjá hana
eftir það. Pálmi og María hófu
búskap í Keflavík og búa þar enn
en þau voru tíðir gestir hjá for-
eldrum okkar Maríu meðan þau
voru á lífi og einnig hafa þau
hugsað um grafreit foreldra
hennar af mikilli umhyggju eftir
andlát þeirra.
Við Berta, eiginkona mín,
minnumst margra góðra stunda
með þeim hjónum, á heimilum
okkar, í ferðalögum og á ýmsum
fagnaðarstundum. Við eru þakk-
lát fyrir að hafa átt Jón Pálma að
einlægum vini.
Við vottum Maríu, sonum
þeirra hjóna, öldruðum foreldr-
um Pálma, barnabörnum og öðr-
um skyldmennum þeirra okkar
innilegustu samúð. Við þökkum
fyrir margar yndislegar sam-
verustundir með þeim hjónum.
Blessuð sé minning Jóns Pálma
Skarphéðinssonar.
Guðni og Berta.
Það var haustið ’91 sem leiðir
okkar Jóns Pálma lágu saman við
rafmagnsdeild Fjölbrautaskóla
Suðurnesja. Jón Pálmi hafði rek-
ið rafverktakafyrirtækið Rafbæ í
Keflavík og þekkti nær allar
húsaraflagnir á svæðinu. Það
varð strax góð samvinna með
okkur Jóni Pálma. Hann var góð-
ur kennari og lagði sig fram við
að miðla af þekkingu sinni. Hann
var samviskusamur fram í fing-
urgóma og duglegur. Bar hag
nemenda sinna fyrir brjósti.
Hann rak teiknistofu samhliða
kennslunni og var ætíð með púls-
inn á því sem var að gerast í
greininni. Þekkti alla rafverk-
taka á svæðinu og þá sem seldu
raflagnaefni.
Jón Pálmi ferðaðist mikið bæði
til þess að kynna sér hvað væri
það nýjasta í greininni og hvernig
aðrar þjóðir stæðu að kennslu í
rafmagnsgreinum. Hann var
góður félagi á gleðistund, hafði
gaman af söng og kunni margar
vísur sem hann leyfði okkur að
heyra.
Það var á heimleið úr Reykja-
vík eftir innkaupaferð fyrir skól-
ann að Jón Pálmi kynnir mig fyr-
ir Sindra. Hann hafði starfað þar
í mörg ár. Ég hafði eitthvað verið
búinn að stríða honum á þessum
félagskap en nú var hann tilbúinn
að mæla með mér. Saman höfum
við átt margar góðar stundir í
Sindra sem hefur fóstrað okkur
að utan sem innan.
Sameiginlegt áhugamál okkar
Jóns Pálma var sumarbústaðalíf-
ið í Hallkelshólum. Jón Pálmi
reisti sér veglegt sumarhús sem
hann naut þess að dvelja í. Þar
tók hann á móti vinum sínum og
alltaf var gott að koma í heim-
sókn. Gott var að leita til Jóns
Pálma þegar eitthvert verkfæri
vantaði. Ekki stóð á greiðvikinni
hjá honum.
Jón Pálmi var mikill fjöl-
skyldumaður og bar hag hennar
fyrir brjósti. Með söknuði kveð
ég vin minn Jón Pálma sem
reyndist mér vel. Ég sendi Maríu
og fjölskyldu kveðju.
Ólafur Baldvin Sigurðsson.
Við unnum saman síðustu tíu
árin. Það voru góð ár. Jón Pálmi
var sá, umfram aðra, sem leiddi
mig inn í kennarastarfið í Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti.
Hann tók alltaf sérstaklega vel á
móti nýjum samstarfsmönnum.
Lét þá hafa verkefnaheftin sín og
sagði svo: Síðan kennir hver
kennari eftir sínum eigin aðferð-
um.
Hann hafði miklar skoðanir á
því hvernig og hvað ætti að kenna
til að búa til rafvirkja í gegnum
skóla. Enda var hann mikill fag-
maður, vandvirkur og metnaðar-
fullur. Það fengu allir að heyra
skoðanir hans, við, aðrir rafiðna-
kennarar, og þeir sem koma að
endurmenntun og sveinsprófum.
Ef hann var ekki sáttur þá bara
fór hann í að leysa það verkefni.
Sagði skoðun sína og lagði fram
nýtt efni úr eigin eigu til að nota.
En hann nennti heldur ekki að
vera að sóa tímanum í að karpa
við þá sem voru honum hvort sem
er ósveigjanlega ósammála. Við
áttum samt margar góðar sam-
ræður um stjórnmál og bara
hvernig samfélagið ætti að vera.
Það er ekkert úr því dregið að
segja að Jón Pálmi Skarphéðins-
son eigi mestan heiður af því
hvernig við kennum verklega raf-
virkjun í dag í Fjölbrautaskólan-
um í Breiðholti þar sem rúmur
helmingur allra rafvirkja er
menntaður í dag. Aðdáunarverð
þrautseigja í því að útvega góðan
búnað frá framleiðendum og inn-
flytjendum til að nota við kennsl-
una og gerð verkefna í samræmi
við það.
Nemendur heyrði ég aldrei
tala illa um hann, sem er sérstakt
með kennara. Þvert á móti virt-
ust þeir bera virðingu fyrir fag-
mennskunni og umburðarlynd-
inu sem einkenndi hann.
Fyrst og fremst var hann þó
góður og traustur félagi þar sem
alltaf var stutt í hláturinn. Þann-
ig minnist ég hans.
Baldvin Björgvinsson,
rafiðnakennari í FB.
Fregnin af andláti Jóns Pálma
snart okkur samstarfsfólk hans
mjög. Við höfðum haldið í veika
von undanfarna daga um að hann
héldi lífi eftir skyndileg veikindi
sem hann varð fyrir. Enginn má
sköpum renna.
Jón Pálmi var stórbrotinn
maður, skarpgreindur og harð-
duglegur. Við samstarfsmenn
hans lítum það sem ákveðin for-
réttindi að hafa fengið að kynnast
og vinna með honum. Í hópi fé-
laganna var hann hrókur alls
fagnaðar, það var nokkurn veg-
inn sama hvað bar á góma s.s.
pólitísk dægurmál, þjóðþrifamál
eða nánast hvað sem var, alltaf
lýsti hann skoðun sinni á svo
skeleggan hátt að eftir var tekið
og oftar enn ekki hitti hann nagl-
ann á höfuðið.
Jón Pálmi hafði alltaf eitthvað
fyrir stafni hvort heldur í leik eða
starfi. Í seinni tíð var það golfið,
hænsnarækt og smíði sumarbú-
staðar sem bar hæst og í starfi
raflagnahönnun og kennslu.
Meðfram kennslunni vann hann
óþrjótandi að námskrár- og
námsgagnagerð og nú stuttu fyr-
ir veikindin sýndi hann okkur það
nýjasta í þeim efnum. Eftir hann
liggur mikið af dýrmætu
kennsluefni fyrir kennslu í raf-
virkjun, þá eru ótalin þau áhrif
sem hann hefur haft á uppbygg-
ingu og skipulag náms í rafvirkj-
un í gegnum tíðina.
Í kennslu lagði hann höfuð-
áherslu á að innleiða fagmennsku
meðal nemenda sinna, snyrti-
mennsku og varúð í umgengni við
rafmagn. Í þessum efnum var
hann að öllum öðrum ólöstuðum
fremstur í flokki.
Við samstarfsmenn Jóns
Pálma á rafiðnabraut Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti viljum
votta þér María og fjölskyldu
þinni dýpstu samúð vegna and-
láts hans.
Guð blessi minningu Jóns
Pálma.
Fyrir hönd samkennara á raf-
iðnabraut FB,
Víðir Stefánsson.
Kær vinur til margra ára er
fallinn frá eftir stutta en hetju-
lega baráttu við hjartasjúkdóm.
Eftir sitja hnípnir vinir og erfiðar
spurningar leita á hugann. Þótt
sorgin sé mikil erum við þakklát
fyrir að hafa átt Jón Pálma að
vini og yljum okkur við góðar
minningar.
Jón Pálmi var fagmaður í húð
og hár og stoltur af því sem hann
tók sér fyrir hendur, sama hvort
það var að leggja rafstrengi,
smíða úr timbri eða teikna og
hanna mannvirki. Allt lék í hönd-
unum á honum. Þá er ekki síður
gott að minnast ótal góðra stunda
í sælureit þeirra hjóna í Hallkels-
hólum í Grímsnesi, þar sem
handbragð Jóns Pálma bar vott
um útsjónarsemi og vandvirkni
sem honum einum var lagið.
Hann var frábær liðsmaður í
sumarhúsafélaginu, bæði félagið
og félagsmenn nutu hjálpsemi
hans.
Jón Pálmi naut mikillar gæfu í
einkalífi sínu með Maríu sinni og
fjölskyldu, samrýmd og samheld-
in um alla hluti.
Við sendum okkar dýpstu
samúðarkveðjur til Maríu og fjöl-
skyldunnar allrar. Blessuð sé
minning heiðursmannsins Jóns
Pálma Skarphéðinssonar.
Vilhjálmur Ragnarsson
og Ólöf Marteinsdóttir.
Þú, hún Maja þín og við örk-
uðum í síðsumarshúminu á leið
okkar úr Drekagili í Dyngjufell.
Jónsskarðið var að baki og þó að
farið væri að halla undan fæti
gerði þreytan vart við sig eftir
langan og strangan dag en hugs-
anir um ljúffengan miðnætur-
verð með styrktarkakói undir
svefninn kölluðu fram sælutil-
finningu sem lúnir göngumenn
þekkja. Þarna í auðninni brast þú
á með fyrirlestri um náttúru-
vernd og öfgar öfgafyllstu nátt-
úrusinna. Þér var mikið niðri fyr-
ir og ruddir úr þér ýmsum
dæmum máli þínu til stuðnings
svo við samferðungar þínir gát-
um vart gengið fyrir hlátri.
Margar góðar og skemmtilegar
minningar eru tengdar göngu-
ferðum okkar að sumri og vetri. Í
slíkum ferðum kynnumst við
kostum og göllum samferða-
manna í nábýli og þegar þreyta
og erfiðleikar sækja á. Jafnaðar-
geðið og glaðlyndið yfirgaf þig
sjaldan. Þú fórst á fætur á undan
fuglunum og varst búinn að hella
upp á og dunda við hitt og þetta
áður en við vöknuðum við bram-
boltið í þér. Ofvirknin var eitt að-
aleinkenni þitt en einnig fjöl-
hæfni og vandvirkni. Þú þurftir
alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni
og ef til þín var leitað var svarið
„ekkert mál“ og skipti þá engu
hvort það var á sérsviði þínu, í
flísalögnum, smíðum eða öðru.
Heimili ykkar hjóna og sumarbú-
staður bera þess vitni að þar hef-
ur verið á ferð eljusamur hag-
leiksmaður.
Kynni okkar hófust þegar þú
réðir þig til kennslu í rafmagninu
í Fjölbrautaskóla Suðurnesja
(FS) eftir að hafa starfað í þinni
iðngrein á hinum frjálsa markaði
um áratuga skeið. Þú náðir strax
góðum tökum á kennslunni og
hvernig átti að tækla strákana.
Nú kom ofvirknin sér vel því ef
ekki var til kennsluefni þá samdir
þú það og ef tæki og tól vantaði
notaðir þú gömlu samböndin til
að fá ýmislegt fyrir lítið eða
fékkst að hirða gamalt drasl sem
þið í rafmagninu gerðuð upp. Þú
hafðir gjarnan á orði þegar þú
sýndir stofuna að þetta væri að-
allega „kanagóss og haugamat-
ur“.
Kennsluréttindin tókstu með
rúmlega fullu starfi þrátt fyrir að
hafa ekki setið á skólabekk í ára-
tugi. Þó að þú værir dagfarsprúð-
ur léstu ekki hlut þinn ef stigið
var á skottið á þér. Þú sagðir
meiningu þína á kjarnyrtri ís-
lensku og varst þá oft bæði
þrjóskur og þver. Því fór svo að
FS varð fyrir því tjóni að missa
þig en FB var svo heppinn að fá
þig. Margar ánægjustundir átt-
um við hjónin með ykkur Maju
tveimur eða í góðra vina hópi.
Þar varst þú í essinu þínu og
sagðir sögur og fórst með vísur.
Og þegar við vorum komin með
slatta í tána fóru eigin vísur að
fljúga og þá gjarnan þessi sem
byrjar svona og kallar fram í
hugskoti okkar mynd af þér bros-
mildum:
Það má segja um þessa karla
þó komnir séu á aldurinn …
Jón Pálmi, nú skilur leiðir um
stund því að þú ert farinn í þá
göngu sem við eigum öll eftir að
þreyja en við treystum því að þú
bíðir okkar að leiðarlokum með
styrktarkakóið. Við söknum góðs
drengs og vinar en getum yljað
okkur við ljúfar endurminningar.
Maju, Skarphéðni, Einari, for-
eldrum og stórfjölskyldu sendum
við okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Ægir og Alma.
✝
Elsku demanturinn okkar,
LOVÍSA HRUND SVAVARSDÓTTIR,
Einigrund 14,
Akranesi,
sem lést laugardaginn 6. apríl, verður
jarðsungin frá Akraneskirkju þriðjudaginn
16. apríl kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Umhyggju, félag til
styrktar langveikum börnum. Rnr. 0101-15-371020,
kt. 581201-2140.
Svavar S. Guðmundsson, Hrönn Ásgeirsdóttir,
Ásgeir Sævarsson, Karen Lind Ólafsdóttir,
Heiður Sævarsdóttir, Ryan J. Karazija,
Engilbert Svavarsson,
Ólafur Ingi, Almar Kári, Úlfur Esra, Eva Hrönn
og aðrir aðstandendur.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýju við andlát og útför
GUÐMUNDAR TÓMASAR
MAGNÚSSONAR
læknis,
Strikinu 2,
Garðabæ.
Alfa Eyrún Ragnarsdóttir,
Jón Tómas Guðmundsson, Linghao Yi,
Magnús Ragnar Guðmundsson, Kristjana Kristinsdóttir,
Halldór Elías Guðmundsson, Jenný Brynjarsdóttir,
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir, Þórir Benediktsson,
Eva Magnúsdóttir, Tinna Magnúsdóttir,
Guðmundur Tómas Magnússon, Jón Baldvin Magnússon,
Anna Laufey Halldórsdóttir, Tómas Ingi Halldórsson,
Benedikt Þórisson, Bjartur Þórisson.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
KNÚTS BJARNASONAR
bónda,
Kirkjubóli,
Dýrafirði.
Bjarni Guðmundsson, Ásdís B. Geirdal,
Gunnar Guðmundsson, Gíslína Lóa Kristinsdóttir,
Guðmundur Gr. Guðmundsson, Hildur Inga Rúnarsdóttir,
Sigrún Guðmundsdóttir
og fjölskyldur.
Inger Steinsson
IngerRósÓlafsdóttir
ÚTFARARÞJÓNUSTA
Vönduð og persónuleg
þjónusta
Sími: 551 7080 - 691 0919
athofn@athofn.is - Akralandi 1 - 108 Reykjavík