Morgunblaðið - 13.04.2013, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 13.04.2013, Blaðsíða 49
Jósefssonar og Ragnheiðar Jóhanns- dóttur. Ég var því nokkurs konar uppeldissonur þeirra á sumrin. Fyrst voru þar engar vélar, né rafmagn og enginn sími, en útikamar. Þegar ég hætti að fara í sveitina, 14 ára, var ég á síldarbátum frá Grund- arfirði næstu sjö sumrin. Fyrst var ég hjá Soffaníasi Cecilssyni á Grund- firðingi II., þá hjá Guðmundi Run- ólfssyni á Runólfi og síðan með Hin- riki Elbergssyni, skipstjóra á Gnýfara. Allt voru þetta sómamenn. Síldarnæturnar voru þá litlar og kaf- aðar inn á höndum svo maður var oft orðinn lúinn eftir nokkur köst. Svo sváfu allir í einum lúkar sem var allt í senn heimili og samkomuhús þar sem heimsmálin voru krufin. Hafi maður einhvern tíma mannast, þá var það þarna.“ Bankamaður í tæp 30 ár Árni kenndi við Barnaskóla Grund- arfjarðar frá 1963, sinnti versl- unarstörfum hjá föður sínum í Versl- unarfélaginu Grund í Grundarfirði um skeið, var sveitarstjóri Grund- arfjarðar 1970-79, var fram- kvæmdastjóri fiskvinnslufyrirtæk- isins Sæfangs í Grundarfirði 1979-82, útibússtjóri Búnaðarbankans í Grundarfirði 1982-86, útibússtjóri Búnaðarbankans í Garðabæ 1986- 2002, útibússtjóri aðalbanka Kaup- þings í Austurstræti 2002-2004 og við Landsbankann 2004-2010 er hann lét af störfum. Árni æfði og keppti í knattspyrnu, körfubolta og öðrum íþróttagreinum á vegum UMFG. Hann hefur verið mikill áhugamaður um skák, hefur teflt mikið þó að sjálfur segist hann vera „kaffihúsaskákmaður“, var nokkur ár gjaldkeri Skásambands Ís- lands, hefur beitt sér fyrir ýmsum skákmótum, stóð fyrir frægu skák- móti í Grundarfirði, í tilefni af 200 ára verslunarsögu Grundarfjarðar, og er upphafsmaður að Friðriksmótinu sem haldið hefur verið á vegum Landsbankans frá 70 ára afmæli Friðriks. Þá var hann einn af stofn- endum Félags ungra sjálfstæð- ismanna á Vesturlandi og fyrsti for- maður þess, hefur setið í fulltrúaráði og kjördæmisráði flokksins á Vest- urlandi, starfaði í sjálfstæðisfélagi í Garðabæ, sótt landsfundi um áratuga skeið. Hann sat í stjórn Sambands ís- lenskra sveitarfélaga og var formað- ur Samtaka sveitarfélaga á Vest- urlandi um skeið. Árni var, ásamt Sturlu Böðv- arssyni, ritstjóri hins fjögurra binda rits, Ísland – atvinnuhættir og menn- ing, 2010, sem nú er nýútkomið. Fjölskylda Eiginkona Árna er Þórunn Björg Sigurðardóttir, f. 1.7. 1943, tón- menntakennari. Hún er dóttir Sig- urðar Árnasonar, bónda á Sáms- stöðum í Fljótshlíð, og Hildar Árnason húsfreyju. Börn Árna og Þórunnar eru Orri, f. 8.8. 1964, arkitekt, búsettur í Reykja- vík en sambýliskona hans er Anna Rún Ingvarsdóttir, fjármálastjóri hjá Apple; Arna, f. 17.3. 1966, sem starf- rækir, ásam eiginmanni sínum, Javier Varela, spænskuskóla á Tarifa á Spáni og eiga þau eina dóttur; Ágústa Rós, f. 10.11. 1977, sagnfræðingur en maður hennar er Svavar Jósefsson sagnfræð- ingur og starfsmaður Reykjavík- urborgar og eiga þau þrjú börn. Systkini Árna: Aðalheiður Rósa, f. 25.3. 1942, d. 1.6. 2008, flugfreyja; Aa- got, f. 2.3. 1945, d. 27.6. 2012, hús- freyja á Sámsstöðum; Gísli Már Gíslason, f. 8.1. 1947, verkfræðingur og bókútgefandi; Hrund, f. 22.2. 1946, d. 9.6. 1953; Ágústa Hrund, f. 5.1. 1948, fyrrv. verslunarmaður og kaup- maður í Reykjavík; Emil, f. 7.2. 1959, viðskiptafræðingur og fram- kvæmdastjóri í Garðabæ. Foreldrar Árna: Emil Jóhann Magnússon, f. 25.7. 1921, d. 8.2. 2001, kaupmaður á Þórshöfn og í Grund- arfirði, og Ágústa Kristín Árnadóttir, f. 6.8. 1921, húsfreyja, nú búsett í Reykjavík. Árni lætur fermingarveislu dótt- ursonar síns ganga fyrir á afmæl- isdaginn en gleðst síðar með vinum og kunningjum vegna afmælisins. Úr frændgarði Árna Emilssonar Árni Emilsson Rósa Eyjólfsdóttir húsfr. í Eyjum Finnbogi Björnsson skipstjóri í Eyjum Árni Sigurjón Finnbogason skipstjóri í Eyjum Guðbjörg Aðalheiður Sigurðardóttir húsfr. í Eyjum Ágústa Kristín Árnadóttir húsfreyja Sigurbjörg Sigurðardóttir húsfr. í Brekkuhúsum Sigurður Sveinbjörnsson útvegsb. í Brekkuhúsum í Eyjum Munnveig Andrésdóttir í Sigfúsarhúsi á Seyðisfirði Sigurður Jónasson vinnum. á Geitaskarði Rósa Sigurðardóttir húsfr. á Reyðarfirði Magnús Guðmundsson verslunarmaður á Reyðarfirði Emil Jóhann Magnússon kaupm. á Þórshöfn og í Grundarfirði Guðný R. Rögnvaldsdóttir húsfr. á Felli Guðmundur Árnason b. á Felli í Breiðdal Finnbogi Finnbogason skipstjóri í Eyjum Sigurður Magnússon form. Kaupmannasamtakanna og framkvæmdastj. ÍSÍ Guðmundur Magnússon fræðslustjóri á Austurlandi Árni Björn Guðmundsson b. í Felli í Breiðdal Séra Emil Björnsson dagskrárstjóri Ríkissjónvarps- ins Björn Emils- son dag- skrárgerðar- maður ÍSLENDINGAR 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2013 Finnur Magnússon lögfræðingur hefur varið doktorsritgerð sína í þjóðarétti við háskólann í Vínarborg, Austurríki. Titill ritgerðarinnar var Full Protection and Security in International Law, eða Meginreglan um verndun og öryggi fjár- festinga í þjóðarétti. Á undanförnum fimmtíu árum hafa ríki leitast við að tryggja fjárfestingar ríkisborgara sinna með því að gera tví- hliða fjárfestingasamninga sín í milli. Þessum þjóðréttarsamningum er ætlað að ýta undir fjárfestingar milli landa, tryggja öryggi fjárfesta óháð landsrétti þess ríkis þar sem fjárfestingin er gerð og gera fjárfestum kleift að höfða gerð- ardómsmál á hendur móttökuríki fjár- festingarinnar fyrir alþjóðlegum gerð- ardómi ef þeir telja á sér brotið. Ein algengasta meginregla þessara tvíhliða fjárfestingasamninga er meginreglan um verndun og öryggi fjárfestinga (e. full protection and security). Hún legg- ur þá skyldu á ríki að tryggja öryggi og vernda erlenda fjárfestingu eftir að hún hefur verið gerð. Af þessu leiðir að ríki hefur ekki ótakmarkað svigrúm við setningu laga og reglugerða sem um fjárfestinguna er ætlað að gilda. Auk þess leggur meginreglan þá skyldu á ríki að beita lögreglu og öðrum ein- ingum ríkisvaldsins þannig að fjárfest- ingin njóti verndar og að öryggi hennar sé tryggt, þ.m.t. gegn aðgerðum þriðju aðila. Í ritgerðinni var komist m.a. að þeirri niðurstöðu að ríki beri að sýna til- hlýðilega kostgæfni (e. due diligence) þegar skyldan er innt af hendi – ellegar getur ríkið orðið skaðabótaskylt gagn- vart fjárfestinum.  Finnur Magnússon fæddist 15. nóvember 1973 í Reykjavík. Hann lauk stúdents- prófi frá MR árið 1993 og embættisprófi í lögfræði árið 2000. Hann starfaði sem lögmaður á árunum 2001-2007 og lauk LL.M.-prófi frá Háskólanum í Vínarborg á árinu 2008. Hann hóf doktorsnám við sama skóla árið 2009, var gestafræðimaður við lagadeild háskólans í Leuven í Belgíu og við Lauterpacht-þjóðréttarstofnunina við Cambridge-háskóla árið 2011. Foreldrar hans eru Magnús Finnsson, fv. frétta- stjóri á Morgunblaðinu, og Bryndís Brynjólfsdóttir, fv. móttökuritari. Finnur er gift- ur Jóhönnu Bryndísi Bjarnadóttur lögfræðingi. Þau eiga tvö börn, Önnu Bryndísi, og Magnús. Finnur er meðeigandi og starfar sem lögmaður á JURIS lögmanns- stofu, auk þess sem hann kennir við lagadeild HÍ og lagadeild HR. Doktor Doktor í lögfræði Laugardagur 95 ára Ása Eyjólfsdóttir 90 ára Elín Kristmundsdóttir Helga Guðbjörnsdóttir 85 ára Einar Jóhann Jónsson Ólöf Emma Kristjánsdóttir Ólöf Helga Benónýsdóttir 80 ára Edda Kristinsdóttir Marinó Marinósson Vigdís Sigvaldadóttir Þórunn F. Benjamínsdóttir 75 ára Guðbjörg Þórðardóttir Hreinn Sveinsson Ingibjörg Steinsdóttir 70 ára Guðjón Elíasson Inga Björk Ingólfsdóttir Ingunn Vilhjálmsdóttir Kristinn Sigtryggsson Sverrir Sigurðsson 60 ára Auður Guðjónsdóttir Brynja Árný Nordquist Guðjón Ólafur Kristbergsson Guðni Kristinsson Gunnar Sigurjón Gunnarsson Jakobína Reynisdóttir Jónína Ragnarsdóttir Margrét Sigurðardóttir Sigrún Geirsdóttir Teresa Kolasa 50 ára Anna Helga Tryggvadóttir Ásbjörn Svavar Ásgeirs- son Gissur Pálmason Grétar Þorgeirsson Jóhann Hlíðar Harðarson Selma Hauksdóttir Sveinbjörg Þórdís Sveinsdóttir Þórarinn Ingólfsson 40 ára Edda Björk Ármannsdóttir Edda Dan Róbertsdóttir Elín Björg Guðmundsdóttir Emmanuel Beyan Davis Friðrik Páll Sigurðsson Garðar Sigurjónsson Helgi Örn Jacobsen Hlynur Snæland Lárusson Hulda Margrét I. Magnúsdóttir Jónas Garðar Erlingsson Jónína Garðarsdóttir Jón Valgeir Björnsson Kristján Jakob Agnarsson Lára Pálsdóttir Sigvaldi Eiríkur Hólmgrímsson 30 ára Andri Bjarnason Anna Gorska Erla Sturludóttir Fanney Björg Sveinsdóttir Hafdís Gunnarsdóttir Hannes Þórður Þorvaldsson Íris Eyfjörð Elíasdóttir Jóhanna Þórunn Ásgrímsdóttir Jón Orri Kristjánsson Lilja Hrönn Guðmundsdóttir Margrét Hrefna Ríkharðsdóttir Marta Danuta Siudak Ólafur Björnsson Rúnar Þór Númason Sunnudagur 95 ára Benedikt Sigurðsson 85 ára Guðrún Jónsdóttir Hreiðar Hólm Gunnlaugsson Ingunn Eyjólfsdóttir Ólafur W. Nielsen Rut Magnúsdóttir 80 ára Anna Guðrún Bjarn- ardóttir Gyða Ragnarsdóttir Vigdís Sigurðardóttir 75 ára Matthías Ásgeirsson Páll Bjarnason 70 ára Ester Bergmann Halldórsdóttir Magnús B. Bergmann Magnús Pálmason Margrét Pálsdóttir 60 ára Anton Viggó Viggósson Benedikt H. Benediktsson Björg Þorgilsdóttir Einar Kristján Þorleifsson Kristín Salóme Karlsdóttir Ólöf Zoëga Ragnar Hauksson Sigþór Óskarsson Valdimar Þór Gíslason Þorbjörn Pétursson Þorfinnur Steinarsson 50 ára Ágústa Dröfn Guðmundsdóttir Árni Þór Þórðarson Bjarni Jóhannsson Björn Erlingsson Brynja Sigríður Agnarsdóttir Einar Ingason Elsa Bergþóra Björns- dóttir Friðbert Guðmundsson Heimir Haraldsson Helena Jensdóttir Kirsten Kummerfeld Kolbrún Jónsdóttir Lilja Ragnarsdóttir María Guðný Normann María Soffía Gottfreðsdóttir Sigríður H. Sigurðardóttir Sigurður Hjaltason Sólveig Bachmann Gunnarsdóttir Stefán R. Kjartansson Sveinn Sigurjónsson Þorvaldur Tómas Jónsson 40 ára Árni Gunnarsson Áslaug Guðrúnardóttir Ástþór Elís Jónsson Elínrós Hjartardóttir Hulda Herdís Kristjánsdóttir Kristín Björk Viðarsdóttir Renata Gruszfeld Sigurður Einar Marelsson Örvar Guðmundsson 30 ára Aðalbjörg Bjarnadóttir Baldur Kristjánsson Brynjar Ólafsson Davíð Guðmundsson Décio Jóhannsson Erna Geirmundsdóttir Hildur Arna Hjartardóttir Hildur Droplaug Pálsdóttir Hrönn Egilsdóttir Ingi Páll Jónsson Magnús Óskarsson Magnús Þórður Helgason Óli Hilmar Ólason Til hamingju með daginn HJÁ AÐALSKOÐUN ERT ÞÚ Í GÓÐUMHÖNDUM Snjallt að kíkja á okkur á adal.is Við erummeð fjórar skoðunarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu og eina í Reykjanesbæ. Þaulreyndir og þjónustuliprir fagmenn taka á móti þér á þeim öllum. Hlökkum til að sjá þig! H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 3 -0 4 6 7 Aðalskoðun, faggildur skoðunaraðili í 19 ár Reykjavík Grjóthálsi 10 Sími 590 6940 Reykjavík Skeifunni 5 Sími 590 6930 Hafnarfjörður Hjallahrauni 4 (við Helluhraun) Sími 590 6900 Kópavogur Skemmuvegi 6 (bleik gata) Sími 590 6935 Reykjanesbær Holtsgötu 52 (við Njarðarbraut) Sími 590 6970 www.adalskodun.is og www.adal.is Við getum minnt þig á þegar þú þarft að láta skoða bílinn á næsta ári. Skráðu þig á póstlistann hjá okkur þegar þú kemur með bílinn í skoðun og þú gætir unnið 200 lítra eldsneytisúttekt. Opið kl. 8-17 virka daga – sími 590 6900
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.