Morgunblaðið - 15.04.2013, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2013
Skattskrár vegna álagningar 2012 og
virðisaukaskattsskrár vegna tekjuársins 2011
verða lagðar fram 15. apríl 2013.
Skrárnar, sem sýna álagða skatta á gjaldendur í hverju sveitarfélagi,
eru lagðar fram á viðkomandi starfsstöðvum ríkisskattstjóra eða á
sérstaklega auglýstum stöðum dagana 15. apríl til og með
26. apríl 2013.
Framlagning skattskráa er samkvæmt ákvæðum 2. mgr. 98. gr. laga
nr. 90/2003 og 46. gr. laga nr. 50/1988.
15. apríl 2013
RÍKISSKATTSTJÓRI
Skúli Hansen
Egill Ólafsson
„Þetta hefur verið góð helgi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn,“ segir Bjarni
Benediktsson, formaður Sjálfstæð-
isflokksins, í samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi. Hann bendir á
að hann hafi fengið mjög jákvæð við-
brögð um helgina sem hann er afar
þakklátur fyrir, þannig hafi hundr-
uðir manna komið á tal við hann und-
anfarna daga.
Aðspurður hvort viðbrögðin hafi
komið honum á óvart segir Bjarni að
þau hafi verið miklu sterkari en hann
grunaði. „Viðbrögðin undanfarna
daga hafa verið miklu sterkari heldur
en mig grunaði og það hefur komið
mér þægilega á óvart en ekkert af
þessu breytir því að það eru ennþá
tvær vikur til kosninga og við munum
þurfa að vinna vinnuna frá morgni til
kvölds í kosningabaráttunni,“ segir
Bjarni og bætir við að staðan sé
ennþá þung og að sjálfstæðismenn
þurfi að hafa fyrir því að koma sínum
áherslumálum á framfæri, flokkurinn
sé þó með mjög sterka málefnastöðu
og það hjálpi til. Þá bendir hann á að
flokkurinn hafi haldið virkilega fjöl-
mennan og velheppnaðan fund í
Garðabæ síðastliðinn laugardag og að
jafnframt hafi kosningaskrifstofur
haldið áfram að opna um liðna helgi.
Verri staða en fólk er vant
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri
Garðabæjar og fundarstjóri fund-
arins, lýsti því yfir við upphaf fund-
arins í Fjölbrautarskólanum í Garða-
bæ, síðastliðinn laugardag, að hans
yrði minnst fyrir að frá og með hon-
um fór fylgi Sjálfstæðisflokksins að
aukast. Í ræðu sinni á fundinum benti
Bjarni meðal annars á að staða Sjálf-
stæðisflokksins væri verri en flokks-
menn ættu að venjast. Sagði hann
ýmsar ástæður fyrir því, vék að and-
stæðingum flokksins og sagðist telja
að sumir ættu eftir að fara í lyfjapróf.
Benti hann auk þess á að þegar
hann íhugaði stöðu sína hefði hann
leitað í grunninn og til þess hvers
vegna hann bauð sig upphaflega fram
til formanns flokksins. Bjarni sagðist
hafa gert það því hann vildi vinna fyr-
ir þjóðina og gera henni gagn.
Ber fullt traust til Bjarna
„Ég hefði aldrei boðið mig fram í
embætti varaformanns nema að ég
treysti formanni Sjálfstæðisflokksins.
Mér þætti líka vænt um það ef sá
stuðningur og það traust væri ekki
dregið í efa,“ sagði Hanna Birna
Kristjánsdóttir, varaformaður Sjálf-
stæðisflokksins, á fundinum. Þá sagð-
ist hún hafa skilning á því að fjöl-
miðlar sýndu forystumálum í
Sjálfstæðisflokknum áhuga og
spyrðu forystumenn flokksins spurn-
inga í þá veru, slíkt mætti þó ekki
verða til þess að menn færu að efast
um stuðning hvors við annan.
Jafnframt skoraði Hanna Birna á
sjálfstæðismenn að standa saman og
snúa sér að því sameiginlega verkefni
að sigra í komandi kosningum. „Stóra
verkefnið er að almenningur í þessu
landi geti vaknað eftir hálfan mánuð
og sagt: „Ég veit hvað bíður mín“,“
sagði Hanna Birna.
Morgunblaðið/Golli
Fundur í Garðabæ Fjölmennt var á fundi sjálfstæðismanna í Fjölbrautaskólanum Garðabæ. Fundarstjóri taldi að
um 700-900 manns hefðu verið viðstödd fundinn. Fundarmenn mættu yfirlýsingu Bjarna með miklu lófataki.
Fékk mikla hvatningu
Bjarni: „Góð helgi fyrir Sjálfstæðisflokkinn“
Hanna Birna hvetur sjálfstæðismenn til að standa saman
Morgunblaðið/Golli
Forystumenn Bjarni Benediktsson og Hanna Birna Kristjánsdóttir heilsa
upp á sjálfstæðismenn á fundi flokksins í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ.
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
„Ég hef nú sagt á einhverjum fund-
um að við eigum að vera opnir fyrir
vinstra samstarfi en um leið eigum
við ekki að útiloka eitt eða neitt,“ seg-
ir Höskuldur Þórhallsson, þingmaður
Framsóknarflokksins, aðspurður út í
ummæli sem hann lét falla á kosn-
ingafundi á Grenivík á dögunum þess
efnis að Framsóknarflokkurinn ætti
að vera opinn fyrir samstarfi á vinstri
vængnum. „Ég held að það sé ein-
stakt tækifæri til þess að mynda
miðju- og velferðarstjórn.“
Halda öllu opnu
Höskuldur bendir á að það sem
skipti öllu máli sé að Framsóknar-
flokkurinn starfi með fólki sem er
reiðubúið til að stíga þau skref sem
flokkurinn hefur lagt áherslu á í
kosningabaráttu sinni. „En hvort sem
það er til vinstri, á miðjunni eða til
hægri, það verður bara að koma í ljós
eftir kosningar,“ bætir Höskuldur
við. Aðspurður hvort þetta sé ein-
ungis hans afstaða eða opinber af-
staða flokksins segir Höskuldur þetta
vera sína afstöðu. „Afstaða formanns-
ins hefur verið, og ég styð það, að
halda öllu opnu og vilja ræða við þá
sem treysta sér í verkefnin fram-
undan,“ segir Höskuldur.
Opinn fyrir
vinstra samstarfi
Vill að Framsókn útiloki ekki neitt
Morgunblaðið/G.Rúnar
Þingmaður Höskuldur Þór Þór-
hallsson þingmaður Framsóknar.
Hjálmar Jón Torfa-
son, gullsmiður, lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 9. apríl
síðastliðinn, 89 ára að
aldri. Hjálmar fæddist
á Halldórsstöðum í
Laxárdal í Suður-
Þingeyjarsýslu 29.
janúar árið 1924, son-
ur Torfa Hjálm-
arssonar, bónda, og
Kolfinnu Magn-
úsardóttur. Hann
stundaði nám við Laugaskóla og
lagði alla tíð stund á íþróttir, var
skíðakóngur Þingeyinga og keppti
á landsmóti í frjálsum íþróttum þar
sem stökk og spjótkast voru hans
aðalgreinar.
Árið 1954 fluttist Hjálmar ásamt
eiginkonu sinni, Unni Péturs-
dóttur, (látin 2010), til
Reykjavíkur þar sem
hann vann hjá Lands-
miðjunni. Fljótlega
eftir það fór hann á
samning hjá Óskari
Gíslasyni gullsmið og
lauk þar námi árið
1958. Tveimur árum
síðar stofnaði hann
Gullsmíðaverslun
Hjálmars Torfasonar
á Laugavegi 28 en síð-
ar flutti hann versl-
unina að Laugavegi 71 þar sem
þau hjónin ráku verslunina, sem
enn er í eigu fjölskyldunnar, fram
á háan aldur. Börn Hjálmars og
Unnar eru Pétur Tryggvi Hjálm-
arsson, Hjálmar Hjálmarsson,
Torfi Rafn Hjálmarsson og Kol-
finna Hjálmarsdóttir. skulih@mbl.is
Hjálmar Jón Torfason
Andlát
Alls höfðu 2.460 manns kosið í
gær utankjörfundar á öllu landinu
og í þeim sendiráðum sem færa
utankjörfundaratkvæðagreiðsluna
í tölvu. Hjá sýslumanninum í
Reykjavík hafa 786 manns kosið
síðan utankjörfundaratkvæða-
greiðslan hófst þann 2. mars síð-
astliðinn. Sambærileg tala fyrir
síðustu alþingiskosningar er 689
manns.
Í dag færist utankjörfund-
aratkvæðagreiðslan yfir í Laug-
ardalshöllina og verður því opið,
frá og með deginum í dag, alla
daga frá klukkan 10:00 til 22:00. Í
samtali í gær sagði Bergþóra Sig-
mundsdóttir hjá sýslumanninum í
Reykjavík að hún reiknaði með
því að kosningaþátttakan ykist
verulega í dag þegar kosningin
færist yfir í Laugardalshöllina. Í
alþingiskosningunum 2009 kusu
13.120 manns utankjörfundar hjá
sýslumanninum í Reykjavík en þar
af kusu rúmlega sjö þúsund manns
síðustu fjóra dagana fyrir kjördag.
skulih@mbl.is
Kosið utankjörfundar
í Laugardalshöllinni
Um 2400 manns á öllu landinu hafa
kosið utankjörfundar og í sendiráðum
Laugardalshöllin Opið verður frá 10:00 til 22:00 alla daga til kjördags.