Morgunblaðið - 14.06.2013, Side 2
Lómagnúpur
Le
ira
Brú yfir Leirur
Núpsstaður
Ný brú
Loftmyndir ehf.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Gangurinn í
framkvæmdum
er góður og um-
ferð verður vænt-
anlega hleypt á
nýja brú snemma
í ágúst,“ segir
Sveinn Þórðarson
vegaverkstjóri.
Hann fer fyrir
öðrum af tveimur
brúarvinnuflokkum Vegagerðarinn-
ar, sem þessar vikurnar byggir nýja
brú yfir svonefndar Leirur við
Lómagnúp.
Vatnið finnur sér farveg
Núverandi brú á Leirum, sem
nokkru ofar heitir Aurá, var byggð
fyrir um fjörutíu árum og er barn
síns tíma. Er einbreið, en hjá Vega-
gerðinni hefur verið lögð sérstök
áhersla á að fækka slíkum mann-
virkjum t.d. á hringveginum, með
tilliti til slysahættu.
Brúin nýja, sem verður skammt
austan við þá gömlu er tólf metra
löng og tíu metra breið. „Vatnið
finnur sér alltaf farveg. Því þarf ekki
að reisa sérstaka varnargarða vegna
þessa eða fara í mikla jarðvinnu,“
segir Sveinn sem fer fyrir níu
manna vinnuflokki. Kjarni hans eru
þrælvanir smiðir sem starfað hafa
saman í áraraðir og brúað mörg
vatnsföllin.
Þúsund bílar á dag
Á síðastliðnum árum hafa verið
ýmist breikkaðar eða byggðar tví-
breiðar brýr yfir þrjár ár á Síðu og í
Fljótshverfi. Leirubrúin er sú fjórða
í röðinni og er kostnaður við fram-
kvæmdirnar áætlaður rúmar 50
millj. kr. Brýr á þessum slóðum – og
eins þær sem eru á söndunum miklu
svo sem Skeiðarárbrúin mikla –
voru byggðar upp úr 1970, það er í
tengslum við opnun hringvegarins
þjóðhátíðarárið 1974.
„Umferðin hefur aukist mikið og
þær brýr sem eru með timburgólfi
þola tæplega þúsund bíla á dag. Því
er kominn tími á endurbætur og við-
hald,“ segir Sveinn sem stýrt hefur
vinnuflokknum, sem gerður er út frá
Vík í Mýrdal, síðastliðin fjórtán ár.
Framkvæmdir Leirur falla fram skammt vestan við Lómagnúp, sem setur sterkan svip á umhverfið.
Brúa við Lómagnúp
Tvíbreið brú og slysagildru útrýmt Fimmtíu milljóna
framkvæmd Endurbóta þörf á brúnum á söndunum
Sveinn Þórðarson
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 2013
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
Leggjarbrjótur
með Ferðafélagi Íslands 17. júní
Fararstjóri: Leifur Þorsteinsson.
Brottför: Kl. 10 með rútu frá skrifstofu FÍ, Mörkinni 6.
Gengin forn þjóðleið frá Svartagili í Þingvallasveit, inn
eftir Öxarárdal, yfir Leggjarbrjót og niður að Stóra-Botni
í Botnsdal í Hvalfirði. 5-6 klst.
Verð: 4.000 / 6.000 Innifalið: Rúta og fararstjórn.
Sjá nánar um ferðina á www.fi.is
Skráðu þig inn – drífðu þig út
Björn Már Ólafsson
bmo@mbl.is
Bæjarstjórn Fjallabyggðar birti í
gærkvöld stjórnsýsluúttekt sem
Haraldur L. Haraldsson hagfræð-
ingur vann fyrir sveitarfélagið. Bæj-
arstjórn hafði deginum áður sam-
þykkt á bæjarstjórnarfundi tillögur
sem unnar voru upp úr skýrslunni en
skýrslan var fyrst birt opinberlega í
heild sinni þegar skýrsluhöfundur
kynnti innihald hennar á opnum
íbúafundi í Ólafsfirði síðdegis.
Í skýrslunni er farið ítarlega yfir
stöðu sveitarfélagsins og loks birtar
tillögur að hagræðingu í rekstri til
þess að hægt sé að standa undir nýj-
um framkvæmdum og jafnvel lækk-
un skatta. Til viðmiðunar notaðist
skýrsluhöfundur við gögn frá sveit-
arfélaginu og tölur frá sambæri-
legum sveitarfélögum að stærð er
varðar íbúafjölda.
Skuldastaðan góð
Í skýrslunni kemur fram að
skuldastaða sveitarfélagsins sé góð
og alveg innan þeirra marka sem ný
sveitarstjórnarlög heimila. Tekjur
sveitarfélagsins eru nokkuð góðar en
athygli vekur að Fjallabyggð hefur á
undanförnum árum verið með næst-
um helmingi lægri fasteignaskatt á
hvern íbúa heldur en sveitarfélögin
sem borið var saman við. Þetta kem-
ur til vegna þess að fasteignamatið
er lágt samanborið við hin sveitar-
félögin.
Einnig kemur fram í skýrslunni að
í kjölfar sameiningar sveitarfélag-
anna sem mynduðu Fjallabyggð árið
2006 hafi stöðugildum fjölgað fram
til ársins 2009 en síðan fækkað aftur,
og eru þau nú nánast jafnmörg og
árið 2006. Ekki hafi því náðst bein
hagræðing hvað varðar fjölda stöðu-
gilda við sameininguna.
Meðal þess sem lagt er til að gert
verði, er að bæjarskrifstofur Fjalla-
byggðar verði sameinaðar á einn
stað í Ráðhúsinu á Siglufirði. Áfram
verði þó móttaka í Ólafsvík.
Samstaða um tillögurnar
Þorbjörn Sigurðsson, varaforseti
bæjarstjórnar Fjallabyggðar segir
þverpólitíska sátt hafa myndast um
að hrinda í megindráttum í fram-
kvæmd þeim tillögum sem fram
komu í úttektinni. Bæjarstjórn hafi
samþykkt einróma tillögurnar sem
unnar voru upp úr skýrslunni og eru
þær því á ábyrgð allrar bæjarstjórn-
arinnar. Þorbjörn segir úttektina
mjög gagnlega. „Við erum að taka í
gegn reksturinn á bænum aðallega,
meðal annars verður sviðum fækkað
úr fimm niður í þrjú auk þess sem
nefndum verður breytt svolítið. Síð-
an verða launamál samræmd í sveit-
arfélaginu. Gjöld munu ekki breyt-
ast með beinum hætti, en það gætu
orðið litlar breytingar á einstaka
þáttum,“ segir hann.
Ekkert kom sérstaklega á óvart
Hann segir að ef árangur náist, þá
eigi íbúar að njóta góðs af því. „Ef sá
árangur næst sem stefnt er að með
öllum þessum aðgerðum, þá mun það
koma íbúum til góða, beint eða
óbeint.“ Þorbjörn segir ekkert hafi
komið sérstaklega á óvart í skýrsl-
unni. „Það var í raun bara gott að fá
utanaðkomandi aðila til þess að líta
óháð yfir sviðið. Við vorum sammála
um eitthvað, og ósammála um annað,
en samstaða ríkti um að leggja þess-
ar tillögur til grundvallar.“
Fjallabyggð hagræðir í rekstri
Stjórnsýsluúttekt á rekstri sveitarfélagsins kynnt í gær Lagt til að bæjarskrifstofur verði
sameinaðar á einn stað á Siglufirði Stöðugildi í dag nánast jafnmörg og við sameiningu 2006
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Kynning Haraldur kynnir niðurstöður skýrslunnar á íbúafundi í gær.
Björgunarsveitir sem leitað hafa að manninum
sem féll í Hjaltadalsá hafa í samráði við lög-
reglu ákveðið að gera hlé á leitinni þar til á
laugardag. Undanfarna daga hefur verið leit-
að meðfram árbakkanum og í fjörum við ósinn.
Á laugardaginn mun leitin hefjast aftur, en
undirbúningur umfangsmeiri leitaraðgerða er
þegar hafinn. Vonast er til að hægt verði að
setja leitarmannskap út í ána, en hingað til hef-
ur straumur í ánni gert leitarfólki erfitt fyrir.
Norðanáttin hefur torveldað leitarmann-
skapnum leit í sjónum fyrir utan ósinn, þar
sem henni fylgir nokkur alda.
Leit að manninum hætt þar til á laugardag
Morgunblaðið/Björn Jóhann
Jakob Svavar Sigurðsson vann sér sæti í
landsliði Íslands fyrir Heimsleika íslenska
hestsins sem fram fara í Berlín í ágúst.
Hann fer þangað með Al frá Lundum 2. Úr-
tökumótið er liður í Gullmóti sem fram fer
þessa dagana á félagssvæði Fáks í Víðidal.
Þrír knapar til viðbótar unnu sér rétt til
að fara til Berlínar. Viðar Ingólfsson á
Hrannari frá Skyggni fer sem efsti maður í
fjórgangi. Arnar Bjarki Sigurðsson á
Arnari frá Blesastöðum 1A vann sæti ungmenna í fimmgangi og Arna Ýr
Guðnadóttir á Þrótti frá Fróni í fjórgangi. Í dag ráðast úrslit í keppni um
landsliðssæti í tölti og fleiri greinum. Úrtökunni lýkur í kvöld. Landsliðs-
mennirnir keppa síðan á Gullmótinu á sunnudag.
Jakob Svavar og Viðar unnu landsliðssæti