Morgunblaðið - 14.06.2013, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 2013
Vinstrivaktin telur að ESB-umræðan sé komin í nýjan
fasa með nýrri ríkisstjórn:
Nú er farið aðtala um að
fylgjast með fram-
vindunni í ESB,
nokkuð sem lengst
af síðasta kjör-
tímabils (nema rétt
undir lokin) var illa séð.
Það er hins vegar mjög brýntog merkilegt verkefni, hvort
sem fólk vill standa utan ESB,
eins og þorri íslensku þjóðar-
innar, eða ganga í ESB eins og
flestir í ört smækkandi Samfylk-
ingu og stök sál í öðrum flokkum.
Þróunin innan ESB varðar okk-ur Íslendinga eins og aðra í
samfélagi þjóðanna og eins og
þróun annars staðar á jarðkringl-
unni kemur okkur við. Í fyrsta
lagi vegna þess að okkur er ekki
sama um hag samborgaranna, al-
veg sama hvaða stjórnarfar þeir
búa við. Og einnig vegna þess að
hugmyndafræði í stjórnmálum er
eilíf barátta á milli mismunandi
sjónarmiða. Vinstra fólk er al-
mennt gagnrýnið á það að köld
kapítalísk sjónarmið ráði
ferðinni.
Greinilegt er að mikill munurer á þeim skilaboðum sem
koma frá ESB-kerfiskörlum og
frá fólkinu í ESB-löndunum, eink-
um þeim sem búa við kúgun og
harðræði vegna kaldranalegra að-
gerða sem stjórnvöldum er gert
að grípa til.
Við heyrðum fyrir nokkrum
dögum Francois Hollande Frakk-
landsforseta lýsa því yfir að
kreppunni innan ESB væri lokið
og á sama tíma voru grísk stjórn-
völd að reyna að loka ríkisútvarp-
inu til að reyna að ná ríkisút-
gjöldum inn fyrir rammann sem
ESB/AGS hafa skammtað þeim.“
Breytt viðhorf
STAKSTEINAR
Kr. 2.160
Kr. 2.090
ENDALAUS
SKÆRI
Kr. 5.450
Kr. 7.380
Verð frá kr.
5.335 - 9.100
8“ - 10“
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | brynja@brynja.is
Opið
virka
daga
frá 9
-18
lau f
rá 10
-16
Kr. 4.205
Kr. 3.310
skæri í úrvali
Hárskæri
Veður víða um heim 13.6., kl. 18.00
Reykjavík 11 skýjað
Bolungarvík 14 heiðskírt
Akureyri 15 skýjað
Nuuk 1 þoka
Þórshöfn 10 alskýjað
Ósló 17 heiðskírt
Kaupmannahöfn 17 léttskýjað
Stokkhólmur 21 heiðskírt
Helsinki 21 léttskýjað
Lúxemborg 23 léttskýjað
Brussel 17 heiðskírt
Dublin 17 léttskýjað
Glasgow 18 heiðskírt
London 13 skýjað
París 22 heiðskírt
Amsterdam 16 léttskýjað
Hamborg 17 léttskýjað
Berlín 22 skýjað
Vín 21 léttskýjað
Moskva 22 skýjað
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 17 léttskýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 22 léttskýjað
Róm 26 léttskýjað
Aþena 26 léttskýjað
Winnipeg 11 léttskýjað
Montreal 12 súld
New York 14 skýjað
Chicago 10 léttskýjað
Orlando 23 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
14. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 2:58 23:59
ÍSAFJÖRÐUR 1:34 25:34
SIGLUFJÖRÐUR 1:16 25:16
DJÚPIVOGUR 2:13 23:43
Fleiri konur leita sér áfengismeð-
ferðar hjá SÁÁ nú en fyrir nokkr-
um árum. Það þarf þó ekki endi-
lega að þýða að áfengisneysla
kvenna hafi aukist, heldur hafa
breytt viðhorf í samfélaginu orðið
til þess að konur eru óragari við
að fara í meðferð en áður. Konur
voru um 30% þeirra sem leituðu
meðferðar hjá SÁÁ í fyrra og ung-
um konum í meðferð hefur fjölgað.
Á milli 1.600 og 1.800 fá meðferð
hjá SÁÁ á ári hverju.
„Sem betur fer eru fordómar á
undanhaldi, en það eru þó ennþá
meiri fordómar gagnvart þeim
konum sem fara í áfengismeðferð
en körlum,“ segir Hörður Oddfríð-
arson, dagskrárstjóri SÁÁ. „Þetta
tengist kannski því að konur bera
oft meiri ábyrgð á heimilinu en
karlar. Það þykir meira mál ef
kona bregst börnunum sínum
vegna drykkju en ef karl gerir
það.“
Komast ekki í meðferð
Hörður þekkir dæmi þess að
konur í áfengisvanda segist ekki
geta komið í meðferð vegna
barnanna. „Ég hef aftur á móti
aldrei upplifað það að karl segist
ekki geta komið í meðferð vegna
þess að hann þurfi að sjá um börn-
in sín.“ Hörður segir lítinn mun á
drykkjuvenjum karla og kvenna,
en konur fari þó frekar í felur með
drykkju sína og ljúgi til um hana.
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlækn-
ir á Vogi, segir að svokölluð dag-
drykkja, þegar fólk neytir tals-
verðs magns áfengis fimm sinnum
eða oftar í viku, hafi færst í vöxt
meðal kvenna. „Áður voru þetta
aðallega karlar komnir yfir miðjan
aldur, en núna sjáum við þetta líka
hjá konum. Þetta er oft tengt
miklum breytingum í lífi fólks, ást-
vinamissi eða breytingum á
vinnu.“
Þórarinn segir aldursdreifingu
þeirra kvenna sem koma í meðferð
hjá SÁÁ jafnari en hjá körlunum.
„Þeir eru mikið að koma á milli
tvítugs og þrítugs, þar er topp-
urinn hjá þeim. En konurnar koma
á öllum aldri.“
annalilja@mbl.is
Konum fjölgar í
áfengismeðferð
Morgunblaðið/Billi
Áfengi Konum í meðferð hjá SÁÁ, sér í lagi ungum konum, hefur fjölgað
talsvert undanfarin ár. Enn eru karlar þó 70% þeirra sem fara í meðferð.
Dagdrykkja og drukkið í laumi