Morgunblaðið - 14.06.2013, Side 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 2013
25 gönguleiðir
á Snæfellsnesi
salka.is • Skipholti 50c • 105 Reykjavík
Fjölbreyt
tar
göngulei
ðir
við allra
hæfi
Ný bók í þessum vinsæla bókaflokki
Eftir Reyni Ingibjartsson
Kort með fjölda örnefna, fylgir hverjum
gönguhring, ásamt leiðarlýsingu og
myndum af því sem fyrir augu ber.
Snæfellsnes er meðal vinsælustu
ferðamannastaða.
Hér vísar Reynir okkur veginn að nokkrum
fegurstu náttúruperlunum.
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
Við erum að vinna að efni ánýja plötu akkúrat núna.Við erum búin að vera mik-ið í stúdíói upp á síðkastið
og hún á að koma út í október. Ann-
ars virðist það vera eitthvað svo staðl-
að svar hjá hljómsveitum þegar þær
mæta í viðtal, að þær séu að vinna að
nýju efni. Það segir kannski ekkert,“
segir Halldór. Sveitin gerði nýlega
samning við enska útgáfufyrirtækið
Wall of Sound, sem meðal annars hef-
ur sveitir á borð við Royksöpp og The
Human League á sínum snærum, og
heldur brátt í tónleikaferðalag til
Bretlands. Frumkvöðullinn Mark
Jones er maðurinn á bak við fyrir-
tækið en samkvæmt Kristjáni er
kappinn mikil goðsögn sem gjarnan
klæðist bleiku frá toppi til táar.
„Við hittum hann fyrst á Great
Escape í Brighton. Við kynntumst
honum síðan betur á Airwaves núna
síðast. Hann sá okkur spila á litlu og
stóru sviði og vildi endilega fá okkur
til liðs við sig,“ skýtur Stefán að.
Írafellsmóri og krumminn
Meðlimir Sykurs sammælast um
að samningurinn eigi sinn þátt í kom-
andi tónleikaferðalagi þó svo að
margt annað spili einnig inn í.
„Við gáfum út Mesópótamíu,
sem kom út árið 2011, í smækkaðri
mynd hjá Wall of Sound um daginn.
Aðaltilgangurinn með þessari tón-
leikaferð er að fylgja þeirri plötu eft-
ir,“ bætir Kristján við.
„Við erum að fara að spila gam-
alt efni í bland við nýrra,“ segir
Agnes aðspurð út í það hvað verði
uppi á teningnum í komandi tónleika-
ferðalagi.
„Við verðum þarna í um tvær
vikur og spilum á átta tónleikum.
Þetta er allt byggt í kringum tvær há-
tíðir sem eru frekar stórar, Secret
Garden Party og Kendal Calling,“
segir Stefán. Sveitin mun meðal ann-
ars stíga á stokk á aðalsviðinu á síðar-
nefndu hátíðinni og spila þar undir
berum himni í ljósaskiptunum.
„Ég held að þessar hátíðir verði
mjög skemmtilegar, sérstaklega það
að spila undir berum himni í góðu
veðri. Ég hef aldrei gert það áður,“
segir Agnes.
„Það er líka skemmtilegt með
Secret Garden Party, sem margir
telja vera eina skemmtilegustu hátíð
Englands, að það er alltaf ákveðið
þema á hverju ári og fólk virðist taka
því fremur alvarlega. Í ár er það
hjátrú,“ segir Stefán. Sposkur á svip
kveðst Kristján ætla að klæða sig upp
Kvartettinn Sykur
leggur land undir fót
Sykur gerði nýlega samning við útgáfufyrirtækið Wall of Sound og mun brátt
halda í tónleikaferðalag til Bretlands. Blaðamaður settist niður með Agnesi Björt
Andradóttur, Halldóri Eldjárn, Kristjáni Eldjárn og Stefáni Finnbogasyni.
Morgunblaðið/Eva Björk
Kostulegur Kristján fór á kostum á tónleikum Sykurs á Bar 11 nýlega.
Fyrirtækið Spy academy sérhæfir sig
í allskonar óhefðbundnu hópefli þar
sem njósnir, fíkniefnamál og hryðju-
verk eru í fyrirrúmi. Um er að ræða
tilbúnar aðstæður þar sem vinahóp-
ar, fjölskydur, vinnufélagar eða aðrar
einingar koma saman og keppa að því
að leysa ýmsar krísur. Fyrirtækið
ferðast með hópana vítt og breitt um
landið, eftir því hvaða verkefni er
óskað eftir, og ráðgátan sem sett er á
svið fyrir hópinn leyst. Í einni slíkri
ferð, sem ber nafnið Handsamaðu
hryðjuverkamennina, þurfa við-
skiptavinir að leysa það erfiða verk-
efni að handtaka hryðjuverkamenn
sem komið hafa upp bækistöðvum á
Þingvöllum. Til þess þarf hópurinn
meðal annars að kafa í Silfru svo eitt-
hvað sé nefnt. Nánar má lesa um fyr-
irtækið og það sem það hefur upp á
að bjóða á heimasíðunni spy-
academy.net.
Vefsíðan www.spy-academy.net
Morgunblaðið/ÞÖK
Hópefli Hver veit nema bækistöðvar hryðjuverkamannanna séu í Almannagjá.
Hryðjuverkamenn á Þingvöllum
Þó svo að borðbolti hafi mögulega
ekki náð jafn miklum vinsældum hér
á landi og í mörgum nágrannaþjóðum
okkar, þá hefur sportinu vaxið fiskur
um hrygg upp á síðkastið. Sögu leiks-
ins, sem er gjarnan kenndur við svo-
kallaða kráarleiki, má rekja aftur til
loka 19. aldar í Bretlandi. Að jafnaði
eru það tveir eða fjórir leikmenn sem
spila hverju sinni og oft mikið kapp
lagt í leikinn. Bar 11 mun bjóða upp á
borðboltakeppnir alla miðvikudaga í
sumar þar sem veglegum vinningum
er heitið fyrir sigurvegarana. Mótin
munu hefjast klukkan 21 en skráning
fer fram klukkutíma áður.
Endilega...
... spilið borð-
bolta í sumar
AFP
Mót Vinsældir borðbolta aukast.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Við sem vorum með Hjartagarðinn
í fyrra vorum fengin upp í Breiðholt
til að efla samfélagið þar og fá fólk
til að taka þátt í að betrumbæta um-
hverfi sitt. Breiðholtið hefur lengi
haft slæmt orð á sér sem fátækra-
hverfi, sem er eiginlega bara ekki
rétt. Þetta er fjölskylduvænt og fal-
legt hverfi, það þarf bara að gefa því
smá ást,“ segir Tanya Pollock, einn
forsprakka Fellagarðshópsins sem
mun á næstunni auðga mannlíf
Efra-Breiðholts.
Borgin átti frumkvæðið
„Við verðum með allskonar
starfsemi í hverfinu í sumar. Eitt af
því er að vera mánaðarlega með
hverfisdaga, svokallað Fellafest.
Þessa helgi ætlum við að vera á
staðnum að taka til, borða pylsur,
hlusta á lifandi tónlist og vera með
smá sýningu inni í Eddufelli 2 þar
sem við erum til húsa. Við hvetjum
alla til að koma og taka þátt í því að
gera fallegt í kringum sig. Við verð-
um með hugmyndakassa og lita-
bókablöð fyrir krakka og aðra til að
teikna inn á svæðið hvað þau vilja sjá
hérna,“ segir Tanya en veislan hefst
klukkan 12.
„Það hefur verið mikill áhugi
fyrir því að betrumbæta Breiðholtið
hjá borgarstjóra og fleirum. Þegar
samningurinn við okkur um Hjarta-
garðinn rann út, þá vildi Reykjavík-
urborg nýta krafta okkar áfram á
öðrum stað. Einar Örn Benediktsson
kom til mín og vildi endilega fá okk-
ur upp í Breiðholt. Við erum búin að
vera í samráði við hverfisstjórann
hérna, Miðberg, skólana og fyrir-
tækin hérna í kring og hér eru allir á
einu um að bæta hverfið,“ segir hún
en hópurinn er staðsettur í Fella-
görðum við hlið Fellaskóla.
„Mikið af þeim krökkum sem
við höfum verið að sjá í Hjartagarð-
inum eru einmitt Breiðholtsbúar og
Hjartagarðshópurinn flyst í Fellahverfið
Betrumbæta
Breiðholt
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Fellin Hverfið fær ást og athygli.