Morgunblaðið - 14.06.2013, Page 12
SVIÐSLJÓS
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Kona, sem lét fjarlægja PIP-síli-
konpúða úr brjóstum sínum og hef-
ur glímt við margvíslegan heilsu-
brest sem rakinn er til púðanna,
segir enga eftirfylgni vera af hálfu
heilbrigðisyfirvalda með málinu.
Landlæknir segir eftirlit á ábyrgð
lýtalækna og
þeirra kvenna
sem eru með púð-
ana.
Jens Kjartans-
son, yfirlæknir
lýtalækninga-
deildar Landspít-
alans, og einn
þeirra lækna sem
notuðu PIP-púð-
ana, segir að kon-
um með slíka
púða sé ráðlagt að láta fjarlægja þá
vegna hættu á því að þeir rofni.
Skelin sem umlykur sílikongelið í
púðanum sé líklegri til að rifna en á
öðrum tegundum púða. „En læknar
lýtalækningadeildar LSH hafa ekki
orðið varir við önnur heilsufars-
vandamál tengd sílikonpúðum en
staðbundin vegna rofs,“ segir Jens.
Hann segir ekki ástæðu til sérstaks
eftirlits með konum sem bera eða
hafa borið þessa púða, sílikonið í
þeim sé ekki skaðlegt heilsu.
Málið á forræði Landspítalans
Geir Gunnlaugsson landlæknir
segir eftirlit með þessum tilteknu
brjóstapúðum á ábyrgð lýtalækna
sem settu þá inn og kvennanna sem
eru með slíka púða. Allar konurnar
séu vel upplýstar um þessa púða og
hugsanlegar aukaverkanir þeirra.
Hvað varðar eftirlit í þeim tilvikum
þar sem sílikon hefur farið út í nær-
liggjandi vefi og eitla segir Geir að
það sé á ábyrgð lækna viðkomandi
kvenna að fylgjast með þeim og
bregðast við eftir því sem við á í
hverju tilviki fyrir sig.
Hann segir að Svíar hafi nýlega
ákveðið að ráðleggja konum með
PIP-púða að fjarlægja þá. „Aðgerð-
in í Svíþjóð er á ábyrgð og kostnað
þess læknis sem setti púðana í kon-
una. Því er ekki annað hægt að
segja en að brugðist hafi verið vel
við þessum vanda hér á landi og
gengið lengra í að aðstoða konurnar
en í nágrannalöndum sem við viljum
gjarnan bera okkur saman við.“
Sílikonið drap líkamsvefi
„Ég átti erfitt með gang, erfitt
með andardrátt og var með útbrot
um allan líkamann. Þessi einkenni
hurfu þegar púðarnir voru fjarlægð-
ir,“ segir Anna Lóa Aradóttir sem
lét fjarlægja sprungna PIP-púða úr
brjóstum sínum í byrjun síðasta árs.
Hún fann þó áfram fyrir ýmsum
kvillum sem hún telur að rekja megi
til púðanna og sílikons sem úr þeim
lak. „Ég var áfram veik með verki
og hita. En læknar fundu ekki or-
sökina.“
Anna Lóa sendi púðana í rann-
sókn til kanadísks sérfræðings í
brjóstapúðum, dr. Blais. Niðurstaða
hans var að 80 gr af olíukenndu síli-
konefni hefðu lekið út í vefina í lík-
ama hennar, en í hvorum púða voru
285 gr af efninu. „Brjóstvöðvarnir
voru illa farnir og mikill vefjadauði
hafði átt sér stað. Að auki höfðu
púðarnir ekki verið sótthreinsaðir.
Þá hafði sílikonið lekið í gegnum
brjóstvöðvann og inn að beini.“
Anna Lóa segist ítrekað hafa
reynt að fá læknisaðstoð eftir að
þessi niðurstaða lá fyrir, án árang-
urs, og segir lækna skorta sérþekk-
ingu á þessu sviði. Hún leitaði meðal
annars til lýtalæknis, annars en
þess sem setti púðana í hana, en
hann var ekki tilbúinn til að leggja
mat á ástand hennar. Að lokum fór
hún til læknis í Cleveland í Ohio í
Bandaríkjunum á eigin kostnað.
Ómskoðun þar leiddi í ljós að sílikon
var í 18 eitlum hennar, aðallega í
brjóstkassa, holhönd og hálsi. Sýkt-
ur og bólginn örvefur hafði myndast
vegna þessa og var fjarlægður. „Ég
er loksins laus við verkina og hitann.
Nú verður ekki gert meira, nema
eitlarnir fari að stækka óeðlilega
mikið,“ segir Anna Lóa.
Algjörlega á okkar ábyrgð
Hún er í samskiptum við nokkrar
þeirra kvenna sem voru með PIP-
púða og létu fjarlægja þá. Hún segir
heilsufar þeirra afar misjafnt, það
fari að miklu leyti eftir því hversu
lengi þær voru með púðana. „En
það er ekkert eftirlit, enginn fylgist
með okkur, enginn hefur samband
við okkur. Í rauninni er þetta al-
gjörlega á okkar ábyrgð.“
Nokkrar konur, sem fengu PIP-
sílikonpúða í brjóst sín, stefndu
Jens Kjartanssyni lýtalækni fyrir
Héraðsdóm Reykjavíkur í nóvem-
ber síðastliðnum. Ekki liggur fyrir
hvenær málið verður tekið fyrir.
Spurð að því hvort hún taki þátt í
málsókninni segir Anna Lóa svo
ekki vera. Er málinu lokið af þinni
hálfu? „Nei. Ég er að skoða mína
réttarstöðu.“
Ýmsir lausir endar í PIP-málinu
Læknir segir ekki ástæðu til sérstaks eftirlits með konum sem bera eða hafa borið PIP-púðana
Kona sem lét fjarlægja PIP-brjóstapúða segir heilbrigðisyfirvöld sýna málinu sinnuleysi
Eftir aðgerð Sýktur örvefur myndaðist er sílikon lak úr púðum Önnu Lóu, hann var fjarlægður í Bandaríkjunum.
Anna Lóa
Aradóttir
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 2013
Íslensk stjórnvöld tóku þá ákvörðun í byrjun árs
2012 að bjóða öllum konum með PIP-brjóstapúða
ómskoðun á brjóstum. Þær konur sem þess ósk-
uðu gátu síðan farið á lýtalækningadeild Landspít-
alans til að láta fjarlægja púðana sér að kostn-
aðarlausu, án þess þó að fá nýja púða. Margar
þáðu þetta boð en margar fóru einnig beint til
eigin lýtalæknis til að fá aðgerðina framkvæmda
og fá nýja púða. „Við hjá Embætti landlæknis höf-
um því engar upplýsingar um hversu margar ís-
lenskar konur í dag ganga með PIP-brjóstapúða.
Persónuvernd hafnaði ósk landlæknis um aðgang að gögnum um að-
gerðir vegna brjóstafyllinga og embættið hefur því ekki fengið neinar
upplýsingar frá lýtalæknum um aðgerðir með innsetningu á PIP-
brjóstapúðum eða hverjar fóru í þær fyrir utan þær aðgerðir sem nú
hafa verið framkvæmdar á Landspítalanum,“ segir Geir Gunnlaugsson
landlæknir.
Fær ekki upplýsingar
LANDLÆKNIR HEFUR EKKI SÝN YFIR STÖÐU MÁLA
VELKOMINN Í BATA SMÁRALIND
Skoðið úrvalið á bata.is
Vertu vinur á
20% afsláttur
af öllum barnaskóm um helgina
7.990,-
6.392,-
7.590,-
6.072,-
5.490,-
4.392,-
5.490,-
4.392,-
4.990,-
3.992,-
7.990,-
6.392,-
2.390,-
1.912,-
6.990,-
5.592,-
Hæstiréttur komst að þeirri niður-
stöðu í gær að uppsögn hjúkrunar-
fræðings hjá Heilbrigðisstofnun
Vesturlands hefði verið ólögmæt.
Var stofnunin dæmd til að greiða
hjúkrunarfræðingnum 2,8 milljónir
króna í skaða og miskabætur en hér-
aðsdómur Vesturlands hafði áður
sýknað stofnunina af bótakröfunni.
Hjúkrunarfræðingurinn, sem er
kona, var ráðin til starfa hjá stofn-
uninni stuttu eftir að hún gekk frá
samningi við Norðurál hf. um starfs-
mannaheilsuvernd.
Þegar Norðurál sagði upp samn-
ingnum var hjúkrunarfræðingnum
sagt upp störfum á þeim forsendum
að hún hefði verið ráðin til að sinna
því verkefni og að ekki væri laus
staða fyrir hjúkrunarfræðing hjá
stofnuninni.
Hjúkrunarfræðingurinn mót-
mælti því að hún hefði verið ráðin
eingöngu til þessara starfa. Féllst
Hæstiréttur á þær röksemdir og
bendir m.a. á, að í auglýsingu um
starfið hafi þess ekki verið getið að
það væri fyrirfram ætlað fyrir þjón-
ustu við tiltekinn viðsemjanda heil-
brigðisstofnunarinnar. Dæmdi rétt-
urinn heilbrigðisstofnunina til að
greiða konunni 2,4 milljónir í skaða-
bætur eða sem svaraði fimm mán-
aðarlaunum.
Konan taldi einnig, að uppsögnin
hefði verið sérlega meiðandi og út á
við hefði litið svo út, að hún hefði
gerst sek um alvarlegt athæfi sem
réttlætti fyrirvaralausan brottrekst-
ur úr starfi. Hæstiréttur tók einnig
undir þetta og segir, að framganga
heilbrigðisstofnunarinnar við að slíta
ráðningu konunnar hafi verið til þess
fallin að vera meiðandi fyrir hana.
Var heilbrigðisstofnunin því dæmd
til að greiða konunni 400 þúsund
krónur í miskabætur.
Dæmdar bætur
fyrir uppsögn
Uppsögnin talin
ólögmæt og
aðferðin meiðandi