Morgunblaðið - 14.06.2013, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 2013
MYNDARLEGUR
www.landrover.is
NÝR LAND ROVER DISCOVERY 4
VERÐ FRÁ 10.990.000 KR.
Land Rover Discovery 4 er einn glæsilegasti jeppi sem til er. 211 hestafla dísilvél sem eyðir aðeins
8,3 l/100 km í blönduðum akstri*, ný 8 þrepa sjálfskipting með takkaskiptingu í stýrinu og loftpúðafjöðrun
á öllum hjólum sem tengd er Terrain Response stillanlega fjöðrunarkerfinu.
Þú færð allar nánari upplýsingar um verð og búnað á www.landrover.is
OPIÐ LAUGARDAG
FRÁ 12-16
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Bílahúsið
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
421 8808
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
7
9
9
0
*M
ið
að
vi
ð
up
pg
ef
na
r
vi
ðm
ið
un
ar
tö
lu
r
fr
am
le
ið
an
da
um
el
ds
ne
yt
is
no
tk
un
íb
lö
nd
uð
um
ak
st
ri
.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Stjórnvöld munu koma að stuðningi
við bændur sem orðið hafa fyrir
þungum búsifjum vegna kals í tún-
um í vor. Sigurður Ingi Jóhanns-
son, sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra, sagði þó í umræðum á
Alþingi í gær að óhugsandi væri að
ríkissjóður gæti bætt allt það tjón
sem bændur hafa orðið fyrir vegna
ótíðarinnar í vetur og vor.
Stórfellt tjón hefur orðið á túnum
269 bæja á landinu vegna kals í
túnum og á þeim eru 5.200 hekt-
arar skemmdir. Kostnaður við end-
urræktun túnanna er að lágmarki
520 milljónir kr. Kemur þetta fram
í yfirliti Ráðgjafarmiðstöðvar land-
búnaðarins sem sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra greindi frá í
gær í umræðum um vanda bænda
sem Haraldur Benediktsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, efndi
til.
Ræktunarmenning bætt
Tekið saman eftir héruðum er
mesta tjónið í Suður-Þingeyjarsýslu
þar sem 100 bændur hafa orðið fyr-
ir stórfelldu tjóni og alls 1900 ha
skemmdir. Á Austurlandi eru 1.300
hektarar skemmdir hjá 60
bændum.
Haraldur Benediktsson sagði að
slík áföll hefðu ekki orðið í áratugi.
Taka þyrfti vandann alvarlega og
hvatti ráðherra til að lýsa því yfir
með skýrum hætti að ríkisstjórnin
myndi beita sér fyrir því að vanda
bænda yrði mætt. Fleiri þingmenn
tóku undir það og var meðal annars
vitnað til aðstoðar ríkisins við
bændur í kjölfar eldgosa og
óveðurs.
Sigurður Ingi Jóhannsson sagði
að ríkisstjórnin myndi koma að
málum en við það yrði að taka mið
af þeirri stöðu sem ríkissjóður
stæði frammi fyrir. Sagði hann
óhugsandi að bæta allt tjónið og
rifjaði upp að stundum áraði vel í
landbúnaði og stundum illa og
bændur væru vanir að fást við
verkefni af þessu tagi.
Ráðherra sagði einnig að aðgerð-
ir sem gripið verður til verði að fela
í sér sem mestan heildarávinning.
Nefndi hann hvata til endurrækt-
unar sem myndi nýtast bændum
vegna árferðisins og um leið bæta
ræktunarmenninguna til framtíðar.
Óhugsandi að stjórnvöld
bæti allt tjón bænda
Kostnaður við
endurrækt túna
520 milljónir
Ráðunautar á ferð
» Ráðunautar Ráðgjafar-
miðstöðvar landbúnaðarins
hafa heimsótt flesta bændur
sem þess hafa óskað og veitt
þeim ráðgjöf um viðbrögð
vegna kals í túnum.
» Kalsvæðið nær allt frá Ísa-
fjarðardjúpi, um Norðurland og
austur á Fljótsdalshérað.
Skemmdir vegna kals
Heimild: rml.is
Ísafj.djúp og Strandir 8 80
Húnavatnssýslur 3 30
Skagafjörður 33 500
Eyjafjörður 38 900
S-Þingeyjarsýsla 100 1.900
N-Þingeyjarsýsla 27 500
Austurland 60 1.300
Samtals 269 5210
Býli með
stórfellt tjón
Skemmdir
hektarar
„Vegurinn er þokkalegur. Hann hef-
ur þornað vel nema hvað það eru
enn deigir blettir á milli þurru kafl-
anna,“ segir Guðmundur Guð-
brandsson, vegaverkstjóri á Sel-
fossi, sem stjórnað hefur
lagfæringum og heflun Kjalvegar
norður fyrir Hveravelli. Vegurinn
hefur nú verið opnaður og er það á
svipuðum tíma og í fyrra.
Snjór var með minna móti á Kili í
vetur en vegna kulda var klaki lengi
að fara úr jörðu og því hefur aur-
bleyta verið til vandræða í vor.
Eins og venjulega hefur þurft að
gera við veginn og hefla vegna þess
að runnið hefur úr honum eða
myndast djúp hjólför. Vegagerðar-
menn á Selfossi hefluðu norður fyrir
Seyðisá. Þar tekur við uppbyggður
vegur niður að Blönduvirkjun og er
eftir að hefla þann kafla.
Enn er akstur í Kerlingarfjöll tak-
markaður við fjórhjóladrifsbíla en
unnið er að viðgerð þar og vonast
Guðmundur til að hægt verði að
opna fyrir almenna umferð þangað
í dag.
Áður hefur komið fram að unnið
er að lagfæringum á veginum frá
Hrauneyjum í Landmannalaugar
og vonast til að hægt verði að opna
hann í dag. Dómadalsleið verður
áfram lokuð.
Vegagerðarmenn á Kili hafa
mætt fjölda ferðamanna sem ekki
hafa virt lokanir vegarins og hafa
sumir lent í vandræðum. Guð-
mundur sagði lítið hægt að gera við
því, fólkið veifaði kortum og þættist
ekkert sjá eða skilja.
Undanfarin fimm ár hefur Kjal-
vegur verið opnaður á bilinu frá 5.
til 22. júní. Meðaltalið að sunnan-
verðu er 12. júní þannig að opnunin
er nálægt meðalári og nánast sama
dag og í fyrra.
helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Einar Falur
Á Kili Fært er inn að Hveravöllum og umsjónarmaðurinn mættur á staðinn.
Enn eru blautir
kaflar á Kjalvegi