Morgunblaðið - 14.06.2013, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 2013
Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Akralind 8 | 201 Kópavogur | sími 564 6070
fax 564 6071 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is
STUTTAR FRÉTTIR
● BM Vallá tapaði 126 milljónum á
árinu 2012. Árið áður nam tapið 139
milljónum króna og segir í fréttatilkynn-
ingu að batinn sé lítill milli ára.
„Afkoma félagsins undanfarin tvö ár
endurspeglar þá deyfð sem verið hefur
á byggingarmarkaðnum og litlar fjár-
festingar hjá opinberum aðilum,“ segir í
tilkynningunni.
Eigið fé félagsins var jákvætt um 434
milljónir um síðustu áramót og er eig-
infjárhlutfallið 25%. BM Vallá er í eigu
BMV Holding ehf. sem er í eigu
innlendra og erlendra fjárfesta.
BM Vallá tapar áfram
● Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, sótt-
ist eftir starfi framkvæmdastjóra Land-
sambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ)
samkvæmt heimildum Viðskiptablaðs-
ins. Ari sótti ekki formlega um starfið
heldur höfðu menn sem eru honum
handgengnir samband við stjórnar-
menn í LÍÚ og lýstu yfir áhuga hans á
því, segir í frétt á vef blaðsins.Ari var
aðstoðarmaður Þorsteins Pálssonar
sjávarútvegsráðherra frá 1995 til
1999. Fráfarandi framkvæmdastjóri,
Friðrik J. Arngrímsson, hefur gegnt
starfinu í þrettán og hálft ár.
Ari Edwald sóttist eftir
stjórastöðu hjá LÍÚ
Mikil breyting til hins betra hefur
orðið á væntingum stjórnenda til
aðstæðna í atvinnulífinu á næst-
unni. Nú væntir helmingur stjórn-
enda þess að þær batni á næstu
sex mánuðum en einungis 6% að
þær versni. Þetta er ein af nið-
urstöðum könnunar Capacent á
stöðu og framtíðarhorfum stærstu
fyrirtækja landsins, sem gerð var í
síðasta mánuði fyrir Samtök at-
vinnulífsins og Seðlabankann. Í
sambærilegri könnun í mars síð-
astliðnum taldi aðeins rúmur fjórð-
ungur stjórnenda að aðstæður
yrðu betri eftir sex mánuði, segir í
frétt SA.
Bjartsýni ríkir í öllum atvinnu-
greinum og munur milli þeirra lít-
ill. Bjartsýnastir eru stjórnendur í
byggingariðnaði og fjármálastarf-
semi, þá í sjávarútvegi og verslun,
síðan í ferða- og flutningaþjónustu
og loks í iðnaði. Stjórnendur á höf-
uðborgarsvæðinu eru heldur bjart-
sýnni en á landsbyggðinni.
Stjórnendur
eru bjartsýnni
Byggingamenn er bjartsýnastir
Vísitala efnahagslífsins
Heimild: Könnun fyrir SA og SÍ.
200
180
160
140
120
100
80
60
40
20
0
Sept. ´02 Maí ´13
Vísitala = 200.Allir telja aðstæður góðar.
Vísitalan = 100. Jafnmargir telja aðstæður séu góðar og slæmar.
Telur þú að aðstæður í efnahagslífinu séu
almennt góðar, slæmar eða hvorki góðar né
slæmar?
Ef þú hugsar sex mánuði fram í tímann,
telur þú að aðstæður í efnahagslífinu muni
almennt verða betri, óbreyttar eða verri en
þær eru nú?
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Innlend hlutabréf nema nú 9,3% af
hreinni eign íslensku lífeyrissjóð-
anna til greiðslu lífeyris. Það er
svipað hlutfall og skömmu fyrir fall
fjármálakerfisins haustið 2008 en
um helmingi minna en þegar hluta-
bréfavísitölur voru í hæstu hæðum
um mitt ár 2007.
Fram kemur í morgunkorni
Greiningar Íslandsbanka að lífeyr-
issjóðir hafi í apríl átt 228 milljarða
króna í innlendum hlutabréfum og
hlutabréfasjóðum. Um er að ræða
skráð hlutabréf í Kauphöll Íslands,
óskráð hlutabréf og bréf í ýmsum
framtakssjóðum.
Ekki er einhlítt hversu mikið líf-
eyrissjóðir telja æskilegt að eiga af
innlendum hlutabréfum en algengt
er að hlutföllin séu á bilinu 5-20%.
Að mati greinenda Íslandsbanka
mun endurfjárfestingaþörf lífeyris-
sjóða vera árlega um 135 milljarðar
króna á næstu árum. Mjög misjafnt
er á milli lífeyrissjóða hversu mikið
vægi innlendra hlutabréfa er í safni
þeirra um þessar mundir. Hins
vegar er ljóst að sumir sjóðir þurfa
að auka verulega við hlutabréfa-
eign sína til að ná markmiðum árs-
ins. Það verður ekki gert nema með
frekari kaupum á hlutabréfum,
gengishækkun hlutabréfa í Kaup-
höll eða nýskráningum fyrirtækja á
markað.
Eiga mest í Icelandair
Vaxandi umsvif lífeyrissjóða á
innlendum hlutabréfamarkaði hafa
vitaskuld haldist í hendur við fjölg-
un nýskráninga í Kauphöll Íslands.
Söluandvirði þeirra fimm félaga
sem hafa skráð sig á markað frá
árslokum 2011 nemur rétt yfir 40
milljörðum króna.
Lífeyrissjóðir eiga hlutfallslega
mest af hlutabréfum í Icelandair –
og skiptir þá ekki máli hvort litið er
til hlutfallslegrar eignar eða mark-
aðsvirðis félagsins. Sjóðirnir eiga
að sama skapi minnst í VÍS.
Greining Íslandsbanka bendir á
að lífeyrissjóðir eigi nú að minnsta
kosti um 31% af hlutabréfum sem
eru skráð á aðallista Kauphallar-
innar. Samkvæmt gögnum frá
Kauphöllinni yfir tuttugu stærstu
eigendur skráðra félaga eiga sjóð-
irnir um 124 milljarða króna í slík-
um félögum í eigin nafni. Hins veg-
ar má fastlega gera ráð fyrir að
hlutdeild þeirra sé í raun talsvert
meiri. Hutdeild þeirra nær vænt-
anlega ekki í öllum tilfellum upp í
hluta stærstu eigenda auk þess
sem lífeyrissjóðir eiga eitthvað af
skráðum hlutabréfum í gegnum
ýmsa sjóði.
Hlutabréf ekki yfirverðlögð
Greinendur Íslandsbanka benda
ennfremur á að lífeyrissjóðir hafa
verið atkvæðamiklir eigendur í
framtakssjóðum á borð við Fram-
takssjóð Íslands og SÍA, sjóði á
vegum sjóðsstýringafyrirtækisins
Stefnis. Líklegt er að eitthvað af
þeim félögum sem eru í eigu slíkra
framtakssjóða verði skráð á mark-
að í náinni framtíð.
Sumir hafa haldið því fram að
mikill eftirspurnarþrýstingur líf-
eyrissjóða í innlend hlutabréf sé til
þess fallinn að skekkja verðmynd-
un á markaði og ýta undir eignaból-
ur. Sérfræðingar á markaði sem
Morgunblaðið hefur rætt við telja
þó að þrátt fyrir að gengi margra
hlutabréfa á markaði hafi hækkað
umtalsvert á síðustu misserum þá
sé slíkt ekki endilega til marks um
bólueinkenni. Miklar verðhækkanir
á hlutabréfamörkuðum einskorð-
aðst ekki við Ísland. Að sama skapi
sýna greiningar á verðlagningu ís-
lenskra félaga að þau eru að mestu
í takti við sambærileg félög á er-
lendum mörkuðum.
Lífeyrissjóðir eiga þriðjung
allra skráðra hlutabréfa
Innlend hlutabréf lífeyrissjóða eru 9,3% af hreinni eign til útgreiðslu lífeyris
Sókn í hlutabréf
» Lífeyrissjóðir áttu í apríl um
228 milljarða króna í hluta-
bréfum og hlutabréfasjóðum.
» Innlend hlutabréfaeign
þeirra nemur nú um 9,3% af
hreinni eign til útgreiðslu líf-
eyris. Það er sambærilegt hlut-
fall og skömmu fyrir fall bank-
anna haustið 2008.
» Sjóðirnir eiga að minnsta
um þriðjung allra hlutabréfa
sem eru skráð á aðallista
Kauphallar Íslands.
Lífeyrissjóðir umfangsmiklir á markaði
Innlend hlutabréfaeign
Hlutfallsleg eign í skráðum félögum
Heimild: Greining Íslandsbanka.
Vodafone
VÍS
TM
Reginn
Marel
Icelandair
Össur
Hagar
Eimskip
0% 20% 40% 60% 80% 100%
12,9%
36,1%
45,2%
27,8%
27,1%
47,3%
24,9%
36,9%
28,0%
350
300
250
200
150
100
50
0
Jan. ´07 Júl. ´12
25%
20%
15%
10%
5%
0%
Innlendir hlbr. sjóðir
Innlend hlbr.
Hlutdeild í hreinni eign
Lífeyrissjóðirnir Aðrir
!"# $% " &'( )* '$*
+,-.-/
+00.,/
++0.+1
,+.2/2
,-.0,3
+0.2/3
+4-.45
+.,1+0
+04.+2
+3-.-2
+,-.42
+00.1+
++0./,
,+./+1
,-.001
+0./+
+4-.1/
+.,1//
+04.35
+3-.25
,+3./0-1
+,-.34
+05.+1
++0.01
,+./0
,-.520
+0./32
+4+.++
+.,15,
+02.,2
+3-.52
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á