Morgunblaðið - 14.06.2013, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 2013
Bifreiðaskoðun
ÞEGAR ÞÚ KEMUR MEÐ BÍLINN Í SKOÐUN
VIÐ GEFUM
FEGRAÐU
LANDIÐ MEÐ
FRUMHERJA
VIÐ GEFUM VIÐSKIPTAVINUM
OKKAR SEM KOMA MEÐ
BÍLINN Í SKOÐUN Í JÚNÍ ALLT
AÐ ÞRJÁR BIRKIPLÖNTUR TIL
AÐ TAKA MEÐ SÉR HEIM OG
GRÓÐURSETJA.
JÚNÍ
SKOÐUN
ARMÁN
6
6000ÓKEYPIS TRÉMEÐAN BIRGÐIRENDAST
GRÆNN JÚNÍ
REYKJAVÍK
Hesthálsi 6-8, 110 Reykjavík
Grandi, Hólmaslóð 2, 104 Rvk.
Sund, Klettagörðum 11, 104 Rvk.
Skeifan, Grensásvegi 7, 108 Rvk.
Grafarvogur, Gylfaflöt 19, 112 Rvk.
KÓPAVOGUR
Dalvegi 22, 200 Kópavogur
GARÐABÆR
Litlatúni 1, 210 Garðabær
HAFNARFJÖRÐUR
Dalshrauni 5, 220 Hafnarfjörður
AKUREYRI
Frostagötu 3a, 603 Akureyri
HÆGT ER AÐ FÁ GEFINS
TRÉ Á EFTIRFARANDI
STÖÐUM HJÁ FRUMHERJA
Þúsundir manna söfnuðust saman við byggingar gríska
ríkisútvarpsins, ERT, í Aþenu og Þessalóníku í gær til
að mótmæla ákvörðun ríkisstjórnar Grikklands um að
leggja útvarpið niður í sparnaðarskyni. Verkalýðs-
samtök efndu til sólarhrings verkfalls í gær til að mót-
mæla ákvörðuninni. Nær 2.700 starfsmönnum útvarps-
ins var sagt upp störfum fyrr í vikunni en þeir héldu
áfram útsendingum á netinu undir merkjum ERT.
AFP
Lokun gríska ríkisútvarpsins mótmælt
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Að minnsta kosti 93.000 manns,
þeirra á meðal yfir 6.500 börn, hafa
beðið bana í borgarastríðinu í Sýr-
landi frá því að átökin hófust fyrir
tæpum 27 mánuðum, að því er fram
kemur í skýrslu sem Sameinuðu þjóð-
irnar birtu í gær.
Navi Pillay, mannréttinda-
fulltrúi samtakanna, sagði þegar hún
kynnti skýrsluna að mannfallið kynni
að vera miklu meira. Á meðal þeirra
sem hafa látið lífið eru að minnsta
kosti 6.560 börn, þar af minnst 1.729
börn undir tíu ára aldri. Rannsókn á
vegum Sameinuðu þjóðanna bendir
til þess að nær 27.000 manns hafi beð-
ið bana í stríðinu frá því í desember.
Mannfallið í Sýrlandi hefur stór-
aukist á einu ári. Að meðaltali hafa yf-
ir 5.000 manns látið lífið á mánuði frá
því í júlí á síðasta ári, en sumarið 2011
féllu um þúsund manns á mánuði, að
sögn Sameinuðu þjóðanna.
Í skýrslunni er skýrt frá dæmum
um að „börn hafi verið pyntuð og tek-
in af lífi og heilu fjölskyldurnar, með-
al annars kornabörn, hafi verið myrt-
ar,“ sagði Pillay. „Það ásamt
skelfilega miklu mannfalli er hræði-
legur vitnisburður um hversu
grimmilegt stríðið er orðið,“ sagði
hún.
Daginn áður birtu Sameinuðu
þjóðirnar aðra skýrslu þar sem fram
kemur að stjórnarherinn og upp-
reisnarmenn í Sýrlandi hafa notað
börn sem skildi til að verjast árásum
eða neytt þau til sjálfsmorðsárása
með sprengjum. Sýrlenskir hermenn
eru einnig sakaðir um að hafa pyntað
börn sem grunuð eru um að tengjast
uppreisnarmönnum.
AFP
Börn í stríði Vopnaður piltur sem
berst með uppreisnarmönnum.
Minnst 93.000 fallnir
Yfir 6.500 börn hafa látið lífið í stríðinu í Sýrlandi að sögn SÞ
Sænsk stjórnvöld stefna að því að banna með öllu kyn-
mök manna við dýr en hingað til hefur slíkt aðeins verið
ólöglegt hafi verið hægt að sýna fram á dýrið hafi verið
beitt harðneskju. Frumvarp þessa efnis verður lagt fyrir
sænska þingið fljótlega.
Eskil Erlandsson, ráðherra málefna landsbyggðar-
innar, segir í yfirlýsingu að ríkisstjórnin ætli að herða
lög er varða kynmök manna við dýr svo skýrt verði að
slíkt sé með öllu bannað. Hingað til hafa slík mök aðeins
verið bönnuð ef hægt hefur verið að sanna að dýrið hafi þjáðst. Frá og með
1. janúar á næsta ári verða öll kynmök manna við dýr bönnuð og brjóti
menn gegn því verður hægt að sekta þá og/eða dæma í allt að tveggja ára
fangelsi, samkvæmt frumvarpinu.
Talsmaður sænskra dýralækna fagnar frumvarpinu. „Það er mjög mikil-
vægt að samfélagið sendi skýr skilaboð um að óviðunandi sé að nota dýr í
þessum tilgangi.“
SVÍÞJÓÐ
Kynmök við dýr verði bönnuð með öllu
Fertugur karlmaður hefur verið
handtekinn vegna gruns um að hann
hafi skemmt málverk af Elísabetu
Bretadrottningu í Westminster
Abbey í Lundúnum. Hermt er að
öryggisverðir í kirkjunni hafi stöðv-
að manninn eftir að hann hafi úðað
málningu á málverk af drottning-
unni eftir listamanninn Ralph Heim-
ans. Hann lauk málverkinu á síðasta
ári og það hefur verið til sýnis í til-
efni af því að 60 ár eru liðin frá því
að Elísabet var krýnd drottning í
Westminster Abbey. Maðurinn er fé-
lagi í breskum samtökum sem berj-
ast fyrir réttindum feðra.
BRETLAND
Skemmdi málverk
af drottningu
AFP
Skemmt Málverk Ralphs Heimans
af Elísabetu II. Bretadrottningu.