Morgunblaðið - 14.06.2013, Side 24

Morgunblaðið - 14.06.2013, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 2013 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ RíkisstjórnÍslandshefur nú tilkynnt Evrópu- sambandinu form- lega að hún hygg- ist ekki halda áfram viðræðum um aðild Íslands að samband- inu. Þetta er mikilvægt skref út úr aðlögunarferlinu. Athygli vakti á blaðamanna- fundi þeirra Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráð- herra og Stefans Füle stækk- unarstjóra í gær að sá síðar- nefndi er hissa á hve langt Ísland hefur gengið í þá átt að innleiða reglur Evrópusam- bandsins og í því efni þegar gengið lengra en ýmis ríki sem eiga aðild að sambandinu. Þessi orð Füle sýna vel hve brýnt er að hætta aðlögunar- viðræðunum. Þau sýna jafn- framt að þörf er á að fara yfir þá aðlögun sem hefur átt sér stað í aðlögunarferlinu með það fyrir augum að stíga skref til baka þar sem breytingar hafa verið gerðar í þágu aðlög- unarinnar. Vitað er að ráðherrar fyrri ríkisstjórnar sögðu ósatt þeg- ar þeir héldu því fram að engin aðlögun hefði átt sér stað, eins og til að mynda má sjá við lest- ur ársskýrslna stofnana rík- isins sem unnu dyggilega að aðlöguninni sam- kvæmt fyrir- mælum fyrri ríkis- stjórnar. Þetta er meðal þess sem ástæða er til að skoða nú þegar ríkisstjórnin hyggst leggja mat á stöðu alls málsins. Á fyrrnefndum blaða- mannafundi sagði Füle að mikilvægt væri að ríkisstjórn Íslands ætlaði sér ekki ótak- markaðan tíma í að endurmeta viðræðurnar og sjálfsagt er að verða við þeim tilmælum. Engum er greiði gerður með því að draga þetta endurmat á langinn og engin ástæða til þar sem málið er í megin- atriðum einfalt. Íslendingar og ríkisstjórn Íslands vilja ekki að landið gerist aðili að ESB. Þar með er umsóknarferlinu sjálfhætt, enda verður hugur að fylgja máli þegar sótt er um aðild. Umsókn Íslands um aðild að ESB var ekki byggð á heil- indum. Þvert á móti voru óheilindin alger af hálfu Ís- lands og á því ber fyrri ríkis- stjórn fulla ábyrgð. Nú þarf Ísland sem allra fyrst að setja punktinn fyrir aftan þessa ljótu sögu til að geta á ný átt heilbrigð og heiðarleg sam- skipti við Evrópusambandið. Evrópusambandið vill að Ísland taki af skarið fyrr en síðar} Takmarkaður tími Það er í tískunúna að tala um samræðu- stjórnmál, lausna- miðaða menn og konur og fordæma að tekist sé mynd- arlega á um mál- efni, þó með orðunum einum sé. Fyrstu dagar sumarþings benda þó til að ný stjórnar- andstaða sé strax komin í kunnuglegar stellingar. En þó eru undantekningar frá því, eins og sýndi sig í um- ræðum um vanda bænda vegna kals og harðinda. Sig- urður Ingi Jóhannsson, land- búnaðarráðherra, sagði við umræður um þau mál: „Menn standa þétt saman, sama úr hvaða flokki eða hvaðan af landinu þeir koma þegar nátt- úran veldur landsmönnum tjóni.“ Hann sagði að kaltjónið væri mikið, og kostnaður við endurræktun gæti numið um 520 milljónum króna: „Bænd- ur eru harðduglegt fólk og vanir að kljást við erfið verk- efni.“ Hét hann bændum stuðningi ríkisstjórnarinnar. Kristján L. Möller, þing- maður Samfylk- ingar, vill senda bændum skýr skilaboð þess efn- is að komið verði til móts við þá. Haraldur Bene- diktsson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins sem áður var í forystu fyrir Bændasamtökunum, sagði: „Við eigum bjargráðasjóð sem er 100 ára að stofni til, sem á að mæta harðindum. 100 árum síðar eiga grunn- gildi sjóðsins ennþá við.“ Haraldur lagði einnig til að gerðar yrðu breytingar á lög- um um sjóðinn til að tryggja að hann geti brugðist við þeg- ar þarf. Koma þyrfti afkomu sjóðsins í fastari horf til lengri tíma og eiga þannig örugga tryggingavernd. Öll umræðan í þinginu um þetta mál var á jákvæðum nótum og góð samstaða ríkti um að grípa þyrfti til skjótra aðgerða. Þeir bændur sem orðið hafa fyrir mestu tjóni ættu því að geta andað létt- ara, því væntanlega má treysta því að framantöldum orðum fylgi athafnir. Samstaða virðist vera á Alþingi um að koma til móts við bændur vegna harðindatjóns} Góð samstaða A ldrei fyrr hafa orðið jafn mikil um- skipti á skipan Alþingis og nú á síðustu sex árum,“ sagði Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, er hann ávarpaði Alþingi við setn- ingu þess í síðustu viku. Hann sagði að sterk krafa hefði verið um breytingar og þess mætti sjá merki í úrslitum kosninganna, en 27 nýir þingmenn eru nú á Alþingi. Víst er að margir voru orðnir dauðþreyttir á því stóryrta orðaskaki, skætingi og yfirlæti sem hefur einkennt vinnubrögð og málflutning allt of margra þingmanna á undanförnum miss- erum. Svo svæsin hafa köpuryrðin verið á köfl- um að grípa hefur þurft fyrir eyru ungra og óharðnaðra barna þegar sent hefur verið út af Alþingi í sjónvarpsfréttunum svo þau verði ekki fyrir slæmum áhrifum og taki ekki upp orðbragðið.. Vinnubrögð í líkingu við það sem gaf á að líta við Aust- urvöll á síðasta þingi geta tæpast talist til eftirbreytni og ólíklegt að starfsfólk á einhverjum öðrum vinnustað kæm- ist upp með að starfa á þennan hátt. Að komast ekki að niðurstöðu um eitt eða neitt, heldur verja hverjum dýr- mætum vinnudeginum á fætur öðrum í rugl og rifrildi. Væri ekki búið að reka það fólk fyrir löngu? En þetta var á síðasta þingi. Nú er nýtt þing með nýju fólki og þó ýmsar reglur gildi um starfsemi Alþingis, þá hljóta vinnubrögðin og starfsandinn að mótast talsvert af þeim sem þangað veljast til starfa á hverjum tíma. Fram- ganga leiðtoga nýrrar ríkisstjórnar gefur von- ir um að samstarf þvert á flokka verði meira og betra nú en áður og viðbrögð stjórnarand- stöðunnar við slíkum umleitunum hafa verið jákvæð. „Við eigum möguleika á að verða besta þing sögunnar,“ sagði Óttarr Proppé, einn nýlið- anna á þingi. „Eitt er víst, það verður ekki af- staða himintunglanna eða duttlungar guðanna sem hafa allt um það að segja. Það er þingið sjálft sem ávinnur sér einkunn með störfum sínum,“ sagði Óttarr og sagðist bjartsýnn í upphafi þings. Óttarr sagði síðan sögu af umrenningi sem hann hitti í almenningsgarði Bandaríkjunum. Hann gaukaði að honum smámynt og kvaddi maðurinn hann þá með þeim orðum að íkorn- inn dansaði á trjátoppunum, ekki bjarndýrið. „Það hefur oft betri áhrif að sýna mýkt og sveigjanleika en að ryðjast áfram með krafti og með látum,“ sagði þing- maðurinn. Hann sagði að við fyrstu sýn virtist íkorninn hlaupa stefnulaust fram og til baka eins og vitstola ein- feldningur. „En íkorninn hefur skýr markmið, hann er að safna forða fyrir veturinn og öll hans taugaveiklislega iðja þjónar því markmiði,“ sagði Óttarr og hvatti þingheim til að taka sér íkornann með sinni iðjusemi og útsjónarsemi sér til fyrirmyndar, fremur en þunglamalegt valdabrölt bjarnarins. Vonandi bregðast sem flestir þingmenn já- kvætt við þessari frómu beiðni. Við hin, sem ekki erum á þingi, ættum kannski að gera það líka. annalilja@mbl.is Anna Lilja Þórisdóttir Pistill Fleiri íkorna á Alþingi! STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is FerðaþjónustufyrirtækiðViking Tours hyggst hefjasiglingar milli Eyja ogLandeyjahafnar seinna í sumar. Í Morgunblaðinu í gær kom fram að siglingar hæfust þegar búið væri að breyta skipinu Ísafold fyrir úthafssiglingar en gert er ráð fyrir að þeim breytingum verði lokið nú í sumar. Þórhildur Elín Elínardóttir, upplýsingafulltrúi Siglingastofnunar segir að skv. sínum upplýsingum hafi forsvarsmaður Viking Tours kynnt Siglingastofnun áætlanir sínar og að hann vinni að úttekt á þeim breyt- ingum er gera þurfi á skipinu. Sigl- ingastofnun hafi í kjölfarið gefið al- mennt svar þess efnis að þau skip sem sigli á þessu svæði sem og noti umrædda höfn þurfi að uppfylla skil- yrði um haffæri á hafsvæði B auk þess að fullnægja ákvæðum hafn- arreglugerðar nr. 590/2010. Leggja mikið upp úr fræðslu um svæðið og öryggi Þórhildur leggur áherslu á það að að fenginni staðfestingu þess að ferja uppfylli áðurnefnd skilyrði sé mjög mikil áhersla lögð á að skip- stjórnendur sem sigli um höfnina hafi staðgóða þekkingu á aðsigling- unni. Auk þess leggi Siglingastofnun mikið upp úr því að skipstjórnendur fái kynningu hjá starfsmönnum stofnunarinnar á aðstæðum og upp- lýsingakerfum sem stofnunin reki um veður og sjólag auk þess að fá kynningu á öryggiskerfum, straum- ratsjá og öðru. „Að uppfylltum þeim skilyrðum sem sett eru í lögum þá stendur Sigl- ingastofnun ekki í vegi fyrir haf- færi,“ segir Þórhildur en tekur fram að það sé eiganda að sýna fram á siglingahæfni ferju og að hún upp- fylli öll skilyrði. „Það er líka skilyrði að Vegagerðin og Eimskip fallist á þetta fyrirkomulag, þetta þarf að gerast í ákveðinni sátt,“ segir Þór- hildur um fyrirhugaðar áætlanir Vik- ing Tours. Hafa velt fyrir sér hvernig höfnin gæti nýst Þess má geta að Eimskip sér um rekstur Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs, en fyrir rúmu ári gerði Vegagerðin samning við Eimskip þess efnis til tveggja ára. Aðspurð hvort fleiri aðilar hafi sýnt áhuga á siglingum úr og í Landeyjahöfn í stuttri sögu hafnarinnar svarar Þór- hildur að aðrir aðilar hafi áður velt fyrir sér hvernig höfnin gæti nýst, en hinsvegar hafi enginn farið í formleg samskipti við Siglingastofnun vegna þessa fyrr en í tilviki Viking Tours. Ánægjuleg tíðindi „Þetta eru ein jákvæðustu tíð- indi sem hafa fengist af þessum mál- um í dágóðan tíma,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vest- mannaeyjum um áætlanir Viking To- urs um siglingar milli Eyja og Land- eyjahafnar. „Við höfum haft þá trú frá því að Landeyjahöfn var opnuð að það ætti eftir að bætast við önnur ferja á siglingaleiðinni og það er ánægjulegt að sjá að það sé heima- maður sem fari fram af svona krafti,“ segir bæjarstjórinn. „En auðvitað þarf meira til. Þetta er farþegaferja, afbragðs- góð viðbót við siglingar Herjólfs en því miður tekur þessi bátur ekki bíla. Þannig að það standa öll spjót á innanríkisráðuneyti og Vegagerð að leysa málið yf- ir vetrartímann.“ Auk þess nefnir Elliði að tíðindin séu mjög jákvæð í ljósi þess að Herjólfur sé þéttbókaður yfir sumartím- ann. Háð samþykki Eim- skips og Vegagerðar Morgunblaðið/RAX Eyjar Siglingar Herjólfs í Landeyjahöfn hafa ekki gengið þrautalaust. Nú er stefnt að því að ný og minni ferja hefji farþegasiglingar úr höfninni. Hjá Siglingastofnun fengust þær upplýsingar að stofnunin veitti ekki heimild til siglinga í Land- eyjahöfn nema þær væru í sátt við Vegagerðina og Eimskip sem sér um rekstur Herjólfs. Gunn- laugur Grettisson, rekstrarstjóri Herjólfs hjá Eimskip, vildi ekki tjá sig um málið að sinni. Þá náð- ist ekki í fulltrúa Vegagerðar- innar. Elliði á ekki von á því að Eimskip, Vegagerðin eða innan- ríkisráðuneytið leggist gegn bættum samgöngum. Vísar hann m.a. til hafnarreglugerðar í því sambandi. „Landeyjahöfn er byggð til þess að bæta sam- göngur við Vest- mannaeyjar. Og það er alveg klárt að þessi ferja bætir samgöngur við Vestmannaeyjar, þannig að það kæmi mér mjög á óvart ef Vegagerðin færi að standa í vegi fyrir bætt- um samgöngum.“ Á von á sátt um málið BÆTTAR SAMGÖNGUR Elliði Vignisson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.