Morgunblaðið - 14.06.2013, Blaðsíða 35
okkar en auk þess fjárfestum við
mikið í auglýsingum sem áttu eftir
að skila sér. Við vorum með fjöl-
breyttar skoðunarferðir á sjó og
landi, héldum úti sjö hópferða-
bifreiðum þegar mest var. Þá lét ég
smíða skemmtibátinn PH Víking
sem tók 50 manns í sæti, sigldi um-
hverfis eyjarnar og sótti og skilaði
ferðamönnum til Þorlákshafnar.“
Páll hætti í ferðamennskunni árið
2006 en fyrirtækið sem hann stofn-
aði er enn í fullum gangi.
Páll setti upp pósthús úti í Surts-
ey 23.6. 1965 vegna útgáfu Surts-
eyjarfrímerkjanna og stimplaði þar
4.500 tölusett fyrsta dags umslög.
Hann gekk fyrstur manna á land í
Syrtlingi og Jólni, smáeyjum sem
mynduðust í nágrenni Surtseyjar.
Páll hlaut heiðursmerki Slysa-
varnafélags Íslands fyrir að bjarga
tveimur drengjum frá drukknun í
Vestmannaeyjahöfn 1.11. 1952, en
áður hafði hann bjargað einum
dreng frá drukknum. Hann var kos-
inn ferðafrömuður ársins af tímarit-
inu Farvís 1990 og veittur Frétta-
pýramídinn fyrir framlag sitt til
ferðamála í Eyjum, af vikublaðinu
Fréttum. Hann var sæmdur silfur-
skildi íþróttafélagsins Þórs árið
1988 fyrir áratuga störf við Þjóð-
hátíðina í Eyjum. Þá fékk hann
heiðursskjöld og orðu Sjó-
mannadagsráðs Vestmannaeyja
11.6. 2006 fyrir framlag sitt til
mannúðar- og menningarmála í
Vestmannaeyjum.
Fjölskylda
Páll kvæntist 9.5. 1953 Evu Bryn-
dísi Karlsdóttur, f. 12.5. 1935, d.
28.4. 1987, hótelstjóra. Hún var
dóttir Karls Kristjánssonar, verk-
stjóra í Hafnarfirði, og Stefaníu M.
Jónsdóttur húsfreyju.
Börn Páls og Evu eru Guð-
mundur, f. 20.6. 1954, bifvélavirki í
Eyjum, kvæntur Sigurbjörgu Vil-
hjálmsdóttur og eiga þau eina dótt-
ur; Ástþór Rafn, f. 26.10. 1956, raf-
virki í Reykjavík, kvæntur
Brynhildi Brynjúlfsdóttur og eign-
uðust þau þrjá syni; Páll, f. 25.2.
1966, húsasmiður í Reykjavík,
kvæntur Önnu Eiríksdóttur og eiga
þau tvö börn; Karl, f. 28.3. 1968,
flugvirki í Reykjavík, kvæntur Öldu
Gunnarsdóttur og eiga þau þrjá
syni.
Dóttir Páls og Ingu Lilju Sigurð-
ardóttur er Thelma Dögg, f. 14.6.
1994, háskólanemi.
Sambýliskona Páls er Wandee
Kudpho, f. 1960, starfsmaður við
Vinnslustöðina í Eyjum.
Systkini Páls eru Stefán, f. 16.5.
1929, d. 30.4. 2000, ökukennari í
Eyjum; Sigtryggur, f. 5.10. 1930, d.
16.9. 2012, forstjóri í Reykjavík;
Guðmundur, f. 12.5. 1932, d. 15.5.
1953, útvarpsvirki í Eyjum; Helgi, f.
31.10. 1938, d. 28.8. 1960, nemi;
Guðrún, f. 16.2. 1943, versl-
unarmaður í Reykjavík; Arnþór, f.
5.4. 1952, fyrrv. formaður Öryrkja-
bandalagsins, búsettur á Seltjarnar-
nesi; Gísli, f. 5.4. 1952, útgefandi og
tónlistarmaður í Reykjavík.
Foreldrar Páls voru Helgi Bene-
diktsson, f. 3.12. 1899, d. 8.4. 1971,
útgerðarmaður og kaupmaður í
Vestmannaeyjum, og k.h., Guðrún
Stefánsdóttir, f. 30.6. 1908, d. 13.8.
2009, verslunarkona.
Úr frændgarði Páls Helgasonar
Björn Tyrfingsson
f. b. á Bryggjum
Guðríður Sigurðardóttir
húsfr. á Bryggjum
Jón Ólafsson
b. í Búð í Þykkvabæ
Guðfinna Eggertsdóttir
frá Hákoti
Kristján Kristjánsson
b. á Snæringsstöðum
Jón Kristjánsson
b. á Höskuldsstöðum
Páll
Helgason
Helgi Benediktsson
kaupm. og útg.m. í Vestm.eyjum
Guðrún Stefánsdóttir
verslunarm. og húsm.
Margrét
Jónsdóttir
Stefán Björnsson
útgerðarm. í Skuld í Eyjum
Jóhanna
Jónsdóttir
Benedikt Kristjánsson
oddviti á Þverá
Guðjón Jónsson
Guðmundur Guðjónsson
söngvari og starfsm.
RÚV- Sjónvarps
Jónas Kristjánss.
alþm.og læknir
Jónas Kristjánss.
fyrrv. ritstjóri DV
Kristján Jónass.
læknir í Rvík.
Sigurður Nordal
prófessor
Jóhannes Nordal
seðlabankastjóri
Ólöf Nordal
alþingism.
Guðrún Nordal
forstöðum.
Stofnunar
Árna Magnúss.
Jóhannes Nordal
íshússtj. í Rvík.
Steinunn Guðmundsdóttir
húsfr. á Snæringsstöðum
Ljósmyndari/Sigurgeir
Túristafaðirinn Páll Helgason.
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 2013
Árni Björnsson læknir fæddistí Reykjavík 14.6. 1923. For-eldrar hans voru Björn
Árnason stýrimaður og Kristín
Jensdóttir verkakona. Björn var
sonur Árna Björnssonar, b. í Víði-
nesi og í Móum á Kjalarnesi, og Sig-
ríðar Jónsdóttur húsfreyju. Kristín
var dóttir Jens Guðnasonar, b. í
Árnagerði í Fljótshlíðarhreppi, og
Sigrúnar Sigurðardóttur húsfreyju.
Árni lauk stúdentsprófi frá MR
1943 og kandídatsprófi í lækn-
isfræði frá HÍ 1951. Eftir fram-
haldsnám og störf í Svíþjóð hlaut
hann sérfræðiviðurkenningu í al-
mennum skurðlækningum árið 1959
og síðar í lýtalækningum, fyrstur
Íslendinga, með lýtalækningar sem
sérgrein.
Árni starfaði á Landspítalanum,
Centrallasarettet í Södertälje og á
St. Göransjúkrahúsinu í Stokkhólmi
og á lýtalækningadeildum í Skot-
landi og Uppsölum. Hann var yfir-
læknir á Landspítalanum 1978-94 er
hann lét af störfum. Þá var hann
ráðgefandi sérfræðingur í lýtalækn-
ingum, m.a. við St. Jósefsspítala í
Hafnarfirði, á vegum Save the
Children Fund á Princess Tsahai
Hospital í Addis Ababa í Eþíópíu.
Árni kenndi við Hjúkrunarskóla
Íslands, var lektor við tannlækna-
deild HÍ og lektor í lýtalækningum
við læknadeild HÍ. Árni sinnti fjölda
trúnaðarstarfa í ýmsum félögum og
samtökum lækna, var m.a. formaður
Félags læknanema, formaður
Læknafélagsins Eirar, Læknafélags
Reykjavíkur, formaður Félags lýta-
lækna og forseti norræna lýta-
læknafélagsins, formaður öldunga-
deildar Læknafélags Íslands og
formaður Hollvinafélags lækna-
deildar HÍ. Hann sat í læknaráði
Landspítalans og var formaður þess
um skeið. Hann sat auk þessa í
fjölda nefnda á vegum lækna-
samtakanna og heilbrigðisyfirvalda
og skrifaði fjölmargar greinar um
læknisfræði í innlend og erlend
læknisfræðitímarit.
Eiginkona Árna var Guðný Theo-
dórsdóttir Bjarnar sem lést 2006.
Þau eignuðust sex börn.
Árni lést 24.10. 2004.
Merkir Íslendingar
Árni
Björnsson
95 ára
Aðalbjörg Bjarnadóttir
90 ára
Valgerður Guðnadóttir
85 ára
Þorsteinn Sigurðsson
80 ára
Guðlaug Jóna
Sigurðardóttir
Guðlaug Sæmundsdóttir
Gunnar Kristinn
Gunnarsson
Hugborg Friðgeirsdóttir
75 ára
Ásdís Marteinsdóttir
Björn Björnsson
Bragi Árnason
Erna Þorsteinsdóttir
Heba Árnadóttir Theriault
Jóhann Jakobsson
Ólafur Steinn Sigurðsson
70 ára
Ásrún Snædal
Ásta Vigdís Böðvarsdóttir
Guðrún María S Skúladóttir
Málfríður Steinsdóttir
Þorgeir Ísfeld Jónsson
Þórdís Einarsdóttir
Þórður Ólafur
Guðmundsson
60 ára
Birna Jóna Sigmundsdóttir
Friðrik Harðarson
Gunnar Elías Gunnarsson
Helga Magnea Harðardóttir
Jón Tryggvi Helgason
Ólafur Theódór Skúlason
Ómar Sævar Árnason
Sveinbjörg Pálsdóttir
50 ára
Aiping Zhang
Áslaug Einarsdóttir
Dzintars Jurkevics
Fadh Falur Jabali
Gerður Ríkharðsdóttir
Guðrún Halldórsdóttir
Hongling Hu
Ingi Valtýsson
Jóhanna María
Agnarsdóttir
Kjartan Ólafsson
Ragnheiður Jónsdóttir
Sigrún Þórsteinsdóttir
Sigþór Hólm Þórarinsson
Soffía Guðný Jónsdóttir
Sófus Þór Jóhannsson
Unnsteinn Birgisson
40 ára
Berglind Rut Hilmarsdóttir
Einar Þór Einarsson
Hallvarður Einar Logason
Ingibjörg Jóhannsdóttir
Ingþór Hrafnkelsson
Marjan Erdoglija
Páll Arnar Steinarsson
Ragna Kristín
Ragnarsdóttir
Reynir Þór Reynisson
Sigríður Björnsdóttir
Sigríður Rósa Kristinsdóttir
Steinunn Kr.
Zophoníasdóttir
Svanhvít Antonsdóttir
Michelsen
30 ára
Anne Eileen Walsh
Elin Margareta B Moqvist
Elías Þór Grönvold
Kristmar Páll Sigurðsson
Michael Bragi Whalley
Orachon Suasungnoen
Óskar Þór Jónsson
Steinn Eldjárn Sigurðarson
Særún Dögg Sveinsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Helgi ólst upp á
Sauðárkróki, er þar bú-
settur og starfrækir
Drangeyjarferðir með
föður sínum.
Maki: Hrafnhildur Guðna-
dóttir, f. 1985, hársnyrtir.
Sonur: Guðni Bent
Helgason, f. 6.2. 2012.
Foreldrar: Rannveig Lilja
Helgadóttir, f. 1960,
nuddari, og Viggó Jóns-
son, f. 1960, rafvélavirki
og starfar við ferða-
þjónustu.
Helgi Rafn
Viggósson
30 ára Eva ólst upp í
Reykjavík og er þar bú-
sett, lauk prófi á frum-
greinasviði við HR, stund-
ar nú nám í
viðskiptafræði við HA og
starfar hjá Borgun hf.
Börn: Emilía Sara, f.
2005, og Elvar Ingi, f.
2010.
Foreldrar: Magnús Rún-
arsson, f. 1961, húsasmið-
ur í Reykjavík, og Sigrún
Ólafsdóttir, f. 1964, skóla-
liði í Noregi.
Eva Dís
Sigrúnardóttir
30 ára Hafdís lauk stúd-
entsprófi, hjúkrunarfræði-
prófi frá HÍ og er hjúkr-
unarfræðingur á Eir.
Maki: Veigar Arthúr Sig-
urðsson, f. 1982, flutn-
ingabílstjóri.
Dætur: Emilía Röfn, f.
2005, og Kolbrún Rut, f.
2007.
Foreldrar: Stefán Þor-
steinsson, f. 1963, prent-
ari, og Sigríður Steinunn
Björgvinsdóttir, f. 1963,
kaupmaður.
Hafdís Jóna
Stefánsdóttir