Morgunblaðið - 14.06.2013, Qupperneq 40
AF DROTTNINGUM
Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is
Ekki verður annað sagt engamla proggmálmbandiðQueensrÿche frá Bellvue í
Washington-ríki geri sig breitt á
þessu vori. Tvær plötur með glænýju
efni koma út undir hennar merkjum
með aðeins tveggja mánaða millibili,
Frequency Unknown kom í lok apríl
og seint í þessum mánuði er von á
skífu sem bera mun nafn sveit-
arinnar. Þetta sætir sannarlega tíð-
indum en þegar betur er að gáð er
þetta alls ekki sama hljómsveitin, all-
tént ekki sömu mennirnir.
Forsagan er sú að á liðnu ári, á
þrítugsafmæli sveitarinnar, reis
ágreiningur milli söngvarans Geoffs
Tates annars vegar og hinna þriggja
upprunalegu meðlimanna, Michaels
Wiltons gítarleikara, Eddies Jack-
sons bassaleikara og Scotts Rocken-
fields trymbils hins vegar. Ástæðan
var sú að þremenningarnir ákváðu
að reka á einu bretti framkvæmda-
stjóra bandsins og formann aðdá-
endaklúbbsins án þess að ráðfæra
sig við Tate. Var sá gjörningur eitur í
beinum söngvarans, ekki síst í ljósi
þess að um eiginkonu hans og stjúp-
dóttur var að ræða. Þótti þremenn-
ingunum víst framkvæmdastjórinn,
Susan Tate, vera farin að hugsa
Hver er drottn-
ingin í ríkinu?
AFP
Óvissa Queensrÿche-útgáfa Michaels Wiltons, Eddies Jacksons og Scotts Rockenfields. Halda þeir nafninu?
meira um hagsmuni spúsa síns en
heildarinnar. Var henni meðal ann-
ars borið peningamisferli á brýn.
Næst þegar bandið kom saman,
fyrir tónleika í São Paulo í Brasilíu í
apríl á síðasta ári, bar Geoff Tate
þetta upp á félaga sína. Fljótt hitnaði
í kolunum og Tate er sagður hafa
kollvarpað trommusettinu og ráðist
á bæði Rockenfield og Wilton. Laug-
að þá að endingu í munnvatni. Geng-
ið var á milli. Þrátt fyrir þessa öm-
urlegu stemningu fóru tónleikarnir
fram en aldrei þessu vant fengu ör-
yggisverðir ströng fyrirmæli um að
fylgjast betur með sviðinu en saln-
um. Engan sakaði.
Queensrÿche hafði skuldbundið
sig til að halda tvenna tónleika að
auki á téðri tónleikaferð og við það
var staðið. Eftir það skildu leiðir.
Menn gátu ekki hugsað sér að vinna
lengur saman og í byrjun júní 2012
var Geoff Tate rekinn úr bandinu.
Glöggir málmvísindamenn veitaþví ugglaust athygli að rás at-
burða er alls ekki ólík því sem átti
sér stað þegar meistari Max Cava-
lera sagði skilið við Sepultura 1997.
Fáeinum dögum eftir brottvikn-
inguna höfðuðu Geoff og Susan Tate
mál á hendur sínum gömlu félögum á
þeim grunni að uppsögn hans hefði
verið ólögmæt. Þá fóru þau fram á að
Wilton, Rockenfield og Jackson yrði
framvegis bannað að nota nafnið
Queensrÿche. Hæstiréttur í Wash-
ingtonríki frestaði málinu á þeirri
forsendu að það væri flókið og máls-
aðilar þyrftu rýmri tíma til að safna
gögnum. Var þeim gefinn ríflegur
frestur en málið verður næst á dag-
skrá dómstólsins 18. nóvember
næstkomandi. Þangað til er báðum
aðilum frjálst að nota nafnið
Queensrÿche.
Menn létu ekki segja sér það
tvisvar. Wilton, Rockenfield, Jack-
son og gítarleikarinn Parker Lund-
gren, sem gekk í bandið 2009, lögðu
snöru fyrir söngvarann Todd La
Torre sem áður var í Crimson Glory
og hófu að semja efni fyrir nýja
plötu.
Tate beið heldur ekki boðanna,
safnaði um sig gömlum kempum úr
málmheimum. Þeirra frægastir eru
trymbillinn Simon Wright, sem
kunnastur er fyrir veru sína í AC/DC
og Dio, og bassafanturinn Rudy
Sarzo sem um tíma var í Whites-
nake.
Alltént. Senn verða báðar
Queensrÿche-plöturnar komnar í
búðir og samanburður óhjá-
kvæmilegur. Ég læt ykkur, lesendur
góðir, eftir að fella dóminn en geri
síður ráð fyrir því að þessar skífur
standist öndvegisverki Queensrÿche,
málmóperunni Operation:-
Mindcrime, snúning en þess er nú
minnst víða um heim að aldarfjórð-
ungur er liðinn frá útgáfu þess.
Þeir þreytast seint á glæpunum,
drottningarmenn.
» Tate er sagðurhafa kollvarpað
trommusettinu og ráðist
á bæði Rockenfield og
Wilton. Laugað þá að
endingu í munnvatni.
Grjótharður Geoff Tate söngvari.
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 2013
Bókin 1984 eftir George Orwell nýtur
mikilla vinsælda í dag en hún hefur
rokið upp vinsældalista helstu net-
verslana heims. Á Amazon hefur sala á
bókinni aukist um 7.000% á einum sól-
arhring og skýrist það eflaust af frétt-
um um öflun persónuupplýsingar í
Bandaríkjunum. Orwell skrifaði bók-
ina árið 1948 en hún var gefin út 1949
og fjallar um einstakling sem starfar í
sannleiksráðuneyti alræðisríkis. Ef-
laust sjá margir tengingu milli mögu-
leika stjórnvalda í dag til gagnaöflunar
og skáldsögu Orwells. Bókin er, eins
og mörg frjálslynd samtök hafa bent á,
ekki handbók um vandaða stjórnsýslu.
Hátt í 7.000 prósent
aukning á sölu
bókarinnar 1984 á
einum sólarhring
10
7
EIN STÆRSTA
SPENNUMYND SUMARSINS!
VINSÆLASTI
GRÍNÞRÍLEIKUR
ALLRA TÍMA!
New York Daily News
Missið ekki af þessari
stórkostlegu teiknimynd
frá höfundum Ice Age
FRÁBÆR GAMANMYND SEM
ENGIN MÁ MISSA AF!
SUMARSMELLURINN Í ÁR!
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
L
L
12
12
THE INTERNSHIP Sýnd kl. 5:30 - 8 - 10:30
AFTER EARTH Sýnd kl. 8
THE HANGOVER PART 3 Sýnd kl. 8 - 10:10
EPIC 2D Sýnd kl. 5
EPIC 3D Sýnd kl. 5
FAST AND FURIOUS 6 Sýnd kl. 10:10
„Toppar alla forvera sína í
stærð, brjálæði og hraða.”
- T.V., Bíóvefurinn
HHH
H.K.
-Monitor
Komdu
í bíó!
Þú finnur upplýsingar um
sýningartíma okkar og miðasölu á
www.emiði.is og www.miði.is