Morgunblaðið - 14.06.2013, Page 44

Morgunblaðið - 14.06.2013, Page 44
FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 165. DAGUR ÁRSINS 2013 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. Mesta árás sem ég hef lent í 2. Fá þeir vínbúð og jafnvel krá? 3. Hneig niður á Esjunni 4. Útgerðarmenn vonsviknir »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Sárabótartónleikar hljómsveitar- innar Ensími vegna Keflavik Music Festival, verða í dag klukkan 17.30 í Hljóðfærahúsi Reykjavíkur. Ekkert kostar inn á tónleikana og ekkert aldurstakmark er inn á þá. Morgunblaðið/Þorkell Sárabótartónleikar Ensími verða í dag  María Manda opnar einkasýn- ingu sína, Milli tveggja heima, í Listasal Mosfells- bæjar í dag. María er sjálfstætt starfandi um- búðahönnuður og hefur haldið sýn- ingar í kringum umbúðir og þrívídd- arkort, m.a. á Hönnunarmars. Nú er hún á nýjum slóðum og sýnir málverk sín en það hefur hún ekki gert áður. María Manda í Lista- sal Mosfellsbæjar  Staðfest hefur verið að þrjátíu nýj- ar hljómsveitir og listamenn munu koma fram á Iceland Airwaves- hátíðinni í ár. Meðal þeirra sem staðfest hafa komu sína eru Midlake, Emili- ana Torrini, FM Bel- fast, Girls In Haw- aii, Ólöf Arnalds, Amiina og Mos- es Hightower auk annara stórkostlegra hljómsveita. Emiliana Torrini og Amiina á Airwaves Á laugardag Norðaustlæg átt 3-8 m/s. Skýjað en þurrt að kalla NA-lands, en annars víða bjart veður. Hiti 7 til 18 stig. Á sunnudag Vestlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s. Bjart með köfl- um, en sums staðar þokuloft við sjóinn. Heldur svalara veður. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Léttir heldur til, einkum inn til landsins, en skýjað og lítilsháttar súld við austurströndina. Hiti 7 til 18 stig. VEÐUR „Hann er allur að koma til. Það er grænt gras á honum núna og við vinnum í honum dag og nótt, þar á meðal ég sjálfur,“ segir Halldór Jón Sigurðsson, þrítugur þjálf- ari Tindastóls í 1. deild karla um heimavöll liðsins, Sauðárkróksvöll, sem liðið hefur ekki enn getað spilað á. Fyrstu tíu leikir liðsins á tímabilinu fara fram utan Skagafjarðar, þar á meðal tveir heimaleikir. »3 Hillir undir heima- leik á Sauðárkróki Útlit er fyrir að Íslandsmeistarar Fram í handknattleik kvenna og karla missi leikmenn til Noregs. Sunna Jónsdóttir er með tilboð frá Sola sem hún hefur mikinn áhuga á að taka og þá myndi kærasti hennar og mark- vörðurinn úr karlaliðinu, Björn Viðar Björnsson, einnig yfir- gefa Safa- mýrina. »1 Íslandsmeistarapar úr Fram á leið til Noregs? Bandaríkjamaðurinn Phil Mickel- son var með forystuna á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi þegar Morgunblaðið fór í prentun í gærkvöldi. Leik hafði þá verið frestað á mótinu vegna hættu á eldingum. Mickelson hef- ur fimm sinnum orðið í öðru sæti á mótinu og spurning hvort hon- um tekst loks að sigra. »1 Mickelson fyrstur á Opna bandaríska ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ómþýð rödd Ungfrúar klukku, sem hljómaði í símtólum landsmanna á árunum 1937-1963, gleður nú eyru gesta samgöngusafnsins í Skóga- safni undir Eyjafjöllum. Þessi fyrsta Ungfrú klukka Íslands getur þakkað Thor B. Eggertssyni símvirkja- meistara og Símanum það að hún gengur nú í endurnýjun lífdaga. Thor fór á eftirlaun 1. desember 2012 eftir að hafa starfað stanslaust hjá Pósti og síma og síðar Símanum frá því að hann hóf nám í símvirkjun í febrúar 1964. Hann rétt missti því af því að vinna við þessa fyrstu Ungfrú klukku en bætti úr því eftir að formlegu starfi lauk. Vélin var þá búin að vera í geymslum Landsím- ans og síðar Símans í nærri hálfa öld. Hún var um tíma á Símaminjasafn- inu við Suðurgötu en fór svo í við- gerð hjá Símanum áður en hún var flutt í Skógasafn í vor. Símaminja- safnið var sett upp í samgöngu- safninu í vetur. „Ég hafði aldrei séð þessa Ungfrú klukku fyrr en á Símaminjasafninu. Þá langaði mig strax að koma henni aftur í gang,“ sagði Thor. Hann hófst handa í vetur, skipti um kol í jafn- straumsmótornum og setti straum á vélina, en þá stóð allt fast. Feitin hafði stirðnað á 50 árum. Thor mýkti allt upp með WD-40 smurefni og smurði svo vélina með maskínuolíu. Sex glerdiskar geyma talið Talið er geymt á sex glerdiskum. Einn geymir sekúndutugina, 0- 50, þrír mínúturnar þ.e. 0-19, 20-39 og 40-59. Tveir geyma klukkustundirnar 0-11 og 12- 23. Hver diskur er settur saman úr tveimur gler- plötum og er filma á milli sem geymir tákn eins og notuð voru í talrásum kvikmynda. Það tók um viku vinnu að koma vélinni aftur í gang. Hún fór að snúast en þá kom í ljós að það vantaði magnara svo hljóðið heyrðist. Thor setti magnara við og hreyfiskynjara sem ræsir hana um leið og einhver nálgast Ungfrú klukku á safninu. „Þetta er merkis- gripur og gaman að hafa komið hon- um aftur í gang,“ sagði Thor. Elsta Ungfrú klukka gangsett  Orðin stirð eftir 50 ára hvíld en er nú laus og liðug Morgunblaðið/Eggert Talvél Thor B. Eggertsson er búinn að koma fyrstu Ungfrú klukku aftur af stað. Hún var í notkun á árunum 1937 til 1963. Rödd Halldóru Briem sem las inn á plöturnar hljómar nú í eyrum gesta Skógasafns undir Eyjafjöllum. Skipt var um rödd og búnað Ungfrúar klukku 13. júlí 1963. Þá las Sigríð- ur Hagalín leikkona inn á segulplötur sem sögðu landsmönnum hvað tímanum leið allt til 15. júlí 1993. Eftir það tók við stafræn klukka sem var nákvæm upp á 1/1000 úr sekúndu. Ingibjörg Björnsdóttir leikkona léði þessari ofurnákvæmu klukku rödd sína. Í næstu viku verður rödd Ingibjargar skipt út fyrir lestur Ólafs Darra Ólafssonar, leikara, og verður hann fyrstur karla til að segja landsmönnum hvað tímanum líður í klukkustundum, mínútum og sekúndum. Nú hringja að meðaltali um 5.800 manns á mánuði í síma 155 til að vita hvað klukkan er. Símtalið kostar 25,30 krónur. Herra klukka tekur við FJÓRAR RADDIR SÍMAKLUKKUNNAR Á 76 ÁRUM Ólafur Darri Ólafsson Skannaðu kóðann til að heyra og sjá Ungfrú klukku. MUngfrú klukka »18

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.