Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2013, Qupperneq 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2013, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.7. 2013 Að láta drauminn rætast er ein helsta áskorun síðari ára. Hvaðan- æva er lagt fast að fólki – það skuli uppfylla eigin þrár. Leikarinn og grínistinn breski Russell Brand er dæmi um mann sem lét draumana rætast en þarf um leið að forðast að uppfylla eigin þrár – það er að segja þessar sem skaða aðra og hann sjálfan – að taka eiturlyf, vera fullur alla daga og svala kynlífsfíkn. Í viðtali sem birtist við hann í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins í dag segist hann hafa breyst og hafi það efst í huga að særa ekki fólk. Og draumar hans halda um leið áfram að rætast. Brand er dæmi um mann sem náði toppnum þrátt fyrir æsku- og unglingsár sem voru ekki auðveld og minnir að sumu leyti á Jón Gnarr. Báðir enduðu svo á að slá í gegn sem uppistandarar. Draumar okkar segja ótrúlega mikið um okkur. Draumur Brands er annar í dag en hann var. Hann segir að sig langi að vinna meira með börnum. Allir ættu að skoða drauma sína og velta fyrir sér að hverju þeir stefna – snúast þeir fyrst og fremst um eigið sjálf eða heildina? Hvað endurspegla þeir? Fólk sem vill fara um heiminn og prófa hótel og gefa þeim einkunn – er það ekki bara fólk sem nennir ekki að búa um eigin rúm? Eftir spjallið við Brand hug- leiddi ég minn eigin draum og lík- aði ekki niðurstaðan. Minn draum- ur væri að vera draumaráðningakona á búgarði í Suður-Frakklandi. Það væri biðröð í tjaldið mitt. Fólk væri slátrandi geitum bara til að eiga fyrir ráðn- ingunni. Ég væri alvitur, sjáandi. Mér hefur aldrei fundist neitt illt í þessum draumi út af fyrir sig en ég ætti að hafa í huga að í mínum draumi felst þrá til að vera guðleg og hafa mjög mikil áhrif á líf fólks. Það er auðvitað galið út af fyrir sig. RABBIÐ Það sem afhjúpar okkur Júlía Margrét Alexandersdóttir Þessi kornunga snót rölti um Austurvöll forvitin um mannlífið undir dyggri handleiðslu móður sinnar. Líkt og sjá má eru barnskór hennar heillegir og óslitnir og má jafnvel ímynda sér að um sé að ræða hennar fyrsta göngutúr um miðborgina. Í því samhengi er skemmtilega táknrænt hvernig móðirin röltir berfætt um – svo slitnir eru hennar barnskór. Hyggist mæðgurnar endurtaka leikinn um helgina verður að teljast ólíklegt að þær geri svo álíka létt- klæddar, enda rigningarspá á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Þótt mörgum kunni að þykja rigning í júlí svekkjandi í meira lagi er sennilega best fyrir geðheilsuna að tileinka sér hugarfar hinna síjákvæðu og hugsa til þess hvaða áhrif hún hefur á gróðurinn, til dæmis grasblettinn á Austurvelli. AUGNABLIKIÐ Morgunblaðið/Eggert ÓSLITNIR BARNSKÓR ÞEGAR SÓLIN LOKSINS BIRTIST BORGARBÚUM LÁTA ÞEIR EKKI SEGJA SÉR SLÍKT TVISVAR HELDUR FLYKKJAST NIÐUR Á AUSTURVÖLL, MEIRA AÐ SEGJA LITLIR OG ÓREYNDIR NÝLIÐAR. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Útgefandi Óskar Magnússon Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hvað? 40 ára gos- lokahátíð. Hvenær? Hátíðin hefur staðið yfir frá því á miðvikudag og lýkur á sunnudag. Hvar? Fjöldi við- burða og uppákoma í Vestmannaeyjum. Nánar Á laugardag er opið hús á slökkvistöðinni . Áhöfnin á Húna II leik- ur fyrir dansi á sunnudagskvöld. Goslokum fagnað í Eyjum Hvað? Lopapeysan Hvar? Akranesi Hvenær? Laugardag Nánar Lopapeysan er haldin í 10. sinn. Bubbi, Helgi Björns og margir fleiri. Tónleikar Í fókus VIÐBURÐIR HELGARINNAR Hvað? Sænski pönksirkusinn Burnt out Punks á Sirkushátíð. Hvar? Í sirkustjaldi við Norræna húsið í Vatnsmýrinni í Reykjavík. Hvenær? 6. og 7. júlí kl. 23.00. Nánar: Eldfim og ókeypis 70 mínútna sýning sem kyndir undir áhorfendum. Fjöldi sýninga er á hátíðinni. Sænskur pönksirkus Hvað? Inger-Lise Ulsrud konsertorgel- leikari Hvar? Hallgríms- kirkja Hvenær? Sunnudag- inn kl. 12 Nánar: Inger-Lise er mjög virkur kon- sertorgelleikari og hefur komið fram á tónleikum víða um Evrópu. Tónar í Hallgrímskirkju Hvað? Bæjarhátíð Dýrfirðinga Hvar? Dýrafirði Hvenær? 5.-7. júlí Nánar: Tólfta sinnsem hátíðin fer fram. Tónlist, lautarferð í Skrúð og, go-kart. Dýrafjarðardagar Hvað? Fjölskylduhelgi. Hvar? Alls staðar. Hvenær? Alla helgina Nánar: Spáð er rigningu víða um land. Þá er gott að hlúa að sínum nánustu. Fjölskyldusprell * Forsíðumyndina tók Stan Honda.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.