Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2013, Blaðsíða 8
Meðlimir Sigur Rósar voru hæstánægðir með Nardwuar grínista.
Hljómsveitin Sigur Rós hitti kan-
adíska grínistan Nardwuar þegar
hún túraði um Kanada á dögunum.
Nardwuar er þekktur í sínu heima-
landi fyrir grín og glens, eins konar
Sveppi Kanada. Grínistinn er einnig
þekktur fyrir að mæta vel und-
irbúinn í viðtöl, þrátt fyrir grínið, og
spurði hljómsveitina mikið um Ís-
land. Meðal annars spurði hann um
Rúnar Júlíusson og svaraði Georg
Hólm, bassaleikari Sigur Rósar, að
hann væri svalasti Íslendingur sem
uppi hefði verið. Þá vildi Nardwuar
einnig fá að vita eitthvað um Bubba
Morthens, reðursafnið, sjónvarps-
lausu fimmtudagana og hvort þeir
hefðu alist upp með Duran Duran
eða Wham. Meðal annars tísti Phar-
ell Williams, sem gaf út lagið Get
lucky með Daft Punk, um viðtalið:
„Þegar tveir frumkvöðlar koma
saman má hnoða í góðan graut.“
Viðtalið má finna á youtube.com
Grín og glens
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.7. 2013
Arnari Eggert Thoroddsen,
tónlistargúrú og fyrrverandi
blaðamanni Morgunblaðsins, er
umhugsunarefni hve Ísland er lítið
en hann býr í Ed-
inborg í Skotlandi
og er í stuttu
stoppi á Íslandi.
Hann skrifar á
fésbókina sína:
„Held ég hafi hitt ca. 40%
bransans á ca. þremur dögum á
fjögurra ferkílómetra bletti í
kringum miðborgina síðan ég
kom hingað í sumarfrí fyrir helgi.
Fyrstur var President Bongo, hitti
hann í Vesturbæjarlauginni og var
þá búinn að vera á landinu í
nokkra tíma. Daníel Ágúst og
Magga Stína komu í kjölfarið. Svo
kom liðið á færibandi víðsvegar
um miðborgina … Snorri Helga-
son veifaði til mín út um glugga á
bílnum sínum, Gunni Tynes var á
Tryggvagötunni; JFM, JÖR, Benni
Reynis, Benzínbræður, Guð-
mundur Óskar og fleiri á Kexinu,
Ari Magg heilsaði mér á Tryggva-
götunni sömuleiðis, Hlynur Aðils
í góðu grilli á Snaps, Urður Há-
konar sömuleiðis ofl. ofl. ofl. ofl.
ofl. ofl. Og er það er bara hið
besta mál! Sé ykkur restina á
næstu dögum … maður var orð-
inn ónæmur fyrir þessu greinilega
en þessi „veruleiki“ verður mjög
skýr þegar maður kemur aftur
eftir margra mánaða fjarvistir til
lands elds og ísa …“
Koma Ryan Goslings til Ís-
lands vakti þónokkra athygli.
Þannig var mikið lækað við fréttir
um hvar hann væri og hvar hann
hefði sést. Við
eina slíka frétt
þar sem sást
mynd af Gosling
með konu skrifar
Marta María
Jónasdóttir: „Með hvaða konu
er Gosling? Ert þetta þú, Katrín
Jakobsdóttir?“ Hildur Dungal
skrifar síðan háðslega við eina
fréttina: „En við erum annars
ekkert starstruck! Voða gott fyrir
þessar stjörnur að fá að vera í
friði á Íslandi:)“
AF NETINU
Ein þekktasta sýning allra tíma,
harmleikur Shakespeares um Ham-
let, verður sett upp sem barnasýn-
ing í Borgarleikhúsinu á næsta
leikári. Sigurður Þór Óskarsson fer
með hlutverk hins hefnigjarna
krónprins Hamlets og leikur Krist-
ín Þóra Haraldsdóttir hina skraut-
legu Ófelíu en Kristín Þóra og Sig-
urður Þór eru systkinabörn.
Mögulega gæti það orðið svolítið
fyndið enda áttu Hamlet og Ófelía í
nokkurskonar ástarsambandi. Það
fær þó lítið á þau enda öllu vön í
leiklistinni. „Ég býst nú ekki við að
það verði grófar ástarsenur, bæði
vegna þess að þetta er sýning fyrir
börn og svo erum við frændsystk-
ini,“ segir Sigurður Þór en Kristín
Þóra hlær og segir: „Ég hafði nú
ekki einu sinni hugsað út í það.
Nei, nei, við förum bara í karakt-
er.“ Þau hlakka þó bæði til að tak-
ast á við hlutverkin í sameiningu.
„Ég get ekki beðið, mér finnst
þetta dásamlegt,“ segir Kristín
Þóra. Sigurður Þór segir að sýn-
ingin verði sett í nútímabúning eða
öllu heldur færð yfir á mannamál.
„Ég hef farið á Shakespeare-
sýningar sjálfur og á mjög erfitt
með að skilja textann. Ég hef
meira að segja lært þetta í skóla en
á samt erfitt með það, svo ég geri
ekki þær kröfur að 10 ára börn
geti farið á Shakespeare-sýningu
og skilið hana. Börnin munu þó
skilja þessa sýningu,“ segir hann.
Aðspurð hvort mikið sé um leik-
listarblóð í fjölskyldunni svarar
Kristín Þóra að í stórfjölskyldunni
séu Laddi stórleikari og Þóra Kar-
ítas Árnadóttir leikkona skyld
þeim. „Annars eru þetta eintómir
læknar,“ segir hún.
Morgunblaðið/Golli
Ástarsenur ólíklegar
SYSTKINABÖRN LEIKA ELSKENDUR Í BARNAÚTGÁFU AF
HAMLET Í BORGARLEIKHÚSINU.
Systkinabörnin
Sigurður Þór og
Kristín Þóra fara
með hlutverk
Hamlet og Ófelíu.
Vettvangur
„Þetta kom svolítið á óvart þannig
að það er bara ennþá verið að ræða
þetta allt saman en jú, maður er
kominn með hring,“ segir fyr-
irsætan, leik- og söngkonan Halla
Vilhjálmsdóttir sem trúlofaðist á
dögunum unnusta sínum, Harry
Koppel.
„Næst á dagskrá er að finna dag-
setningu en það veltur svolítið á því
hvar við veljum að gifta okkur,“ bæt-
ir Halla við. „Harry er frá Kólumbíu
en alinn upp að miklu leyti í Bret-
landi og við búum í London þannig
að það þarf að huga að ýmsu.“ Til að
bæta enn frekar við fjölþjóðleika
trúlofunarinnar bar Harry bónorðið
upp í Tyrklandi. „Það var í Istanbúl
við ána Bosphorus, sem sagt á milli
Evrópu og Asíu, sem sagt mjög róm-
antískt allt saman,“ segir Halla.
Trúlofunin hefur án efa verið mik-
ið gleðiefni fyrir foreldra og tengda-
foreldra Höllu en í viðtali sem birtist
við hana í Sunnudagsblaði Morgun-
blaðsins í upphafi árs nefndi Halla
að þau næðu öll sérlega vel saman.
Halla Vilhjálms
trúlofuð
Halla og Harry trúlofuðust í Istanbúl.
Morgunblaðið/Golli