Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2013, Qupperneq 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2013, Qupperneq 28
*Matur og drykkir Vinir gera sér dagamun og gæða sér á dýrindishumri í lakkríssósu og sötra kampavín »32 É g hef einhvern veginn verið svo lánsöm að maturinn sem ég hef valið að elda hefur svolítið hitt í mark,“ segir Sigrún í samtali við Sunnudagsblaðið. Hróður matseldar hennar hafði borist blaðamanni til eyrna og varð hún fúslega við beiðni hans um uppskrift þegar eftir því var leitað. „Ég hef alla tíð haft áhuga á matargerð og heilsu og finnst fyrst og fremst óskaplega gaman að elda og það sérstaklega úr fersku og góðu hráefni,“ segir Sigrún og bætir við að hennar bestu stundir séu oftar en ekki með matreiðslubækur og blöð í hönd fyrir svefninn. Eldaði á hálendinu Þetta er í fyrsta sinn sem Sigrún stýrir eldhúsi á stórum vinnustað en áður hefur hún m.a. stýrt heilsuvöruverslunum og séð um matseld fyrir ferðamenn á hálendinu. Síðasta sumar sá hún m.a. um matseld á veitingastað fyrir ferða- menn á Möðrudal, þar sem hún lagði áherslu á að elda afurð- ir beint frá nálægum býlum og nýta það sem fékkst ferskt í nágrenninu, svo sem silung, lamb og fjallagrös. Á núverandi vinnustað leggur hún hins vegar upp úr að elda holla og ferska rétti, m.a. mikið til úr lífrænu hráefni, auk þess sem hún leitast við að nota íslenskar afurðir á borð við salöt, grænmeti og spírur. „Ég hef verið að skoða mat og stúdera í hátt í 25 ár. Líka hvað hann gerir fyrir okkur en við eigum að reyna að borða eins lifandi fæðu og við getum og elda hana sem minnst. Þannig fær maður besta næringu og orku,“ segir Sigrún. Hefur henni tekist að skapa notalega stemningu í mötuneytinu, þar sem ferskleiki og hollusta eru í fyrirrúmi. „Ég legg út frá að allt sé eldað frá grunni, að þetta sé lífrænt og bara fersk og heilbrigð fæða,“ segir hún. Slakandi skrúbbar Það er ekki hægt að sleppa Sigrúnu án þess að forvitnast að- eins um annað áhugamál hennar. „Ég hef svona verið að leika mér að því að búa til líkamsskrúbba úr salti heima, sem ég hef ýmist gefið eða selt. Ég nota bæði Himalaja- og Ep- som-salt og blanda við kókos- og ilmkjarnaolíur alls konar,“ segir hún. Hafa skrúbbarnir hennar mælst vel fyrir enda henta þeir vel, þeir eru bæði slakandi fyrir vöðva og næring- arríkir fyrir húð. Hún blandar líka skrúbb úr lífrænum, ís- lenskum þara frá Reykhólum, ásamt íslensku sjávarsalti, sem þykir einstaklega góður fyrir þreytta, auma vöðva. „Ég hef rosalega gaman af þessu öllu, að stúdera heilsuna og bara finna jákvæða og lifandi orku í sér, þ.e. finna kraft- inn sinn,“ segir Sigrún að lokum. Morgunblaðið/Rósa Braga AF HÁLENDINU Í HEILSURÉTTI Hollustan í fyrirrúmi YFIR TUTTUGU ÁR ERU FRÁ ÞVÍ SIGRÚN MAGNÚSDÓTTIR FÓR AÐ LESA SÉR TIL UM HEILSU OG HOLLUSTU LÍKAMA OG SÁLAR. AUK ÞESS AÐ ELDA GÓMSÆTT HEILSUFÆÐI FYRIR STARFSFÓLK WOW AIR, LEIKUR HÚN SÉR M.A. AÐ ÞVÍ AÐ BLANDA LÍKAMSSKRÚBBA ÚR ÞARA OG SÖLTUM. Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is Matgæðingurinn Sigrún Magnúsdóttir eldar holla og góða rétti. Fyrir 4-6 1 dl góð ólífuolía 2 hvítlauksrif ½ tsk. kummín 2 msk. tamarin/sojasósa safi úr ½-1 appelsínu 1 msk. hunang 2 msk. fersk söxuð steinselja salt og pipar eftir smekk Setjið allt hráefnið í skál og blandið vel saman. Setjið kjúklinginn út í (ég nota úrbeinuð kjúk- lingalæri) og geymið í kæli yfir nótt. Bakið síð- an við 180°C í 30 mínútur. APPELSÍNU-CHILISÓSA 1 ferskt chili – saxað smátt 6 hvítlauksrif ½ rauð paprika 1 tsk salt 1 dl hvítvínsedik ½ tsk. kummín ½ tsk. chiliduft safi úr ½-1 appelsínu 2 dl góð ólífuolía 2 msk. gott hunang Setjið allt nema olíuna í matvinnsluvél og maukið vel saman. Bætið síðan olíunni við smátt og smátt og látið vélina ganga hægt á meðan, þar til tilbúið. Berið sósuna fram með kjúklingnum, ásamt kúskúsi. Gott er að klippa/saxa smávegis ferska steinselju og kóríander út í. Marineraður kjúklingur með appelsínu-chilisósu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.