Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2013, Page 52
52 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.7. 2013
Arngrímur Borgþórsson opnaði á föstudag
sýningu á verkinu „Bananakonungsveldi“ í
húsakynnum SÍM, í Hafnarstræti 16.
Arngrímur útskrifaðist með BA-gráðu frá
Listaháskóla Íslands árið 2006 og með MFA-
gráðu frá Listaháskólanum í Umeå í Svíþjóð í
vor. Arngrímur hefur tekið þátt í mörgum
samsýningum og haldið einkasýningar á Ís-
landi og í Svíþjóð, síðast sem þátttakandi í
Malmö Nordic 2013. Hann býr og starfar í
Malmö og þar vakti í vor athygli sýning hans
„146 forsetar“. Arngrímur sýndi þar myndir
sínar af öllum sitjandi forsetum jarðar og fór
verð hverrar myndar eftir vergri þjóðarfram-
leiðslu viðkomandi þjóðar. Sýning Arngríms
er opin milli klukkan 10 og 16 alla virka daga.
ARNGRÍMUR SÝNIR HJÁ SÍM
BANANAVELDI
Hluti verksins Bananakonungsveldi sem
Arngrímur Borgþórsson sýnir hjá SÍM.
Jónas Ingimundarson og Diddú munu á tónleik-
unum flytja lög við ljóð eftir Halldór Laxness.
Morgunblaðið/Þorkell
Söngkonan Diddú, Sigrún Hjálmtýsdóttir, og
Jónas Ingimundarson píanóleikari koma fram
á tónleikum í stofunni á Gljúfrasteini á safna-
daginn, sunnudaginn 7. júlí, og hefjast þeir
klukkan 16. Hyggjast þessir dáðu listamenn
flytja saman lög sem samin hafa verið við ljóð
Halldórs Laxness. Hægt er að panta miða á
tónleikana í safninu.
Fyrr um daginn býður Gljúfrasteinn gesti
velkomna í safnið í hljóðleiðsögn og ratleik
fyrir alla fjölskylduna. Frítt verður inn í safnið
frá kl. 9 til 15. Þá er hægt að ganga um ná-
grennið, í fótspor Halldórs, en hægt er að fá
gönguleiðakort á Gljúfrasteini.
TÓNLEIKAR Á GLJÚFRASTEINI
DIDDÚ OG JÓNAS
„Fullkomið, öruggt og
hljómfagurt“ var yfirskrift
einnar gagnrýninnar sem
birtist um söng Hamra-
hlíðarkórsins undir stjórn
Þorgerðar Ingólfsdóttur, í
tónleikaferð um Þýskaland
fyrir skömmu. Kórinn var
fulltrúi Íslands á alþjóðlegu
kórahátíðinni Inter-
nationale Chorbiennale í
Aachen og var það í fyrsta sinn sem íslensk-
um kór er boðið til hátíðarinnar. Kynnti kór-
inn íslenska tónlist á hátíðinni. Alls komu þar
fram ellefu kórar. Kórinn hélt einnig tónleika
í Stiftskirche í Bonn og söng við messu í hinni
frægu gotnesku dómkirkju í Altenberg en
þeir voru hljóðritaðir af þýska ríkisútvarpinu.
Umfjöllun um söng Hamrahlíðarkórsins
hefur birst víða og er öll á eina lund; mikið
lof fyrir framúrskarandi frammistöðu og ein-
staka útgeislun söngvaranna.
HAMRAHLÍÐARKÓR HRÓSAÐ
„FULLKOMIÐ …“
Þorgerður
Ingólfsdóttir
Hin árlega djasshátíð „Jazz undir fjöllum“, verður haldin íSkógum undir Eyjafjöllum laugardaginn 6. júlí. Er það í tí-unda skipti sem hátíðin er haldin í fögru umhverfi fjallanna
og er boðið upp á ferna tónleika að þessu sinni.
Aðaltónleikar hátíðarinnar fara fram í félagsheimilinu Fossbúð og
hefjast klukkan 21. Þá flytur Stórsveit Reykjavíkur dagskrá tileink-
aða helstu stórsveitum swing-tímabilsins; Goodman, Ellington, Miller,
Basie, Dorsey og fleirum. Sérstakur gestur verður stórsöngvarinn
Björgvin Halldórsson en stjórnandi verður Sigurður Flosason.
Fyrr um daginn verður boðið upp á lifandi og fjölbreytilega dag-
skrá í Skógakaffi, frá klukkan 14 til 17. Tenórarnir tveir; Stefán S.
Stefánsson og Ólafur Jónsson, koma fram ásamt hrynsveit kl 14.
Klukkan 15 tekur við Swing sextett Stebba Ó og kl. 16 er komið að
Bebop Bræðralaginu. Er þá um óformlegt tónleikahald að ræða og
áheyrendum frjálst að koma og fara að vild.
Aðstandendur þessarar einstöku djasshátíðar eru Byggðasafnið í
Skógum og Sigurður Flosason, en hann er listrænn stjórnandi hátíð-
arinnar. Hún nýtur stuðnings Rangárþings eystra, Skógasafns, Hót-
els Skóga, Hótels Eddu og Menningarsjóðs Suðurlands. Aðgangur er
ókeypis í Skógakaffi, en aðgangseyrir er 2.000 kr. í Fossbúð.
DJASSINN DUNAR UNDIR EYJAFJÖLLUM
Björgvin með
Stórsveitinni
Stórsveit Reykjavíkur undir stjórn Sigurðar Flosasonar. Sveitin leikur
verk helstu swing-meistara á tónleikum í Fossbúð á laugardagskvöld.
Ljósmynd/Jón Svavarsson
Björgvin Halldórsson heiðrar tónleikagesti með nærveru sinni á laug-
ardagskvöld, er hann verður sérstakur gestur Stórsveitarinnar.
Morgunblaðið/Eggert
FERNIR TÓNLEIKAR VERÐA Á HÁTÍÐINNI „JAZZ
UNDIR FJÖLLUM“ Í SKÓGUM Á LAUGARDAG.
Menning
E
inkasýning Rósu Gísladóttur
Come l‘acqua, come l‘oro... (Eins
og vatn eins og gull …) í safninu
í rústum hins forna Trajanusar-
markaðar í Róm í fyrra vakti
verðskuldaða athygli. Stórir skúlptúrar
hennar sem stóðu úti blöstu við gestum sem
fóru um fornminjagarð Keisaratorganna í
Róm, auk þess sem aðrir voru auk ljós-
mynda innan dyra í safninu. Á fimmtudaginn
var opnuð sýning á verkunum í gjörólíku
umhverfi, að þessu sinni í Hörpu, og kallar
Rósa hana Tilfærsla. Róm / Reykjavík. Flest
eru verkin á aðalhæð tónlistarhússins, í sýn-
ingarrýmum sem snúa út að höfninni, auk
þess að vera á veggjum og í skotum þar á
hæðinni, við uppganginn úr bílakjallaranum,
og þá er stórt hringlaga spegilverk á fimmtu
hæð byggingarinnar.
Í texta Ólafs Gíslasonar sýningarstjóra
segir að í Róm hafi samtal milli samtímans
og fortíðarinnar skipt miklu máli, og sjálf
umgjörðin skipti ekki minna máli en verkin á
sýningunni. „Samtalið snerist um sögu for-
manna og hvernig inntak þeirra og merking
hefur tekið breytingum á tvö þúsund árum,“
skrifar hann.
Rósa vann flest verkanna sérstaklega fyrir
sýninguna í Róm, út frá um 2000 ára göml-
um hlutum í safninu. Ólafur segir að þegar
sú hugmynd hafi síðan kviknað að setja
verkin einnig upp á Íslandi, hafi það í raun
kallað á „andhverfu þeirrar klassísku og
sögulegu umgjörðar sem Trajanusar-
markaðirnir höfðu myndað. Sambærileg um-
gjörð er ekki til staðar á Íslandi. Þess vegna
leituðum við að þveröfugu mótvægi við verk
Rósu í þeim tilgangi að halda áfram samtal-
inu um sögu og inntak formanna, en í þetta
skipti út frá öfugum forsendum. Við gátum
ekki hugsað okkur betri vettvang til þessa
en einmitt hin glæstu salarkynni tónlistar-
og menningarmiðstöðvarinnar Hörpu, sem í
formum sínum og rýmismótun er jafn fjar-
læg hinni klassísku hefð og hugsast getur.“
Rósa hélt sýningu í Rómarborg árið 2009
og á hana kom kona sem starfar í safninu í
markaði Trajanusar. „Henni þóttu verkin
mín passa vel í safnið en þau setja reglulega
upp sýningar með skúlptúrum erlendra lista-
manna,“ segir Rósa. Henni var í kjölfarið
boðið að gera tillögu að sýningu í safnið.
„Fyrst var ég bara að vinna með þau form
sem ég hafði áður verið með og lék mér að
því að koma þeim fyrir. En svo fór ég að
vinna meira með staðsetninguna og að skoða
safngripina, gamlar lágmyndir, gólf og ýmsa
hluti. Á endanum fór ég að vinna verk úr
plastefni, jesmóníti, út frá hlutum frá fyrstu
öld eftir Krist.
Þrátt fyrir að okkur finnist 2000 ár langur
tími þá eru þessi form enn í höndunum á
okkur í ýmsum myndum. Mér fannst áhuga-
vert að gera þau svolítið nútímalegri – og
stækka þau upp.“
Og það er ekki ofsagt; þetta eru gríð-
arstórir skúlptúrar sem komið hefur verið
fyrir í salarkynnum Hörpu.
„Það þótti ákjósanlegt að verkin hefðu
mikið rúmmál og væru stór. Starfsfólk safns-
ins sagði mér að verk undir metra á hæð
myndu ekki sjást,“ segir Rósa.
Og hún bætir við að það hafi verið afar
spennandi áskorun að sýna á þessum forn-
fræga stað, sem er á heimsminjaskránni.
„Ég fékk eiginlega áfall fyrst þegar ég sá
hvað þetta var allt gríðarstórt og opið,“ segir
hún og brosir. „En ég vildi líka sýna þau hér
heima, ég vann þau líka hérna. Ég fékk vana
leikmyndasmiði í lið með mér og við töldum
fyrst að þetta yrði gert á stuttum tíma, með
léttum leik. En það var tímafrekara en það.
Þeir þurftu að búa til sérstakan rennibekk
og renndu kjarnann úr stórum frauðplasts-
klumpum. Ég þakti þá síðan með jesmeníti.
Fyrst hafði ég gert lítil módel af skúlptúr-
unum.“
Það tók Rósu tíma að finna út hvar gæti
hentað að sýna verkin hér á landi. Svarið
kom einn daginn þar sem hún ók hjá Hörpu.
„Á sínum tíma var Trajanus-markaðurinn
samkomustaður fólksins, rétt eins og Harpa
er í dag,“ segir hún og fyrsta stóra skúlptúr-
sýningin í Hörpu er orðin að veruleika.
SKÚLPTÚRAR RÓSU GÍSLADÓTTUR SÝNDIR Í HÖRPU
Samtal samtíma og fortíðar
og um sögu formanna
„ÞRÁTT FYRIR AÐ OKKUR FINNIST 2000 ÁR LANGUR TÍMI ÞÁ ERU ÞESSI FORM ENN Í HÖNDUNUM Á OKKUR Í
ÝMSUM MYNDUM,“ SEGIR RÓSA GÍSLADÓTTIR UM KVEIKJURNAR AÐ SKÚLPTÚRUM SEM HÚN SÝNDI Í RÓM.
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is
Ampulla, þriggja metra hátt verk Rósu, glóir í
skoti einu á fyrstu hæð Hörpu. Það var unnið út
frá litlu keri fyrir ilmolíur sem er í safni í Napólí.