Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2013, Page 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2013, Page 15
7.7. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 4.900 5.300 6.600 6.500 6.4006.600 8.500 7.950 12.000 7.950 7.300 Gjafir sem gleðja LAUGAVEGI 5 SÍMI 551 3383 SPÖNGIN GRAFARVOGI SÍMI 577 1660 Morgunblaðið/Rósa Braga * Það kom oft fyrir að hann þurfti aðrenna niður buxnaklaufinni og gyrðaniður um sig til að koma skyrtunni vel fyrir en þetta gat átt sér stað hvar sem var, svo sem í matvöruverslunum. Dóttir Jarþrúðar greindist með einhverfu sem barn og má segja að þannig hafi áhug- inn á fræðunum kviknað. Skólakerfið eins og við þekkjum það í dag hentar ekki öllum börnum. Morgunblaðið/ÞÖK Jarþrúður segir að ánægjuleg breyting hafi orðið á hugmyndafræði og skilningi hvað varðar einhverfu á allra síðustu árum. „Mér finnst ýmislegt gott hafa verið að gerast í seinni tíð og fötlunarfræðin hefur þar lagt mikið til,“ segir hún. „Og ég sé það betur og betur hvað orðræðan skiptir miklu máli.“ Ýmis orð og orðalag hefur verið notað í gegnum tíðina sem er ekki til framdráttar og oft niðrandi. Að mati Jarþrúðar á ákveðin vitundarvakning sér stað og fólk er hægt og rólega að verða meðvitað um hvaða hugtök eru notuð og hvaða hugtök er betra að nota. Dæmi um þróun orðræðunnar í einhverfu- samfélaginu nefnir Jarþrúður að áður fyrr hafi mik- ið verið talað um börn með einhverfu en ekki ein- hverf börn, vegna þess að orðið „einhverfir“ hljómaði eins og verið væri að útskúfa þeim frá öðrum. Ákveðið var því að tala um fólk með einhverfu (fólk fyrst). Fullorðið fólk á einhverfurófi sem er sátt við að vera einhverft hefur hins vegar viljað tala um ein- hverfuna sem hluta af þeirra persónuleika og ekki sé hægt að aðskilja þetta tvennt, þetta þykir Jar- þrúði afar mikilvægt sjónarmið. „Mér hefur fundist best að tala um fólk á einhverfurófi. Margbreyti- leikinn er litróf og við erum öll á litrófi mannlífsins, það er bara eðlilegt að við séum mismunandi eða eins og einn viðmælandi minn í bókinni orðaði þetta: „Það er enginn eins hvort sem er“,“ segir Jar- þrúður. Orðræðan skiptir máli Jarþrúði þykir best að tala um fólk á einhverfurófi. Morgunblaðið/Rósa Braga Vísindaframfarir verða til þegar rannsakendur sökkva sér djúpt í viðfangsefnið og eyða miklum tíma og orku í þetta afmarkaða verkefni. Ýmsir vísindamenn eru taldir geta hafa greinst með einhverfu ef sú greining hefði verið í boði á þeim tíma. „Fólk á einhverfurófi er oft mjög vísindalega þenkj- andi og nota þau mikla rökhugsun enda vel þjálfuð þar sem þau þurfa að nota greinandi hugsun mun meira í daglegu lífi en aðrir. Þau geta eytt miklum tíma og orku í eitthvert verkefni sem þau hafa áhuga á,“ segir Jar- þrúður. Í bókinni segir einn viðmælandi: „Á þeim tíma hafði ég rosalegan áhuga á bókum, ég hafði jú áhuga á vegakerfinu, það var svona aðalhobbíið mitt líka, það var að dunda mér í svona og stúdera. Ég byrjaði að stúdera ættfræði átta ára og ég eiginlega festist í því. Ég festist alltaf í áhugamálunum þegar ég var yngri. Já og ef það var einhver að reyna að fá mig til að gera eitthvað annað, þá var ég rosalega skapillur og pirraður … ég skildi ekki á þeim tíma af hverju það voru allir að trufla mig. Ég vildi bara fá að gera það sem ég vildi á þeim tíma og ekkert annað.“ Var Einstein einhverfur? Eðlisfræðingurinn Albert Einstein var ofurhugi.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.