Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2013, Síða 37
7.7. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
Hver kannast ekki við að heyra
gott lag í útvarpinu en muna ekki
hvað það heitir. Shazam er smá-
forrit sem leysir þann vanda, en
forritið virkar þannig að þú lætur
símann „hlusta“ á lagið. Eftir
nokkrar sekúndur sendir smáfor-
ritið svo upplýsingar með heiti
lagsins og nafninu á þeim listamanni
eða hljómsveit sem flytur lagið.
SMÁFORRITIÐ SHAZAM
Láttu símann
hlusta á lagið
Ef þú vilt passa upp á línurnar þá er
Calorie counter sniðugt smáforrit
sem heldur þér við efnið. Um leið
og þú lýkur við máltíð slærðu inn
það sem þú borðaðir og forritið
lætur þig vita hversu margar hita-
einingar þú „átt inni“ miðað við
ráðlagðan dagskammt. Forritið
inniheldur stórt gagnasafn yfir mat-
artegundir sem auðveldar yfirsýn.
TELDU HITAEININGAR
Haltu þér í
góðu formi
Ef þú ert uppiskroppa með hug-
myndir að kvöldmat fyrir fjölskyld-
una þá er Allrecipies.com Dinner
Spinner hentugt smáforrit sem ger-
ir þér kleift að nálgast ótalmargar
uppskriftir. Notandi leitar að til-
teknum rétti og getur stillt hversu
langan tíma má taka í undirbúning
og eldun. Forritið skilar gómsætum
niðurstöðum.
Gómsætar
uppskriftir
HJÁLPAR Í ELDHÚSINU
Verð frá: 189.990.-
Smáralind | Sími 512 1330
Opið í dag frá 13.00 - 18.00
Ný
MacBookAir
Allt að
12klst
Rafhlöðuending
Doug Engelbart, hug-sjónamaður sem fann umtölvumúsina ásamt öðr-
um tækniundrum, lét lífið 2. júlí
síðastliðinn. Tölvuminjasafnið í
Kaliforníu gaf út tilkynningu þess
efnis síðastliðinn miðvikudag, en
Engelbart var 88 ára.
Á sjöunda áratug síðustu aldar
hannaði Engelbert tæki sem búið
var til úr tré en neðan í því voru
tvö málmhjól. Þetta tæki þróaðist
síðar út í tölvumúsina, en í dag
má finna hana nánast á hverju
einasta heimili þar sem tölvur eru
notaðar.
Sú hugmynd að vinna í tölvu
með tæki sem staðsett var fyrir
utan tölvuna var langt á undan
sinni samtíð þegar Engelbart
byrjaði að hanna tækið. Tölvu-
músin var hins vegar ekki sett á
markað fyrr en árið 1984 og stóð
þá almenningi til boða með gömlu
Macintosh-tölvunni, en sú tölva er
talin vera undanfari tækja eins og
Iphone og Ipad.
Engelbart fann upp tölvumús-
ina mjög snemma miðað við þró-
un tölva á þeim tíma og græddi
því fjárhagslega lítið á uppfinn-
ingunni. Einkaleyfið á tölvu-
músinni gilti aðeins í 17 ár,
en það leiddi til þess að ár-
ið 1987 hafði Engelbart
misst einkaréttinn á fram-
leiðslu tölvumúsarinnar.
Hann fékk því engin höf-
undarlaun fyrir hönn-
un sína, en um millj-
arður slíkra tækja
hefur verið seldur
síðan tölvumúsin
fór á markað.
TÖLVUMÚS OG TÆKNI
Doug Engelbart, maðurinn á bak við
tölvumúsina, fann upp tækið mjög
snemma miðað við þróun tölva.
Græddi fjárhagslega lítið
DOUG ENGELBART, MAÐURINN Á BAK VIÐ TÖLVUMÚSINA,
LÉT LÍFIÐ FYRR Í VIKUNNI, EN UM MILLJARÐUR SLÍKRA TÆKJA
HEFUR SELST FRÁ ÞVÍ ÞAU KOMU FYRST Á MARKAÐ ÁRIÐ 1984.
Páll Fannar Einarsson pfe@mbl.is
Doug Engelbart fæddist 30. janúar
1925 í Portland í Oregon. Faðir
hans var útvarpsviðgerðarmaður,
en Engelbart fetaði aðra braut og
fór í nám í rafeindaverkfræði við
háskólann í Oregon.
Engelbart starfaði
sem radartæknimaður
í heimsstyrjöldinni
síðari, en þar las
hann ritgerð eftir
verkfræðinginn Van-
nevar Bush sem
varð honum
mikill inn-
blástur í
lífinu.
Fór aðra leið
Doug
Engelbart