Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2013, Side 39
7.7. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
E
in mest
lesna grein
Smart-
lands í síð-
ustu viku var viðtal
við Margréti R.
Jónasar förð-
unarmeistara þar
sem hún sagði að
kvenpeningurinn
ætti að gæta þess
vel að oflita ekki á
sér augabrúnirnar því það gerði okkur svo „ódýrar“. Sumir kalla
svona ofmótaðar og oflitaðar augabrúnir „skinku-augabrúnir“ en
trendið varð upphaflega til í Bretlandi.
Það hlýtur að liggja í augum uppi að það vill engin kona vera „ódýr“
í útliti en skilin á milli þess sem er „ódýrt“ og „rándýrt“ geta verið
óljós. Þar spilar smekkur konunnar líklega inn í en eins og þær vita,
sem eru með fulla greind og meðvitund, þá getur hann verið misjafn.
Þar fyrir utan gengur konan í gegnum allskonar tímabil í lífi sínu sem
getur kallað á allskonar hliðarspor sem hægt er að skammast sín fyr-
ir síðar á lífsleiðinni. Konan er nefnilega allskonar og hefur umhverfi,
starf, búseta, aldur, barneignir, fjárhagur og félagsskapur mótandi
áhrif á stíl og smekk konunnar – alveg sama hversu fylgin sér hún er.
Ég er alin upp við að konur eigi að vera vandaðar en ekki „sjoppu-
legar“ en þó geta komið upp „sjoppuleg“ augnablik hjá mjög vönd-
uðum konum. Ég hef til dæmis mætt á frumsýningu í leikhúsinu og
áttað mig á því í hléinu að ég er með slef á öxlunum eða hor og mat-
arleifar á miðjum lærum. Þótt synir mínir tveir séu vel upp aldir hafa
þeir átt það til í gegnum tíðina að nota fötin mín sem þvottastöð. Þeg-
ar þessar aðstæður koma upp verð ég alltaf babú babú yfir því að sal-
erni á opinberum stöðum séu ekki með venjuleg tauhandklæði. Það
er vonlaust að ná matarleifum eða hori úr fötum með pappírs-
þurrkum …
Ég lærði það snemma að maður fer til dæmis með skóna sína til
skósmiðs áður en hælarnir á þeim fara að yddast upp eins og blýant-
ar. Einhvern tímann var ég spurð að því hvort ég væri hrifin af skó-
smiðnum mínum því það gæti ekki talist eðlilegt hvað ég heimsótti
manninn oft. Viðkomandi hafði líka orð á því að það hlyti að vera
gagnkvæmt því það væri langt frá því að vera eðlilegt hvað ég fengi
alltaf góða þjónustu hjá honum. Ég svaraði því að þetta væri við-
skiptasamband í sinni hreinustu mynd. Hann „trítaði“ mig, ég tæki
upp veskið og allir væru alsælir. Ég kæmi alltaf aftur og aftur og
þannig sæi ég til þess að hjól atvinnulífsins snerust af fullum krafti
þarna á Grettisgötunni.
Það er mikilvægt fyrir konuna, sérstaklega ef hún er pínulítið
óskipulögð, að eiga í góðu sambandi við fagmenn sem minnka „sjoppu-
ganginn“ í tilveru hennar. Góð sambönd eru búin til með því að vera
alltaf í viðskiptum við sama aðilann, vera kammó og spjalla, því þá
eru meiri líkur á að þú fáir alltaf „VIP“-þjónustu. Þú þarft að eiga í
„VIP“-sambandi við hárgreiðslumeistarann þinn því þú verður að geta
stólað á að viðkomandi komi þér alltaf að þegar þú ert skyndilega
komin með rót. Það er nefnilega fátt „sjoppulegra“ en hár í þannig
ástandi og ef konan treystir sér ekki til þess að halda því við er betra
að sleppa öllum svona bjútítrixum og vera bara alveg náttúruleg.
Músalitur er nefnilega mun fallegri en marglitt hár með rót.
Þær sem ætla að vera vandaðar verða að muna að vel straujuð föt
eru vandaðri en óstraujuð og vandaðar konur fara ekki út í hnökr-
uðum fötum, of stuttum pilsum, of flegnum bolum og síðast en ekki
síst skiptir máli að ilma alltaf vel. Þegar „sjoppugangurinn“ verður of
mikill í lífi okkar getum við huggað okkur við það að þetta er bara
„tímabil“ og þeim lýkur yfirleitt fyrr en okkur grunar …
martamaria@mbl.is
Minnkaðu
„sjoppuganginn“
Victoria Beck-
ham verður
vandaðari með
árunum.
Of dökkar augabrúnir gera okkur „ódýrar“.
GJÖRIÐ
SVO VEL!
Hafðu það hollt
í hádeginu
HAFÐU SAMBAN
D
OG FÁÐU TILBO
Ð!
HEITT & KALT | S: 533 3060 | heittogkalt@heittogkalt.is
HEITT OG KALT býður starfsfólki fyrirtækja
hollan og næringaríkan mat í hádegi.
Matseðill fyrir hverja viku er birtur á:
www.heittogkalt.is
Sturla Birgisson er margverðlaunaður
matreiðslumeistari og er í dómnefnd fyrir
Bocuse d’Or sem er ein virtasta matreiðslu-
keppni heims.
Silkimjúkir fætur
fyrir sumarið
Þökkum frábærar
viðtökur
Fæst í apótekum