Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2013, Síða 46

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2013, Síða 46
É g er svo glaður að vera að tala við Íslending! Ég er svo spenntur að koma til ykkar,“ segir Russell Brand þegar blaðamaður Sunnu- dagsblaðs Morgunblaðsins heilsar í símann. Brand elskar Ísland þrátt fyrir að hafa aldrei stigið hingað fæti. Og það að ein stærsta stjarna skemmtanaiðnaðarins skuli hafa valið Ísland sem lokaáfangastað sýn- ingar sem hann ferðast nú með um allan heim – það má líta á það sem mikinn heiður að hann endi ferðina hér; í desember. Líklega mátti búast við hverju sem er hin- um megin á línunni. Breski leikarinn, grín- istinn og rithöfundurinn er í Los Angeles, hann býr þar og nákvæmlega klukkan 14.15 að hans staðartíma svarar hann. Frá því að Brand vaknaði um morguninn segist hann hafa farið í jóga, hugleitt, skrifað og lesið nokkrar blaðsíður í Hinum guðdómlega gleðileik Dantes. Hann er líka með bók um indverska heimspeki á náttborðinu og þar að auki er hann afar virkur twitter-notandi. Vakið heimsathygli í viðtölum Brand, sem hefur sett allt á annan endann í viðtölum undanfarin misseri, er hinn yfirveg- aðasti. Hann er ólíkindatól í viðtölum. Skemmst er að minnast sjónvarpsviðtals á vef Huffington Post þar sem hann hellti vilj- andi úr vatnsglasi yfir fartölvu spyrilsins. Það fór í taugarnar á Brand það fyrirfram- skrifaða og „hrokafulla“ handrit sem hann sagði spyrillinn hafa í höndum. „Allt for- skrifað,“ sagði hann. Þrír spyrlar bandarísku MSNBC-sjónvarpsstöðvarinnar voru teknir til bæna fyrir tveimur vikum. Brand er van- ur að vera blátt áfram í viðtölum og fannst eins og þeir gengju að því vísu að hann væri til í öll fíflalæti heimsins. Hann var á því að honum væri sýnt virðingarleysi og endaði á því að taka blöð þáttastjórnenda og spyrja þá í stað þess að láta spyrja sig. Brand valdi Ísland sérstaklega til að koma og sýna Messiah Complex, eins og uppistand hans kallast, án þess að hafa nokkur tengsl við land né þjóð. „Ég er mikill aðdáandi Ís- lands. Íslendingar eru róttækir hugsuðir og styðja hugmyndir sem eru krassandi róttæk- ar – í öllu frá sósíalisma upp í tækni og hvernig þeir hafa tekist á við breytt efna- hagsumhverfi. Þið stóðuð í fæturna gagnvart spilltu bankakerfi. Íslendingar eru fólk sem ég hef áhuga á. Að auki eru konurnar ákaf- lega, ákaflega fallegar.“ Svo þú hefur séð íslenskar konur með eig- in augum eða hvað? „Jú, sjáðu til. Ég er frá London, svo að ég þekki Íslendinga sem þar búa og þið lítið sérstaklega vel út. Hvað er þetta?“ Blaða- maður reynir að finna út hvaða blanda þetta sé. Norðmenn, Írar og kannski nokkrir franskir sæfarar sem skruppu í land á Vest- og Austfjörðum? „Guð, það er dásamlegur kokteill. Blanda drukkinna, kaldhæðinna og skapstórra þjóðarbrota.“ Reitti Gordon Brown til reiði Án þess að Brand sé vændur um daður þvert yfir hafið kallar hann undirritaða „love“ viðtalið í gegn og í raun virkar það bara vingjarnlega. Hann er kominn inn á mjög mannlega línu segir hann. Hann leggi sig mjög fram við að vera elskulegur og særa ekki fólk – eins og hann hafi gert í svo langan tíma áður. Við höldum brátt af stað en áður en við keyrum þetta í gang má bruna yfir nokkur örlagaatriði í lífi hans – rétt til upprifjunar. Russell Brand er umdeildur í meira lagi. Hann stjórnaði vinsælum útvarpsþætti á BBC en hætti eftir símahrekk þar sem hann hringdi í leikarann virta Andrew Sachs. Hrekkurinn gekk út á að Brand þóttist hafa sængað hjá barnabarni leikarans. Meira að segja Gordon Brown, þáverandi forsætisráðherra Breta, rauk upp með skömmum og sagði þetta uppátæki ekkert fyndið. En þetta er ekki allt. Brand var rekinn úr starfi sem kynnir á MTV-sjónvarpsstöðinni eftir að hafa mætt í vinnuna klæddur upp sem Osama Bin Laden, degi eftir hryðju- verkaárásirnar í New York, 11. september 2001. Í stuttu máli var sá dagur á þessa leið: Hann tók heróínsalann sinn með í vinnuna og reykti krakk inni á salerni fyrir fatlaða rétt áður en þátturinn átti að fara í loftið. Gestur þáttarins var Kylie Minogue og Brand ákvað að bæta gráu ofan á svart og kynna dópsalann sinn fyrir leikkonunni. Honum þótti, að minnsta kosti þá, ógurlega fyndið að horfa á þau tala saman meðan hann stóð yfir þeim sem Osama Bin Laden. Hann hugsaði með sér að þetta gæti ekki orðið betra. Hann var rekinn tveimur dögum síðar. Íslendingar eru meðvitaðir og kynþokkafullir Kvikmyndin sem kom Brand á kortið var Forgetting Sarah Marshall. Hjónabandið sem kom honum í eina slúðurfrétt á dag var hjúskapur hans og söngkonunnar Katy Perry. Það sem gerir hann elskaðan og hat- aðan í senn er uppátækjasemi, óútreikn- anleiki, skrautlegheit, neysla og svo afvötn- un. Hann hefur ekki snert áfengi og eiturlyf í nokkur ár og þrátt fyrir litla menntun og mikla neyslu þykir hann með gáfaðri mönn- Íslendingar eru fólk sem ég hef áhuga á RUSSELL BRAND ER EIN SKRAUTLEGASTA OG STÆRSTA STJARNA HEIMS OG SETUR REGLULEGA ALLT Á ANNAN ENDANN. HANN VALDI ÍSLAND SÉR- STAKLEGA TIL AÐ LJÚKA VINNUFERÐALAGI SÍNU UM HEIMINN. ÞÓ HEFUR HANN ALDREI KOMIÐ HINGAÐ TIL LANDS OG HEFUR ENGIN TENGSL VIÐ LAND OG ÞJÓÐ. SEM HANN FER ÞÓ EKKI LEYNT MEÐ AÐDÁUN SÍNA Á – SEGIR ÍSLENDINGA HUGSUÐI SEM VEKI ÁHUGA SINN. HANN SEGIST VINNA Í ÞVÍ AÐ SÆRA EKKI FÓLK – EINS OG HANN HAFI SVO OFT GERT ÁÐUR. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is „Ég hef breyst síðustu árin. Ég reyni að hafa það efst í huga að særa ekki fólk, verja þá sem geta ekki varið sig í þessu lífi, vera sannur og trúr. Ég hef unnið með eigin galla. Áður var það eina sem komst að hjá mér að lifa af og stunda kynlíf.“ AFP 46 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.7. 2013 Viðtal

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.