Morgunblaðið - 03.08.2013, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.08.2013, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2013 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Gestum á 16. unglingalandsmóti UMFÍ á Höfn í Hornafirði fjölgaði mjög í gær, en þá hófst keppni á mótinu. Mótshaldarar áætla að um átta þúsund gestir hafi verið búnir að koma sér fyrir á tjaldstæðinu í bænum í gær. Góð stemning er á mótinu og virðast allir skemmta sér hið besta í íþróttakeppni og ann- arri afþreyingu. Formleg mótssetning var á Sindravelli klukkan 20 í gærkvöld. Ljósmynd/Inga Birna Albertsdóttir Þúsundir sækja unglingalandsmótið á Höfn Gunnar Dofri Ólafsson gunnardofri@mbl.is Um miðjan mánuðinn verða teknar í notkun 166 nýjar íbúðir fyrir stúd- enta. Íbúðirnar eru í tveimur fjög- urra hæða húsum neðan við Odda- götu í Reykjavík. María Rut Kristinsdóttir, formað- ur Stúdentaráðs Háskóla Íslands (SHÍ), fagnar því að íbúðirnar séu teknar í notkun, en segir að biðlistar eftir íbúðum styttist sennilega lítið sem ekkert við þetta. „Biðlistinn hættir aldrei, hann lengist alltaf,“ sagði María Rut. „Það virðist ekki sjá fyrir endann á hon- um, það hrúgast alltaf inn umsókn- ir.“ Samkvæmt upplýsingum frá Fé- lagsstofnun stúdenta (FS), sem á og rekur stúdentagarðana, eru um 1.100 stúdentar að bíða eftir íbúðum. María Rut segir að í gær hafi hús- gögn verið borin inn í nýju íbúðirnar, sem verða með nokkuð öðru sniði en eldri stúdentaíbúðir FS. Eldhúsið á ganginum „Þarna fá stúdentar fullbúið her- bergi með rúmi og skrifborði og öllu. Á ganginum er svo mjög stórt fullbú- ið eldhús með fjórum ísskápum, hnífapörum og öllu saman. Svo er þarna setustofa með sófum og borð- stofuborði. Hver gangur deilir eld- húsi, og það eru þrír gangar á hverri hæð. Eldhúsin snúa öll inn í húsa- garð, þannig að þú sérð hvað er um að vera í hinum eldhúsunum.“ Þá verður mögulega grill í garð- inum, auk þess sem hægt verður að fara upp á þak hússins. Maríu Rut grunar að fleiri stúd- entar séu í húsnæðisvanda en þessi langi biðlisti gefi til kynna. „Það get- ur verið að fólk standi ekki í því að sækja um. Ég veit sjálf um fólk sem er hikandi, þetta er rosalega mikil óvissa. Já, ég held að hann gæti verið lengri,“ sagði María Rut. Heimilt að framleigja Hún segir að stúdentum sé heimilt að framleigja íbúðir sínar öðrum nemendum við Háskóla Íslands við ákveðnar aðstæður. „Það er þegar fólk fer í skiptinám og vill ekki missa íbúðina sína. Frumleigjandinn þarf þá sjálfur að finna leigjanda, sem dvelur þá í íbúðinni á ábyrgð upp- runalegs leigjanda. Síðan þarf að koma með staðfestingu á að viðkom- andi sé að fara í skiptinám.“ Sér ekki högg á vatni á biðlista  166 stúdentaíbúðir verða teknar í notkun um miðjan mánuðinn  1.100 stúdentar eru á biðlista eftir íbúðum hjá FS  Biðlistarnir lengjast ár eftir ár  Nýju íbúðirnar frábrugðnar þeim sem fyrir eru Morgunblaðið/Styrmir Kári Stúdentagarðar Nýir stúdentagarðar verða teknir í notkun um miðjan mán- uðinn. 166 íbúðir eru í tveimur húsum við Oddagötu. Fleiri munu senn rísa. Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Skaflinn í Gunnlaugsskarði, vestan í Kistufelli í Esjunni, mun að öllum líkindum hverfa í haust, að mati Páls Bergþórssonar, fyrrverandi veð- urstofustjóra. „Maður er í miklum vafa á þessum tíma, því það ræðst ekki fyrr en sumarið er liðið og kom- ið fram í september, en mér sýnist að hann muni hverfa núna,“ segir Páll. „Hann hefur minnkað mikið undanfarið og er að minnka enn í hlýja veðrinu,“ segir Páll sem þykir því líklegra að skaflinn muni hverfa í haust. Hann bætir við að júlí í ár hafi verið svipaður og gerðist á árunum 1931-1960 sem var mesta hlýinda- tímabil sem þá hafði þekkst. Þá hafi veturinn verið mildur og skaflinn því minni til þess að byrja með. Þess má geta að hverfi skaflinn nú verður það annað árið í röð sem það gerist, og í tólfta sinn á síðustu 13 árum. Fyrir þann tíma hafði skaflinn síðast horfið 1998, þá í fyrsta sinn frá árinu 1964. Skaflinn mun líklega hverfa  Lifði af sumarið 2011 en hvarf svo aftur í fyrrasumar Morgunblaðið/Kristinn Esjan snjólaus Frá aldamótum hefur skaflinn í Gunnlaugsskarði horfið nærri því öll sumur. Líklegt má telja að svipað verði uppi á teningnum í ár. Mikið annríki er að venju hjá flug- félögum landsins um verslunar- mannahelgina. Þannig munu um 3500 farþegar fljúga með Flugfélagi Íslands inn- anlands um helgina. Flestir fljúga á föstudag og á mánudag, en frí- dagur verslunarmanna er yfirleitt einn stærsti dagur ársins í innan- landsflugi Flugfélagsins. Akureyri er vinsælasti áfanga- staðurinn en einnig lögðu mjög margir leið sína á Mýrarboltann á Ísafirði og til Egilsstaða. Flug- félagið flýgur einnig til og frá Vestmannaeyjum um helgina en félagið er ekki með áætlunarflug þangað. Flugfélagið Ernir hafði einnig í nógu að snúast í gær. Áætlað var að fara 12 ferðir til Vest- mannaeyja frá Reykjavík með rúmlega 200 farþega sem ætla að skemmta sér á Þjóðhátíð í Eyjum. Á mánudag áætlar Ernir að fljúga 17 ferðir frá Eyjum með um 350 farþega. Þúsundir fara fljúg- andi á útihátíðar helgarinnar Sjaldan er jafnmikið að gera í Vín- búðum ÁTVR og í vikunni fyrir verslunarmannahelgi. Samkvæmt frétt á vefsíðu ÁTVR voru viðskipta- vinir Vínbúðanna 125 þúsund talsins í þessari viku í fyrra en þá seldust um 713 þúsund lítrar af áfengi. Til samanburðar má nefna að 95 þúsund viðskiptavinir komu í Vínbúðirnar vikuna 16. – 21. júlí en þá seldust 430 þúsund lítrar af áfengi. Á föstudeg- inum fyrir verslunarmannahelgina í fyrra seldust í heildina 225 þúsund lítrar af áfengi. „Reynslan sýnir að flestir við- skiptavinir koma í Vínbúðina föstu- daginn fyrir verslunarmannahelgi sem er jafnan einn annasamasti dag- ur ársins. Flestir viðskiptavinir koma á milli kl. 16 og 18 eða allt að 7.000 viðskiptavinir á klukkustund,“ segir á vefsíðu ÁTVR. Að sögn Sunnevu Ólafsdóttur, verslunarstjóra Vínbúðarinnar í Skeifunni, var mikið að gera þar í gær. Jafnframt kemur fram á vef- síðu ÁTVR að flest bendi til þess að fjöldi viðskiptavina fyrir verslunar- mannahelgina í ár verði svipaður og í fyrra. Þá eru þeir viðskiptavinir sem vilja forðast langar biðraðir hvattir til að skipuleggja innkaupin vel og mæta tímanlega í verslanirnar. Vín- búðirnar verða opnar samkvæmt venju um verslunarmannahelgina. Þannig verður opið í búðunum í dag en lokað bæði á morgun og á mánu- daginn. Mikið að gera í Vínbúðunum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.