Morgunblaðið - 03.08.2013, Page 9

Morgunblaðið - 03.08.2013, Page 9
VIÐTAL Baldur Arnarson baldura@mbl.is Færeyingar munu bregðast við fyrirhugðum refsiaðgerðum Evrópusambandsins vegna aukins síldarkvóta Færeyja með því að leita markaða fyrir makríl og síld utan sambandsins. Þetta segir Jacob Vester- gaard, sjávar- útvegsráðherra Færeyja, sem lýsir vonbrigðum með það skref fiskveiðinefndar ESB að gefa já- kvæða umsögn fyrir því að fram- kvæmdastjórn ESB haldi áfram að undirbúa refsiaðgerðir gegn Færeyjum vegna aukins síldar- kvóta. Segir á vef nefndarinnar að aðgerða sé að vænta í þessum mán- uði og að þar sé m.a. horft til lönd- unarbanns innan ESB. Færeysk stjórnvöld hafi hunsað aðvaranir ESB í maí og því eigi sambandið enga aðra kosti í stöðunni. Vonuðust eftir samningum Vestergaard lítur málið öðrum augum. „Við bundum vonir við að Evrópusambandið færi samninga- leiðina og leitaði sameiginlegra lausna. Þess í stað hefur sambandið valið þvinganir. Ég tel að þær hjálpi ekki til. Við getum hins vegar selt makríl og síld til annarra heims- svæða og getum haldið áfram veið- um á þessum tegundum og flutt út afurðir til Asíu, Afríku og Rúss- lands,“ segir Vestergaard sem telur næga eftirspurn eftir síldar- og mak- rílafurðum Færeyja utan ESB. „Ég tel að það sé næg eftirspurn í þessum heimshlutum. Við gætum þó gengið í gegnum tímabundna erfið- leika, enda gæti verðið lækkað til að byrja með,“ segir Vestergaard um tímabundin áhrif refsiaðgerða ESB. „Mörg landanna sem kaupa vörur af okkur hafa ekki áhuga á refsi- aðgerðum gegn okkur. Þau munu halda áfram að kaupa vörur okkar.“ Spurður um aðdraganda hinna fyrirhuguðu refsiaðgerða nefnir ráð- herrann makríldeiluna. ESB hafi brugðist hart við auknum makríl- veiðum Færeyinga en látið ógert að refsa Rússum fyrir hið sama. „Við erum lítið ríki í miðju Norð- ur-Atlantshafi og það kostar ESB því ekkert að fara í refsiaðgerðir gegn okkur. Ég tel að sambandið myndi ekki gera hið sama gegn Rússlandi og það hefur gert við okk- ur eða hyggst gera gegn Íslandi.“ Látið undan þrýstingi Spurður hvert hann telji að sé markmið ESB með aðgerðunum segir Vestergaard að sambandið láti með þessu undan þrýstingi frá skoskum og írskum sjómönnum sem hafi verið háværir í gagnrýni sinni á aukinn makríl- og síldarkvóta Fær- eyja. Þar séu á ferð þrýstihópar sem hafi lengi átt í samskiptum við fram- kvæmdastjórn ESB. Vestergaard minnir á að færeyskt efnahagslíf sé mjög háð útflutningi sjávarafurða sem séu að baki um 95% útflutnings frá smáríkinu. Spurður hvort hann telji að síld- veiðar Færeyja ógni síldarstofninum í Norður-Atlantshafi svarar ráð- herrann því til að Færeyjar séu strandríki sem stundi sjálfbærar veiðar. Á samráðsvettvangi strand- ríkjanna sem hagsmuni eigi að gæta af veiðunum sé rætt um skiptingu aflans, ekki sjálfbærni veiða. Því fari fjarri að veiðarnar ógni síldar- stofninum. „Það hefur ekki náðst samkomu- lag um skiptingu aflans og þess vegna er ástandið eins og það er. Það er ekki hægt að taka eitt ríki út og segja við fulltrúa þess að veið- arnar séu ósjálfbærar.“ Ráðherrann segir að færeysk stjórnvöld muni á næstu dögum ákveða viðbrögð við aðgerðunum. ESB neyti aflsmunar gegn smáríki í norðri Morgunblaðið/Árni Sæberg Við bryggjuna Smábátar í höfninni í Þórshöfn, höfuðstað Færeyja.  Sjávarútvegsráðherra Færeyja gagnrýnir refsiaðgerðir Jacob Vestergaard FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2013 FÆST Á REDKEN HÁRGREIÐSLUSTOFUM GET INSPIRED. SEE YOUR STYLIST. MARKMIÐ FULLKOMIÐ HÁR SÉRSTAKAR ÞARFIR EINFALDAR LAUSNIR Spurðu hárgreiðslumeistara þinn hvernig þú getur notað REDKEN-hárvörur til að nálgast hið fullkomna hár. KEYPTU 2, 1 FRÍTT REDKEN hárgreiðslustofur: REDKEN Iceland á Dreifing: Hár ehf - s. 568 8305 har@har.is Keyptu tvær REDKEN-hárvörur í dag og þú færð REDKEN-sjampó frítt. gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn Sýning laugardag, sunnudag og mánudag frá kl. 13-17 Í landi Kílhrauns á Skeiðum, 50 mínútna akstur frá Reykjavík. Landið er einkar hentugt til skógræktar, falleg fjallasýn. Uppl. Hlynur í s. 824 3040. Festu þér þinn sælureit í dag TIL SÖLU - EIGNARLÓÐIR STÓRÚTSALA ALLT AÐ 70% AFSLÁTTUR 40-70% afsláttur SUMARYFIRHAFNIR - SPARIFATNAÐUR - BUXUR - BOLIR - PEYSUR Laugavegi 63 • S: 551 4422 www.laxdal.is Sigurgeir Þorgeirsson, aðalsamn- ingamaður Íslands í makríldeilunni, segir „óréttlætanlegt að beita svona refsiaðgerðum“, en telur að hentugra hefði verið fyrir Fær- eyinga að setja fram ákveðna kröfu og færa rökstuðning fyrir henni. Hann bætir við: „Okkar afstaða er sú að refsiaðgerðir Evrópusam- bandsins, eða þær þvinganir sem boðaðar eru, eru ekki rétt að- ferðafræði. Það er ekki réttlæt- anlegt að Evrópusambandið beiti slíkum aðgerðum gegn ríki eins og Færeyjum. Um er að ræða annars vegar ríkja- samband sem telur mörg hundruð millj- ónir og hins vegar 50 þús- und manna þjóðfélag. “ Hann segir að deilur sem þessar eigi að leysa við samn- ingaborðið og sama eigi við taki ESB upp á því að beita þvingunum gegn Íslendingum í makríldeilunni. „Óréttlætanlegt að beita svona refsiaðgerðum“ SIGURGEIR ÞORGEIRSSON SAMNINGAMAÐUR Sigurgeir Þorgeirsson Aukablað alla þriðjudaga

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.