Morgunblaðið - 03.08.2013, Síða 17
ÚR BÆJARLÍFINU
Svanhildur Eiríksdóttir
Reykjanesbær
Undirbúningur Ljósanætur er
hafinn þó að enn sé um mánuður í
hátíðina. Ljósahátíðin hefst
fimmtudaginn 5. september og
stendur til sunnudagsins 8. sept-
ember með hápunkti á sjálfa Ljósa-
nótt, laugardaginn 7. september.
Eitt af því sem verið er að
undirbúa er hringtorg á þjóðleið,
en svo hefur Flugvallarvegur verið
kallaður. Hann leiðir m.a. að Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar. Parísartorg
verður vígt á Ljósanótt. Það er á
gatnamótum Krossmóa, Flugvall-
arvegar og Sunnubrautar. Gatna-
mótin hafa lengi verið umdeild, en
Íþróttaakademían og Reykjanes-
höll standa bæði við Krossmóa sem
kallar á mikinn umgang barna á
leið á fótbolta- og fimleikaæfingar.
Eins og venja er á hring-
torgum þjóðleiðar er þetta nýja
einnig kennt við höfuðborg. Par-
ísartorg bætist við Reykjavíkur-
torg og Lundúnatorg á þjóðleið
með viðeigandi kennileitum; Þórs-
hamri og rauðum símaklefa. Á Par-
ísartorgi verður Eiffel-turn, eitt
helsta einkenni borgarinnar og
hannaði hinn keflvísk-ættaði lista-
maður Stefán Geir Karlsson snúinn
Eiffel-turn.
Aðkoman í Reykjanesbæ frá
Reykjanesbraut við enda áður-
nefndrar þjóðleiðar hefur fengið
mikla andlitslyftingu. Af grjóti eig-
um við nóg og því hefur risið mynd-
arleg grjóthleðsla við þetta hlið
bæjarins. Samskonar hlið er nú í
smíðum við enda Aðalgötu, sem er
önnur aðkomuleið frá Reykjanes-
braut.
Undirbúningur hátíðartónleika
Ljósanætur er einnig hafinn. Nú á
að ljúka tónleikaröðinni Með blik í
auga og í ár eru það þriðju tónleik-
arnir. Fjallað verður um áratuginn
1980-1990 sem meðal annars ein-
kenndist af vídeómenningu og flutt
verður tónlist áratugarins í bland
við sögu þess tíma. Þema tón-
leikanna er hanakambar, hárlakk
og herðapúðar. Sem fyrr eru Krist-
ján Jóhannsson, Arnór Vilbergsson
og Guðbrandur Einarsson höf-
undar og stjórnendur.
Bókasafn Reykjanesbæjar
flutti í Ráðhús bæjarins í júníbyrj-
un og nú er kjarnastarfsemi bæj-
arins að komast á einn stað. Fyrir
voru bæjarskrifstofur og þjón-
ustuver í húsinu og fræðsluskrif-
stofan mun flytja úr Gamla barna-
skólanum í ráðhúsið á næstu
vikum. Ráðhúsið undirgekkst þó
nokkrar breytingar og mörgum
þykir vel hafa tekist til. Kaffihús er
á 1. hæð hússins og verður það opn-
að um miðjan þennan mánuð.
Íbúar í Reykjanesbæ hafa ekki
látið uppgang makrílsins fara
framhjá sér og hafa fjölmennt á
bryggjuna með veiðistangir. Þeir
sem hafa aðgang að smábátum hafa
jafnvel sést í Keflavíkinni við veið-
ar. Sitt sýnist hverjum um bragð-
gæði makrílsins, sumir líkja honum
við lax og finnst góð veiði mikil bú-
bót en aðrir fúlsa við honum.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Kjarnastarfsemi Bóksafnið og bæjarskrifstofur deila rými á fyrstu hæð Ráðhússins, ásamt kaffihúsi.
Athafnagleði í Reykjanesbæ
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2013
Smiðjuvegi 4 (Græn gata), 200 Kópavogi, sími 578 3030, gsm 824 0240, laugin.is
Erum með allt fyrir
Góður endir
á góðum degi
Nuddpottar
Hreinsiefni
Síur
Viðgerðarþjónusta
Varahlutir
–
–– Meira fyrir lesendur
Í blaðinu verður fjallað um
þá fjölbreyttu flóru sem
í boði er fyrir þá sem stefna
á frekara nám í haust.
Nánari upplýsingar gefur:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Pöntunartími Auglýsinga:
Fyrir kl. 16, mánudaginn
12. ágúst
Skólar & námskeið
Þann 16.
ágúst gefur
Morgun-
blaðið út
sérblað um
skóla og
námskeið
SÉRBLAÐ
„Þetta er algjört einelti. Þetta er í
áttunda sinn sem þetta fólk kemur í
búðina okkar. Þetta er sóun á pen-
ingum skattgreiðenda. Þeim væri
betur varið í baráttu gegn sölu á
eiturlyfjum en að athuga hvað er í
Pringles-kartöfluflögum,“ sagði Jón
Gerald Sullenberger, kaupmaður í
Kosti, í tilefni af heimsókn starfs-
manna Heilbrigðiseftirlitsins í
verslunina í gær.
Jón Gerald getur sér til um að
tilefni heimsóknarinnar sé heilsíðu-
auglýsing Kosts í Fréttatímanum í
gær þar sem vörur frá Norður-
Ameríku í versluninni voru auglýst-
ar.
„Allt sem kemur frá Ameríku er
bannað í augum eftirlitsins. Hvað
heldur Heilbrigðiseftirlitið eiginlega
að sé í vörum á borð við Skittles,
Hershey’s-súkkulaði, Twix eða On
the border tortilla chips? Við erum
að undirbúa verslunarmannahelgi
og það sama gerist og fyrir síðustu
jól að hingað mæta tveir fulltrúar
frá eftirlitinu með möppu og fylla
innkaupakörfu af vörum. Þeir eru
að taka sýnishorn af þessu.
Sama taktík og fyrir jólin
Kannski er eftirlitið að fara í úti-
legu? Þetta er sama taktík og fyrir
síðustu jól þegar þau mættu á Þor-
láksmessu. Hver er tilgangurinn?
Það er ekki verið að kanna hvort
hitastigið í kælunum sé í lagi – að
hreint og fínt sé í kringum kjötið og
grænmetið. Það er verið að fylla
körfu af snakki og sælgæti. Ég á
ekki aukatekið orð yfir þessu.
Matvælastofnun fær á hverju ári
1,2 milljarða af fé skattgreiðenda.
Er verið að sóa þeim fjármunum í
svona vitleysu?“ sagði Jón Gerald.
Fulltrúar Heilbrigðiseftirlits
Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis
mættu í verslun Kosts á Dalvegi í
gær, en Matvælastofnun fer einnig
með yfirumsjón með matvælaeftir-
liti á vegum heilbrigðiseftirlits
sveitarfélaga.
Guðmundur H. Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits-
ins, sagði alveg rétt hjá Jóni Gerald
að eftirlitið hefði komið allt of oft í
heimsókn til hans. Hann segir það
hins vegar vera vegna skorts á
innra eftirliti í versluninni með að
matvælalögunum sé fylgt.
Guðmundur vísar í fundargerð
Heilbrigðiseftirlitsins frá 24. júní.
Þar kemur fram að ábending hafi
borist eftirlitinu vegna vanmerktra
og ólöglegra matvæla. „Fyrirtækið
á að skila okkur áætlun um það
hvernig þeir ætla að standa að eft-
irliti í sinni verslun. Þeir gera það
ekki og þá komumst við ekkert
lengra nema við gerum okkar eigin
athuganir,“ sagði Guðmundur.
Kostur ósáttur
við mikið eftirlit
Heilbrigðiseftirlitið segir eftirlitið til
komið vegna vinnubragða hjá Kosti
Ljósmynd/Kostur
Eftirlitið Starfsfólk Heilbrigðiseft-
irlitsins að störfum í Kosti í gær.