Morgunblaðið - 03.08.2013, Page 18
FRÉTTASKÝRING
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Slitastjórn Sparisjóðabankans (SPB),
áður Icebank, vinnur nú að undirbún-
ingi að nýju nauðasamningsfrumvarpi
til að leggja fyrir kröfuhafa sem er tal-
ið líklegra til að hljóta samþykki Seðla-
banka Íslands.
Samningskröfuhöfum Sparisjóða-
bankans var tilkynnt fyrir skemmstu
að ekki myndi takast að ljúka við fyr-
irhugaðan nauðasamning sem var
lagður fyrir kröfuhafa í marsmánuði á
þessu ári. Ekki tókst að fá samþykki
allra kröfuhafa svo nauðasamnings-
frumvarpið næði fram að ganga. Seðla-
bankinn vildi ennfremur ekki veita
samþykki sitt fyrir útgreiðslu gjald-
eyris til samningskröfuhafa né heldur
samþykkja sjálfan nauðasamninginn.
Slitastjórn Sparisjóðabankans vinn-
ur nú að gerð rammasamkomulags í
tengslum við frumvarp að nýjum
nauðasamningi með stærstu kröfuhöf-
um, einkum Eignasafni Seðlabanka Ís-
lands (ESÍ), en heildarkröfur Seðla-
bankans – reistar á veðlánum sem
bankinn veitti fyrir fall fjármálakerf-
isins 2008 – nema yfir 210 milljörðum
króna.
Gert er ráð fyrir því að með nýju
nauðasamningsfrumvarpi verði ekki
krafist samþykkis allra samnings-
kröfuhafa SPB. Jafnframt verður
reynt að hanna nauðasamninginn
þannig að komið verði til móts við at-
hugasemdir Seðlabankans. Að sögn
þeirra sem þekkja vel til stöðu mála þá
leggur Seðlabankinn mikla áherslu á
að nauðasamningurinn, sem mun
þurfa samþykki Seðlabankans vegna
undanþágu frá fjármagnshöftum,
verði ekki með þeim hætti að skapað sé
óheppilegt fordæmi við mögulega
nauðsamninga þrotabúa Glitnis og
Kaupþings.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins völdu nokkrir erlendir kröfu-
hafar SPB að fá greitt í íslenskum
krónum og nam sú upphæð hundruð-
um milljóna. Samkvæmt áður fyrir-
huguðum nauðasamningi gátu erlend-
ir kröfuhafar fengið um 13,5 milljarða í
gjaldeyri að því gefnu að þeir kysu allir
þá leið að fá útgreiðslu í erlendri mynt
og kröfu á þrotabú Kaupþings. Líklegt
þykir að þeir hafi fremur kosið að fá
greitt í krónum en að taka á sig þá
áhættu að fá borgað með kröfu á hend-
ur Kaupþingi miðað við 16% nafnvirði
krafna á búið. Mikil óvissa ríkir um
endanlegar heimtur kröfuhafa föllnu
viðskiptabankanna.
Gjaldeyrir og Kaupþingskrafa
Sú staðreynd að sumir erlendir
kröfuhafar kusu fremur að fá greitt í
íslenskum krónum heldur en kröfu á
Kaupþing var á meðal þeirra atriða
sem gerði það að verkum að Seðla-
bankinn veitti ekki samþykki sitt fyrir
nauðasamningnum. Heimildir Morg-
unblaðsins herma að í nýju frumvarpi
að nauðasamningi verði samnings-
kröfuhöfum aðeins boðið að fá greitt í
gjaldeyri og kröfu á hendur Kaup-
þingi. Þannig séu auknar líkur á að
samþykki fáist frá Seðlabankanum.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins gæti frumvarp að nýjum
nauðasamningi hugsanlega litið dags-
ins ljós á haustmánuðum.
Samþykktar almennar kröfur á
Sparisjóðabankann, fyrir utan ESÍ,
nema um 83 milljörðum króna. Rétt
eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu í apríl þá gerði nauðasamn-
ingsfrumvarp SPB ráð fyrir að samn-
ingskröfuhafar myndu fá greitt 22,8%
samþykktra krafna sinna, eða sem
nemur um 19 milljörðum.
Seðlabankinn samþykkti
ekki nauðasamning SPB
Slitastjórn Sparisjóðabankans vinnur nú að gerð nýs nauðasamningsfrumvarps
Reynt aftur Ekki fékkst samþykki allra samningskröfuhafa SPB að frum-
varpi að nauðasamningi og SÍ vildi ekki veita undanþágu frá höftum.
18 INNLENTViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2013
AF HVERJU EKKI AÐ FÁ
MEIRA FYRIR MINNA?
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 - www.ofnasmidja.is
Pípulagnahreinsir
Perfect Jet
Síuhreinsihaus Stuðningssæti
U.V. Áburður
fyrir lok
Glasabakki
Yfirborðshreinsir
fyir skel
FituhreinsirFroðueyðir
Síuhreinsir
3499,-
1249,-
2899,-
2899,-2999,-
3299,-
3499,-
4499,-
1999,-
*Öll verð eru m/vsk og birt án ábyrgðar
Úrval fylgihluta fyrir heita potta
STUTTAR FRÉTTIR
● Atvinnuleysi í Bandaríkjunum mælist
nú í júlímánuði 7,4% sem er minna at-
vinnuleysi en spáð hafði verið. Í júní var
atvinnuleysið í landinu 7,6%.
Í síðasta mánuði urðu til 162 þúsund
ný störf í Bandaríkjunum sem reyndist
vera töluvert minna en ráð hafði verið
fyrir gert af sérfræðingum, sem höfðu
spáð því að störfum í Bandaríkjunum
myndi fjölga um 180 þúsund í júní.
Atvinnuleysi hefur ekki mælst minna
frá því í desember árið 2008 en þá var
það 7,3%. Í júlí í fyrra var atvinnuleysið
hins vegar orðið 8,2%.
Einkaneysla Bandaríkjamanna jókst
um 0,5% í júní og verðbólga var 1,3%.
7,4% atvinnuleysi
● Enska knattspyrnufélagið Coventry
stefnir í greiðslustöðvun eftir að tilboði
um nauðasamninga var hafnað af
kröfuhöfum félagsins á fundi í London.
Félaginu var skipaður fjárhaldsmaður
í mars síðastliðnum.
Fram kemur á fréttavef Breska ríkis-
útvarpsins, BBC, að félagið muni þó að
öllum líkindum hefja keppnistímabil sitt
í annarri deild bresku deildarinnar nú á
laugardag. Félagið mun þó að öllum lík-
indum tapa stigum vegna þessarar
stöðu.
Knattspyrnufélagið
Coventry í þrot
Tekjur The New York Times Co.
drógust saman um 1% á öðrum árs-
fjórðungi þessa árs, samkvæmt upp-
gjöri sem kynnt var í gær. Þrátt fyrir
að áskriftum af dagblaðinu New
York Times hafi fjölgað hafa auglýs-
ingatekjur dregist saman með þess-
um afleiðingum.
Tekjur félagsins á öðrum ársfjórð-
ungi voru 485,4 milljónir dollara,
sem jafngildir tæplega 58 milljörð-
um íslenskra króna.
Auglýsingatekjur hafa dregist
saman um 6% miðað við sama tíma-
bil í fyrra. New York Times tók þá
ákvörðun að selja aðgang að fréttum
á vefsíðu sinni til að mæta samdrætti
í auglýsingatekjum. Áskriftarsala
jókst um 5% á öðrum ársfjórðungi og
er þá meðtalin netáskrift að New
York Times og Boston Globe.
Meðal þess sem fram kom í til-
kynningu frá New York Times Co.
var að netáskriftum að alþjóðlegu
blaði félagsins, sem áður hét Herald
Tribune, hafi fjölgað um 35% milli
ára og eru áskrifendurnir nú um 699
þúsund.
Netáskrift Áskrifendum að alþjóðlegu netútgáfunni, áður Herald Tribune,
fjölgaði um 35% og eru þeir nú rétt tæplea 700 þúsund talsins.
Fleiri áskrifendur
Tekjur The New York Times dróg-
ust saman á 2. ársfjórðungi um 1%
!"# $% " &'( )* '$*
++,-./
+/.-01
++0-23
4+-.,
+,-,15
+5-,+2
+41-,5
+-+,44
+5,-0,
+25-40
++,-31
+/.-,
++0-/5
4+-+24
4.-.41
+5-,15
+45-34
+-+,25
+/.-.4
+25-1/
4++-3/50
++,-10
+/+-30
++2-4+
4+-4+0
4.-./2
+/-.+,
+45-15
+-+,,4
+/.-22
+2/-+4
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Samkvæmt frumvarpi að nauða-
samningi sem var lagt fyrir samn-
ingskröfuhafa í mars síðast-
liðnum, sem Morgunblaðið hefur
undir höndum, átti ESÍ, dóttur-
félag sem er að fullu í eigu Seðla-
bankans, að fá um 73 milljarða í
sinn hlut. Heimildir Morgunblaðs-
ins herma að í nýju frumvarpi að
nauðasamningi Sparisjóðabank-
ans sé ekki áætlað að miklar
breytingar verði á heimtum Seðla-
bankans.
Gert var ráð fyrir að um 29 millj-
arðar króna af óveðsettum eignum
SPB kæmu í hlut Seðlabankans ef
nauðasamningur næði fram að
ganga. Til viðbótar fengi bankinn
skuldabréfakröfur á gömlu bank-
ana, ríkisskuldabréf og skuldabréf
á Íbúðalánasjóð. Eru kröfurnar
metnar á 44 milljarða.
Heimtur ESÍ verði þær sömu
SEÐLABANKINN ÁTTI AÐ FÁ 73 MILLJARÐA KRÓNA Í SINN HLUT