Morgunblaðið - 03.08.2013, Síða 23

Morgunblaðið - 03.08.2013, Síða 23
UMRÆÐAN 23 Bréf til blaðsins MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2013 Mér finnst mjög gaman að fá mér dag- legan göngutúr frá heimili mínu sem er á Bárugötu og labba Laugaveginn upp á Hlemm og til baka. Þetta tekur mig klukkutíma og ég segi án þess að roðna að ég hitti og sjái miklu skemmtilegri fugla á þessari leið en þegar ég labba kring- um Tjörnina og er þó sú leið líka skemmtileg. Hinn 24. júlí var ég að koma úr einni slíkri ferð og dáðist þá að því að búið er að mála og pússa öll húsin á Laugaveginum svo það er borginni til sóma að sjá hvað einka- framtakið hefur staðið sig vel. Svo kom ég á Ingólfstorg sem ég held svo mikið upp á. Þar er gosbrunnur sem líkist hörpu og oft hefur mér sviðið að sjá sóðaskapinn þar í kring. Oftar en ekki er bréfarusl í tjörninni en nú tekur út yfir allan þjófabálk. Þennan dag voru bekkirnir á þessu litla hringtorgi aðeins ein fjöl, en eiga að vera tvær í sætinu og bakið alveg horfið. Mikið rusl er á staðnum og er það til skammar „Hrein torg fögur borg“. Var einhver að hlæja. Ekki ég. Mér finnst grátlegt hve nokkrir rugludallar geta skemmt mikið. Borgin verður að koma þessu í lag í hvelli og setja reglur um það að allir sem rusli út í Reykjavík skuli um- svifalaust sendir til dvalar í einni af þessum eyjum Reykjavíkur sem hvort sem er enginn býr í. Þar megi þeir rífa upp grasið og spýta út úr sér eins miklu tyggjói og þeir vilja. Allavega gera eitthvað drama- tískt til að kenna parti af þjóð vorri að haga sér eins og siðuðu fólki sæmir. Eftir Heiðar Róbert Ástvaldsson Heiðar Róbert Ástvaldsson »Mikið rusl er á staðnum og er það til skammar „Hrein torg fögur borg“. Var ein- hver að hlæja. Höfundur er danskennari. Gosbrunnur við Ingólfstorg til skammar Þar sem þú, Svavar Gestsson, hefir ekki svarað bréfum frá mér neyðist ég til að senda þér bréf í Morg- unblaðinu. Þú varst ritstjóri Þjóð- viljans 1983 þegar Ingi R. Helga- son, lögmaður, gekk frá arfleiðsluskrá Magnúsar Sigurðs- sonar, Grettisgötu 76, Reykjavík. Þess skal getið að undirritaður og Magnús eru bræðrasynir. Eign Magnúsar var þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð og tveggja her- bergja íbúð í kjallara á Grettisgötu 76. Þessi erfðaskrá var gerð í Reykjavík 7. febrúar 1983. Magnús afsalaði í kjölfarið íbúð sinni til Þjóðviljans og fluttist á Grund. Hann lést þann 10.9. 1985 og sá út- gáfufélag Þjóðviljans um greftrun Magnúsar og þar komu kirkjugarð- ar Reykjavíkur að. En þeir voru ekki beðnir um að merkja leiðið eða setja kross á það með spjaldi sem nafn hins látna væri grafið á. Þegar ég hugðist vitja leiðis Magn- úsar 26 árum síðar þurfti ég að fá hjálp frá starfsmanni kirkjugarðs- ins til að finna leiðið, ég bjóst við að sjá fallegan legstein á leiðinu. Þar var ekkert að sjá nema númer. Ég hringdi í Svavar og sagðist vera ósáttur við að það væri ekki leg- steinn á leiði Magnúsar. Hann tók mér ákaflega vel og sagðist ætla að tala við eldri flokksmenn sína. Það leið um hálfur mánuður þá kom ég að leiðinu, þá var kominn trékross með áletraðri plötu með nafni Magnúsar, fæðingardegi og dán- ardegi og hann væri frá Torfgarði, engin hlýleg kveðja frá þeim. Ég hringdi í Svavar. Hann sagð- ist vera búinn að merkja leiðið, nú voru ekki þægilegheitin hjá honum, heldur embættismannahrokinn. En með því að setja trékross á leiðið viðurkenndu þeir að Magnús átti skilið að fá gröfina merkta. Ég get nú ekki annað en dáðst að Svavari og félögum hvað þeir voru fljótir að safna peningum fyrir krossinum og setja hann á leiðið, en karakterinn hjá þessum mönn- um, hvar er hann? BRYNLEIFUR SIGURJÓNSSON, Reykjavík. Bréf til Svavars Gestssonar Frá Brynleifi Sigurjónssyni: Valdimar Jóhann- esson skrifaði gegn íslam hér í Mogg- anum um daginn. Ekki skal ég mót- mæla því sem hann – og margir fleiri – segja um pólitískt ísl- am, íslamisma. Það er stjórnmálahreyfing til hægri við Adolf Hit- ler, hún berst fyrir einræði í guðs nafni, undirokun kvenna, dauðarefsingu homma og hvers sem yfirgefur ísl- am. Og sjálfsagt er að berjast gegn þessari hreyfingu, með vopn- um, t.d. í Afganistan, því auðvitað taka þessir menn ekki þátt í rök- ræðum um trúarbrögð. Það væri guðlast að mati þeirra. En það er rangt hjá Valdimari að leggja alla múslima að jöfnu, og gera þá ábyrga fyrir þessum of- stækismönnum, sem eru lítill minnihluti múslima. Fyrir því eru a.m.k. þessi rök: Fólk alið upp í löndum þar sem íslam er ríkjandi trúarbrögð er meira en milljarður manns að tölu. Enginn getur þekkt allt þetta fólk, sem er af mismundandi mennta- stigi, mismunandi stéttum og þjóð- erni. Það er hreinn barnaskapur að alhæfa um það. Enda er aug- ljóst að margt af þessu fólki er umburðarlynt, og margt áhuga- laust um trúarbrögð. Og margir múslimar eru andstæðingar ísl- amista. Það sýnir sig best í Egyptalandi nú, þegar herinn setti íslamista frá völdum, fékk hann mikinn stuðning meðal almennings í þessu múslímska landi, þar er sannkölluð fjöldahreyfing gegn ísl- amistum. Á þeim tíma sem grimmilegar ofsóknir gegn „trúvillingum“ og gyðingum fóru fram í Evrópu, ríkti trúfrelsi í ísl- ömskum löndum – og ríkir enn. Þar búa bæði kristnir og gyð- ingar, þeir iðka trú sína í kirkjum og sýnagógum. Þeir þurftu bara að borga smáskatt sem músl- imar voru und- anþegnir, og það var nóg til að fjöldi manns gekk af trúnni og að- hylltist íslam. Ekki var nú trúarsannfær- ingin sterkari en svo! Til trúskipta þurfti engar ofsóknir, líkt og ætla mætti af grein Valdimars. En les- endur minnist trúvillingabrenn- anna í Frakklandi og á Spáni, m.a., og gyðingaofsókna á fyrri hluta síðustu aldar. Er það eðli kristindómsins, eða getur kristið fólk verið öðruvísi? Hafa Valdimar og aðrir andstæðingar moskna alls ekki tekið eftir ofstækisfullum bókstafstrúarmönnum meðal krist- inna og gyðinga? Á miðöldum voru forfeður okkar Valdimars það sem við nú mynd- um kalla villimenn, en í íslömskum löndum voru þá háskólar og bóka- söfn, og þar voru íslamskir lær- dómsmenn sem skiluðu forn- grískum menningararfi til Vesturlanda. Þetta eru svo al- kunnar staðreyndir, að ekki verð- ur hjá þeim litið. Ég hefi einhvers staðar lesið þá skýringu, að við- horfsbreyting hafi sigrað í ísl- ömskum löndum á hámiðöldum, bókstafstrú hafi náð yfirhöndinni gegn frálslyndi og lærdóms- dýrkun. En frálslyndi og lærdóms- dýrkun ríkti í margar aldir í ísl- ömskum löndum, svo bókstafstrúarofstæki er alls ekki eðlislægt í íslam. Að banna múslimum að byggja mosku, það er öruggasta leiðin til að afla þeirri byggingu fylgis. „Nú, svo þeir vilja ekki leyfa okk- ur það?! Þá skulum við gera það! Sýnum þessum vitleysingjum að þeir geti ekki ráðskast með okk- ur!“ Sjálfur er ég trúlaus, en mér finnst sjálfsagt að virða tilfinn- ingar fólks, og þá einnig trú þeirra, sem hana hafa. Einkum og sér í lagi þegar þeir segja að trú sé kærleikur. Og það trúaða fólk sem ég hefi kynnst er í stórum dráttum þannig, hvort sem um er að ræða gyðinga, múslima, kristna eða annað. Þau eiga miklu meira sameiginlegt en sundrar þeim. Kreddur einstakra trúarbragða skipta þetta fólk litlu máli, miðað við kærleiksríka trú þess. En auð- vitað réttlætir yfirlýst trú ekki þá sem reyna að gera guð ábyrgan fyrir sinni eigin þröngsýni og heimsku. Það virðist sameiginlegt öllum trúarbrögðum að segja: „Náð guðs er alls staðar. Fólk þarf bara að opna sig fyrir henni, taka henni.“ Er þetta ekki hið sama og við guðleysingjar segjum: Við getum sagt að allt sé að fara fjandans til, eða hinvegar að bæta megi ástandið. Veljum við fyrri kostinn, verðum við aðgerðalaus, og allt fer fjandans til. En veljum við bjartsýni, þá getum við gert okkar besta. Andstæðingar beggja eru bókstafstrúarmenn, þeir trúa á bók, og þar af leiðandi á mann sem túlkar bókina. Þeir eru ósjálf- stæðir, attaníossar, þ.e. konform- istar. Eftir Örn Ólafsson » Fráleitt er að gera alla múslima ábyrga fyrir ofstækisfullum bókstafstrúarmönnum, íslamistum. Örn Ólafsson Höfundur er bókmenntafræðingur í Kaupmannahöfn. Moskur og íslam Aukablað alla þriðjudaga Frábært atvinnutækifæri. Hesthús, reiðhöll og íbúð. Til sölu heil hesthúslengja við C-tröð 1 Víðidal Reykjavík, 340 ferm.,ásamt ca. 100 ferm. íbúð á efri hæð. Aðstaða eins og best verður á kosið. Þrjú sérgerði, stíur fyrir 18 hesta, reiðhöll 10m.x 15 m., þvotta- og þurrkaðstaða, stórt hlöðu og athafnapláss. Tilvalið fyrir tamningafólk, hestaleigu eða aðra starfsemi tengdri ferðamennsku. Fleiri myndir: http://solu-hestar.weebly.com/ Makaskipti á íbúð kemur til greina. Jón Egilsson hrl. S: 896-3677, 568-3737

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.