Morgunblaðið - 03.08.2013, Side 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2013
✝ Sólrún ArnaErlingsdóttir
fæddist 12. desem-
ber 1954. Hún lést á
heimili sínu í Mt.
Vernon í Washing-
tonfylki í Banda-
ríkjunum 24. júní
2013.
Kjörforeldrar
Sólrúnar, eða Lillu
eins og hún var
kölluð meðal ná-
inna ættingja, eru Lofthildur
Kristín Hjálmtýsdóttir, f. 22.
júní 1933, og Erlingur Theo-
dórsson, f. 17. júní 1934, d. 1.
janúar 2004. Systir Lillu er Mar-
grét Theodorsson Haynes, f. 9.
nóvember 1961.
Lilla giftist Dani-
el Ray Henderson.
Þau eignuðust fjög-
ur börn sem eru:
Jesse Ray, f. 1973,
Kristinn Ray, f.
1977, Shauna og
Shannon, fæddar
1978. Barnabörnin
eru orðin fimm
talsins. Lilla og
Dan skildu. Lilla
var í sambúð með Charles Red-
ford (Chuck). Lilla útskrifaðist
úr high school þegar hún var 18
ára.
Útför Sólrúnar Örnu fór fram
í Vesturheimi.
Nú er hún Lilla frænka mín
horfin á braut af þessu tilveru-
stigi. Lilla, eða Sólrún Arna
eins og hennar skírnarnöfn var,
var búsett á vesturströnd
Bandaríkjanna í Washington-
fylki. Lilla hafði átt við veikindi
að stríða síðustu árin. Það
verður að segjast að enginn
veit hver örlög manns verða
fyrr en yfir lýkur. Það má
segja í tilviki Lillu frænku, að
hún hafi ekki haft svo mikið um
örlögin að segja þegar hún
fluttist með foreldrum sínum
um fermingaraldurinn vestur
til Bandaríkjanna, sem ákváðu
að freista gæfunnar í þessu fyr-
irheitna landi tækifæranna. Það
er erfitt að setja sig í spor
Lillu, að allt í einu rífa sig upp
og yfirgefa ættingjana, vinina
og fósturjörðina. Lilla sýndi
fljótt afburðaaðlögunarhæfni í
landi hinna miklu andstæðna.
Hún fæddi fjögur mannvænleg
börn sem öll búa í fæðingar-
fylkinu. Eftir því sem sagan
segir, þá var ekkert gert nema
búið væri að leggja það undir
hana þegar mikilvægar ákvarð-
anir voru teknar í fjölskyld-
unni. Hún var dugnaðarforkur
og afar ósérhlífin. Hvort rekja
megi það til genatískra áhrifa,
ofvirkni eða annarra þátta, þá
var hún fram úr hófi hjálpsöm
og greiðvikin. Ég man í gamla
daga þegar hún hringdi í okkur
á Baldursgötunni og spurði
hvort ekki væri þörf á að þrífa
á heimilinu. Hún var ekkert að
hafa fyrir því að bíða eftir
svari, heldur geystist af stað.
Nokkrum andartökum síðan
var hún byrjuð að taka allt skó-
tau og henda því út á gangstétt
og lét hendur svo sannarlega
standa fram úr ermum við þrif-
in. Lilla var einstaklega gjaf-
mild. Í þau skipti sem hún kom
til Íslands var hún klyfjuð gjöf-
um til að gefa ættingjunum.
Þetta lýsti henni vel. Hún var
einnig mjög stolt af sínum upp-
runa. Afi hennar, Jón Kr. Lár-
usson, gaf út bók um miðja síð-
ustu öld (Ævisaga
Breiðfirðings). Lilla átti eintak
af bókinni. Hún hafði áhuga á
að gefa hana út á ensku. Henni
entist því miður ekki aldur til
að koma því í verk. Á þessum
tímamótum er mér efst í huga
eftirsjá og söknuður af Lillu,
þessari fíngerðu, rösku og
hjartahlýju frænku minni sem
ekkert aumt mátti sjá.
Að lokum vil ég votta öllum
hennar nánustu ættingjum og
vinum mína dýpstu samúð.
Minningin lifir um góða
frænku.
Hjálmtýr Rúnar Baldursson.
Sólrún Arna
Erlingsdóttir
Ég stóð í Ráðhúsinu við Tjörn-
ina á málverkasýningu pabba
míns sem ég hafði ekki kynnst. Þú
hafðir komið símanúmerinu þínu
fyrir á einum veggnum, og á með-
an hjartað hamaðist í brjósti mér
setti ég númerið í símann minn.
Flækjur í fortíðinni höfðu gert
það að verkum að ég hafði ekki
vitneskju um hvar og hver þú
varst fyrr en eftir að ég flutti
heim frá Bandaríkjunum. Ég hélt
að þú vissir að ég var sonur þinn á
þeim tímapunkti, en annað var
upp á teningnum þegar ég loks
safnaði kjarki og sendi þér skila-
boð. Ég þurfti að hitta þig. Þú
hringdir í mig, og í kjölfarið upp-
lifðum við okkar fyrstu kynni. Við
hittumst í fyrstu vikulega á vinnu-
stofunni þinni þar sem við borð-
uðum banana, kex, osta og súkku-
laði á meðan við tækluðum
flækjur fortíðarinnar í samein-
ingu. Þú tókst mér opnum örmum
og sagðir við mig að þú værir
Jóhann Georg
Jóhannsson
✝ Jóhann GeorgJóhannsson
fæddist í Keflavík
22. febrúar 1947.
Hann lést á líkn-
ardeild LSH 15. júlí
2013.
Útför Jóhanns
fór fram frá Frí-
kirkjunni 25. júlí
2013.
ánægður að eiga
mig sem son. Mér
þótti ólýsanlega
vænt um að heyra
þig segja þetta við
mig, og mun ég ætíð
geyma þessa stund í
hjarta mér. Við
feðgarnir vildum
halda áfram að
rækta okkar sam-
band og vinna upp
þann tíma sem við
báðir höfðum því miður orðið af.
Við fengum þó fjögur dýrmæt ár
saman. Þú hafðir gefið mér tón-
listargenin í fæðingargjöf þannig
að við áttum strax sameiginlegt
áhugamál. Þú sendir mér oft
texta sem þú varst að vinna með
og baðst mig um að gagnrýna þá,
og þú gafst mér ráðleggingar um
ýmislegt sem tengdist mínum
tónlistarstörfum. Þú sýndir mér
áhuga, vináttu og kærleika og ég
fann að ég var ekki lengur sá
týndi sonur sem ég hafði oft upp-
lifað mig vera. Mér þótti ómetan-
lega vænt um síðbúnu brúðargjöf-
ina sem þú gafst mér og konunni
minni. Hún var í því fólgin að þú
leyfðir mér að velja málverk eftir
þig. Þú hafðir haft þennan háttinn
á þegar börnin þín giftu sig og þú
skildir mig ekki útundan þrátt
fyrir það að við hefðum ekki upp-
lifað brúðkaupsdaginn minn sam-
an – enda langt síðan. Þarna fann
ég aftur að ég var velkominn inn í
líf þitt. Ég er svo þakklátur fyrir
það að hafa fengið að kynnast þér,
yndislegu konunni þinni, systrum
mínum og fjölskyldunni allri.
Tíminn okkar saman var stuttur
en ég er þakklátur fyrir hverja
mínútu sem við áttum saman. Á
líknardeildinni eyddum við góð-
um tíma saman og einna minnis-
stæðust er sú stund þegar við
hlustuðum saman á fallega lagið
þitt um kærleikann í flutningi Óð-
manna. Þér leið ekki of vel lík-
amlega á þeirri stundu, en lifnaðir
allur við þegar ég spilaði það og
vildir láta taka myndir af okkur
tveimur og Kötu systur þinni sem
var hjá okkur. Þér var mikið í
mun að myndirnar væru teknar á
meðan lagið hljómaði. Þú gafst
mér stóra og dýrmæta gjöf: Mig
og þig. Nú ertu farinn, en ekki frá
mér, því þú munt alltaf vera hluti
af mér. Blóðið og tónlistin tengir
okkur saman sterkum böndum
sem enginn fær slitið. Takk fyrir
allt, pabbi. Ég sakna þín.
Við
þú málaðir mynd
af mér og þér
á striga tímans
skuggar og skarpir litir
stigu dans
á fölum grunni
mjúkar strokur
kysstu baugalínur
kærleikans verk
þú penslaðir mig inn
með léttum strokum
fram á hinstu stund
(Ívar Jóhann
– ort að útför lokinni.)
Þinn,
Ívar Jóhann.
Hinsta kveðja
frá skólafélögum úr VÍ-53
Sárt er vinar að sakna.
Sorgin er djúp og hljóð.
Minningar mætar vakna.
Margar úr gleymsku rakna.
Svo var þín samfylgd góð.
Góða minning að geyma
gefur syrgjendum fró.
Til þín munu þakkir streyma.
Þér munum við ei gleyma.
Sofðu í sælli ró.
(Höf. ók.)
Birna G. Bjarnleifsdóttir.
Elsku amma mín hefur kvatt
þennan heim. Amma var alveg
einstaklega góð kona og umvafði
mig hlýju. Hún var ein af þeim
yndislegustu og bestu mann-
eskjum sem ég hef kynnst og
Lína Lilja
Hannesdóttir
✝ Lína LiljaHannesdóttir
fæddist í Reykjavík
14. september
1935. Hún lést á
hjúkrunarheim-
ilinu Eir 18. júlí
2013.
Útför Línu fór
fram frá Garða-
kirkju 29. júlí 2013.
betri ömmu var
vart hægt að hugsa
sér. Enda vildi hún
allt fyrir alla gera,
sérstaklega okkur
barnabörnin. Það
var alltaf jafn nota-
legt að koma í
heimsókn til ömmu
og afa á Hagaflöt-
ina. Amma vildi
auðvitað bjóða okk-
ur allt það besta
sem til var og hún þreyttist
aldrei á að snúast í kringum
okkur krakkana. Ef við vorum
ekki að gæða okkur á einhverju
góðgæti, þá var verið að baka,
vökva blómin í gróðurhúsinu,
veiða í læknum eða spila „rass-
inn úr buxunum“, eins og hún
orðaði það. Við spiluðum marías,
lönguvitleysu, manna og olsen
olsen út í eitt. Og auðvitað pass-
aði hún upp á það að láta mig
vinna svo litla barnabarnið yrði
ánægt og þá fékk ég titilinn ol-
sen olsen meistari. Það má segja
að amma hafi kennt mér
dönsku, við sátum yfir dönsku
skólabókunum þar sem við lærð-
um og lásum saman. Það er
henni að þakka hversu vel mér
gekk að læra dönskuna og ég er
henni þakklát fyrir það í dag.
Fastir punktar í tilverunni hjá
okkur krökkunum var pipar-
kökubakstur með ömmu fyrir
jólin þar sem öll barnabörnin
voru í aðalhlutverki. Í seinni tíð
hittist öll fjölskyldan í kakói og
kökum á aðfangadag kl. 14 til að
skiptast á pökkum. Þrátt fyrir
að jólamatur biði okkar kl. 18 þá
var kaffiborðið hjá ömmu eins
og ekki væri nein önnur veisla
þann daginn.
Fyrir mér var amma Lína
ekki bara amma heldur var hún
alveg einstakur og traustur vin-
ur. Nú kveðjum við þig, elsku
amma, með söknuð í hjarta en
minningar þínar munu lifa um
ókomna tíð.
Langt úr fjarlægð, elsku amma mín,
ómar hinzta kveðja nú til þín.
En allt hið góða, er ég hlaut hjá þér,
ég allar stundir geymi í hjarta mér.
Ég man frá bernsku mildi og kærleik
þinn,
man hve oft þú gladdir huga minn.
Og glæddir allt hið góða í minni sál,
að gleðja aðra var þitt hjartans mál.
Og hvar um heim, sem liggur leiðin
mín
þá lýsa mér hin góðu áhrif þín.
Mér örlát gafst af elskuríkri lund,
og aldrei brást þín tryggð að hinztu
stund.
Af heitu hjarta allt ég þakka þér,
þínar gjafir, sem þú veittir mér.
Þín blessun minning býr mér ætíð
hjá,
ég björtum geislum strái veg minn á.
(Höf. ók.)
Elsku amma Lína, mér þykir
óendanlega vænt um þig og er
þakklát fyrir að hafa átt þig sem
ömmu.
Þín
Lilja Lind.
Ég kynntist Alla eins og hann
var kallaður í daglegu tali er hann
kom hingað til Bíldudals um 1970
sem yfirumsjónarmaður kirkju-
garða fyrir þjóðkirkjuna. Þá starf-
aði ég hér við kirkjuna og var
nýbúinn að taka allan kirkjugarð-
inn hér og endurvinna hann. Ég
fékk eftir skoðun Aðalsteins á
garðinum fyrstu verðlaun fyrir
mína vinnu og leiddi það til þess að
hann fékk mig til að endurvinna
Aðalsteinn
Steindórsson
✝ Guðbergur Að-alsteinn Stein-
dórsson fæddist í
Kálfakoti í Mosfells-
sveit 1. október
1921. Hann lést í
Hveragerði 18. júlí
2013.
Útför Aðalsteins
fór fram frá-
Hveragerðiskirkju
27. júlí 2013.
marga kirkjugarða
eftir þetta og vann
ég frá 1989 til 1994
öll sumur í þessu
starfi með góða
menn mér til hjálp-
ar. Ég þakka hon-
um enn og aftur fyr-
ir það traust og
virðingu er hann
sýndi mér og kveð
hann með ljóði Her-
dísar Andrésdóttur.
Lækkar lífdaga sól.
Löng er orðin mín ferð.
Fauk í faranda skjól,
fegin hvíldinni verð.
Guð minn, gefðu þinn frið,
gleddu og blessaðu þá,
sem að lögðu mér lið.
Ljósið kveiktu mér hjá.
(Herdís Andrésdóttir.)
Friður Guðs blessi Aðalstein.
Jón Kr. Ólafsson, söngvari.
Elsku besti afi
minn. Það vakna svo margar góðar
minningar þegar ég hugsa til þín
að ég veit hreinlega ekki hvar ég á
að byrja. Þú, elsku afi, varst alltaf
til staðar fyrir mig, veittir mér
hjálparhönd við hvert tækifæri og
gerðir allt sem þú gast til að gera
mig og fjölskylduna hamingju-
sama. Hvort sem það var að lána
mér bílinn þinn, en ég fékk hann
svo oft og þú tókst það sko ekki í
mál að ég tæki bensín á hann,
Guðmundur Á.
Auðbjörnsson
✝ Guðmundur Á.Auðbjörnsson
fæddist á Eskifirði
4. október 1928.
Hann varð bráð-
kvaddur á heimili
sínu 19. júlí 2013.
Útför Guð-
mundar fór fram frá
Eskifjarðarkirkju
27. júlí 2013.
bjóða mér í skúffu-
köku sem þú fórst
sérferð út í búð að
kaupa því þú vissir
að hún væri uppá-
haldið mitt eða þá
bara að lauma smá-
pening í vasann
minn. Í kringum þig
ríkti svo mikill kær-
leikur og þótt þú haf-
ir alltaf verið að gera
öðrum gott varstu
svo þakklátur þegar eitthvað var
gert fyrir þig. Þú varst ekki bara
afi minn, heldur einnig vinur og ég
er svo þakklát fyrir að hafa fengið
að njóta nærveru þinnar þessi
nítján ár. Þú varst yndislegur í alla
staði og ég minnist þess bara að
hafa séð þig með bros á vör. Þú
verður alltaf til staðar í hjarta
mínu – þín verður sárt saknað.
Þín,
Ester.
✝
Hjartans þakkir til allra þeirra er sýndu okkur
hlýhug og samúð við andlát og útför eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
GUÐMUNDAR HEIMIS
RÖGNVALDSSONAR,
Brekkuhvammi 7,
Hafnarfirði.
Kristín Bjarnadóttir,
Sigurlaug Helga Emilsdóttir, John H. Frantz,
Birna Guðmundsdóttir,
Vignir Guðmundsson, Guðný Á. Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur hlýhug og vináttu vegna
andláts ástkærs föður míns, tengdaföður,
bróður okkar, mágs og frænda,
BJÖRNS TRYGGVA KARLSSONAR
kennara,
Ásbraut 5,
Kópavogi.
Guðmundur Tryggvason, Sanita Osa,
Ólöf Hulda Karlsdóttir,
Guðrún Karlsdóttir, Leo J.W. Ingason
og fjölskyldur þeirra.
✝
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur
vináttu og hlýhug við andlát
BALDURS FRÍMANNSSONAR,
Skálateigi 3,
Akureyri.
Lilja Hallgrímsdóttir,
Geir Baldursson, Svava Hauksdóttir,
Valborg Rut Geirsdóttir,
Baldur Geirsson,
Agnar Geirsson,
Gréta Baldursdóttir, Jón Pálmi Magnússon,
Lilja Sigurðardóttir,
Elísa Ósk Jónsdóttir,
Sóley Margrét Jónsdóttir
og systkini hins látna.